Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 8
Dómsmál „Þetta er virðingarvert og
í raun ekki hægt að ætlast til meira
af henni á þessu stigi,“ segir Odd-
geir Einarsson, verjandi Sævars
Ciesielski, um yfirlýsingu forsætis-
ráðherra í kjölfar sýknudóms Hæsta-
réttar í vikunni.
Í yfirlýsingunni segir Katrín að
málið hafi verið rætt á fundi ríkis-
stjórnar og að ríkisstjórnin fagni
niðurstöðunni. Hún beinir svo
orðum sínum til fyrrverandi sak-
borninga, aðstandenda þeirra og
annarra sem átt hafa um sárt að
binda vegna málsins. „Fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur
afsökunar á því ranglæti sem þið
hafið mátt þola.“ Undir yfirlýsing-
una skrifar Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra.
Í fréttatilkynningu kemur einnig
fram að starfshópur verði skipaður
til að leiða viðræður og sáttaumleit-
anir við aðila málsins og aðstand-
endur þeirra vegna þess miska og
tjóns sem þau hafa orðið fyrir.
„Mér finnst þetta réttilega að gert
og að staðið og vona að það komi
eitthvað gott út úr því fyrir fólkið,“
segir Jón Steinar Gunnlaugsson, verj-
andi Kristjáns Viðars Júlíussonar.
Hann segir verjendur ekkert hafa
rætt saman um framhaldið enda
störfum þeirra formlega lokið við
uppkvaðningu dóms.
„Ég vona að það verði staðið verk-
lega að því að reyna að tryggja það
að þeir sem þarna eiga hlut að máli
fái þær bætur sem geti talist sann-
gjarnar í stöðunni. Og þær þurfa
að vera býsna háar til að geta talist
það,“ segir Jón Steinar og bætir við:
„Minn maður hefur til dæmis verið
með lífið undir í þessu máli og þótt
enginn geti sagt til um hvernig líf
hans hefði orðið ef til þessa máls
hefði ekki komið, er alveg ljóst að
málið hefur orðið alveg gríðarlegur
áhrifaþáttur á hann og á allt hans
líf.“
Kristján Viðar og Sævar voru
ásamt Erlu Bolladóttur sakfelldir
fyrir rangar sakargiftir með dóm-
inum 1980 og var synjað um endur-
upptöku þess þáttar málsins með
úrskurðum endurupptökunefndar
í fyrra.
„Mér finnst fyllsta ástæða til að
endurupptaka þann þátt líka, enda
tel ég tel alveg sams konar annmarka
á þessum röngu sakargiftum eins og
var á öðrum skýrslum þessa fólks hjá
lögreglunni.“ Oddgeir tekur undir
með Jóni Steinari og telur marga
vera þeirrar skoðunar að leita eigi
eftir því að fá sýknu á þessum þætti.
Hann nefnir einnig í þessu sambandi
að aðrar leiðir kunni að vera færar
en sú að höfða mál til ógildingar á
ákvörðun endurupptökunefndar
eins og Erla hefur nefnt. „Það mætti
skoða hvort unnt er að sækja aftur
um endurupptöku á þeim grundvelli
að það sé komið nýtt gagn,“ segir
Oddgeir og vísar til hins nýja dóms
sem féll í vikunni. Hann bendir þó
á að störfum verjenda hafi formlega
lokið þegar dómur var upp kveðinn.
Framhaldið hafi ekki verið rætt enn
og sjálfur hafi hann ekki náð tali af
öllum aðstandendum Sævars eftir að
dómur féll. Dagurinn hafi verið stór
og einhverjir enn að jafna sig.
Jón Steinar setur einnig þann fyr-
irvara að starfi hans fyrir Kristján sé
formlega lokið og þeir hafi ekki rætt
framhaldið. „Ég veit ekkert hvað
Kristjáni finnst í þessu efni. Hann
segir mér það sjálfsagt áður en yfir
lýkur.“ adalheidur@frettabladid.is
Sanngjarnar bætur yrðu býsna háar
Gunnar V. Andr-
ésson tók þessa
mynd af Sævari
tveimur árum
áður en hann
lést árið 2011.
FréttAblAðið/GVA
Afsökunarbeiðni
ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin fagnar málalyktum
í einu umdeildasta sakamáli Ís-
landssögunnar.
Ég beini orðum mínum til
fyrrum sakborninga, aðstand-
enda þeirra og annarra sem átt
hafa um sárt að binda vegna
málsins.
Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
bið ég ykkur afsökunar á því rang-
læti sem þið hafið mátt þola.
Reykjavík, 28. september 2018
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Verjendur segja að sýkna
ætti Erlu, Kristján og
Sævar af röngum sakar-
giftum. Bæturnar þurfi
að vera háar til að teljast
sanngjarnar. Ríkisstjórn-
in hefur beðið þolendur
málsins afsökunar.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 l A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-A
C
2
4
2
0
F
2
-A
A
E
8
2
0
F
2
-A
9
A
C
2
0
F
2
-A
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K