Morgunblaðið - 23.06.2018, Blaðsíða 34
I
ngibjörg Ragnheiður Magn-
úsdóttir fæddist 23. júní
1923 á Akureyri og ólst þar
upp. Hún átti fimm bræður.
„Þetta voru hörkuátök, við
erum öll frekar ráðrík og ég gaf
þeim ekkert eftir, ég var jafnmikið
hörkutól og þeir. Þetta kom mér að
góðum notum síðar en mér var alveg
sama þótt ég væri ein á fundi með
karlmönnum og gaf mig ekkert
gagnvart þeim.“
Ingibjörg lauk gagnfræðaprófi frá
MA og íþróttakennaranámi frá
Íþróttaskóla Björns Jakobssonar á
Laugarvatni 1943. Hún lauk síðan
húsmæðraskólanámi í Uppsölum í
Svíþjóð 1948. Þá lauk hún prófi frá
Hjúkrunarskóla Íslands 1961 og
stundaði síðan framhaldsnám í
hjúkrunarkennslu og spítalastjórn
við Sygeplejeskolen í Árósum 1964-
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, fv. skrifst.stj. í heilbrigðisráðun. – 95 ára
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar Ingibjörg er fremst til hægri á myndinni, sem er tekin árið 1961.
Brautryðjandi háskóla-
náms í hjúkrunarfræði
Skrifstofustjórinn Í starfi sínu í heilbrigðisráðuneytinu lagði Ingibjörg
meðal annars til að hjúkrunarráð yrði stofnað líkt og læknaráð.
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
SKARTGRIPIR&ÚR
SÍÐAN 1923Skartgripirogur.is - Bankastræti 12 - 551 4007
Skemmtilegar
útskriftargjafir
Sigurður Páll Jónsson, þingmaður fyrir Miðflokkinn í Norðvest-urkjördæmi, á 60 ára afmæli í dag. „Ég hef mest verið heimavið eftir að ég fór í frí, hef verið að sinna útgerðinni og und-
irbúa afmælið“, en Sigurður verður með opið hús á heimili sínu í
Stykkishólmi í tilefni dagsins.
Sigurður hefur verið með trilluútgerð frá 1989 og er með tólf tonna
bát, línuútgerð og beitningu í landi. „Þetta er gamla aðferðin. Frá því
að ég fór á þing þá hef ég verið með menn á bátnum fyrir mig, en ég
hef aðeins fengið að fara með út eftir að ég fór í frí. Núna erum við á
grásleppu.“
Sigurður settist á þing eftir síðustu alþingiskosningar en hafði ver-
ið varaþingmaður og setið á þingi. „Ég vissi því hvað ég var að fara út
í. Mér finnst gaman að vera á þingi þótt manni finnist að hlutirnir
megi ganga hraðar fyrir sig, maður er vanur því á sjónum. Þetta er
eins og að vera á stóru olíuskipi.“ Sigurður hefur lagt mesta áherslu á
atvinnumál í störfum sínum á Alþingi og situr í atvinnuveganefnd.
Sigurður er í tveimur kórum, hann hefur verið í Kirkjukór Stykkis-
hólms í 25 ár og stofnaði Karlakórinn Kára fyrir tíu árum. „Fyrst
voru bara heimamenn í kórnum en hann hefur smitast út á nesið. Ég
hef sagt að stofnun kórsins sé upphaf sameiningar sveitarfélaga á
Snæfellsnesi og kórinn sýnir að fólk getur gert margt skemmtilegt
saman þótt það búi í ólíkum sveitarfélögum.“
Eiginkona Sigurðar er Hafdís Björgvinsdóttir, sjúkraliði á sjúkra-
húsinu í Hólminum. Börnin eru Ólafur Ingi, Bragi Páll og Björg og
barnabörnin eru orðin þrjú.
Á Flórída Úr páskaferð með fjölskyldunni í tilefni stórafmælisins.
Verður með opið hús
Sigurður Páll Jónsson er sextugur í dag
Á morgun, 24.
júní, fagnar
Kristrún Hreiðars-
dóttir 95 ára af-
mæli sínu. Hún er í
endurhæfingu á
Landakoti og verð-
ur því fjarverandi á
afmælisdaginn. Hún sendir öllum vin-
um og ættingjum sínar bestu kveðjur.
Árnað heilla
95 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Viðskipti