Morgunblaðið - 23.06.2018, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 3. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 146. tölublað 106. árgangur
ORGELSUM-
ARIÐ BYRJAR
AF KRAFTI
HESTALEIGA
Í LAXNESI
Í HÁLFA ÖLD
PÓRI RÉTT AÐ BYRJA 18BJÖRN STEINAR 39
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta
tapaði 2:0 fyrir landsliði Nígeríu á
heimsmeistaramótinu á Volgograd
Arena í Rússlandi í gær.
Eftir aðra umferð í riðlakeppni
mótsins er eini möguleiki liðsins á að
komast áfram, upp úr sínum riðli, að
sigra Króatíu á þriðjudag og þar að
auki þarf liðið að treysta á hagstæð
úrslit í leik Argentínu og Nígeríu
sama dag. Leikirnir fara fram sam-
tímis og ljóst er að spennan verður
mikil.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði
landsliðsins, var að vonum svekktur
með úrslit leiksins. „Næsta skref er
að rýna í hvað fór úrskeiðis að þessu
sinni, læra af því og búa okkur um
leið undir næstu viðureign. Það er
bara áfram gakk og fram með kass-
ann,“ sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Strax að loknum leik flaug lands-
liðið aftur í æfingabúðir sínar í Kab-
ardinka við Svartahaf, þar sem það
æfir fyrir leikinn á þriðjudag. Á
morgun verður svo haldið til Rostov
við Don þar sem leikurinn gegn Kró-
atíu fer fram.
Líta á björtu hliðarnar
Um þrjú þúsund Íslendingar voru
á leiknum og voru viðmælendur
Morgunblaðsins í Rússlandi í senn
vonsviknir og vongóðir. „Þrátt fyrir
tapið í kvöld finnst mér strákarnir
hafa staðið sig vel og ég hef trú á
þeim áfram,“ sagði Elís Árni Jóns-
son í samtali við blaðið. Fjölmargir
fylgdust einnig með leiknum á risa-
skjám á höfuðborgarsvæðinu, m.a. í
Hljómskálagarði þar sem talið er að
yfir þrjú þúsund manns hafi verið.
Einnig var þéttsetið á Ingólfstorgi
og á túninu við Vesturbæjarlaug.
Morgunblaðið/Eggert
Svekktur Gylfi Þór Sigurðsson brenndi af vítaspyrnu í leiknum. „Auðvitað hugsaði ég bara um að skora, það er leiðinlegt þegar þetta fer svona en maður verður bara að halda áfram,“ sagði hann.
Vonbrigði í Volgograd
Stemning Um þrjú þúsund Íslendingar hvöttu landsliðið til dáða í Volgograd. Stemningin dofnaði í síðari hálfleik.
Karlalandsliðið tapaði fyrir Nígeríu
Enn er von um að komast áfram
Íslendingar vonsviknir en vongóðir
M »4, 6, 11, íþróttir