Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018
✝ VíglundurPálsson fædd-
ist á Hauksstöðum
í Vopnafirði 25.
maí 1930. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunda-
búð í Vopnafirði
28. maí 2018.
Foreldrar hans
voru Páll Methú-
salemson, f. 24.8.
1899, d. 1975, og
Svava Víglundsdóttir, f. 25.9.
1906, d. 1935. Seinni kona Páls
var Sigríður Þórðardóttir frá
Ljósalandi, f. 19.4. 1908, d.
1997, gekk hún börnum Páls í
móðurstað er hún giftist hon-
um 26.6. 1940. Reyndist hún
þeim sem besta móðir. Fyrir
voru Svanborg Björnsdóttir,
amma Víglundar, og Margrét
algeir Bjarkar, f. 1945, d.
2017. Svanborg S. Víglunds-
dóttir, f. 1953, m. Ellert Árna-
son, f. 1946. Svava Víglunds-
dóttir, f. 1955, m. Unnsteinn
Arason, f. 1941. Einar Víg-
lundsson, f. 1957, m. Jóhanna
Rögnvaldsdóttir, f. 1966. Anna
Pála Víglundsdóttir, f. 1960,
m. Gunnar Róbertsson, f. 1954.
Víglundur og Elín giftu sig
13. janúar 2018. Börn þeirra
eru: Selma Dögg Víglunds-
dóttir, f. 1975, m. Geirmundur
Júlíusson Hauksson, f. 1975.
Hilmir Víglundsson, f. 1976, m.
Sólveig Andrea Jónsdóttir, f.
1974. Stjúpbörn Víglundar:
Ester Jóhannsdóttir, f. 1952,
m. Albert Már Steingrímsson,
f. 1949. Grétar Ólafsson, f.
1960, m. Kolbrún Steingríms-
dóttir, f. 1961. Kristján Stef-
ánsson, f. 1964, m. Sólveig
Erla Hinriksdóttir, f. 1967.
Afabörn Víglundar eru 44
talsins.
Útför hans fór fram frá
Vopnafjarðarkirkju 8. júní
2018.
Víglundsdóttir,
móðursystir hans,
sem tóku að sér
heimilið og börnin
eftir andlát Svövu.
Alsystkini Víg-
lundar eru: Björn
Pálsson, f. 1931.
Guðlaug Páls-
dóttir, f. 1932, d.
2012. Erlingur
Pálsson, f. 1933.
Hálfsystkini:
Svava Pálsdóttir, f. 1941.
Þórður Pálsson, f. 1943. Ás-
gerður Pálsdóttir, f. 1946.
Gunnar Pálsson, f. 1948, d.
2016.
Víglundur kvæntist Jóhönnu
Kristbjörgu Einarsdóttur, f.
1928, d. 2003, þau skildu 1975.
Börn Víglundar og Jóhönnu:
Uppeldissonur Víglundar: Að-
Þannig týnist tíminn. Tíminn
er afstæður, stundum finnst
manni eins og hann standi í stað
og muni vara að eilífu. En allt
tekur enda, ekkert er eilíft.
Á þetta var ég minnt með
trega þegar þú kvaddir þennan
heim, elsku pabbi minn, þann
28. maí síðastliðinn. Aðstæður
mínar voru þannig að ég gat
ekki komið og dvalið hjá þér í
veikindum þínum eða setið hjá
þér þínar síðustu stundir hér á
jarðríki. Þú lést mig lofa þér,
eins og þú orðaðir það sjálfur,
að vera ekki að þvælast austur á
meðan Unnsteinn ætti í harðri
baráttu við erfið veikindi ásamt
öðru og við það stóð ég. Á 88
ára afmælinu þínu 25. maí síð-
astliðinn heyrði ég síðast rödd
þína sem er mér ljúf minning.
Elsku pabbi, þú áttir langt og
farsælt líf, þú varst einstaklega
vel af Guði gerður; ljúfur maður,
æðrulaus, heiðarlegur og hvers
manns hugljúfi. Þú varst ávallt
tilbúinn að greiða götur ann-
arra, leiðbeina, vera til staðar og
rétta hjálpar- og sáttarhönd. Ég
sá þig nánast aldrei skipta skapi
nema ef vera skyldi í kringum
kosningar enda varstu pólitískur
og hafðir sterkar skoðanir á
málefnum nærsamfélagsins þíns
sem og þjóðmálum.
Elsku pabbi, þú varst einstak-
ur og gerðir hvern dag sérstak-
an. Úr barnæsku minni á ég
ljúfar og góðar minningar sem
of langt væri að rekja hér. Okk-
ar samband samanstóð alltaf af
ást, trausti og virðingu. Oft átt-
um við einlæg og góð samtöl
sem við ræddum ekki við aðra
og ég mun geyma í hjarta mínu.
Við vorum pínu lík, pabbi minn,
og áttum skemmtilega og góða
samleið. Enda vorum við aðeins
fyrir utan rammann og fórum
okkar eigin leiðir, fyrir það er
ég þakklát.
Þú varst mikill gleðinnar
maður, naust þín vel á meðal
fólks. Þú varst gæddur einstak-
lega góðum frásagnarhæfileik-
um, hafðir góðan húmor og
varst sögumaður mikill, enda vel
gefinn og skemmtilegur.
Þú varst afar fylginn þér í
orði og verki og þínar ákvarð-
anir stóðust. Þegar þú slökktir í
síðustu sígarettunni þá var það
sú síðasta. Þegar þú kvaddir
Bakkus var það ekkert múður,
þar var innistæðulaus bankabók
og engin lán að fá. Þú varst góð
fyrirmynd. Þegar mestu erfið-
leikarnir steðjuðu að hjá mér
varst þú mín sterkasta stoð. Þá
var gott að eiga sterka hönd og
hlýjan faðm að halla sér að og
það var þinn faðmur, elsku
pabbi, þangað mun ég alltaf
geta leitað.
Þú varst einstakur faðir og
afi. Ég veit að þú elskaðir okkur
öll. Hlýjar þakkir fyrir allt. Ég
veit að heimkoma þín verður fal-
leg, minning þín lifir í ljósi, ást
og kærleika.
Ég horfi í ljóssins loga
sem lýsir í hugskot mitt
og sé á björtum boga
brosandi andlit þitt.
(Snjólaug Guðm.)
Ég kveð þig eins og ég gerði
alltaf. Bless, pabbi minn, ég
elska þig, þín dóttir,
Svava.
Víglundur
Pálsson
✝ Jón Guð-mundsson
fæddist 10. febr-
úar 1949 á Kirkju-
bæ í Hróarstungu.
Hann lést á hjarta-
deild Landspít-
alans 25. maí 2018.
Foreldrar Jóns
voru Guðmundur
Sigurðsson frá
Brekku í Hróars-
tungu, f. 16. mars
1916, og Pálína Jónsdóttir, f. á
býlinu Fæti í Folafæti, Ísa-
fjarðardjúpi, 27. júní 1925.
Þau eru bæði látin.
Guðmundur og Pálína hófu
búskap á Brekku í Hróars-
tungu árið 1946 en fluttu í
Kirkjubæ í sömu sveit 1947.
Þegar Jón var þriggja ára
flutti fjölskyldan í Húsey í
Hróarstungu en ári seinna,
1953, fluttu þau að Vífilsnesi í
Hróarstungu og ólst Jón þar
upp til 15 ára aldurs. 1964
flutti fjölskyldan til Seyðis-
fjarðar, þar sem Jón bjó síðan
mestan hluta ævi sinnar.
Jón átti fimm
bræður. Elstur er
Sigurður Hróar, f.
4. maí 1947. Kona
hans var Elísabet
Magnúsdóttir frá
Ballará, hún er nú
látin. Þau eign-
uðust þrjú börn.
Þórbergur Austri,
f. 18. júní 1954.
Kona hans er Pa-
mela Innis Guð-
mundsson. Þau eiga þrjú börn
og eru búsett á Nýja-Sjálandi.
Hermann Vestri, f. 30. júní
1955. Kona hans er Guðrún
Þórhildur Elfarsdóttir. Þau
eiga tvær dætur. Fimmti í röð-
inni er Einar Hólm, f. 28.
mars 1961. Yngstur er Sigur-
jón Þórir, f. 4. mars 1965.
Hann er giftur Höllu Dröfn
Þorsteinsdóttur. Þau eiga
fjögur börn.
Útför Jóns fer fram frá
Seyðisfjarðarkirkju í dag, 9.
júní 2018, klukkan 11, en jarð-
sett verður á Kirkjubæ í
Hróarstungu.
Ég minnist með virðingu og
hlýju vinar míns Jóns Guð-
mundssonar. Kynni okkar hóf-
ust fyrir hartnær þremur ára-
tugum. Fyrst í tengslum við
störf í þágu Félag starfsfólks í
veitingahúsum en síðar í
tengslum við Þjónustusamband
Íslands og Lífeyrissjóð Austur-
lands hvar Jón var um tíma
stjórnarformaður. Allar þessar
félagslegu samfélagsstofnanir
eru nú horfnar eftir að hafa
sameinast öðrum og stærri líkt
og vinur minn Jón hefur nú
sjálfur gert. Það er ekki auðvelt
að lýsa Jóni svo margbrotinn
sem hann var. Engum leyndist
að hann var afburðagreindur og
flestum fljótari að átta sig á því
sem skipti máli og því sem engu
skipti. Þessi eiginleiki hans skil-
aði sér vel í öllum störfum hans.
Hann skoraði allar skoðanir á
hólm en ætíð af virðingu og oft-
ar en ekki með kímni. Ég man
aldrei til þess að hann legði illt
til nokkurs manns en leitaði
frekar skilnings á málstað þess
sem ekki var honum sammála.
Jón hafði ætíð á hraðbergi
hin ýmsu ljóð, sum vel þekkt en
önnur sem ég hafði aldrei heyrt
og sem hann staðfastlega neit-
aði að segja hver höfundur væri
að. Mig grunar að sumt af því
hafi verið hans eigið. Jón var
með öðrum orðum upplýstur og
vel menntaður maður í besta
skilningi þess hugtaks, þeim
skilningi sem Jón Baldvinsson,
fyrrum forseti ASÍ, lagði í það.
Það verður aldrei sagt að hann
hafi verið höfðingjadeigur og
taldi sig jafningja hvers þess
manns sem hann átti viðræðu
við.
Eitt sinn sátum við saman á
fundi með einum af stærstu
fjárfestingasjóðum Bretlands.
Jón hafði þegið boð þeirra þar
sem gera skyldi grein fyrir
störfum sjóðsins í þágu Lífeyr-
issjóðs Austurlands. Fundurinn
var haldinn á efstu hæð í einum
þessara háu spegilturna í fjár-
málahverfi London. Allur var
viðurgjörningur var hinn besti
og glæsilegur hópur manna í
teinóttum jakkafötum útskýrði
fyrir okkur árangur sinn og
fjárfestingastefnu. Jón hlustaði
af athygli og spurði margs. Í lok
fundar tók hann úr pússi sínu
nokkra spilastokka og afhenti
hverjum og einum gestgjaf-
anna. Hann þakkaði þeim allar
þeirra góðu útskýringar og ráð
en sagði síðan að starf þeirra
væri ekki ólíkt starfi fjárhættu-
spilara og ráðlagði þeim að
spila póker með nýju spilunum
sínum svona til þess að halda
sér á tánum. Sjaldan hef ég séð
hóp manna verða eins hissa og
fara um leið svolítið hjá sér.
Öllu var þó vel tekið því eins og
Jóni var lagið gerði hann þetta
af hinni mestu kurteisi. Tæp-
lega tveimur áratugum síðar
hrundi fjármálakerfið og mér
varð ljóst hversu rétt hann
hefði haft fyrir sér. En nú er
komið að leiðarlokum.
Ferðum Jóns til Reykjavíkur
fækkaði síðustu árin og fundum
okkar samhliða. Í vikunni fyrir
páska drukkum við saman kaffi
á Seyðisfirði. Það leyndi sér
ekki að nokkuð var af vini mín-
um dregið eftir langvarandi
vanheilsu. Við kvöddumst vel og
á leiðinni upp úr Seyðisfirði
fannst mér eins og þetta hefði
verið okkar síðasti fundur. Það
reyndist rétt. Eftir sitja minn-
ingar um góðan dreng, einlæg-
an jafnaðarmann og leiftrandi
persónuleika. Ég votta öllum
ættingjum hans mína innileg-
ustu samúð.
Magnús M. Norðdahl.
Jón Guðmundsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN ÞORKELS EGGERTSSON
netagerðarmeistari,
Keflavík,
lést laugardaginn 26. maí á
hjúkrunarheimilinu Hlévangi.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
12. júní klukkan 13.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Eggert Jónsson Una Hafdís Hauksdóttir
Ingimundur Jónsson
Aðalgeir Jónsson Þóra Lilja Ragnarsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
LÁRA MARÍA THEÓDÓRSDÓTTIR,
Tjörn á Mýrum,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
þriðjudaginn 5. júní.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 15. júní klukkan 14.
Ólafur Halldórsson
Halldór Ólafsson
Agnar Ólafsson Sóley Þrastardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN R. THORLACIUS,
er látin. Útför hennar fer fram frá
Borgarneskirkju föstudaginn 15. júní
klukkan 13.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR STEPHENSEN
hjúkrunarforstjóri,
lést á Hrafnistu föstudaginn 1. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 15. júní klukkan 13.
Jóhann Hjálmarsson
Þorri Jóhannsson
Dalla Jóhannsdóttir Kjartan Pierre Emilsson
Jóra Jóhannsdóttir Kristjón Freyr Sveinsson
barnabörn og barnabarnabarn
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR KRISTINN BÁRÐARSON
Avatarmeistari og
húsasmíðameistari,
andaðist á heimili okkar Lönguhlíð 18 á
Akureyri, þriðjudaginn 5. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju,
mánudaginn 18. júní klukkan 10.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Heimahlynningar, hvers kort fást hjá Blómabúð Akureyrar og
SAk. Reikningsnúmer sjóðsins er:
0162-05-62158, kt. 570397-2819.
Álfhildur Ólafsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, sonur,
bróðir og tengdafaðir,
HELGI ANNAS NIELSEN
lést föstudaginn 1. júní.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 18. júní klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir
Ingimar Karl Helgason
Brynjar Hans Helgason
Alexander Annas Helgason Þórunn Sif Þórarinsdóttir
Gylfi Björn Helgason
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
TRAUSTI R. HALLSTEINSSON,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. júní.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 15. júní klukkan 13.
Björk Ingvarsdóttir
Hallsteinn I. Traustason Nína V. Björnsdóttir
Vignir Þór Traustason Inga H. Guðfinnsdóttir
og barnabörn
Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
HANNA HAFDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Njörvasundi 22, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 30. maí á
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 14. júní klukkan 13.
Sigríður Erla Reynisdóttir Gerard Van Dick
Guðmundur R. Reynisson Birna Bjarnadóttir
Örn Ægir Reynisson
ömmubörn, langömmubörn, langalangömmubörn