Fréttablaðið - 29.09.2018, Síða 8

Fréttablaðið - 29.09.2018, Síða 8
Dómsmál „Þetta er virðingarvert og í raun ekki hægt að ætlast til meira af henni á þessu stigi,“ segir Odd- geir Einarsson, verjandi Sævars Ciesielski, um yfirlýsingu forsætis- ráðherra í kjölfar sýknudóms Hæsta- réttar í vikunni. Í yfirlýsingunni segir Katrín að málið hafi verið rætt á fundi ríkis- stjórnar og að ríkisstjórnin fagni niðurstöðunni. Hún beinir svo orðum sínum til fyrrverandi sak- borninga, aðstandenda þeirra og annarra sem átt hafa um sárt að binda vegna málsins. „Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á því ranglæti sem þið hafið mátt þola.“ Undir yfirlýsing- una skrifar Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra. Í fréttatilkynningu kemur einnig fram að starfshópur verði skipaður til að leiða viðræður og sáttaumleit- anir við aðila málsins og aðstand- endur þeirra vegna þess miska og tjóns sem þau hafa orðið fyrir. „Mér finnst þetta réttilega að gert og að staðið og vona að það komi eitthvað gott út úr því fyrir fólkið,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, verj- andi Kristjáns Viðars Júlíussonar. Hann segir verjendur ekkert hafa rætt saman um framhaldið enda störfum þeirra formlega lokið við uppkvaðningu dóms. „Ég vona að það verði staðið verk- lega að því að reyna að tryggja það að þeir sem þarna eiga hlut að máli fái þær bætur sem geti talist sann- gjarnar í stöðunni. Og þær þurfa að vera býsna háar til að geta talist það,“ segir Jón Steinar og bætir við: „Minn maður hefur til dæmis verið með lífið undir í þessu máli og þótt enginn geti sagt til um hvernig líf hans hefði orðið ef til þessa máls hefði ekki komið, er alveg ljóst að málið hefur orðið alveg gríðarlegur áhrifaþáttur á hann og á allt hans líf.“ Kristján Viðar og Sævar voru ásamt Erlu Bolladóttur sakfelldir fyrir rangar sakargiftir með dóm- inum 1980 og var synjað um endur- upptöku þess þáttar málsins með úrskurðum endurupptökunefndar í fyrra. „Mér finnst fyllsta ástæða til að endurupptaka þann þátt líka, enda tel ég tel alveg sams konar annmarka á þessum röngu sakargiftum eins og var á öðrum skýrslum þessa fólks hjá lögreglunni.“ Oddgeir tekur undir með Jóni Steinari og telur marga vera þeirrar skoðunar að leita eigi eftir því að fá sýknu á þessum þætti. Hann nefnir einnig í þessu sambandi að aðrar leiðir kunni að vera færar en sú að höfða mál til ógildingar á ákvörðun endurupptökunefndar eins og Erla hefur nefnt. „Það mætti skoða hvort unnt er að sækja aftur um endurupptöku á þeim grundvelli að það sé komið nýtt gagn,“ segir Oddgeir og vísar til hins nýja dóms sem féll í vikunni. Hann bendir þó á að störfum verjenda hafi formlega lokið þegar dómur var upp kveðinn. Framhaldið hafi ekki verið rætt enn og sjálfur hafi hann ekki náð tali af öllum aðstandendum Sævars eftir að dómur féll. Dagurinn hafi verið stór og einhverjir enn að jafna sig. Jón Steinar setur einnig þann fyr- irvara að starfi hans fyrir Kristján sé formlega lokið og þeir hafi ekki rætt framhaldið. „Ég veit ekkert hvað Kristjáni finnst í þessu efni. Hann segir mér það sjálfsagt áður en yfir lýkur.“ adalheidur@frettabladid.is Sanngjarnar bætur yrðu býsna háar Gunnar V. Andr- ésson tók þessa mynd af Sævari tveimur árum áður en hann lést árið 2011. FréttAblAðið/GVA Afsökunarbeiðni ríkisstjórnarinnar Ríkisstjórnin fagnar málalyktum í einu umdeildasta sakamáli Ís- landssögunnar. Ég beini orðum mínum til fyrrum sakborninga, aðstand- enda þeirra og annarra sem átt hafa um sárt að binda vegna málsins. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á því rang- læti sem þið hafið mátt þola. Reykjavík, 28. september 2018 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Verjendur segja að sýkna ætti Erlu, Kristján og Sævar af röngum sakar- giftum. Bæturnar þurfi að vera háar til að teljast sanngjarnar. Ríkisstjórn- in hefur beðið þolendur málsins afsökunar. 2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 l A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 1 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 F 2 -A C 2 4 2 0 F 2 -A A E 8 2 0 F 2 -A 9 A C 2 0 F 2 -A 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.