Morgunblaðið - 23.06.2018, Side 6
6
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Nígería er stórkostlegt land með
alveg ótrúlega mörg tækifæri,“ seg-
ir Guðni Albert Einarsson, forstjóri
Klofnings, sem undanfarin ár hefur
átt í miklum viðskiptum í Nígeríu.
Fyrirtækið hefur stundað útflutning
á þurrkuðum fiskhausum til Nígeríu
í rúmlega 20 ár. Guðni er nú stadd-
ur í Rússlandi og var á leik Íslands
gegn Nígeríu í Volgograd í gær.
Spurður hvort hann hafi þekkt
marga Nígeríumenn á leiknum í
gær kveður Guðni já við. „Það eru
auðvitað mjög margir Nígeríumenn
hérna í Rússlandi í tengslum við
mótið. Það var einn viðskiptavinur á
leiknum í gær sem ég kannast
ágætlega við,“ segir Guðni sem
þekkir vel til í Nígeríu eftir viðskipti
sín þar.
Stelpa skírð í höfuðið á Guðna
Alls eru ferðir Guðna til Nígeríu
nú orðnar um 60 talsins. „Þetta er
alveg frábær þjóð og ótrúlega gott
fólk. Ég hef farið oft þangað og
kann alveg ótrúlega vel við mig
þar,“ segir Guðni og bætir við að ef
fólk ætlar að ferðast til Nígeríu
þurfi það að vera með góðar teng-
ingar. Þá sé hætta á því að ef ekki
er farið rétt að geti fólk lent í vand-
ræðum. „Þetta er svo sem ekkert
mikið öðruvísi en þegar fólk fer til
annarra landa. Hér þarftu að vera
með tengingar, haga þér almenni-
lega og passa þig á að vera á réttum
stöðum. Langstærstur hluti fólksins
er í lagi en þetta er svo gríðarlegur
fjöldi að það leynast alltaf einhverjir
svartir sauðir,“ segir hann.
Á ferðum Guðna í Nígeríu hefur
hann að mestu dvalið í Abiriba-
þorpinu sunnarlega í Nígeríu. Þar
er Guðni í miklum metum og er með
svokallaðan höfðingjatitil. „Ég hef
verið að selja þeim þurrkaða fisk-
hausa og þeir eru mjög ánægðir
með það. Í kjölfarið var mér veittur
höfðingjatitill fyrir mitt framlag,“
segir Guðni og bætir við að þar að
auki hafi nígerísk hjón í þorpinu
skírt dóttur sína í höfuðið á honum.
„Þetta er fjölskylda sem ég var að
aðstoða við að komast í gegnum
nám og í þakkarskyni fékk dóttir
þeirra nafnið Guðný,“ segir Guðni.
Í Rússlandi Guðni ásamt vinum og vandamönnum í Rússlandi en hann
fylgdist með leik Íslands og Nígeríu í gær. Guðni þekkir vel til í Nígeríu.
Guðni er álitinn
höfðingi í Nígeríu
Ferðir hans orðnar um 60 talsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
„Stemningin er alveg geðveik. Ég
er að upplifa þetta í fyrsta skipti en
ég var úti á öllum leikjum Íslands á
EM. Mér finnst frábært hvað það
eru margir mættir hérna.“ Svona
hljómaði Sveinn Ásgeirsson, vara-
formaður Tólfunnar, þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
hálfleik í gær. Hann var þá staddur
í Hljómskálagarðinum en liðsmenn
Tólfunnar sáu um bumbuslátt og
baráttuöskur í garðinum meðan á
leik stóð. Sveinn var eins og flestir
Íslendingar vongóður í hálfleik og
minnti á hvað stuðningur við lands-
liðið væri mikilvægur þáttur í
leiknum. „Við erum hérna til að
styðja landsliðið og vonum auðvitað
það besta,“ sagði Sveinn og bætti
við: „Við erum miklu betri. Við er-
um að sækja miklu betur. Ég spái
tvö-núll fyrir Ísland.“
Það kvað þó við annan tón þegar
Morgunblaðið ræddi við Svein eftir
leik en eins og flestir vita töpuðu Ís-
lendingar gegn Nígeríu tvö-núll.
„Tvö-núll, bara í vitlausa átt,“ sagði
Sveinn, þó hann telji ekki tapið hafa
áhrif á baráttuandann. „Nú tekur
bara við „recovery“ hjá strákunum
og „recovery“ hjá okkur,“ sagði
Sveinn og vísaði þar til þess að liðið
og stuðningsmenn þyrftu nú að
hvílast, en liðsmenn Tólfunnar
höfðu þá dansað og öskrað í um tvo
tíma óslitið. teitur@mbl.is
„Vissulega tvö-núll,
bara í vitlausa átt“
Morgunblaðið/Valli
Stuðbolti Tólfan sá um að halda
uppi stemningu í Hljómskálagarði.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Ég held að þeim hafi hreinlega
bara verið svolítið heitt. Þeir virk-
uðu dálítið þungir á mig. Einbeit-
ingin er hins vegar fyrir hendi og
þessar síðustu mínútur í fyrri hálf-
leik lofa góðu.“ Þetta sagði Björn
Áki Jósteinsson, einn af þeim stuðn-
ingsmönnum íslenska landsliðsins
sem fylgdust með leiknum í
Hljómskálagarðinum, í hálfleik í
gær.
Stuðningsmenn Íslands voru
margir í Hljómskálagarðinum og
mikil stemning sem fylgdi þeim
enda höfðu margir spáð Íslend-
ingum góðu gengi í leiknum. Þrátt
fyrir súld og stöku skúrir voru
áhorfendur margir með réttu svala-
drykkina við hönd og glaðir í bragði
þegar flautað var til leiks. Íslend-
ingar litu betur út á fyrstu mínútum
leiksins og hélst stemningin í hend-
ur við það. Stuttu seinna hafði leik-
urinn þó róast og mátti þá meðal
áhorfenda heyra ummæli eins og:
„Þessi leikur fær nú engin fegurð-
arverðlaun.“
Gylfi gefinn upp á bátinn
Íslendingar þurftu ekki að bíða
lengi eftir fyrsta áfallinu í seinni
hálfleik en eins og flestir vita var
það Ahmed Musa sem skoraði strax
á 49. mínútu fyrir Nígeríu. Markið
kom eins og blaut tuska framan í
spennta stuðningsmenn í Hljóm-
skálagarðinum en í um sekúndubrot
mátti heyra saumnál detta meðal
mannfjöldans.
Áföllin urðu þó fleiri, en óvinur ís-
lendinga, Ahmed Musa, var aftur á
ferðinni á 75. mínútu og gerði glæsi-
legt mark fyrir Nígeríumenn. Í
þetta skiptið var markinu ekki fylgt
eftir með þögn heldur blóti og öskr-
um í átt að risaskjánum á túninu.
Það var svo þegar Gylfi Sigurðs-
son klúðraði víti sem flest stuðn-
ingsfólk í Hljómskálagarðinum
missti vonina endanlega. „Djöfull er
þetta lélegt! Hann hittir ekki einu
sinni á markið,“ mátti þá heyra í
einum bláklæddum stuðningsmanni
en fleiri sambærileg ummæli fylgdu
á eftir. Aðrir röltu heim á leið þrátt
fyrir að nokkrar mínútur væru eftir
af leiknum.
Morgunblaðið/Valli
Brjálaður Margir létu dómgæsluna, vítaspyrnuna hans Gylfa og Ahmed Musa fara í taugarnar á sér í gær.
Vonbrigðin voru augljós
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Þeir báru höfuðið hátt að leik lokn-
um, stuðningsmenn íslenska karla-
landsliðsins í knattspyrnu víðsvegar
um landið, að loknum leik Íslands og
Nígeríu á HM í gær.
Viðburðahaldarar sem héldu uppi
dagskrá í tilefni af leiknum og sýndu
á risaskjám eru einróma og segja ís-
lenska stuðningsmenn tvíeflda fyrir
leikinn gegn Króatíu á þriðjudag.
Liðið uppskar lófatak í leikslok
Vel viðraði til útiveru í gær síð-
degis, þegar leikurinn fór fram og
talið er að fleiri hafi almennt horft á
leikinn undir berum himni heldur en
þegar Íslendingar mættu Argentínu.
Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir
gáfu starfsfólki sínu frí meðan á
leiknum stóð og af þessum sökum
myndaðist umferðarteppa á höfuð-
borgarsvæðinu milli klukkan tvö og
þrjú í gær samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Umferð um verslunar-
miðstöðina Kringluna minnkaði
nokkuð, en þó ekki þannig gangar
hennar tæmdust. HM-stofa Kringl-
unnar troðfylltist þó, en þar verða
allir leikir heimsmeistaramótsins
sýndir á breiðtjaldi og nokkrum
sjónvörpum til viðbótar.
Áætlað er að yfir þrjú þúsund
manns hafi fylgst með leiknum á
risaskjá í Hljómskálagarðinum, en
þar var sérstök fjölskyldudagskrá
fyrir leikinn. Nokkur fjöldi erlendra
ferðamanna var þar staddur til að
virða fyrir sér íslenska fótbolta-
undrið á risaskjá. „Því miður fengu
þeir ekki alveg það sem þeir ætluðu
sér að upplifa, en svona getur þetta
farið. Það var mikil stemning, sung-
ið, trallað og klappað,“ segir Felix
Bergsson, kynnir á skemmtuninni í
gær. Á Ingólfstorgi, þar sem líka var
risaskjár, var einnig þétt setið.
Í Gamla bíó var selt í sæti með
inniföldum veitingum, drykkjum og
poka með óvæntum glaðningi. Að
sögn Guðvarðs Gíslasonar hjá Gamla
bíó seldust sætin upp á örskots-
stundu. „Þetta var geggjað. Við vor-
um með 300 manns í svoleiðis og síð-
an hleyptum við inn 200 til viðbótar.
Það var sneisafullt hjá okkur,“ segir
hann og nefnir að fyrir leikinn gegn
Króatíu verði einnig selt í sæti. „Nú
er að duga eða drepast, við þurfum
að leggja allt í sölurnar.“
200 manns horfðu í Vesturbæ
Á sundlaugartúninu við Vestur-
bæjarlaug stóðu Kaffihús Vestur-
bæjar, Brauð & Co., Melabúðin og
Hagavagninn fyrir viðburði og
fylgdust yfir 200 manns með á risa-
skjá þar. „Á þriðjudag keyrum við
aftur sömu dagskrá,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, einn eigenda
Kaffihúss Vesturbæjar, en hann seg-
ir að klappað hafi verið fyrir „hetju-
legri framgöngu“ landsliðsins að leik
loknum. „Nú leggjumst við öll á ár-
arnar til að vinna Króatana. Vest-
urbæingar munu safnast saman og
búa til orku til að senda til Rúss-
lands,“ segir hann.
Hið sama á við um aðra þá staði
sem nefndir eru hér, stemningin
heldur áfram á þriðjudag.
Báru höfuðið hátt
þrátt fyrir skellinn
„Nú leggjumst við öll á árarnar til að vinna Króatana“
Ljósmynd/Gísli Marteinn
Vesturbær Fjölskyldustemning var á túninu við Vesturbæjarlaug í gær og höfðu margir með sér tjaldstóla og teppi.