Fréttablaðið - 29.09.2018, Side 47
CrossFit íþróttin hefur notið mikilla vinsælda meðal lands-manna undanfarin ár og með
opnun nýju stöðvarinnar í Lamb-
haga bjóða tvær Reebok Fitness
stöðvar upp á CrossFit aðstöðu
og æfingar, Holtagarðar og Lamb-
hagi. „Hér í Lambhaga munum við
bjóða upp á rúmlega 50 tíma í hverri
viku. Hefðbundnir WOD-tímar (e.
Workout of the day) verða í miklum
meirihluta en einnig er gott úrval
af tímum sem eru örlítið sérhæfðir
eins og ólympískar lyftingar (þriðju-
daga og sunnudaga), fimleikatími
(þriðjudag), teygjutími (laugardag)
að ógleymdum Endurance (sunnu-
dag),“ segir Brynjar Ingólfsson Cross-
Fit yfirþjálfari hjá Crossfit Kötlu
sem er með aðsetur í tveimur
stöðvum Reebok Fitness.
Hæfir öllum
Til að geta mætt í
hefðbundna WOD-
tíma þarf þó fyrst
að sækja grunn-
námskeið sem
stendur yfir í þrjár
vikur bætir Davíð
Örn Ólafsson,
CrossFit yfir-
þjálfari, við. „Nú
þegar er uppselt á
öll grunnnámskeið
okkar sem hefjast
1. og 2. október en
næsta grunnnámskeið
hefst svo 22. október og
verður kennt mánudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 19.15 í Lambhaga.”
Þeir eru sammála um að CrossFit
sé íþrótt sem hæfi fólki á öllum aldri
og þá skipti engu hvort viðkomandi
sé í góðu formi eða ekki. „Þú þarft
klárlega ekki að vera í formi til
að mæta í CrossFit. Þú mætir í
CrossFit til að komast í form. Stærsti
kosturinn að okkar mati við Cross-
Fit æfingar er að þær eru ofboðslega
fjölbreyttar. Vissulega kemur fyrir
að við endurtökum æfingar til að
mæla hvort við höfum bætt okkur
en þess fyrir utan er ólíklegt að
einhver leiði geri vart við sig. Annar
kostur er svo að í raun þarf bara að
mæta því það er búið að ákveða
hvað þú átt að gera. Svo er það bara
iðkandans að klára æfinguna.“
Sterkt samfélag
Margir kostir fylgja því að æfa
CrossFit hjá CrossFit Kötlu enda
bein tenging við Reebok Fitness
stöðvarnar segja þeir félagar. „Við-
skiptavinir hafa
aðgang að öllum
opnum tímum sem eru í boði í
öllum Reebok stöðvunum og margir
af iðkendum okkar nýta sér það,
sérstaklega hjólatíma, teygjutíma og
Yogatíma. Einnig má nefna langan
opnunartíma í Holtagörðum sem er
mikill kostur. Samfélagið í Kötlunni
er mjög sterkt og við munum eftir
fremsta megni reyna að hlúa að
því eins og hægt er þó við verðum
komin á tvær stöðvar. Margir hafa
eignast góða vini og kunningja á
æfingu í Kötlunni og jafnvel lífsföru-
naut. Nálægð þjálfara og iðkenda
spilar stóra rullu í Kötlusamfélaginu
en allir þjálfarar í Kötlunni mæta á
sömu æfingar og aðrir.“
Hjá Crossfit Kötlu starfa tíu þjálf-
arar á aldrinum 24-43 ára (5 konur
og 5 karlar) og allir þjálfarar eru með
L1 eða L2 réttindi.
Nánar á www.crossfitkatla.is.
CrossFit er fyrir þá sem vilja komast í form
Davíð Örn Ólafsson (t.v.) og Brynjar Helgi Ingólfsson. MYND/EYÞÓR
Katrín Björk
Eyvindsdóttir
(t.v.) er verk-
efnastjóri hóp-
tíma og Unnur
Pálmarsdóttir er
mannauðs- og
fræðslustjóri
Reebok Fitness.
MYND/laUFEY
Hvað er fram undan hjá ykkur í nýju Reebok Fitness stöðinni í Lambhaganum?
„Við bjóðum alla velkomna á
opnunarhátíð í Reebok Fitness
Lambhaganum og að prófa úrval
af opnum hóptímum, taka góða
æfingu í tækjasal, skemmta sér
eða einfaldlega líta við og skoða
glæsilegu nýju stöðina og fá um
leið upplýsingar um áskriftar-
leiðir,“ segir Unnur. „Við byrjum
á frábærum spinning tíma,
frumflutningur verður á nýjasta
líkamsræktarkerfinu í Body Pump
og Balance og boðið er upp á sjóð-
heitt Zumba. Einnig verður boðið
upp á Fusion Pilates í innrauðum
heitum sal, Hot Yoga og kynn-
ingu á nýju líkamsræktarkerfi,
Gladiator Workout, sem er fyrir
alla aldurshópa. Hóptímataflan
hjá okkur er mjög fjölbreytt og
allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi.“
Hverjar eru helstu nýjungar í
hóptímum og þjálfun hjá ykkur þar
sem þið bjóðið upp á fjölbreytta
opna hóptíma?
„Við höfum verið dugleg að fá
erlenda líkamsræktarfrömuði
til okkar í Reebok Fitness og að
mennta starfsfólk okkar. Við erum
ávallt að leitast við að bjóða upp
á það besta fyrir líkama og sál
fyrir viðskiptavini okkar,“ segir
Katrín. „Meðal vinsælla tíma má
nefna Body Balance, Yoga, Shape,
SWEAT, Gladiator Workout,
Zumba, Fusion Pilates, Hot Body,
Hot Yoga, Tabata, Body Pump, 60
ára og eldri og Trigger Point Pil-
ates. Við bjóðum upp á fjölbreytta
og nýjustu hóptíma og við sjáum
aukningu í einkaþjálfun því við-
skiptavinir eru duglegir að æfa í
tækjasalnum og blanda saman
tækjaþjálfuninni og hóptímum.
Þar sem við bjóðum upp á inn-
rauða heita hóptímasali þá er gott
að taka góðar teygjur eða skella
sér í innrauðan heitan Pilates eða
yogatíma fyrir líkama og sál.“
Hvaða námskeið eru þið að
bjóða upp á?
„Við bjóðum upp á vönduð og
fjölbreytt námskeið við allra hæfi
en sérstaða Reebok Fitness er að
bjóða upp á líkamsrækt fyrir alla
aldurshópa með ólík markmið í
huga. Úrvalið hefur aldrei verið
meira fyrir alla aldurshópa. Má
þar nefna UnglingaFit, Young
Gladiator Workout, Fusion Pilates,
Karla Yoga, Hot Power Toning,
Yoga og Gong námskeið, Strong
is the new skinny og fleiri,“ segir
Unnur. „Við hvetjum alla til að
mæta í dag og setja heilsuna og
markmiðin í fyrsta sætið. Við
eigum aðeins einn líkama og
verðum að huga vel að líkama og
sál til framtíðar. Andrúmsloftið
hjá okkur er notalegt, rólegt og
fjölskylduvænt og við bjóðum upp
á einvalalið einkaþjálfara, kennara
og starfsfólks.“
Hvetjið þið ekki alla, sem eru
ekki nú þegar komnir af stað, til að
koma og prófa?
„Við hvetjum svo sannarlega alla
til að koma og prófa líkamsrækt-
ina hjá okkur í Reebok Fitness.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu okkar, www.reebok-
Fitness.is, og við tökum fagnandi
á móti þér,“ segja þær Unnur og
Katrín að lokum.
Vönduð og fjölbreytt námskeið í boði fyrir alla
Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktarfrömuður er mannauðs- og fræðslustjóri Reebok Fitness og
Katrín Björk Eyvindsdóttir er verkefnastjóri hóptíma. Þær segja skemmtilega tíma fram undan.
CrossFit er íþrótt
sem hæfir fólki
á öllum aldri og
skiptir engu hvort
viðkomandi er í
góðu formi eða
ekki. Í nýju Ree-
bok stöðinni í
Lambhaga er
boðið upp á
glæsilega CrossFit
aðstöðu, frábær
tæki og úrvals
þjálfara.
FÓlK KYNNINGaRBlaÐ 9 l aU G a R DaG U R 2 9 . s E P t E m B E R 2 0 1 8
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
2
-B
F
E
4
2
0
F
2
-B
E
A
8
2
0
F
2
-B
D
6
C
2
0
F
2
-B
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K