Fréttablaðið - 29.09.2018, Qupperneq 12
Félags- og
faggreina-
fundir
Reykjanesbær:
Mánudaginn 1. október kl. 19:00 í Krossmóa 4.
Boðið verður uppá súpu og brauð á fundinum.
Reykjavík:
Þriðjudaginn 2. október kl. 20:00
í Borgartúni 30, 6. hæð.
Selfoss:
Miðvikudaginn 3. október kl. 19:00
í sal FIT að Austurvegi 56, 3. hæð.
Boðið verður uppá súpu og brauð á fundinum.
Akranes:
Fimmtudaginn 4. október kl. 20:00
í Jónsbúð að Akursbraut 13.
Vestmannaeyjar:
Föstudaginn 5. október kl. 12:00 í Kaffi Kró.
Boðið verður uppá súpu og brauð á fundinum.
Dagskrá fundanna verður:
1. Undirbúningur kjarasamninga
2. Lífeyrissjóðsmál
3. Önnur mál
Félags iðn- og tæknigreina
í október.
Atvinnulíf Alexander Kjerulf er
danskur ráðgjafi og eigandi fyrir-
tækisins Woohoo inc. sem sérhæfir
sig í að aðstoða fyrirtæki og stjórn-
endur í því að auka hamingju
starfsfólks á vinnustað. Á meðal
viðskiptavina eru Microsoft, LEGO
og IKEA.
Hann hélt erindi á ráðstefnunni
Bylting í stjórnun sem haldin var í
samstarfi við Viðskiptaráð Íslands
um nútíma stjórnunaraðferðir á
fimmtudag og lagði sérstaka áherslu
á það hvernig stjórnendur geta eflt
starfsfólk og aukið hamingju þess.
„Ég vek alltaf athygli á því hvert sem
ég fer að ánægja starfsmanna hefur
bein áhrif á afkomu fyrirtækja.
Stjórnendur eru oftast móttækilegir
fyrir því að þeim er nauðsynlegt að
stuðla að hamingju starfsmanna
sinna. En stundum ekki. Í verstu
tilfellunum ráðlegg ég fyrirtækjum
að reka stjórnendur sem hafa ekki
áhuga á því að bæta líðan starfs-
manna sinna,“ segir Alexander.
Hvernig metur þú stöðuna á
Íslandi?
„Atvinnuleysi er lítið hér á landi
og því eiga fyrirtæki í samkeppni
um hæfasta starfsfólkið. Stjórn-
endur eru því tilneyddir til þess að
stuðla að hamingju starfsmanna
sinna. Starfsfólk sem er ekki ham-
ingjusamt getur hreinlega farið og
fundið sér aðra vinnu. Íslendingar
þurfa að auka framleiðni og ná
betra samkeppnisforskoti. Ótal
rannsóknir sýna skýrt að ham-
ingjusamir starfsmenn skila betra
verki. Þeir eru framleiðnari og
meira skapandi. Þeir veita betri
þjónustu og viðskiptavinir eru þar
af leiðandi ánægðari. Það má segja
það að hjá þjónustufyrirtækjum sé
það sérstaklega mikilvægt að auka
hamingju starfsmanna. Nú er ferða-
þjónustan í miklum og örum vexti,
stjórnendum fyrirtækja í þeim geira
er hollt að huga að þessu.
Hér á landi hefur orðið þörf
umræða um kulnun í starfi
sem færist í vöxt á Íslandi. Áhersla
á hamingju á vinnustað verndar
gegn streitu og kulnun í starfi. Fólk
brennur síður út þegar það starfar á
vinnustað þar sem það finnur fyrir
því að það er metið að verðleikum,
Stundum á starfsfólk að forða sér burt
Ráðgjafinn Alexander Kjerulf er staddur hér á landi og leiðbeinir íslenskum stjórnendum um það hvernig þeir geta stuðlað að meiri
hamingju á vinnustaðnum. „Hamingjusamir starfskraftar eru skapandi, ná meiri árangri en aðrir starfsmenn og eru sjaldnar frá vinnu.“
að því sé sýndur áhugi og vinsemd,“
segir Alexander.
Hann segist velta því fyrir sér
hvers vegna kulnun í starfi færist í
aukana. „Ég hugsa að áhrifa efna-
hagshrunsins hér á landi gæti enn.
Fólk er í viðbragðsstöðu og leggur
mikið á sig. Það er einnig spenna í
atvinnulífinu, fólk vinnur mikið og
langan vinnutíma. Kannski er þetta
í þjóðarsálinni að vinna eigi að vera
erfiði. Þessu viðhorfi til vinnu ætti
fólk að breyta. Árangur verður
ekki meiri með því að slíta sér út
og vinna langan vinnudag. Hann
verður meiri með innihaldsríkari
og gleðilegri vinnudegi.“
Hver eru lykilatriðin? Hvernig geta
stjórnendur gert starfsmenn sína
hamingjusamari?
„Margir stjórnenda halda að þetta
snúist um laun, bónusa og fríðindi.
En þegar horft er til niðurstaðna
rannsókna um hamingju á vinnu-
staðnum þá leiðir ekkert slíkt til
meiri hamingju. Það gerir hins
vegar árangur í vinnu og innihalds-
rík sambönd á vinnustað. Þegar
þú skilar góðu starfi, ert metinn
að verðleikum og hefur að auki
þá tilfinningu að þú hafir tilgang,“
segir Alexander.
Er öllum stjórnendum fært að
auka við hamingju annarra?
„Nei. Það þarf ákveðna eiginleika
og greind til þess að gera það. Góðir
stjórnendur þurfa að vera góðar
manneskjur. Í sumum löndum hefur
menning áhrif á stjórnunarhætti. Í
norrænum löndum með jákvæðum
hætti. Ég ráðlegg fyrirtækjum að
losa sig við stjórnendur sem sýna
líðan starfsfólks síns lítinn áhuga.
Sumir stjórnendur sem hafa átt í
slæmum samskiptum geta vel lært
nýja hætti. Og það hefur oft gengið
vel. En fáeinir vilja ekki leggja
þetta á sig, finnst þetta húmbúkk.
Þeir hafa ekki það sem til þarf.“
Hverjir eru eiginleikar slæms
stjórnanda, sem dregur úr hamingju
á vinnustað?
„Þeim stendur á sama um fólk
og sjá fólk sem tæki til að ná mark-
miðum sínum. En lítið annað. Þeir
hafa ekki áhuga á því hvernig fólki
líður og stuðla með slæmum sam-
skiptum að streitu og vanlíðan á
vinnustaðnum.“
Og hvað ráðleggur þú starfsfólki
sem býr við slíkt atlæti?
„Ef það er útlit fyrir að ekki verði
tekið á vandanum þá ráðlegg ég
fólki að koma sér í burtu. Forða sér
hið snarasta. Fara. Skipta um vinnu-
stað eða láta færa sig um deild ef það
er hægt. Það getur haft mjög slæmar
afleiðingar fyrir heilsuna að búa við
slæma stjórnunarhætti. Það getur
leitt til hjartasjúkdóma og jafnvel
krabbameins,“ heldur Alexander
fram.
Getur þú gefið stjórnendum nokk-
ur góð ráð?
„Já, það eru nokkur mjög einföld
en góð ráð sem má reyna. Stundum
þarf að byrja alveg frá grunni og
kenna stjórnendum að bjóða góðan
daginn. Sumir storma beint inn,
setjast við tölvuna án þess að heilsa.
Það má byrja á því að bjóða starfs-
fólki sínu góðan daginn.
Það er mikilvægt að sýna virð-
ingu, horfast í augu við fólk, sýna
vinsemd. Það er líka mikilvægt að
fagna þegar við á. Til dæmis þegar
einhverju markmiði er náð. Þá er til-
efni til þess að bjóða upp á veitingar
og tala við starfsfólkið um hvers
vegna það er fagnað og framlag
þess. Sumir stjórnendur halda sífellt
áfram að næsta markmiði og staldra
aldrei við. Það getur stuðlað að því
að fólk finnur ekki fyrir tilgangi,“
segir Alexander.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Alexander Kjerulf ráðlagði íslenskum stjórnendum um hamingju og gleði á vinnustað í vikunni. FréttAblAðið/Eyþór
Ef að það er útlit
fyrir að ekki verði
tekið á vandanum þá ráðlegg
ég fólki að koma sér í burtu.
Forða sér hið snarasta. Fara.
Skipta um vinnustað eða láta
færa sig um deild ef það er
hægt. Það getur haft mjög
slæmar afleiðingar fyrir
heilsuna að búa við slæma
stjórnunarhætti. Það getur
leitt til hjartasjúkdóma og
jafnvel krabbameins.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 l A u G A r D A G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-9
3
7
4
2
0
F
2
-9
2
3
8
2
0
F
2
-9
0
F
C
2
0
F
2
-8
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K