Fréttablaðið - 29.09.2018, Side 54
Skólaþjónusta Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslu
auglýsir laust starf sálfræðings
í leik- og grunnskólum.
Staða sálfræðings hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu er laus til umsóknar.
Um er að ræða 80 -100% stöðu í afleysingu, til eins árs.
Starfsstöðin er á Hvolsvelli þar sem sálfræðingur vinnur í
þverfaglegu samstarfi með öðrum sérfræðingum, leik-
skólaráðgjafa, kennsluráðgjafa grunnskóla og náms- og
starfsráðgjafa. Á svæðinu eru fimm leikskólar og fimm
grunnskólar með u.þ.b. 780 börnum.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. desember
nk., eða eftir samkomulagi.
Starfssvið sálfræðings
• Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til foreldra barna og
starfsfólks leik- og grunnskóla.
• Þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga innan og utan
stofnunarinnar og seta í teymum um einstök börn innan
skólanna.
• Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf
í kjölfar greininga og eftirfylgd mála.
• Þátttaka í fræðslufundum og námskeiðahaldi fyrir
starfsfólk leik- og grunnskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem
sálfræðingur.
• Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Færni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu
samstarfi.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sálfræð-
ingafélags Íslands og Sambands ísl. Sveitarfélaga
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Umsóknir sendist í pósti á Skólaþjónusta Rang. og V-Skaft.,
Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli, eða í tölvupósti á netfangið
edda@skolamal.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá
um menntun og fyrri störf.
Frekari upplýsingar veitir Edda G. Antonsdóttir forstöðu-
maður Skólaþjónustu í netfanginu (edda@skolamal.is) eða í
síma 487-8107 / 862-7522.
Smiður óskast
Stólpi ehf. er traust og rótgróið fyrirtæki sem býður
gott starfsumhverfi og sinnir fjölbreyttum verkefnum.
Við leitum að smiðum með reynslu sem geta unnið
sjálfstætt, til framtíðarstarfa.
Menntun og hæfniskröfur eru eftirfarandi:
• Sveinsbréf í Húsasmíði
• Vönduð vinnubrögð.
• Kurteisi og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Góð íslenskukunnátta
Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti
(fridrik@stolpiehf.is) eða í síma 824 6166
á milli 8:30 og 16:00
Verslunarstjóri sér um verslunina, lager,
netverslun og símann ásamt fleirum.
KRUMMA ehf. er 32 ára gamalt
iðnfyrirtæki/heildsala/leikfangaverslun.
Upplýsingar um starfið: elin@krumma (ekki í síma)
VERSLUNARSTJÓRI
KRUMMA ehf. í Grafarvogi
óskar eftir verslunarstjóra.
Viltu vinna í þjónustuteymi Upplýsingatæknideildar?
Upplýsingatæknideild
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Óskað er eftir öflugum starfsmanni í þjónustuteymi Upplýsingatæknideildar.
Teymið sinnir uppsetningu og viðhaldi tölvubúnaðar á starfsstöðum borgarinnar ásamt notendaþjónustu við starfsmenn á
rúmlega þrjú hundruð starfsstöðum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á fagþekkingu, útsjónarsemi og
samskiptahæfni.
Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar rekur eitt stærsta tölvunet landsins með hartnær 10.000 útstöðvum fyrir um 25.000
notendur. Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni sem felast m.a. í innleiðingu nýjunga á sviði upplýsingatækni og
nútímavæðingu tæknilegra innviða. Þjónustuteymið skiptist í þjónustuborð sem tekur á móti verkbeiðnum og sinnir
fjarþjónustu við notendur og aðgangsstýringum, vettvangsþjónustuhóp sem fer á milli starfsstaða borgarinnar og sinnir
notendaþjónustu, uppsetningum og bilanagreiningum og verkstæði sem sinnir uppsetningu og viðgerðum á búnaði.
Í þjónustuteyminu eru um 20 manns og er það staðsett í Borgartúni 12-14.
Nánari upplýsingar veitir Dagný Einarsdóttir, teymisstjóri þjónustuteymis í síma 822 3081 og í gegnum tölvupóstfangið
dagny.einarsdottir@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíður Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/laus-storf
Umsóknarfrestur er til og með 15. október n.k.
Helstu verkefni
• Uppsetning á tölvum, prenturum, símum og öðrum
upplýsingatæknitengdum búnaði sem notaður er á
starfsstöðum Reykjavíkurborgar.
• Uppsetning á hugbúnaði.
• Bilanagreining á tölvubúnaði og netkerfum.
• Notendaþjónusta og ráðgjöf við starfsmenn
Reykjavíkurborgar.
Hæfniskröfur
• Menntun í tölvunarfræði, kerfisfræði, rafeindavirkjun eða
önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af greiningu vandamála í tölvu- og netkerfum.
• Góð þekking á almennu tækniumhverfi.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Skipulag í vinnubrögðum.
• Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri og
þróast í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2018.
Sótt er um störfin á vef Háskóla Íslands undir laus störf.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og
vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn eru í föstum störfum við skólann
og um 2.200 lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Háskóli Íslands
starfar á fimm fræðasviðum, býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli
landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám í öllum helstu fræðigreinum.
Pip
ar
\T
BW
A
\
S
ÍA
NÝ STÖRF Á UPPLÝSINGATÆKNISVIÐI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Upplýsingatæknisvið er nýtt svið innan Háskóla Íslands. Sviðið stýrir þróun upplýsingatæknimála
og sér um hugbúnaðargerð háskólans, þ.m.t. Uglu sem er notuð sem aðalkerfi flestra háskóla
landsins. Sviðið sér um rekstur upplýsinga- og fjarskiptakerfa, notendaþjónustu og innkaup á
upplýsingatæknibúnaði.
KERFISSTJÓRI HEILSUBRUNNS
Starfssvið
• Þátttaka í þróun og uppbyggingu Heilsubrunns
sem verður gagnasafn ætlað rannsóknaraðilum
innan háskólans
• Ábyrgð gagnvart rekstri Heilsubrunns
• Kerfisstjórnun annarra kerfa
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Haldbær reynsla af kerfisstjórn
• Rík þjónustulund
• Þekking á Windows og Linux miðlaraumhverfi
• Sjálfstæði og frumkvæði
• Hæfni í mannlegum samskiptum
VEFFORRITARI
Starfssvið
• Þróun vefja Háskóla Íslands
• Þarfagreining, samræming og þróun
upplýsingatæknikerfa
• Ráðgjöf um upplýsingakerfi
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun eða sambærilegt sem nýtist í starfi
• Þekking á forritun, kerfishönnun og kerfisstýringu
• Þekking á Drupal vefumsjónarkerfum
• Sjálfstæði og frumkvæði
• Hæfni í mannlegum samskiptum
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-F
1
4
4
2
0
F
2
-F
0
0
8
2
0
F
2
-E
E
C
C
2
0
F
2
-E
D
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K