Morgunblaðið - 23.06.2018, Blaðsíða 4
Í VOLGOGRAD
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Íslenskir áhorfendur sem Morgunblaðið hitti
fyrir utan Volgograd Arena í gærkvöldi, eftir
að Ísland tapaði fyrir Nígeríu, 2:0, í öðrum
leiknum á heimsmeistaramótinu, voru vissu-
lega vonsviknir. Sumir greinilega mjög svo, en
þeir sem blaðamaður ræddi við reyndu þó allir
að bera höfuðið hátt og líta á björtu hliðarnar.
„Nígeríumenn unnu bara verðskuldað, mér
fannst þeir betri á öllum sviðum fótboltans,“
sagði Elís Árni Jónsson. „Við fengum reyndar
færi í fyrri hálfleik og ef við hefðum nýtt þau,
og skorað úr vítinu, hefði staðan auðvitað verið
allt önnur en það þýðir ekki að tala um það.“
Nígeríumenn einfaldlega betri
„Mér fannst lukkan líka alveg með Nígeríu-
mönnum í dag,“ sagði Elís. Hann var mjög
ánægður með frammistöðu liðsins í fyrsta
leiknum, „en þetta var auðvitað allt öðruvísi
leikur en á móti Argentínu, við vorum að gera
allt aðra hluti í dag en í þeim leik.“
Hann sagðist frekar bjartsýnn á framhaldið.
„Þessir strákar hafa alltaf staðið sig vel og ég
hef trú á að svo verði áfram,“ sagði Elís Árni.
Kristín Arnardóttir og Smári Björgvinsson
voru eðlilega svekkt, eins og aðrir, en raunsæ.
„Hinir voru bara betri,“ sagði Smári og Kristín
sagðist ekki geta annað en tekið undir það.
„Ég var frekar bjartsýnn fyrir leikinn, var að
gæla við 2:1 sigur en ég vissi samt alltaf að
þetta yrði erfitt,“ sagði Smári. Kristín sagði
ekki alla nótt úti. „Þrátt fyrir tapið í kvöld
finnst mér strákarnir hafa staðið sig vel og ég
hef trú á þeim áfram.“
Hjónin Bjarni Hafþór Helgason og Ingunn
Wernersdóttir voru býsna hress þrátt fyrir
tapið. „Við vorum búin að byggja upp miklar
væntingar og ekki minnkuðu þær eftir skell
Argentínumanna í gærkvöldi. En það var búið
að tala um hitann og að Nígeríumenn myndu
líklega hagnast á honum,“ sagði Bjarni Haf-
þór. „Það var líka búið að tala dálítið um mik-
inn líkamlegan styrk þeirra og ég óttaðist síð-
asta hálftímann mest og þá fannst mér einmitt
komin dálítil þreyta í okkar menn; kannski var
það vegna hitans, ég veit það svo sem ekki, en
þeir voru að minnsta kosti komnir niður á hæl-
ana eftir klukkutíma leik og þá fór líkams-
styrkur mótherjanna að skipta miklu máli,
þegar mikið var um að einn var að berjast á
móti einum. Þá sást hvað þetta eru ungir og
sprækir strákar og leikurinn þróaðist einhvern
veginn þeim í hag.“
Bjarni Hafþór nefndi að Íslendingar hefðu í
raun átt að skora í fyrri hálfleik. „Við vorum
meira í sókn, áttum ágætis fyrirgjafir og vor-
um eiginlega óheppnir að ná ekki að stanga
boltann að minnsta kosti einu sinni í netið. Eft-
ir svona tap fær maður hins vegar smá sjokk,
ég skal viðurkenna það, en þá er bara að bíta í
skjaldarrendur og búa sig vel undir Króatíu-
leikinn. Það er gríðarlega sterk fótboltaþjóð
sem gæti endaði í einhverju af fjórum efstu
sætunum á mótinu miðað við hvernig liðið hef-
ur verið að spila núna,“ sagði Bjarni Hafþór og
nefndi líka að mjög fróðlegt yrði að sjá hvernig
leikur Argentínu og Nígeríu færi.
Hann sagðist hafa gælt við að Ísland myndi
vinna Nígeríu og yrði því komið með fjögur
stig eftir leikinn í gærkvöldi. „Svo mætum við
Króötum í síðasta leiknum, ég var að vona að
þeir yrðu komnir áfram, myndu hvíla ein-
hverja menn og hugsa aðallega um að enginn
meiddist eða fengi spjald. Þá gætum við náð í
eitt stig og færum áfram. En svo fór þetta
svona í kvöld! Við megum ekki gleyma því að
við erum hér á stærsta fóboltasviði veraldar og
verðum auðvitað, eins og aðrir, að átta okkur á
því að við fáum högg annað slagið; einn daginn
er gleði en annan ekkert með okkur.“
Jafntefli við Argentínu var sigur
Ingunn sagði að sér þætti stórkostlegt að
verða vitni að því að Ísland væri á HM. „Eins
og Bjarni Hafþór sagði, þá erum við – litla Ís-
land – á stærsta fótboltasviði jarðar og það eitt
og sér finnst mér frábært. Við höfum fundið
svakalegan góðvilja frá mörgum hér, ekki síst
Rússum sjálfum sem eru virkilega indælir, en
líka Nígeríumönnum og Argentínumönnum,
sem voru allt í kringum okkur á leiknum í
Moskvu. Við mætum alls staðar ótrúlega fall-
egu viðmóti.“
Jens Garðar Helgason sagðist auðvitað ekki
ánægður með tapið en kvaðst engu að síður
hreinlega ekki geta verið vonsvikinn. „Það að
við skyldum gera jafntefli við Argentínu var
eins og sigur fyrir mér. Að ná í stig gegn þeirri
risa-fótboltaþjóð fannst mér alveg frábært.
Það má ekki gleymast að Ísland er á HM, sem
er glæsilegur árangur, ég er stoltur af strák-
unum og er viss um að þeir munu halda áfram
að standa sig vel.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Nú þarf að bíta í skjaldarrendur“
Stuðningsmenn vonsviknir en vongóðir „Jafntefli við Argentínu var eins og sigur fyrir mér“
Stemning Kristbjörg Jónasdóttir, eiginkona
Arons landsliðsfyrirliða, á leiknum í gær.
Vonir Bjarni Hafþór Helgason og Ingunn Werners-
dóttir fyrir utan leikvanginn í Volgograd í gær.
Trú Kristín Arnardóttir og Smári Björgvinsson hafa trú
á strákunum þrátt fyrir tapið gegn Nígeríu.
Stoltur Jens Garðar Helgason er
stoltur af strákunum þrátt fyrir tap.
Sanngjarnt Elís Árni sagði Níger-
íumenn einfaldlega betri í gær.
Vonbrigði í Volgograd Þeir voru
margir sem gátu ekki leynt
vonbrigðum sínum eftir leikinn.
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018