Morgunblaðið - 23.06.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Tau verð 129.000 kr.
Leður verð 159.000 kr.
Nýir glæsilegir
stólar frá Belgíu
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, hélt á sjó í há-
deginu í gær en hann mun starfa í
viku sem kokkur. „Ég fer á sjó frá
Grundarfirði. Ég skil bílinn eftir í
Reykjavík og fer bara með sjópok-
ann með mér. Það er nú svolítið
langt síðan síðast en sonur minn er á
sjó og svo kom það upp að kokkurinn
þurfti að fara í frí og þá var hringt
og spurt hvort ég vildi ekki bara
vera kokkur,“ segir Ásmundur í
samtali við Morgunblaðið en hann
starfaði á sjó á árum áður. Spurður
hvort þetta þýddi að hann myndi
missa af leik Íslands á Nígeríu segir
hann að sjómenn myndu horfa á
leikinn á leiðinni út.
„Það verður allt vitlaust,“ sagði
Ásmundur í gær. Hann segir þetta
vera fína tilbreytingu frá þing-
störfum. „Ég tók viku í sveit í fyrra
þannig að það verður fínt að taka
viku á sjó núna. Aðeins að tæma
hugann. Þetta er bara mjög gott.“
Morgunblaðið/Arnþór
Þingmaður og kokkur Ásmundur hélt á sjó úr Grundarfirði í hádeginu í gær.
Ásmundur Friðriks
heldur á sjó í viku
Fín tilbreyting frá þingstörfum
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Skortur á hjúkrunarfræðingum yfir
sumartímann verður ekki leystur
með því að ráða útlenska hjúkrunar-
fræðinga. Þetta segir Anna Sigrún
Baldursdóttir, aðstoðarmaður for-
stjóra Landspítalans, í samtali við
Morgunblaðið. Um 1.000 Íslendingar
menntaðir sem hjúkrunarfræðingar
starfa á öðrum vettvangi en hjúkrun.
Í ljósi sumarlokana á Landspítal-
anum, m.a. vegna skorts á hjúkrun-
arfræðingum, hefur sú spurning
komið upp hvort sá vandi verði að
einhverju leyti leystur með ráðningu
hjúkrunarfræðinga frá útlöndum.
Það hafi þó oft komið til tals á spít-
alanum, segir Anna Sigrún. Útlend-
ingar eru þó reglulega ráðnir í störf
hjúkrunarfræðinga og aðrar stöður á
spítalanum, en litið er á þær ráðn-
ingar sem langtímaráðningar.
Eru ráðnir til lengri tíma
„Við höfum ekki ráðið útlenska
hjúkrunarfræðinga til sumarstarfa
vegna þess að það er allt of stuttur
tími. Aðlögun tekur tíma, það þarf að
koma fólki fyrir, koma því inn í
tungumálið og kostnaður er því of
mikill fyrir svo stutt starfstímabil,
þ.e. sumarafleysingar,“ segir Anna
Sigrún. Hjúkrun og önnur heilbrigð-
isstörf yfirhöfuð eru mikil samskipta-
störf og því skiptir íslenskukunnátta
miklu máli. Þó eru einstaka greinar
innan hjúkrunar þar sem kunnátta í
íslensku er ekki eins mikilvæg og
hægt er að nýta krafta útlenskra
hjúkrunarfræðinga þar einnig.
Sami fjöldi og var fyrir hrun
„Við erum akkúrat á sama stað í ár
og við vorum árið 2007,“ segir Ásta
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
mannauðssviðs Landspítalans, um
fjölda þeirra sem eru með erlent rík-
isfang og eru ráðnir í fyrsta skipti
sem hjúkrunarfræðingar á Landspít-
alanum. Árið 2007 voru 23 erlendir
hjúkrunarfræðingar ráðnir hjá LSH,
2008 var talan 12, en milli 2009 og
2015 fækkaði þeim ráðningum um-
talsvert.
Mikill kippur hefur þó orðið síð-
ustu ár, en árið 2015 var fjöldinn þrír,
11 árið 2016 og í fyrra var fjöldinn
kominn upp í 22. Hlutfall útlenskra
hjúkrunarfræðinga er þó ansi lágt
þegar litið er á það að alls starfa 1.500
hjúkrunarfræðingar hjá Landspítal-
anum.
Stöður ekki mannað-
ar með fólki að utan
Útlenskt starfsfólk á LSH er fremur ráðið til lengri tíma
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Tala útlenskra hjúkrunarfræðinga hjá Landspítalanum hefur
hækkað síðustu ár. Hlutfallið er þó lágt, 22 af 1.500 hjúkrunarfræðingum.
Keahótel ehf. hafa fest kaup á Hótel Kötlu við Vík í
Mýrdal. Fyrirtækið hyggst áfram reka hótelið undir
sama nafni og halda rekstrinum áfram með sama
móti og fyrir söluna. Hótel Katla er þriggja stjarna
heilsárshótel. Hótelið er með 103 herbergi og veit-
ingastað sem rúmar allt að 200 gesti.
Hótel Katla bætist nú við hóp níu hótela sem Kea-
hótel reka fyrir, en fyrirtækið rekur sex hótel í
Reykjavík og þrjú á Norðurlandi. Katla verður
fyrsta hótel fyrirtækisins á suðurhluta landsins. Alls
eru herbergi hótelkeðjunnar fyrir kaupin 794 tals-
ins.
Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Keahót-
ela ehf., segist sjá mikla möguleika til frekari upp-
byggingar á svæðinu, enda sé Hótel Katla vel stað-
sett í fallegu umhverfi. Náttúrufegurðin í kringum
hótelið hefur laðað til sín listamenn og kvikmynda-
gerðarmenn sem hafa meðal annars nýtt svæðið
sem sviðsmynd í sjónvarpsþáttum eins og Game of
Thrones. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á
svæðinu undanfarin ár.
Þegar hefur verið gengið frá kaupunum en í til-
kynningu Keahótela er kaupverðið sagt trúnaðar-
mál.
Keahótel kaupa Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal
Ekkert greiningarfyrirtæki í landinu
hefur útbúið verðmat eða greiningu á
HB Granda síðan Guðmundur Krist-
jánsson, oftast kenndur við Brim,
keypti 34,1% hlut í félaginu á 21,7
milljarða króna í apríl síðastliðnum.
Með kaupunum myndaðist yfirtöku-
skylda sem um 90% hluthafa hafa
sagst ætla að hafna.
Engar nýjar greiningar gerðar
Morgunblaðið hafði samband við
allar helstu greiningardeildir landsins
til þess að spyrjast fyrir um af hverju
engar greiningar hefðu verið gerðar
og hvort búast mætti við verðmati frá
þeim á næstunni. Allir greiningarað-
ilar sögðu að ekkert nýlegt verðmat á
HB Granda lægi fyrir og ekki væri
forgangsatriði að gefa út greiningu á
fyrirtækinu. Starfsmaður hjá IFS
greiningu sagði að enginn viðskipta-
vinur þeirra hefði kallað eftir grein-
ingu á fyrirtækinu og því hefði það
ekki verið forgangsmál hjá þeim að
verðmeta félagið.
Arion banki hefur ekki gert grein-
ingu á fyrirtækinu, því Arion var hlut-
hafi þegar HB Grandi var skráður á
markað. Nú er hins vegar ekkert því
til fyrirstöðu og sagði viðmælandi
blaðsins innan greiningardeildar-
innar að það væri á döfinni að verð-
meta fyrirtækið.
Aðili sem Morgunblaðið setti sig í
samband við sagði að greiningar-
deildirnar teldu það skila litlum
árangri og vera tilgangslaust að
greina HB Granda sökum þess að eig-
endur félagsins héldu flestir á stórum
hlut í félaginu og stunduðu lítil við-
skipti með þá, en fjórir stærstu hlut-
hafar HB Granda eiga rétt tæplega
tvo þriðju félagsins. Velta með bréf
félagsins á markaði hefur verið lítil og
því voru flest greiningarfyrirtæki
landsins sammála um að HB Grandi
væri ekki í forgangi hjá þeim.
Yfirtökutilboð ekki runnið út
Frá því að Guðmundur Kristjáns-
son keypti hlut sinn í fyrirtækinu hef-
ur hann tekið við sem forstjóri þess í
stað Vilhjálms Vilhjálmssonar. Loftur
Bjarni Gíslason, útgerðarstjóri frysti-
skipa félagsins, hefur einnig látið af
störfum en heimildir Morgunblaðsins
herma að brotthvarf hans frá fyrir-
tækinu tengist ekki forstjóraskiptun-
um.
Hinn 28. maí gerði Brim hluthöfum
HB Granda yfirtökutilboð í hluti
þeirra í félaginu. Verðið hljóðaði upp
á 34,3 krónur fyrir hvern hlut. En í
greinargerð stjórnar HB Granda,
sem gefin var út í gær, kemur fram að
Brim hafi gert samkomulag við hlut-
hafa sem eiga 90,05%, að meðtöldum
eignarhlut Brims, þar sem þeir stað-
festa að ganga ekki að yfir-
tökutilboðinu. Yfirtökutilboðið gildir
hins vegar til 29. júní. Íslandsbanki er
umsjónaraðili tilboðsins.
steingrimur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
HB Grandi Félagið er eina sjávarútvegsfyrirtækið sem skráð er í kauphöll.
Ekkert verðmat
í kjölfar tilboðs
Engar nýjar greiningar á HB Granda til