Morgunblaðið - 09.06.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 09.06.2018, Síða 39
stóls, starfaði með Leikfélagi Sauðár- króks, gekk í Félag ungra fram- sóknarmanna í Skagafirði er hann hafði aldur til og starfaði innan flokksins til 2017 er hann gekk til liðs við Miðflokkinn. Hann var formaður Félags ungra framsóknarmanna, varaformaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra, var í kjöri í bæjar- stjórnarkosningum 1990 á Sauðár- króki, var varabæjarfulltrúi og átti sæti í félagsmálaráði Sauðárkróks og fleiri nefndum, varð oddviti fram- sóknarmanna í sveitarstjórn Skaga- fjarðar 2002-2009, var annar varafor- seti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2002-2006, varaforseti 2006-2009, formaður byggðaráðs Skagafjarðar 2006-2009, varafor- maður atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar 2006-2009, formaður Gagnaveitu Skagafjarðar 2006-2009, formaður stjórnar Norðurár bs., sorpsamlags, 2006-2009, formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2006-2009, sat í stjórn Hátækniseturs Íslands ses. 2007-2009, í menningarráði Norður- lands vestra 2008-2009 og í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skaga- fjarðar. Hann var stjórnarmaður í Hússjóði Öryrkjabandalags Íslands 1998-2000, formaður stjórnar Vara- sjóðs Viðbótarlána 1998-2002 og síðar varaformaður. Gunar var alþingismaður Norðvest- urkjördæmis 2009-2017 fyrir Fram- sóknarflokkinn og er núna þingmaður Suðvesturkjördæmis fyrir Miðflokk- inn. Hann var utanríkisráðherra 2013- 2016 og sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra 2016-2017. Hann er formaður Íslandsdeildar þings Örygg- is- og samvinnustofnunar Evrópu. Gunnar gegndi fjölda trúnaðar- starfa fyrir Framsóknarflokkinn og sat m.a. í miðstjórn flokksins. Gunnar gekk til liðs við Miðflokkinn 2017 eftir að varaformaður Framsóknarflokks- ins klauf flokkinn á flokksþingi haust- ið 2016. Gunnar var kjörinn formaður þingflokks Miðflokksins haustið 2017 og varaformaður Miðflokksins í apríl 2018. Fjölskylda Gunnar kvæntist 7.5. 2003, Elvu Björk Guðmundsdóttur, f. 1.4. 1969, hárgreiðslukonu og húsmóður, þau skildu. Elva er dóttir Guðmundar Frí- mannssonar húsasmiðs og Sigur- laugar Guðmundsdóttur húsmóður en þau eru bæði látin. Börn Gunnars og Elvu Bjarkar eru Arnar Þór Sigurðsson, f. 1.2. 1988, starfsmaður Origo í Reykjavík, en unnusta hans er Þórdís Gísladóttir; Frímann Viktor Sigurðsson, f. 21.10. 1988, loðdýrabóndi en kona hans er Ditte Clausen og eiga þau tvo syni, Hermann Ágúst og Valdimar Ými; Sveinn Rúnar, f. 5.6. 1993, smiður og lögregluþjónn en sambýliskona hans er Erna Kristjánsdóttir og eiga þau eina dóttur, Emmu Dallilju; Ingi Sig- þór, f. 22.7. 2000, nemi, og Róbert Smári, f. 22.7. 2000, nemi. Gunnar er í sambandi með Sunnu Gunnars Marteinsdóttur og á hún eina dóttur, Guðrúnu Margréti. Bræður Gunnars eru Björgvin Jós- afat Sveinsson, f. 28.7. 1962, trésmiður og verkstjóri á Sauðárkróki, og Atli Freyr Sveinsson, f. 20.1. 1971, fram- kvæmdatjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga. Foreldrar Gunnars: Sveinn Frið- vinsson, f. 19.9. 1938, d. 25.6. 2017, lengst af innheimtustjóri Sauðár- króksbæjar, og Ingibjörg Jósafats- dóttir, f. 13.5. 1940, fyrrv. versl- unarmaður og matráður á Sauðárkróki. Gunnar Bragi Sveinsson Guðrún Steinsdóttir húsfr. á Staðarbjörgum Jón Rögnvaldur Jónsson útvegsb. á Staðarbjörgum á Hofsósi Jónanna S. Jónsdóttir húsfr. og kvenréttindakona á Gröf og á Sauðárkróki Jósafat Sigfússon b. á Gröf á Höfðaströnd, sjóm. og verkam. á Sauðárkróki Ingibjörg Jósafatsdóttir verslunarm. og matráður á Sauðárkróki Jónína Anna Jósafatsdóttir húsfr. á Syðri-Brekkum Sigfús Hansson b. á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð Guðrún Jósafatsdóttir húsfr. í Borgarnesi Bragi Þór Jósafatsson verslunarm. í Borgarnesi Guðmundur Friðvinsson sjóm. og verkstj. í Straumsvík Sveinn Margeir Þorvaldsson sjóm. og afburðaskákmaður á Norðurlandi Jón Jósafat Björnsson framkvstj.Dale Carne- gie námskeiðanna Björg Guðmundsdóttir eigandi Egodekor Jónanna Guðrún Björns- dóttir lengi starfsm. Hallgrímskirkju Sigurður Sigfússon húsasmíðameistari á Sauðár- róki og stofnandi Fasteignamiðstöðvarinnar í Rvíkk Zophanías Sigurðsson tæknistj.Kringlunnar GuðmundurÆgir Braga- son lagerstjóri hjá BL Ingibjörg M. Sigfús- dóttir húsfr. á Gröf. Sverrir Sveinsson rafveitustj. á Siglufirði Sigþór Bragason fasteignasali í Rvík Jóhann Sigfússon útgerðarm. í Eyjum og fyrsti stjform.Vinnslustöðvarinnar Rósanna Baldvinsdóttir húsfr. á Sauðárkróki Þorvaldur Sveinsson sjóm. á Sauðárkróki (verðl. f. björgunarafrek) Björg Þ. Þorvaldsdóttir húsfr. á Sauðárkróki Friðvin Gestur Þorsteinsson sláturhússtj. á Sauðárkróki Guðrún Bjarnadóttir húsfr. á Sauðárkróki Þorsteinn Erlendsson verkam. á Sauðárkróki Úr frændgarði Gunnars Braga Sveinssonar Sveinn Margeir Friðvinsson innheimtustjóri Sauðárkróksbæjar Hjalti Jóhannes Guðmundsson skrifstofu- stj. hjá Reykjavíkurborg ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is Stærðir 35-50 Verð 8.950 kr. Misty Friðrik Hallgrímsson fæddist íReykjavík 9.6. 1872 og ólstþar upp. Hann var sonur Hallgríms Sveinssonar, dómkirkju- prests og síðar biskups Íslands, og k.h., Elínu Marie Bolette Sveinsson húsfreyju. Hallgrímur var sonur Sveins Níelssonar, prófasts og alþingis- manns á Staðarstað, og s.k.h., Guð- rúnar Jónsdóttur húsfreyju, en El- ína var dóttir Frederiks Christians Feveile, yfirlæknis við hermanna- spítalann í Kaupmannahöfn, og k.h., Lovise Elisabeth Augustu Feveile, f. Obelits, húsfreyju. Systir Hallgríms Sveinssonar var Elísabet Sveinsdóttir, móðir Sveins Björnssonar forseta og Ólafs Björnssonar, stofnanda og ritstjóra Morgunblaðsins. Önnur systir Hall- gríms var Sigríður Sveinsdóttir, móðir Haraldar Níelssonar guð- fræðiprófessors. Eiginkona Friðriks var Bentína Hansína Björnsdóttir frá Búlands- nesi og eignuðust þau fimm börn. Meðal þeirra var Hallgrímur Frið- rik, forstjóri Skeljungs hf. Friðrik lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1891, cand. phil.- prófi frá Hafnarháskóla 1892 og embættisprófi í guðfræði þaðan 1897 en auk þess prófum í hebresku og kirkjufeðrafræði. Frið- rik var prestur við Holdsveikraspít- alann í eitt ár, sóknarprestur í Út- skála 1899-1903, prestur Hins evangelísk-lútherska kirkjufélags Íslendinga í Argylebyggð í Kanada 1903-25, annar prestur við Dóm- kirkjuna í Reykjavík 1925, varð prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi 1938, dómprófastur í Reykjavíkur- dómprófastsdæmi 1941 en fékk lausn frá embætti dómkirkjuprests og dómprófasts 1945. Friðrik var afkastamikill rithöf- undur kristilegra hugleiðinga og samdi fjölda barnabóka sem marg- ar urðu vinsælar, en 1972 kom út úrval þeirra, Sögur séra Friðriks Hallgrímssonar. Friðrik lést 6.6. 1949. Merkir Íslendingar Friðrik Hallgrímsson Laugardagur 90 ára Bæringur Guðvarðsson Einar Sverrisson Fjóla S. Hannesdóttir Grétar Jónsson 85 ára Sigurður Ólafs Jónsson 80 ára Guðrún Pálsdóttir Gunnar Kristjánsson Hjördís Vilhjálmsdóttir Selma Kristinsdóttir Þráinn Karlsson 75 ára Árni Sigurðsson Finnbogi H. Alexandersson Herdís Þorsteinsdóttir Jón Gunnar Zoéga Margrét G. Einarsdóttir Rafnhildur R. Jóhannesdóttir 70 ára Áslaug Svavarsdóttir Gunnhildur Arnþórsdóttir Kristín Jónsdóttir Margrét I. Guðbjartsdóttir Pétur Kristjánsson Vilhjálmur J. Guðbjartsson 60 ára Anna Elísabet Ólafsdóttir Elsa Björk Sigurðardóttir Ingibjörg Valberg Jón Ólafur Ólafsson Kristín Anný Jónsdóttir Magnús Bergmann Magnússon María Rebekka Ólafsdóttir Sigurrós Eva Friðþjófsdóttir Stefanía G. Sigmundsdóttir Þórhalla Bóasdóttir 50 ára Anna Lára Pálsdóttir Eyjólfur Sigurðsson Guðrún Guðný Sverrisdóttir Gunnar Bragi Sveinsson Haraldur Karl Reynisson Hjördís Stefánsdóttir Íris Guðmundsdóttir Ruth Örnólfsdóttir Sigríður Hjördís Jörundsdóttir 40 ára Antonio Aguilar Arunee Junhom Björgvin Ingi Ólafsson Daniel Jerzy Kapusta Gina Cutanda Monzon Guðrún Ás Birgisdóttir Helga Þórey Júlíudóttir Ingi Heiðar Bergþórsson Lukasz Emil Mikoda María Másdóttir Óskar Valgarðsson Regína Harpa Sigurðardóttir Róbert Antonsson Rubylyn Repalda Almanzor Steinn Hildar Þorsteinsson 30 ára Ari Elísson Auður Helga Auðunsdóttir Elín Ösp Guðmundsdóttir Eyþór Gunnarsson Jóna Birna Jónsdóttir Katrín Eir Ingimarsdóttir Kári Árnason Kolbrún Inga Gunnlaugs. Söring Laura Elisabeth Tack Magdalena Kluszczynska Sigrún Guðjónsdóttir Yiwei Li Sunnudagur 90 ára Jóhanna R. Jóhannsdóttir Kristín Daníelsdóttir 85 ára Benedikt Halldórsson Edda Úlfsdóttir Hulda H. Waage Kristín Nílsen Beck Þórður Guðlaugsson 80 ára Aniela Malgorzata Kromer Þorsteinn Þorsteinsson 75 ára Björn Arason Einar Norðfjörð Hallgrímur Arason Kristín Símonía Ottósdóttir Sigríður Jóhannesdóttir Steingerður Einarsdóttir 70 ára Birna Fanney Óskarsdóttir Brynjólfur Hauksson Erling J. Sigurðsson Guðmundur Rúnar Jónsson Ingibjörg Ásta Pétursdóttir Ingibjörg Ólafsdóttir Sigríður Júlíana Kristinsdóttir Sigurður Ómar Jónsson Sverrir Karlsson Valgerður Jóna Gunnarsdóttir 60 ára Aðalbjörg Benediktsdóttir Bergþór Theódórs Ólafsson Hauður Helga Stefánsdóttir Hrefna Garðarsdóttir Hörður Sigurðsson Magnea Ósk Magnúsdóttir Ólöf Una Jónsdóttir Páll Sigfinnsson Ragna Erlingsdóttir Ragnar S. Jóhannsson Samúel Ingi Þórisson Sigurbjörn Hjaltason Tyrfingur Halldórsson Valgerður Stefánsdóttir 50 ára Annette Schaafhirt Björgvin Jóhann Barðdal Einar Birgisson Elisabeth Jansen Ellý Skúladóttir Heiðar Ingi Ágústsson Hjálmar Ingi Magnússon Karen Kristine Sævarsdóttir Kristinn Már Torfason Rannveig Lydia Benediktsdóttir Sigrún Gísladóttir 40 ára Andri Hnikarr Jónsson Freyja Kristín Rúnarsdóttir Grzegorz Rafal Fijalkowski Hrefna María Eiríksdóttir Jóna Gígja Guðmundsdóttir Kristín Helga Viggósdóttir Sigurlaug Tanja Gunnarsdóttir Trausti Guðmundsson Zuzana Simek 30 ára Andrea Björk Hannesdóttir Anna María Axelsdóttir Avram-Paul Imbrea Friðbergur Hreggviðsson Grace Cartagena Congson Guðmundur Magnússon Hrafnhildur Sigurðardóttir Hulda Björk Pálsdóttir Jan Martin Jónasson Lorenzo Meucci Margrét Björk Ómarsdóttir Saga Ólafsdóttir Sara Rós Kristinsdóttir Sölvi Rafn Sverrisson Valdemar Karl Kristinsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.