Morgunblaðið - 23.06.2018, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
Í nokkrum orð-
um langar okkur
hjónin að minnast
mágs okkar og
svila, Jóhanns Runólfssonar, er
lést þann 18. maí sl. eftir
snarpa baráttu við krabbamein.
Jói kom inn í líf okkar er
hann og Bergþóra systir og
mágkona rugluðu saman reyt-
um og gengu í hjónaband fyrir
36 árum.
Jói kom vel fyrir sjónir,
myndarlegur á velli, ávallt vel
tilhafður og kurteis. Hann hafði
sig ekki mikið í frammi í fyrstu
Jóhann Runólfsson
✝ Jóhann Run-ólfsson fædd-
ist 16. október
1944. Hann lést 18.
maí 2018.
Útför hans fór
fram í kyrrþey 30.
maí 2018.
enda ekki auðvelt í
háværri tengdafjöl-
skyldu þar sem öll-
um lá ávallt mikið á
hjarta.
Smátt og smátt
kynntumst við Jóa
og kom þá vel í ljós
hversu vel hann var
að sér um marga
hluti.
Hvort heldur það
sem efst var á
baugi í þjóðlífinu eða í marg-
víslegum bókmenntum, því
hann var bókhneigður mjög og
víðlesinn.
Jói hafði ákveðnar skoðanir
og stóð fast á sínu.
Við minnumst þess einu sinni
þegar við hittumst í sælureit
þeirra, sumarbústaðnum í
Skorradal, og nefnt var hvort
ekki væri gott að grisja eilítið
af birkinu í kringum bústaðinn.
Nei, ekkert skyldi snert af birk-
inu og varð honum ekki haggað.
Jói hafði gaman af börnum
og átti auðvelt með að tengjast
þeim.
Litlu afastrákarnir, Matthías
og Úlfur, nutu góðs af leiðsögn
afa og ömmu sem er afar dýr-
mætt veganesti út í lífið. Það
var og afskaplega notalegt að
sjá hversu annt honum var um
börn okkar hjóna og barnabarn.
Minnisstætt er þegar Jói var
allur og Bragi litli fjögurra ára
barnabarn okkar sagði sorg-
mæddur: „Amma, veistu að
langafi minn er dáinn“ og átti
þar við Jóa.
Margs er að minnast í gegn-
um áratugina, en af mörgum
samverustundum stendur upp-
úr ferð okkar systkina og maka
á æskuslóðir Jóa til Vestmanna-
eyja fyrir nokkrum árum.
Þar sýndi hann okkur hreyk-
inn fæðingarbæ sinn og sagði
okkur margt og mikið um eyj-
arnar. Ferðin var í alla staði
frábær.
Bergþóru, Steina og fjöl-
skyldu vottum við okkar dýpstu
samúð.
Við minnumst Jóa með vin-
semd og virðingu, blessuð sé
minning góðs drengs.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þyri Emma Þorsteinsdóttir
og Karl Geirsson.
Góður vinur er fallinn frá.
Það er alltaf sárt þegar einhver
tengdur fellur frá, jafnvel þó að
heilsan hafi gefið vísbendingu
um að svo gæti farið.
Jói hafði glímt við veikindi
um talsverðan tíma en virtist
alltaf hrista þau af sér, enda
ekki alinn upp við að farið væri
til læknis með smá hor í nös.
Vestmanneyingur og sjómaður
til fjölda ára, ávallt hraustur og
þá var ekki farið til læknis
nema eitthvað alvarlegt væri
að.
Hann gat verið ansi hvass-
yrtur. Við frekari kynni kom í
ljós þessi mjúki maður sem
ávallt vildi gott gera.
Hann átti til, án nokkurs til-
efnis, að hringja og spyrja
hvort við Sigrún værum ekki á
leið í bæinn og ef svo þá hvort
við værum ekki til í að koma í
kjötsúpu eða læri.
Hann hafði mjög ákveðnar
skoðanir á landsmálum og gat
rætt þau mál af talsverðum
þunga og lá þá ekki á skoð-
unum sínum.
Þegar þau Bergþóra komu í
heimsókn i Keflavík var yfir-
leitt fyrsta spurning Jóa „áttu
ekki kaffi“?
Þau Bergþóra áttu sumarhús
í Skorradal.
Þær voru ófáar stundirnar
sem þau dvöldu þar og undu
hag sínum vel. Mörgum stund-
um var Jói við smíðar ásamt
syninum Þorsteini við stækkun
á húsinu og pallinum. Afastrák-
arnir voru í miklu uppáhaldi og
þótti Jóa mjög vænt um þá og
vildi hafa þá með í flestu og
sagði oft frá hvað þeir Matthías
og Úlfur væru fljótir að læra á
tölvur og á bókina.
Jói var víðlesinn og fylgdist
vel með, var mjög fróður um
margt hafði áhuga á ættfræði
og þjóðlegum fróðleik.
Ef umræðan snerist um báta
kom enginn að tómum kofanum
því þar var hann á heimavelli.
Jói las mikið og áttu þau hjón
mikið af bókum.
Þau Bergþóra höfðu mjög
gaman af ferðalögum og höfðu
til margra landa komið.
Að leiðarlokum viljum við
hjónin þakka Jóa góð viðkynni
og margar notalegar stundir.
Sendum Bergþóru, Steina og
fjölskyldu samúðarkveðjur okk-
ar með ósk um blessun Guðs
um ókomin ár.
Sigrún Rut Eyjólfsdóttir
Úlfar Hermannsson
Fallinn er frá
vinur minn og æskufélagi, Er-
ling R. Guðmundsson, alltaf
kallaður Lingi. Við ólumst upp
á Króknum og áttum heima
stutt hvor frá öðrum, hann í
Blöndalshúsinu en ég á Stöð-
inni. Lingi var ekki gamall er
hann fór að venja komur sínar
þangað en þar voru margir í
heimili og mikið um að vera.
Við vorum sessunautar í barna-
og unglingaskóla og vorum svo
við leik og störf eins og aðrir
unglingar á Króknum. Er
skólagöngu lauk vann Lingi
margskonar vinnu í landi og á
bátunum hér. Einnig var hann
talsvert hjá Leikfélaginu með
Jónasi Þór.
Hann var 2-3 sumur á síld-
veiðum og var á Hamri GK á
leið norður er hann kantraði út
af Mýrunum en það var mann-
björg.
Við Lingi vorum á vertíð í
Vestmannaeyjum árin ’59 og
’60. Síðan vann hann hér heima
þar til hann fór í siglingar á
M/S Jökulfelli og var þar á
annað ár. Það kom snemma í
ljós að Lingi var mjög sam-
viskusamur. Hann vildi öllum
vel og var óspar á að gera fólki
greiða ef hann hafði tök á því.
Hann gat verið stífur á mein-
ingu sinni ef því var að skipta
og hafði ekki á móti því að rök-
ræða um málefnið þótt gustaði
stundum.
Við Lingi unnum í símavinnu
tvö sumur og sagði hann oft
hvað það hefði verið góð sum-
arvinna.
Minntumst við þess er Bjössi
frá Sveinsstöðum gekk með
okkur eitt skipti þar sem hann
og Lingi þvörguðu um pólitík
að karlinn áttaði sig ekki á að
hann væri kominn of langt fyrr
en við beygðum með heimtaug-
inni heim að Hóli, næsta bæ
framar.
Eftir að Lingi stofnaði heim-
ili með Ríkeyju Eiríksdóttur
var ég ávallt velkominn ef ég
kom til Reykjavíkur. Lingi var
mörg ár á M/S Selfossi, á dekk-
inu og trúnaðarmaður undir-
manna en gekk hann hart eftir
því að undirmenn fengju sína
yfirtíð.
Erling R.
Guðmundsson
✝ Erling R. Guð-mundsson
fæddist 20. janúar
1942 í Reykjavík.
Hann lést 8. júní
2018 á Hrafnistu í
Reykjavík.
Útför Erlings fór
fram frá Garða-
kirkju á Álftanesi
14. júní 2018.
Vorum við sam-
skipa þar í tæp tvö
ár en þá fór ég í
Stýrimannaskól-
ann.
Það er margs að
minnast frá mann-
lífinu á Króknum
þegar við Lingi
vorum að alast
upp, öll sveitaböllin
á sumrin og stund-
um var farið á
sunnudögum í sveitina. Það
voru velheppnaðar ferðir, vínið
glóði í glösum og sungið var af
rausn. Þetta var einvalalið og
yfirleitt keyrði Binni Júlla okk-
ur.
Hafði Lingi ánægju af að
rifja upp þessa gömlu góðu
daga er við hittumst í seinni
tíð.
Er Lingi kom í land vann
hann á Eyrinni um tíma en fór
svo að starfa í Straumsvík.
Hann hætti þar eftir 26 ár, þá
kominn á aldur. Það átti vel við
Linga að vera í félagsmálum og
hafði hann snemma afskipti af
þeim.
Hann starfaði fyrir Sjó-
mannafélag Íslands, sat þar í
stjórn og samninganefnd. Hann
sat einnig í stjórn Lífeyris-
sjóðsins og átti þetta hug hans
allan.
Þó hann væri ekki fastur
starfsmaður var hann öllum
stundum á skrifstofunni en þar
var hann óspar á að tala við þá
sem áttu þar leið. Fyrir nokkr-
um árum fór að bera á heilsu-
leysi hjá honum sem smá
ágerðist þar til hann var lagður
inn á Hrafnistu og heimsótti ég
hann ef ég var staddur í
Reykjavík.
Hann vildi alltaf fá fréttir af
Króknum en síðast hringdi
hann í mig á afmælisdeginum
mínum í apríl og spurðist frétta
að norðan því þar var hugurinn
alltaf meira og minna. Ég votta
öllum aðstandendum mína
dýpstu samúð í sorg þeirra.
Ragnar Sighvats.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
GUÐRÚN B. BJÖRNSDÓTTIR,
Kríulandi 6,
Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 5. júní. Útför hennar fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 26.
júní klukkan 13.
Jón Guðmundur Bergsson
Björn Jónsson Sigríður Jóna Berndsen
Sigrún Jónsdóttir Jóhannes Snorrason
Páll Jónsson Katrín Júlía Júlíusdóttir
Þorvarður Björnsson Margareta Johansson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
JÓHÖNNU JÓHANNSDÓTTUR,
Smárahlíð 5e, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri
fyrir hlýju og frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Börn hinnar látnu og fjölskyldur þeirra
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HÖLLU GUÐNÝJAR ERLENDSDÓTTUR,
Laufásvegi 50,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til séra Irmu Sjafnar
Óskarsdóttur og Davíðs Ósvaldssonar.
Anna Erla Guðbrandsdóttir Egill Sveinbjörnsson
Margrét Traustadóttir Ámundi Halldórsson
Hjördís Steina Traustadóttir Kristinn Jónsson
Erlendur Traustason Björg Sigrún Ólafsdóttir
Þórður Ólafur Traustason Ágústa Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra
KRISTINS HÓLMFREÐS
HALLGRÍMSSONAR,
Hulduhlíð, Eskifirði,
áður til heimilis að Múla, Eskifirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hulduhlíðar fyrir frábæra
umönnun síðastliðin 20 ár.
Bjarni Kristinsson Sigríður Sigurvinsdóttir
Steinunn Kristinsdóttir
Hallgrímur Kristinsson Ingibjörg Kr. Ingimarsdóttir
Guðni Kristinsson Guðrún M.Ó. Steinunnardóttir
Ingvar Kristinsson Gunnhildur Grétarsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi
SIGURGEIR JÓHANNSSON
bryti,
áður til heimilis að Boðaslóð 19,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu, Fannborg 8, mánudaginn
11. júní. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kristín Sigurgeirsdóttir Unnsteinn Jónsson
Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir Steinar Ó. Stephensen
Ásdís Jóhannsdóttir
Fríða Dóra Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við sendum hjartans þakkir öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna
andláts elskulegs eiginmanns míns, föður
okkkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐJÓNS S. SVEINBJÖRNSSONAR
prentara,
Boðaþingi 24.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas og starfsfólki 11B,
11G og líknardeildar Landspítalans.
Símonía K. Helgadóttir
Jóhanna S. Guðjónsdóttir Vilhjálmur J. Guðbjartsson
Sveinbjörn Guðjónsson Kristín Viktorsdóttir
Ingibjörg H. Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn