Morgunblaðið - 09.06.2018, Page 48
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 160. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hundur hélt hverfi í gíslingu
2. Svo sturlaður að hún þekkti ...
3. Anthony Bourdain látinn
4. Ekkert lið eins og Ísland
Óperan Sjö steinar eftir Sjón og
tékkneska tónskáldið Ondrej Adamek
hefur hlotið evrópsku FEDORA–
Generali verðlaunin sem besta frum-
samda ópera ársins 2018 en uppi-
staða líbrettós óperunnar er ljóðabók
Sjóns, Söngur steinasafnarans. Segir
í henni af manni sem safnar steinum
sem tengjast þekktum persónum og
atburðum í heimssögunni. Söfnunar-
áráttan tekur af honum völd og leiðir
til þess að hann fremur voðaverk sem
hann reynir svo að gleyma. Óperan
var pöntuð af óperuhátíðinni í Aix-en-
Provence og verður frumflutt þar 7.
júlí. Verðlaunaféð nemur 150.000
evrum og rennur til uppsetningar
verksins og fyrirhugaðra ferðalaga
með það, að því er segir í tilkynningu.
Ópera Sjóns sú besta
Hannes Lárus-
son, einn af virk-
ustu gjörninga-
listamönnum
þjóðarinnar, frem-
ur gjörning í dag
kl. 16 á sýning-
unni Peppermint í
galleríinu Kling og
Bang í Marshall-
húsinu. Sýningin er hluti af dagská
Listahátíðar í Reykjavík sem stendur
nú sem hæst.
Fremur gjörning
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-10 og rigning vestantil, en þykknar upp fyrir austan.
Hiti 8 til 20 stig að deginum, hlýjast í innsveitum norðaustanlands en kólnar heldur.
Á sunnudag Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning eða skúrir í flestum
landshlutum, en þurrt á Austfjörðum. Hiti 8 til 15 stig að deginum.
Á mánudag Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað og stöku skúrir norðantil,
einkum á Vestfjörðum, en þurrt sunnanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
„Auðvitað vonast ég til þess að spila
gegn Slóveníu. Maður vill alltaf spila
og það væri gaman að fá mínútur í
þessum mikilvæga leik,“ segir Selma
Sól Magnúsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, en Ísland mætir Slóven-
íu á Laugardalsvelli á mánudags-
kvöld, í þriðja síðasta leik sínum í
undankeppni HM. Með sigri kemst Ís-
land á topp síns riðils. »4
Væri gaman að spila
þennan mikilvæga leik
„Ég var liðtækur í marki í
bekknum mínum í Álfta-
mýrarskóla í gamla daga en
ég verð nú að segja að þetta
sé mikilvægasta markið
sem ég hef varið. Ég vona
að það skili okkur á HM,“
sagði Guðmundur B. Ólafs-
son, formaður HSÍ og lög-
maður með meiru, eftir að
úrslitum leiks Íslands og
Litháens í HM-umspilinu var
breytt Íslandi í hag. »1
Mikilvægasta
varsla formanns
Þó að aðeins rétt rúmum þriðjungi Ís-
landsmóts karla í knattspyrnu sé lok-
ið þá skilja átta stig að nýliða Fylkis
og Keflavíkur. Fylkir vann öruggan
sigur í rimmu liðanna í Egilshöll í
gærkvöld þó að
lokatölurnar
hafi aðeins
verið 2:0.
Fylkismenn
eru í 5. sæti en
Keflvíkingar
á botni.
»2
Átta stig skilja nýliðana
að eftir slag þeirra
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Karen Ólafsdóttir og Sudeska
Gema Kuasa eru meðal þeirra sem
hófu nám í frumgreinadeild Há-
skólans í Reykjavík síðasta haust.
Þar leggja þau stund á háskóla-
grunn sem er eins árs nám ætlað
til undirbúnings fyrir háskólanám.
Þau eru bæði menntaðir bifvéla-
virkjar. Karen er frá Ísafirði og
hóf nám í Menntaskólanum á Ísa-
firði þar sem hún stundaði nám í
tvö ár en flosnaði svo upp úr því.
„Ég var lögð í einelti á Ísafirði og
það stoppaði ekkert þegar ég fór í
menntaskóla. Ég ákvað því að
hætta í skóla og fór upp á eigin
spýtur til Reykjavíkur, þá átján
ára, og hóf nám í tækniteiknun.
Það var erfitt að fá vinnu sem
tækniteiknari svo ég ákvað að
læra bifvélavirkjann líka.“
Slys breytti námsvalinu
Karen langaði seinna að mennta
sig meira og stefndi á verkfræði.
Þá fór hún í háskólagrunn hjá Há-
skólanum í Reykjavík til þess að
undirbúa sig fyrir námið en eftir
að hún byrjaði í háskólagrunn-
inum hafa markmiðin breyst. „Ég
lenti í slysi eftir að ég byrjaði í
náminu. Ég fann hvernig hreyfing
hjálpaði mér að ná bata, bæði lík-
amlega og andlega, og ákvað að ég
þyrfti að miðla þessari reynslu
minni áfram. Ég held að íþrótta-
fræðin sé tilvalin til þess.“ Karen
ætlar sér að hefja nám í íþrótta-
fræði við Háskólann í Reykjavík
næsta haust enda er hún ánægð
með námið þó það hafi oft verið
strembið.
Sudeska útskrifaðist sem bif-
vélavirki vorið 2017 og ákvað svo
að vinda sér strax í háskólagrunn
Háskólans í Reykjavík. „Mig lang-
aði að taka stúdentspróf líka til
þess að hafa fleiri möguleika. Mér
fannst spennandi að fara í há-
skólagrunninn í HR því ég vissi að
mig langaði að fara í HR einn
daginn.“
Persónuleg kennsla
Hann kveðst ánægður með nám-
ið, sem hann segir krefjandi og
skemmtilegt. „Þetta er auðvitað
keyrt frekar hratt áfram svo hrað-
inn fékk mig til að læra að skipu-
leggja mig betur. Ég hefði ekki
getað beðið um betri aðstöðu.
Kennararnir eru mjög hjálpsamir
og kennslan persónuleg.“ Sudeska
stefnir á að læra viðskiptafræði í
framtíðinni en ætlar fyrst að taka
sér námshlé og vinna sem bifvéla-
virki.
Strembið en skemmtilegt
Grunnur fyrir
háskólanám
kenndur í HR
Morgunblaðið/Kristinn
Útlærð Karen og Sudeska lærðu bæði bifvélavirkjun en stefna nú á íþróttafræði og viðskiptafræði. Þau undirbúa
sig fyrir háskólanámið í háskólagrunni Háskólans í Reykjavík. Námið er krefjandi og hraðinn í náminu mikill.
Árlega hefja um 150 manns nám
við frumgreinadeild Háskólans í
Reykjavík. Frumgreinadeildin sam-
anstendur af háskólagrunni ann-
ars vegar og viðbótarnámi til stúd-
entsprófs hins vegar.
Háskólagrunnur er ætlaður
þeim sem hafa lokið einhverjum
einingum í framhaldsskóla en ekki
klárað stúdentspróf og hyggja á
nám á háskólastigi.
Námið var fyrst sett á laggirnar
árið 1946 í Tækniskóla Íslands og
var þá ætlað iðnmenntuðu fólki
sem hugðist fara í háskólanám. Nú
sækir fólk í námið úr öllum áttum
og boðið er upp á fjórar námsleiðir
sem geta hentað flestum.
150 í frumgreinadeild árlega
VINSÆL LEIÐ TIL HÁSKÓLANÁMS
Helgi Þorgils Friðjónsson opnar
sýninguna Uppstilling með speglum í
Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
í dag kl. 14. Helgi sýnir að mestu ný
verk sem hann
vann með Komp-
una í huga og
segir hann mynd-
list sína fjalla um
manninn og nátt-
úruna.
Sýnir í Kompunni