Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 84
Heimatilbúið gæludýr með gul augu og rauðan blikkandi nebba. Þótt föndrað sé með rafmagn og snúrur er það hættulaust og krakkavænt. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Það er einstaklega gaman að standa fyrir vinnusmiðjum fyrir krakka sem fullorðnir geta líka verið þátttakendur í,“ segir Ninna Margrét Þórarinsdóttir, teiknari og hönnuður, sem stjórnar blikksmiðjunni í Sólheimasafni í dag. Þar er síðasti laugardagur mánaðarins jafnan einstaklega ljúfur og boðið upp á skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur þeirra. „Þegar föndri og einfaldri tækni er blandað saman gerast töfrar sem fara jafnt inn á áhugasvið barna og fullorðinna því allur aldur hefur gaman af því að leika sér með þennan efnivið,“ segir Ninna sem hefur áður stýrt tækniföndri við miklar vinsældir. „Til dæmis útbjuggum við jólakort með blikkandi ljósum á aðventunni í fyrra en nú ætlum við að búa til skemmtilegar furðuverur úr alls konar dóti sem annars væri á leið á haugana,“ segir Ninna sem er búin að safna dýrmætu rusli í stórum stíl til þess eins að gefa því nýtt og spennandi líf í höndum barna. „Krakkarnir fá að spreyta sig á að búa til einfaldar rafrásir og tengja þær saman við litrík ljós sem hægt er að láta blikka í endalausum útfærslum. Við notum LED-perur og batterí sem við tengjum við slökkvara, til dæmis fígúrur sem geta verið með blikkandi augu eða í blikkandi fötum. Börnum þykir þetta agalega spennandi og það er greinilegt að þau fá ekki mikið að leika sér með rafmagn heima,“ segir Ninna og hlær, „en af því að hægt er að notast við leiðara sem er varinn innan í límbandi frá batteríi yfir í peru verður þetta allt voðalega krakkavænt og öruggt. Þau verða svo hreykin að sjá afraksturinn og hvernig allt saman virkar þegar búið er að útskýra fyrir þeim plús og mínus og hvernig kviknar á ljósinu. Þetta er því ekki bara föndur heldur líka heilmikill lærdómur.“ Skrúfað frá ímyndunaraflinu Blikksmiðja Ninnu verður á faralds- fæti næsta árið og næst í Gerðubergi í október. „Það kemur á óvart hversu margt er hægt að skapa úr rusli og mér finnst óskaplega gaman að sýna fram á hversu undurfallega skúlptúra, hljóðfæri og rafmagnsljós má útbúa með smávegis af málningu og lími,“ segir Ninna í miðjum ruslahaugnum sem hún segir vaxa á methraða. „Svo má fara heim með góssið og láta lýsa í herberginu því LED-ljósin gefa mjög flotta birtu í myrkrinu og hægt að velja perur í öllum litum og gera hvað sem maður vill með því að nota þau í munstur eða augu. Það lifir líka lengi á perunum og hægt að slökkva og kveikja að vild.“ Hún segir góða tilfinningu og gefandi að skapa úr rusli. „Það skrúfar frá ímyndunaraflinu að horfa skapandi augum á rusl og ætla sér að gera nýtt úr því. Það þarf Furðuverur með blikkandi augu Borgarbókasafnið í Sólheimum breytist í blikksmiðju eftir hádegi í dag. Þar geta fjölskyldur leyft ímyndunaraflinu að njóta sín í heillandi tækniföndri með litríkum LED-ljósum. Ninna Margrét Þórarinsdóttir er hönnuður og kennari. Hún stýrir fjölskyldu- vænni og tæknivæddri blikksmiðju í Sólheimasafni í dag. MYND/ANTON BRINK Æðisleg stelpa með gul blikk- andi augu og ómótstæðileg augnhár, gerð úr pappa og klósett rúlluhólk. heldur ekki alltaf að kaupa nýtt og í vinnusmiðju sem þessari verður sköpunarkrafturinn enn öflugri en með keyptu dóti. Tækniföndrið eykur líka vitund barna um verð- mæti sem annars færu til spillis, og ekki síst foreldranna. Þetta er því góð stund til að pæla í endurvinnslu með mömmu og pabba, eða afa og ömmu í skemmtilegri fjölskyldusamveru.“ Blikksmiðjan verður opnuð klukkan 13 í dag og stendur fram á miðjan dag. „Maður þarf alls ekki að vera tækninörd til að njóta sín í tækni- föndri en tækninördar sækja að sjálfsögðu í þetta og kunna á þessu tökin. Hinir fá hjálp frá mér og ég sýni þeim hvernig á að fara að,“ segir Ninna full tilhlökkunar og vonast til að sjá sem flesta. Blikksmiðjan verður í Borgarbóka- safninu í Sólheimum 27. Allt efni verður á staðnum og þátttaka er ókeypis. Opið verður til klukkan 15 í dag, laugardag. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nánari upplýsingar um blaðið veitir Arnar Magnússon Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins, arnarm@frettabladid.is Sími: 512-5442 JÓLAHLAÐBORÐ Veglegt sérblað Fréttablaðsins um jólahlaðborð kemur út 5. október nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 5. október 14 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 F 2 -D 3 A 4 2 0 F 2 -D 2 6 8 2 0 F 2 -D 1 2 C 2 0 F 2 -C F F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.