Morgunblaðið - 23.06.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
23. júní 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 108.54 109.06 108.8
Sterlingspund 144.2 144.9 144.55
Kanadadalur 81.66 82.14 81.9
Dönsk króna 16.937 17.037 16.987
Norsk króna 13.373 13.451 13.412
Sænsk króna 12.245 12.317 12.281
Svissn. franki 109.54 110.16 109.85
Japanskt jen 0.9847 0.9905 0.9876
SDR 153.08 154.0 153.54
Evra 126.25 126.95 126.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.7129
Hrávöruverð
Gull 1263.7 ($/únsa)
Ál 2178.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.46 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
FRÉTTASKÝRING
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Samrunasaga Kviku banka er um-
fangsmikil, þó að í árum talið sé
hún ekki löng. Nýjasti kaflinn í
sögu bankans var skrifaður í vik-
unni þegar tilkynnt var um áform
Kviku um að kaupa allt hlutafé
Gamma Capital Management, eins
stærsta sjóðafyrirtækis landsins.
Sögu Kviku má rekja til um tug-
ar fjármálafyrirtækja sem runnið
hafa inn í fyrirtækið á undanförn-
um árum.
Kvika verður til
Einn forveri Kviku, MP Banki,
varð til upp úr MP Verðbréfum, en
árið 2003 fékk félagið fjárfestinga-
bankaleyfi og bauð í kjölfarið upp á
alhliða fjárfestingabankaþjónustu.
Í júní 2011 keypti MP banki
ALFA verðbréf og tók Sigurður
Atli Jónsson, þáverandi forstjóri
yfirtekna félagsins, við sem for-
stjóri MP banka. ALFA var á þeim
tíma með í kringum 15 milljarða í
eignastýringu fyrir viðskiptavini
sína.
Í október sama ár keypti MP
banki Júpíter rekstrarfélag, sem
að hluta hafði verið í eigu bankans
áður. Júpíter var með 10,5 millj-
arða króna í stýringu á þessum
tíma.
Í júní 2015 sameinuðust MP
Banki og Straumur fjárfestinga-
banki eftir nokkurn aðdraganda og
til varð Kvika. Sigurður Atli Jóns-
son varð forstjóri sameinaðs
banka.
Í apríl í fyrra lét svo Sigurður
Atli af störfum og við tók Ármann
Þorvaldsson, sem gegnt hafði starfi
framkvæmdastjóra fyrirtækjaráð-
gjafar Virðingar um skeið.
Með kvenlegar áherslur
Auður Capital var stofnað árið
2007 af Höllu Tómasdóttur og
Kristínu Pétursdóttur, sem varð
forstjóri félagsins. Markmið Auðar
var meðal annars að auka kven-
legar áherslur innan fjármála-
heimsins.
Í nóvember 2011 var greint frá
því að stjórnir Auðar og Tinda
verðbréfa hefðu komist að sam-
komulagi um að sameina starfsemi
þeirra undir merkjum Auðar Capi-
tal, en Hannes Frímann Hrólfsson
var einn stofnenda Tinda.
Það var síðan í byrjun árs 2014
sem að Auður og Virðing samein-
uðust undir merkjum síðarnefnda
félagsins. Kristín Pétursdóttir var
kjörin stjórnarformaður sameinaðs
félags en Hannes Frímann var ráð-
inn forstjóri þess, eftir að hafa
gegnt starfi forstjóra Auðar í tæpt
ár.
Kvika og Virðing sameinast
Á síðasta ári sameinuðust Kvika
banki og Virðing undir nafni
Kviku. Eftir samrunann í nóvem-
ber það ár voru um 285 milljarðar í
stýringu hjá félaginu. Með samein-
ingunni varð Hannes Frímann
framkvæmdastjóri eignastýringar
Kviku en Ármann Þorvaldsson var
áfram forstjóri fyrir sameinað fé-
lag.
Í ágúst í fyrra keypti Kvika allt
hlutafé í Öldu sjóðum, en Alda var
með 45 milljarða króna í stýringu.
Mánuði seinna var jafnframt til-
kynnt um kaup Kviku á fyrirtækja-
ráðgjöf Beringer Finance á Ís-
landi.
Kvika banki varð fyrsti bankinn
frá hruni til þess að vera tekinn til
viðskipta á hlutabréfamarkaði,
þegar að hlutabréf bankans voru
skráð á First North markaðinn í
mars á þessu ári. Markaðsvirði
Kviku við skráninguna var ríflega
12 milljarðar króna.
Gamma markar kaflaskil
Fyrir þremur dögum tilkynntu
svo Kvika og hluthafar sjóðastýr-
ingarfyrirtækisins Gamma að búið
væri að undirrita viljayfirlýsingu
um kaup Kviku á öllu hlutafé
Gamma. Í viljayfirlýsingunni kem-
ur fram að kaupverð fyrir allt úti-
standandi hlutafé Gamma nemi um
3,75 milljörðum króna.
Gamma er eitt af öflugri sjóða-
stýringafélögunum hér á landi en
eignir í stýringu Gamma námu 138
milljörðum króna um áramótin.
Samkvæmt tilkynningu munu sam-
anlagðar eignir hjá Kviku og
rekstrarfélögum bankans verða um
400 milljarðar við kaupin. Að auki
veitir sameinað félag víðtæka fjár-
festingarbankaþjónustu, sérhæfða
lánastarfsemi og einkabankaþjón-
ustu.
Kvika stendur á öxlum tíu
mismunandi fyrirtækja
Eignastýring
» Samanlagðar eignir í stýr-
ingu hjá Kviku banka og
rekstrarfélögum í eigu bank-
ans verða um 400 milljarðar
króna gangi kaupin á GAMMA
eftir, samkvæmt fréttatilkynn-
ingu.
» Stefnir er með um 350
milljarða króna í stýringu, Ís-
landssjóðir með um 200 millj-
arða króna, Landsbréf með
184 milljarða og Íslensk verð-
bréf með um 125 milljarða í
stýringu, samkvæmt heima-
síðum fyrirtækjanna.
Gamma og Kvika banki mynda eitt stærsta sjóðastýringafyrirtæki landsins
Fjármálafyrirtæki sem runnið hafa inn í Kviku
2011
2011
2011
2014
2015
2017
2017
2017
2018
MP banki
Auður
Tindar
Virðing
Alda
Gamma
Beringer fyrirtækjaráðgjöf
Straumur
Júpíter
Alfa
Breski vogunarsjóðurinn Lans-
downe Partners virðist hafa fengið
stærstu úthlutunina í hlutafjárút-
boði Arion banka í tengslum við
skráningu bankans. Heldur sjóður á
vegum fyrirtækisins á 2,48% hlut í
bankanum samkvæmt nýjum
hluthafalista á vefsíðu Arion banka.
Næst stærsti hluturinn féll í hlut
sjóðs á vegum breska eigna-
stýringarfyrirtækisins Miton Group,
eða 1,22%, samkvæmt listanum.
Sænski bankinn SEB er skráður
fyrir 29,17% hlut fyrir hönd
sænskra heimildarskírteinishafa
(SDR). Takmarkaðar upplýsingar
eru um endanlega eigendur þessara
skírteina, en tekið er fram að
stærsta úthlutunin í hlutafjárútboð-
inu í formi SDR bréfa nam 1,15% af
heildar útgefnum bréfum bankans.
Jafnframt kemur fram að Kaupskil
eigi 15,42% hlutdeildarskírteinanna
sem skráð eru á SEB, þannig að
tæplega 14% þeirra eru skráð á aðra
fjárfesta.
Rétt er að taka fram að Arion
banki heldur á 9,52% hlut í eigi bréf-
um svo eignarhlutur annarra hlut-
hafa í útistandandi bréfum er meiri
sem því nemur. sn@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Nýir hluthafar Hlutabréf í nýaf-
stöðnu útboði Arion dreifðust víða.
Lansdowne og Miton
fengu mest í útboðinu
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
Atvinna