Morgunblaðið - 23.06.2018, Page 27
MESSUR 27á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
(Lúk 6.)
ORÐ DAGSINS: Verið
miskunnsamir
AKUREYRARKIRKJA | Jónsmessa kl. 11.
Fæðingarhátíð Jóhannesar skírara. Prestur er
Guðmundur Guðmundsson. Alexander Edel-
stein leikur á píanó. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Þór
Hauksson þjónar og flytur hugleiðingu. Org-
anisti er Kristín J. Félagar úr kór Árbæjarkirkju
leiða söng. Kaffi og meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Áskirkja verður lokuð til júlíloka
vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks
kirkjunnar. Ekkert helgihald verður í kirkjunni fyrr
en eftir verslunarmannahelgi.
ÁSTJARNARKIRKJA | Hjólreiðamessa kl. 10.
Þjóðkirkjusöfnuðirnir í Hafnarfirði, á Álftanesi og
í Garðabæ bjóða til sameiginlegrar hjólreiða-
messu. Guðsþjónustan hefst í Ástjarnarkirkju í
Hafnarfirði og Vídalínskirkju í Garðabæ kl. 10.
Þaðan verður hjólað til Hafnarfjarðarkirkju og
síðan til Víðistaðakirkju og að lokum til Garða-
kirkju. Einn liður messunnar fer fram í hverri
kirkju. Prestar safnaðanna annast messuna.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
BESSASTAÐASÓKN | Hjólreiðamessa á Jóns-
messu; sjá nánar í Garðakirkju.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngumessa þjóð-
kirkjusafnaðanna í Breiðholti. Gengið verður frá
Breiðholtskirkju að Seljakirkju kl. 10. Þar hefst
messa kl. 11. Kaffisopi eftir messu og akstur
að Breiðholtskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Morgunmessa kl. 11.
Kantor Jónas Þórir og Kór Bústaðakirkju.
Messuþjónar og sr. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti er Guðný Ein-
arsdóttir. Veitingar í safnaðarsal að messu lok-
inni.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og mán. mið og fös. kl. 8, lau.
kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar. Félagar úr Dóm-
kórnum syngja og organisti er Kári Þormar.
Minnum á bílastæðin við Alþingi.
EIRÍKSSTAÐAKIRKJA | Sumarmessa 24.
júní kl. 14. Prestur er Þorgeir Arason. Organisti
er Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur söngur.
Hringjari Gréta Þórðardóttir.
FELLA- og Hólakirkja | Göngumessur Breið-
holtssafnaðanna í júní. Sunnudaginn 24. júní er
síðasta göngumessan. Gengið verður frá Breið-
holtskirkju kl. 10 til Seljakirkju þar sem messa
hefst kl. 11.
Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok hverrar
messu og einnig ökuferð til baka að upphafs-
stað göngunnar.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
sunnudag kl. 14.
Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur
þjónar fyrir altari. Hljómsveitin Mantra og Söng-
hópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni, organista.
GARÐAKIRKJA | Hjólreiðamessa á Jóns-
messu í Garðabæ og Hafnarfirði.
Í Garðabæ hefst messan í Vídalínskirkju kl. 10
og síðan er hjólað á milli kirkna og messan
heldur áfram á hverjum stað. Stefnt er að því að
vera í Garðakirkju kl. 11.50 og haldið heim að
lokinni altarisgöngu kl. 12.20. Hressing verður í
boði á leiðinni.
GLERÁRKIRKJA | Mannakornsmessa kl. 20
sunnudag. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar.
Krossbandið sér um tónlistina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsamessa kl.
11. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Org-
anisti er Hákon Leifsson og forsöngvari leiðir
söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Ásta Haraldsdóttir og félagar úr Kirkju-
kór Grensáskirkju leiða söng. Heitt á könnunni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er
Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur. Grund-
arkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage
organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 20.
Prestur er Leifur Ragnar Jónsson. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur.
Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffi-
sopi eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl 11.
Ferming. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti er Douglas A. Brotchie. Kaffisopi.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ása
Björk Ólafsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Stein-
ar Sólbergsson. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Alþjóðlegt orgels-
umar: Tónleikar laugard. kl. 12 og sunnud. kl.
17. Björn Steinar Sólbergsson organisti Hall-
grímskirkju leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er
Steinar Logi Helgason.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA | Sunnudagskvöld í kirkj-
unni kl. 20. Umsjón hefur sr. Elínborg Gísladótt-
ir.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnudaginn kl.
20. Samkoma með lofgjörð og fyrirbænum.
Ólafur H. Knútsson prédikar. Heilög kvöld-
máltíð. Eftir stundina verður boðið upp á gott
samfélag og kaffi.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðþjónusta og tónlist undir stjórn Ósk-
ars Einarssonar kl. 20. Einsöng flytur Katrín Val-
dís Hjartardóttir.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er
Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S.
Ólafsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta og
skírn 24. júní kl. 18.
Athugið breyttan messutíma! Sr. Pétur prédikar
og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jóns-
dóttir. Saxófónleikarinn Joakim Berghall leikur í
messunni. Organisti er Árni Heiðar Karlsson, fé-
lagar úr Fjárlaganefnd leiða söng og svör undir
hans stjórn. Ólafur Kristjánsson tekur vel á móti
öllum. Á eftir er gúllassúpa, kr. 1000, og má
svo fá sér eins oft og magamál leyfir eða með-
an eitthvað er til í pottunum. Ekki posi á staðn-
um.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Guðsþjón-
usta kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir organisti
stjórnar almennum safnaðarsöng. Prestur er
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta Breið-
holtssafnaða. Safnast verður saman við Breið-
holtskirkju kl. 10 og gengið til Seljakirkju, þar
sem guðsþjónusta hefst kl. 11. Sr. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson prédikar. Félagar úr Kór
Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er
Tómas Guðni Eggertsson. Að lokinni guðsþjón-
ustu verður boðið upp á kaffihlaðborð og svo
akstur til Breiðholtskirkju. Guðsþjónusta í Skóg-
arbæ kl. 15.30. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
prédikar. Tómas Guðni Eggertsson leikur á flyg-
ilinn.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund í
Lyfjafræðisafninu við Nesstofu kl. 11. Jóns-
messunni fagnað. Sóknarprestur þjónar og org-
anisti kirkjunnar mætir með harmónikkuna.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur,
annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hjólreiðamessa á Jóns-
messu í Garðabæ og Hafnarfirði. Í Garðabæ
hefst messan í Vídalínskirkju kl. 10 og síðan er
hjólað á milli kirkna og messan heldur áfram á
hverjum stað. Stefnt er að því að vera í Garða-
kirkju kl. 11.50 og haldið heim að lokinni alt-
arisgöngu kl. 12.20.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hjólreiða-
messa í Hafnarfirði og Garðabæ. Komið við í
Víðistaðakirju kl. 11. Stund í kirkjunni og hress-
ing í safnaðarsal. Sjá nánar á vidistadakirkja.is
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa sunnudag kl.
14. Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur, ann-
ast prestsþjónustuna. Organisti er Guðmundur
Vilhjálmsson.
Morgunblaðið/RAX
Kirkjur Úthlíðarkirkja
Það að arabalönd-
unum mistókst að ná
aftur þeim land-
svæðum sem glatast
höfðu í Sex daga stríð-
inu varð til þess að
landnám Ísr-
aelsmanna jókst á
hernumdu svæðunum,
bæði á Vesturbakk-
anum og í Austur-
Jerúsalem. Á meðan
Verkamannaflokk-
urinn fór með völd takmörkuðust
landnemabyggðirnar við svæði þar
sem ekki var nein búseta fyrir. En
þegar hægrivængurinn vann kosn-
ingasigur og Menachem Begin varð
forsætisráðherra árið 1977, var haf-
ist handa við að reisa landnema-
byggðir á eins mörgum stöðum á
hernumdu svæðunum og hægt var
til að tryggja eignarhald Ísr-
aelsmanna á hinu hernumda landi. Í
dag má telja landnema Ísr-
aelsmanna í hundruðum þúsunda á
hernumdum svæðum Palestínu.
Menachem Begin, forsætiráðherra
Ísraels og Saddat Egyptalands-
forseti sömdu frið milli landanna
árið 1979 – hið svokallða Camp
David-samkomulag. Skiluðu Ísr-
aelsmenn þá Sínaískaganum til
Egypta. Þrátt fyrir byltingar og
blóðug stjórnarskipti í Egyptalandi
síðan stendur friðarsamkomulagið
enn.
Eftir margra ára átök og mis-
lukkaðar samningaumleitanir
ákváðu Ísraelsmenn og PLO, Frels-
issamtök Palestínu, að semja frið
árið 1993. Samningurinn kallast
Oslóarsamkomulagið, enda samið
um það í Osló. Palestínumenn fengu
samkvæmt því rétt til að stjórna
eigin málum á Vesturbakkanum og
í Gasa á móti því að viðurkenna til-
verurétt Ísraels. Enn hefur ekki
verið hægt að ganga frá samningum
sem skilgreina þetta svæði nánar.
Og smátt og smátt hafa samningar
fjarað út. Palestínumenn eru auk
þess klofnir í andstöðu sinni. Fatah
sem er pólitísk hlið PLO stýrir
Vesturbakkanum en Hamas-
samtökin Gasa. Hamas viðurkennir
ekki tilvist Ísraels og hefur háð
margar styrjaldir við Ísraelsmenn,
skotið rakettum á landsvæði þeirra
og gert sjálfsmorðssprengjuárásir.
Ísraelsmenn hafa svarað af fullri
hörku með loftárásum og hernaði á
landi. Nú hafa Hamas og Fatah
samið frið sín á milli.
PLO var stofnað 2. júní 1964 í
Kaíró. Yasser Arafat var leiðtogi
PLO frá 1969 til dauðadags árið
2004. Hann stofnaði Fatah-
hreyfinguna. Al Aqsa-hreyfingin
var hernaðararmur þeirra og háði
hreyfingin lengi skærustríð við Ísr-
ael. PLO var staðsett fyrst í Jórd-
aníu en síðan Líbanon. Þeir tóku
þátt í borgarastríðinu þar. Þegar
Ísrael réðst inn í Líbanon 1982 flúði
stjórn PLO til Túnis. Hamas-
hreyfingin var stofnuð 14. desem-
ber 1987 á Gaza. Nafn
hreyfingarinnar er
stytting á arabíska
heitinu „Íslamska and-
spyrnuhreyfingin“.
Hamas varð til í fyrstu
Intifadauppreisn Pal-
estínumanna. Intifada
merkir uppreisn eða
það að hrista af sér – í
þessu tilfelli ok kúgara.
Fyrsta sjálfsvígs-
árásin sem Hamas stóð
að var gerð árið 1994.
Síðan skipta þær
hundruðum. Hreyfingin var kosin
til valda á Gaza árið 2006. Auk
þeirra styrjalda sem hér hafa verið
nefndar hafa Ísralsmenn og arabar
háð marga aðra hildina í 70 ára
sögu Ísraels. Þar má nefna að Ísr-
aelsmenn hafa gert margar innrásir
í Gaza og í Líbanon. Og á sjöunda
áratugnum stóðu PLO samtökin
fyrir mörgum hryðjuverkaárásum
og flugránum víða um heim. Árið
1982 sóttu hersveitir Ísraela allt að
Beirut í Líbanon með stuðningi líb-
anskra skæruliða. Markmiðið var
að hrekja PLO þaðan, en þá voru
höfuðstöðvar þeirra þar. Innrásin
var gagnrýnd gríðarlega á al-
þjóðavettvangi, sérstaklega fyrir
fjöldamorð sem voru framin í flótta-
mannabúðum Palestínuaraba í
Sabra og Shatila.
Árið 2002 byrjuðu Ísraelsmenn
að reisa múr kringum Vesturbakk-
ann eftir Intifada – uppreisn Pal-
estínumanna. Markmiðið var að
hindra sjálfsmorðssprenguárásir.
Hann er um 800 km að lengd og
minnir víða á Berlínarmúrinn. Al-
þjóðadómstóllinn í Haag lýsti því
yfir árið 2004 að múrinn bryti gegn
alþjóðalögum. Sjálfsvígsárásum
hefur fækkað en múrinn hefur gert
líf Palestínumanna illþolanlegt.
Það er því miður erfitt að benda á
lausnir á þessum átökum öllum. Al-
þjóðasamfélagið hefur stutt tveggja
ríkja hugmyndina svokölluðu, um
tvö sjálfstæð ríki Ísraels og Palest-
ínu. En margir halda því fram að
ekki sé lengur mögulegt að koma
þessari hugmynd í verk vegna land-
náms Ísraela. Aðrir hafa lagt til
sambandsríki Vesturbakkans og
Jórdaníu. En þá verður Gaza út-
undan. Eitt sameinað ríki virðist
líka fjarri, því gyðingum fjölgar
hægt en aröbum þess hraðar og
yrðu gyðingar fljótt í minnihluta í
slíku ríki. Ekki má gleyma að ¼
borgara Ísraels eru ekki gyðingar.
Ekki hefur nýjasta aðgerð Donalds
Trump Bandaríkjaforseta lægt öld-
urnar, að flytja sendiráð USA til
Jerúsalem og viðurkenna hana sem
höfuðborg Ísraels.
Ísrael 70 ára –
Landnám og
Intifada
Eftir Þórhall
Heimisson
Þórhallur
Heimisson
» Það er því miður
erfitt að benda á
lausnir á þessum
átökum öllum.
Höfundur er prestur.
Aðskilnaðarmúrinn sem
Ísraelsmenn settu upp milli
Ísraels og Palestínu stendur enn.
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Vanni umgjörð
kr. 27.900,-
Vanni umgjarðir eru
hágæða ítölsk hönnun.
Handsmíði fagmanna
með áratuga kunnáttu
og þekkingu.