Fréttablaðið - 29.09.2018, Qupperneq 99
Hjartkær eiginmaður minn,
faðir, afi og langafi,
Leifur Kristinn
Guðmundsson
Jökulgrunni 22, Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild LSH aðfaranótt
25. september sl. Útförin fer fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigrún Þuríður Runólfsdóttir
Runólfur Birgir Leifsson Arnheiður Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, systir og tengdadóttir,
Ellen Ásthildur
Ragnarsdóttir
Sléttahrauni 28, Hafnarfirði,
lést þann 24. september. Útför fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 4. október kl. 13.00.
Róbert Friðþjófsson
Ragna Björg Friðþjófsdóttir Páll Eliasen
Embla Sif Eliasen
tengdafjölskylda, systkini og systkinabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Agnes
Samsonardóttir
(Ninna)
skólaritari frá Þingeyri,
lést á líknardeild Landspítalans
25. september. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju,
fimmtudaginn 4. október klukkan 11. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans.
Linda Samsonar Gísladóttir
Örn Smári Gíslason Sigrún Gunnsteinsdóttir
Davíð Gíslason
Benjamín Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásta Guðjónsdóttir
Stekkjarholti 22, Akranesi,
andaðist á Höfða, dvalar- og
hjúkrunarheimili, 25. september.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
11. október kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimili Akranesi.
Drífa Garðarsdóttir Jóhannes Eyleifsson
Skúli Bergmann Garðarsson Lilja Kristófersdóttir
Halldóra Garðarsdóttir Gunnlaugur Sölvason
Guðrún Garðarsdóttir Karl Örn Karlsson
Friðgerður Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulega eiginkonan mín,
móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Líneik Guðlaugsdóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
10. september sl. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
3. október kl. 13.00.
Daníel Karl Pálsson
Stefán Þór Karlsson Sara Jónsdóttir
Fanney Björg Karlsdóttir Trausti Þór Sigurðarson
Guðlaugur Jakob Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín,
Áslaug Guðjónsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
20. september sl. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju mánudaginn 1. október
kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Styrktarsjóð langveikra barna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðjón Ágúst Luther
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar og tengdamóðir,
Guðrún Hrefna Elliðadóttir
Fannafold 118,
lést á líknardeild Landspítalans
23. september. Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 5. október
klukkan 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Ljósið og Krabbameinsfélagið.
Svavar Valur Svavarsson
Svavar Elliði Svavarsson Anastasia Dodonova
Viktor Páll Svavarsson
Hermann Orri Svavarsson Karen Birta Kjartansdóttir
Elskuleg fósturmóðir, tengdamóðir,
frænka, amma og langamma,
Ída Heiður Jónsdóttir
lést á Sólvangi sunnudaginn
9. september. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
starfsfólki Sólvangs yndislega umönnun.
F.h. aðstandenda,
Ævar Sigdórsson
Una Lilja Eiríksdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinvör Fjóla
Guðlaugsdóttir
Lindargötu 61, Reykjavík,
lést á Hrafnistu Reykjavík fimmtudaginn
6. september sl. Útförin hefur farið fram
og þökkum við innilega fyrir samúð og hlýhug við fráfall
hennar. Sérstakar þakkir til heimaþjónustunnar á Vitatorgi
Lindargötu sem og til starfsfólks á Hrafnistu.
Pálína Kristinsdóttir
Magnea I. Kristinsdóttir Haukur Hauksson
Magnús Kristinsson Edda Erlendsdóttir
Guðrún Kristinsdóttir Bragi Pálmason
Hafdís Kristinsdóttir
Reynir E. Kristinsson Gunnur Stella Kristleifsdóttir
Sigfús Þormar
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar,
Erna Arnar
Strandvegi 11,
Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
20. september.
Útför verður frá Garðakirkju 10. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins,
kt. 640169-4949, nr. 0101-26-054506.
Rannveig E. Arnar
Bernhard Örn Pálsson
Hákon Pálsson
Portettin eru í forgrunni hjá mér núna. Ég hef gert þau samsíða öðrum verkum gegnum áratugina en aldrei sýnt þau í heild sinni áður,“ segir Helgi Gíslason mynd-
höggvari sem hefur vinnustofu sína
opna gestum og gangandi um helgina.
Hann segir eitt og eitt höfuð hafa farið
í stofnanir á nokkurra ára fresti, en þar
fyrir utan hafi hann oft mótað vini og
samferðamenn hér og þar um landið.
„Þetta eru Þingeyingar, gamlir skóla-
félagar, þingmenn, fólk úr öllum geirum
mannlífsins. Verkin eru tilraunakennd
og ekki stór, kannski 10 til 20 cm há og
svolítið gróf.“
Eru hausarnir merktir? Gestir eru jú
forvitnir að vita hver er hvað.
„Já, þetta eru allt ákveðnir einstakl-
ingar og það kemur fram í texta. Það er
smá rannsóknarvinna á persónuleikum
þeirra á bak við, portrettin fjalla um
þá öðrum þræði. Ég kalla þetta tveggja
kaffibolla myndir – en það vill teygjast úr
þeim. Hitti kannski fólk inni í afdölum
einhvers staðar, sest þar inn í eldhús hjá
konu yfir kleinupotti, tek upp leirinn
minn og fer að vinna. Það er svona efni
sem ég er að sækja, þetta eru ekki raun-
sannar myndir af einstaklingunum, ég er
bara að fastsetja minningu.“
Hann kveðst lengi hafa haft aðstöðu
í gömlu iðnaðarhúsnæði í Gufunesinu.
Þar sé flottur salur með ellefu metra loft-
hæð. Ekki er efa að stærðin hefur komið
sér vel þegar hann vann að risa lista-
verki, Universum i Människans Tanke,
sem hann fór með til vesturstrandar
Svíþjóðar í sumar á sýninguna Skulptur
i Pilane 2018. „Mér var boðið að sýna
úti í náttúrunni, jú, verkið var stórt og
ég þurfti góða lofthæð til að gera það,“
segir listamaðurinn. Hægt er að kíkja á
verkið á pilane.org.
Nú stendur til að lagfæra húsnæðið
í Gufunesi sem Helgi er að vinna í,
borgin á það. „Mér datt í hug að sýna
þessar fíngerðu mannlýsingar í þessu
hráa húsnæði. Svo fannst mér kominn
tími til að setja þetta portrettsafn aftur
fyrir mig. Það er samt brot af mínu höf-
undarverki.“
Sýningin er í öðru húsi til hægri þegar
komið er inn um hliðið og er opin frá 10
til 18 í dag og á morgun.
gun@frettabladid.is
Tveggja kaffibolla myndir
Helgi Gíslason myndhöggvari er með vinnustofusýningu í gömlu áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi nú um helgina. Þar sýnir hann litla hausa í stórum stíl.
Helga þykir vænt um sitt fólk og klappar því á kinn. Hann hefur skapað margan manninn. Fréttablaðið/Eyþór
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 43L a U G a R D a G U R 2 9 . s e p T e m B e R 2 0 1 8
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-8
9
9
4
2
0
F
2
-8
8
5
8
2
0
F
2
-8
7
1
C
2
0
F
2
-8
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K