Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 6
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Norður-Evrópuklasinn
Reynsla af mismunandi
orkunýtniverkefnum
í Evrópu
Fimmtudagur, 4. október 2018
kl. 9:30 - 14:00, Léttar veitingar
Nánari upplýsingar og skráning á os.is
SAMGÖNGUR „Einhverjir ökumenn
biðu í svona fimm til tíu mínútur til
að spara gjaldið en flestir vildu bara
drífa sig,“ segir Gylfi Þórðarson,
framkvæmdastjóri Spalar, en í gær
var gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin
hætt.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
var síðastur til að borga fyrir að keyra
í gegnum göngin. „Hann færði svo
þeim fyrstu sem keyrðu frítt í gegn
blómvönd. Það reyndust vera ítalskir
ferðamenn sem voru svolítið hissa á
öllu umstanginu. Það var hægt að
útskýra málið fyrir þeim,“ segir Gylfi.
Hann segir að í kjölfar þess að
göngin verði afhent ríkinu til eignar
verði farið í það að leysa Spöl upp.
„Það gerist fljótlega eftir áramót en
það þarf að gera upp árið. Ég sjálfur
hætti hins vegar fyrr.“
Endurgreiðsla til þeirra sem eiga
inneign í göngin er þegar hafin en
einnig verður hægt að fá afsláttar-
miða endurgreidda. Að sögn Gylfa
verður hægt að sækja þessar endur-
greiðslur til loka nóvember.
Göngin voru opnuð fyrir umferð
þann 11. júlí 1998 en kostnaðurinn
var 5,4 milljarðar sem er um 13,5
milljarðar að núvirði. „Göngin hafa
haft mikla þýðingu fyrir marga. Við
vorum að skoða það hérna á skrif-
stofunni að frá því að göngin voru
opnuð hefur íbúafjöldi Reykjavíkur
vaxið um 18,1 prósent en á Akra-
nesi um 41,6 prósent. Menn geta
spáð í það hver helsta ástæða þess-
arar miklu aukningar á Akranesi er,“
segir Gylfi.
Samkvæmt Evrópureglum er
hámarksakstur um göngin átta þús-
und bílar að meðaltali á dag yfir árið.
„Það er langt síðan við spáðum því
að við næðum þessu hámarki í árs-
lok 2019. Það stefnir í að meðaltalið
í ár verði um 7.200 bílar. Reynslan frá
Noregi sýnir okkur að umferð eykst
um 10 til 30 prósent við það að gjald-
töku er hætt. Ég held að það sé ljóst
að hámarkinu verði náð ekki seinna
en 2020.“
Halldór Blöndal, sem var sam-
gönguráðherra á byggingartíma
ganganna, segist hafa spáð því við
vígslu þeirra að gjaldtöku yrði ekki
hætt þegar búið væri að borga þau
upp. „Ég taldi að menn myndu kjósa
að viðhalda veggjöldum til að fjár-
magna önnur göng sem þá væri
komin þörf fyrir. Ég er undrandi á
því að það hafi ekki verið skoðað af
meiri alvöru og sé ekki lengra komið
en raun ber vitni.“
Hann segir að allar áætlanir hafi
staðist við framkvæmdirnar á sínum
tíma. „Þessi göng voru mjög vel
undirbúin. Það voru gerðar miklar
rannsóknir en þetta sætti ámæli
ýmissa þingmanna sem töldu að
verið væri að fara illa með ríkisfé. Ég
taldi hins vegar að vanda þyrfti allan
undirbúning eins og kostur væri til
að koma í veg fyrir að eitthvað kæmi
upp á.“ sighvatur@frettabladid.is
Gjaldtöku hætt en styttist í
að göngin anni ekki umferð
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra fer síðustu gjaldskyldu ferðina um göngin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Mikil eftirsjá að góðum vinnustað
Sigrún Karlsdóttir vann sína
síðustu vakt í gjaldskýlinu við
Hvalfjarðargöngin síðastliðinn
fimmtudag. Hún var þó mætt á
svæðið þegar gjaldtökunni var
hætt í gær því hún vildi verða
vitni að því þegar Sigurður Ingi Jó-
hannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, tendraði græna
ljósið sem nú fær að loga.
„Ég hóf störf í desember 1998
og hef því verið hérna nánast frá
upphafi. Það hefur eiginlega allt
breyst síðan þá nema gjaldið. Það
var þúsund krónur í upphafi og
var það líka þangað til núna, þótt
það hafi lækkað um tíma.“
Hún segist ekki vita hvað taki
við hjá sér en áður en hún hóf
störf í göngunum vann hún í 20
ár í Akraborginni. „Það er mikil
eftirsjá, þú getur rétt ímyndað þér.
Þetta hefur verið góður vinnu-
staður.“
Sigrún segir að göngin hafi verið
algjör bylting fyrir Akurnesinga.
„Maður hefur séð það bara á leið
í vinnu á morgnana. Það er mikil
umferð af fólki á leið til vinnu í
Reykjavík.“
KjARAMál Bæjarráð Akureyrarkaup-
staðar samþykkti á fundi sínum á
miðvikudag ráðningarsamning og
launakjör Ásthildar Sturludóttur
bæjarstjóra. Ásthildur var ráðin
bæjarstjóri frá 14. september síðast-
liðnum til loka kjörtímabils.
Samkvæmt ráðningarsamningn-
um fær Ásthildur 1.150 þúsund
krónur í dagvinnulaun sem taka
breytingum samkvæmt launavísi-
tölu í janúar og júlí ár hvert. Ofan
á það leggst síðan stjórnendaálag
sem nemur 517.500 krónum, eða
45 prósentum af mánaðarlaunum
samkvæmt samningnum. Stjórn-
endaálag er sagt þóknun fyrir unna
yfirvinnu og allt áreiti utan dag-
vinnutíma, undirbúning, ferðatíma,
móttökur gesta og annað vinnu-
framlag utan dagvinnutíma.
Alls verða laun bæjarstjórans
því 1.667.500 krónur en Ásthildur
fær ekki greitt aukalega fyrir setu í
bæjarstjórn, bæjarráði eða öðrum
nefndum bæjarins. Bæjarstjóri fær
greitt fyrir akstur í þágu vinnu-
veitanda á eigin bifreið samkvæmt
skráningu í akstursdagbók. Bærinn
greiðir einnig kostnað bæjarstjóra
vegna notkunar á farsíma ásamt
kostnaði við heimanettengingar.
Bærinn leggur bæjarstjóra til far-
síma og fartölvu til notkunar í
störfum og kaupir líf- og slysatrygg-
ingu fyrir bæjarstjórann.
F r é t t a b l a ð i ð
greindi frá því
í maí að laun
b æ j a r s t j ó r a
A k u r e y r a r
v o r u a l l s
1.562 þúsund
krónur á síð-
asta ári. – smj
Bæjarstjórinn
fær 1,6 milljónir
Spölur mun afhenda
ríkinu Hvalfjarðar-
göngin til eignar við há-
tíðlega athöfn á morgun.
Samgönguráðherra varð
í gær síðasti ökumaður-
inn til að greiða veggjald
í göngin. Framkvæmda-
stjóri segir stutt í að
fjöldi bíla um göngin nái
leyfilegu hámarki.
Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri Akureyrar-
kaupstaðar.
DÓMSMál Íslenska ríkið var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmt til
að greiða karlmanni 100.000 krónur
vegna ólögmætrar frelsissviptingar.
Kröfu um ólögmæta handtöku og
óþarft ofbeldi við hana var hafnað.
Í desember 2012 var lögregla köll-
uð á heimili mannsins vegna gruns
um heimilisofbeldi. Þegar lögreglu
bar að garði var maðurinn ölvaður og
ósamvinnuþýður og gerði sig líkleg-
an til að ráðast á lögreglumenn. Þeir
vörðust honum með piparúða og
kylfum og færðu hann á lögreglustöð.
Við handtökuna brotnaði ölnar skaft
vinstri handleggs mannsins.
Dómari málsins taldi ekki að of
mikilli valdbeitingu hefði verið beitt
við handtökuna.
Hins vegar hefði maðurinn verið
færður á lögreglustöð og vistaður þar
í þrettán klukkustundir. Í skýrslum
var ekki að finna upplýsingar um
ástand mannsins morguninn eftir
handtökuna og því óútskýrt hví
hann var ekki látinn laus fyrr.
Fékk hann því 100 þúsund í miska-
bætur vegna þess þáttar málsins auk
dráttarvaxta frá 1. desember 2013.
– jóe
Fær miskabætur
vegna handtöku
viðSKipti Russell vísitölufyrirtækið
hefur upplýst að það muni færa
Ísland upp í flokk vaxtarmarkaða
(e. front ier market) við næstu end-
urskoðun í september að ári liðnu.
Ísland fór á athugunarlista fyrir ári
yfir lönd sem færa átti upp um flokk
í ljósi þess að fjármagnshöftum var
lyft hér á landi. Á meðal landa sem
falla munu í sama flokk og Ísland
eftir breytinguna eru Búlgaría, Eist-
land, Slóvakía og Malta.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, segir í samtali við Frétta-
blaðið að úr þessu mengi landa séu
búnar til vísitölur, þeirra þekktust sé
FTSE Frontier 50.
„Ég geri mér vonir um að á næstu
árum förum við upp um einn eða tvo
flokka hjá þeim,“ segir hann. „Við
viljum að sjálfsögðu komast í sama
flokk og hin Norðurlöndin sem er
efsti flokkurinn.“
Páll segir að í raun sé ekki mikið
sem vanti upp á. FTSE Russell noti
21 mælikvarða til að meta gæði
markaða og Ísland uppfylli 15. Ef
bankarnir og WOW air fari á íslenska
hlutabréfamarkaðinn og það yrðu
sæmileg viðskipti með bréfin
„færum við langleiðina með að upp-
fylla stærð markaðarins“.
Viss gagnrýni sem varði uppgjör
muni leysast þegar nýtt tölvukerfi
verði innleitt á næsta ári. Færa þurfi
lagaumgjörð sem varði skortstöður
og lánamarkað í svipað horf og í
nágrannalöndum þar sem lífeyris-
sjóðum og verðbréfasjóðum sé
heimilt að lána verðbréf. Þá standi
eftir aflandsmarkaður með krónur.
„Ég geri mér vonir um að á næsta
einu til þremur árum ætti að vera
hægt að sigla þessum málum í höfn.“
– hvj
Russell færir Ísland upp í
flokk vaxtarmarkaða
Við viljum að
sjálfsögðu komast í
sama flokk og hin Norður-
löndin.
Páll Harðarson,
forstjóri Kaup-
hallarinnar
Heildarlaun bæjarstjóra
Akureyrarkaupstaðar verða
1.667.500 krónur.
Fleiri myndir frá síðasta gjaldtökudeginum er að finna á
+Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLúS
2 9 . S e p t e M b e R 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b l A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-9
8
6
4
2
0
F
2
-9
7
2
8
2
0
F
2
-9
5
E
C
2
0
F
2
-9
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K