Morgunblaðið - 23.06.2018, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 174. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sá nafn afa síns og fór að gráta
2. Erfið staða eftir ósigur í …
3. „Eyðilagði drauma þúsunda“
4. Held að taktíkin hafi ekki verið …
Norræna húsið opnar glerdyrnar að
nýju og býður upp á tónleika undir
björtum himni kl. 15 alla sunnudaga
frá 24. júní til 19. ágúst. Á fyrstu
pikknikk-tónleikunum leikur Ari Árel-
íus, sem senn gefur út sína fyrstu
plötu, Emperor Nothing.
Ari Árelíus á pikk-
nikk-tónleikum
Söngvararnir
Rebekka Blöndal
og Gísli Gunnar
Didriksen koma
fram á fjórðu tón-
leikum sumarsins
á Jómfrúnni í
Lækjargötu kl. 15
til 17 í dag. Með
þeim leika þeir
Benjamín Gísli Einarsson á píanó,
Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og
Einar Scheving á trommur. Þau munu
flytja fjölbreytt úrval þekktra djass-
laga. Tónleikarnir eru utandyra.
Didriksen og Blöndal
á Jómfrúnni í dag
Mireya Samper opnar sýningu sína,
Lungi, kl. 16 í dag í Bryggjusal í Ed-
inborgarhúsinu á Ísafirði. Mireya
vinnur myndlist jöfnum höndum í tví-
vídd og þrívídd fyrir söfn og gallerí
eða umhverfisverk í
náttúrunni. Verkin á
sýningunni skírskota
til vatnsdropans,
hringrásarinnar, eilífð-
arinnar, endurtekn-
ingarinnar og
lífsins. Sýn-
ingin stendur
til 11. júlí.
Hringrásin, eilífðin
og endurtekningin
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13 og rigning um landið sunnan- og vestanvert, en
heldur hægari suðvestanátt og úrkomuminna í kvöld. Hiti 8 til 22 stig.
Á sunnudag Suðlæg átt, 3-10 og dálítil súld með köflum, en þurrt á N- og A-landi. Hvess-
ir síðdegis með talsverðri rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig, en
allt að 20 stig norðaustantil.
Á mánudag Suðvestan 8-15 m/s, en 15-20 austantil fram að hádegi. Kólnar í veðri.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur byrjaði vel á
Walmart-mótinu í Arkansas á LPGA-
mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía lék á
69 höggum og er á tveimur höggum
undir pari vallarins. Ólafía var í 49.
sæti ásamt fleiri kylfingum þegar
blaðið fór í prentun og ljóst að hún á
ágæta möguleika á því að komast í
gegnum niðurskurð keppenda. »4
Fín byrjun hjá Ólafíu
Þórunni í Arkansas
„Þetta eru leiðinleg úrslit
og svekkelsi ríkir eðlilega
hjá okkur vegna þeirra,“
sagði Aron Einar
Gunnarsson, fyrir-
liði íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu,
eftir 2:0 tap íslenska
landsliðsins fyrir landsliði
Nígeríu í Volgograd í gær.
Von íslenska liðsins um
sæti í 16-liða úrslitum er
ekki úr sögunni. »1
Svekkelsi en
enn er þó von
Í E-riðli heimsmeistarakeppni karla í
knattspyrnu í Rússlandi gætu
margfaldir heimsmeistarar
frá Brasilíu setið eftir og
misst af útsláttarkeppninni.
Brasilíumenn eru þó með 4
stig og tókst að kreista
fram sigur á Kosta-
ríku í uppbótartíma í
gær. Brasilía og
Sviss eru bæði
með 4 stig í riðl-
inum en Serbía
er með 3 stig.
Brasilía og
Serbía mætast
í síðustu um-
ferð riðla-
keppninnar. »4
Brasilíumenn í nokkru
basli í E-riðlinum
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Þau Þorbjörg Sandra Bakke og
Fannar Ásgrímsson halda þrefalda
veislu í dag. Tilefnin eru öll af stærri
gerðinni en bæði Þorbjörg og Fann-
ar útskrifast úr Háskóla Íslands í
dag en verða ekki viðstödd útskrift-
arathöfnina þar sem þau ætla einnig
að ganga í það heilaga í dag.
Aðspurð segir Þorbjörg að það
hafi ekki verið ætlunin að gifta sig á
útskriftardaginn. „Við vorum ekki
meðvituð um þetta til að byrja með.
Við erum búin að taka námið rólega
með fram vinnu og barneignum en
fundum bæði á okkur í janúar að það
væri kominn tími á að klára það svo
við lögðumst í ritgerðarskrif. Síðan
áttuðum við okkur skyndilega á því
að útskriftin væri á brúðkaupsdag-
inn,“ segir hún.
Þorbjörg kveðst ekki vonsvikin yf-
ir því að þau muni missa af útskrift-
arathöfninni. „Það var bara mjög
mikil hvatning til að klára ritgerð-
irnar tímanlega. Við hefðum líklega
ekki haldið útskriftarveislur hvort
sem er svo við getum í staðinn haldið
upp á þrefalt tilefni í einni veislu.“
Mínútu þögn fyrir ritgerðir
Parið skilaði nýverið meistara-
ritgerðum sínum í siðfræði.
„Við höfum grínast með það að
þegar við verðum gefin saman verð-
um við að stoppa í miðri athöfn og
hafa einnar mínútu þögn til að minn-
ast ritgerðanna.“
Giftingin verður í Tjarnarkirkju í
Svarfaðardal en Þorbjörg er ættuð
úr dalnum.
„Ég var oft í sveit þar sem barn og
hef leikið mér mikið í kringum kirkj-
una. Ég og frænka mín vorum oft að
leika okkur við að halda þykjustu-
brúðkaup í kirkjunni. Ég ætlaði nú
ekkert endilega að gifta mig í kirkju
þar sem ég er ekki mjög trúuð en
þegar ég fór að velta því fyrir mér sá
ég fyrir mér að gifta mig í Tjarnar-
kirkju. Svo þegar ég hitti rétta
manninn þá dúkkaði upp þessi hug-
mynd um að giftast þarna.“
125 manna brúðkaup
Brúðkaupið verður í stærra lagi
en um 125 manns ætla að mæta til að
fagna tímamótunum þrennum með
parinu. „Við vorum mjög hissa á því
hversu margir voru tilbúnir að
leggja í ferðalag til þess að koma í
giftinguna. Við bjuggumst við að
helmingurinn af þeim sem við buð-
um myndi mæta í giftinguna en svo
ætla bara langflestir að koma. Við
buðum nú samt bara nánustu vinum
og fjölskyldu,“ segir Þorbjörg en
brúðkaupsgestirnir munu koma frá
ýmsum heimshornum.
Slá þrjár flugur í einu höggi
Verða gefin
saman sama dag
og þau útskrifast
Siðfræðingar Hér heldur parið á meistararitgerðum sínum í siðfræði sem þau vörðu, hvort í sínu lagi, nýverið. Þau
munu ekki verða viðstödd útskrift sína við Háskóla Íslands enda önnum kafin við að gifta sig og fagna því.
Bæði Þorbjörg Sandra og Fannar
útskrifast nú með meistaragráðu í
siðfræði. Þau skiluðu nokkuð at-
hyglisverðum meistararitgerðum,
Þorbjörg skoðaði vanda umhverf-
isverndar í fulltrúalýðræði og
Fannar fjallaði um siðferðilegar
röksemdir er varða bólusetningar
barna. Parið kynntist í náminu og
Þorbjörg segir viðeigandi að þau
ljúki náminu með því að ganga í
það heilaga. „Við erum búin að
vera í svolítið mörg ár að klára
þetta og þar sem við kynntumst í
náminu finnst mér mjög viðeig-
andi að skilja við námið með því að
gifta okkur.“
Þau hafa bæði unnið með námi,
Þorbjörg sem verkefnastjóri um-
hverfis- og sjálfbærnimála í Há-
skóla Íslands. „Ég vinn að því að
umhverfisvæða Háskólann og
Fannar er vaktstjóri hjá Sjóvá,“
segir Þorbjörg.
Unnu með háskólanáminu
TVEIR MEISTARAR Í SIÐFRÆÐI