Morgunblaðið - 23.06.2018, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2018
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Tónlistin er svo tær og fögur að
það er sama í hversu vondu skapi
maður getur verið þegar maður
byrjar að æfa, maður fer alltaf
brosandi út af æfingunum.“ Þetta
segir Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari um tónlist Mozarts.
Í ár heldur Guðný, sem kalla má
einn ástsælasta fiðluleikara lands-
ins, upp á sjötugsafmæli sitt með
eigin tónleikaröð. Alls verða tón-
leikarnir tíu talsins en Guðný mun
mun á þeim flytja öll verk Mozarts
fyrir píanó og fiðlu.
„Mozart var náttúrulega algjör
snillingur. Það er undravert hvað
hann gat samið sem svona ungt
barn. Það er alveg með ólíkindum,“
segir Guðný en fjöldi píanóleikara
mun taka þátt í tónleikaröðinni.
Á sunnudaginn kl. 12.15 fara
fimmtu tónleikarnir í röðinni fram
þar sem Delana Thompson frá New
York leikur með Guðnýju. Næstu
tónleikar verða haldnir á síðasta
sunnudegi hvers mánaðar, einnig í
Hannesarholti.
Vildi gera eitthvað sérstakt
Guðný hefur tónleikana á sunnu-
dag með sónötu í Es-dúr KV 26
sem Mozart samdi þegar hann var
tíu ára.„Þetta er ein af þeim són-
ötum sem hann samdi þegar hann
var kornungur. Ég byrja alla tón-
leika á verkum sem hann samdi á
milli sex og tíu ára aldurs,“ segir
Guðný en sónatan sem Guðný hef-
ur leika með á sunnudag er frá
árinu 1766.
Guðný segist ekki hafa verið bú-
in að vera með hugmyndina um
tónleikaröðina lengi í kollinum
þrátt fyrir að Mozart hafi alltaf
verið í uppáhaldi hjá henni. „Mann
langar stundum til að gera eitthvað
sérstakt á svona tímamótum. Fyrir
tíu árum ætlaði ég að flytja öll verk
Beethoven en fékk bara ekki pían-
ista með mér. Þannig að ég hélt
bara svolítið af glæsilegum tón-
leikum þá og fór svo til Taílands og
skemmti mér,“ segir Guðný og
bætir við: „Svo datt mér þetta bara
í hug þegar ég var að vafra á net-
inu og sá að það var komin ný út-
gáfa af öllum sónötum og öllum
verkum eftir Mozart. Það er alltaf
verið að rannsaka þessi verk.
Þarna voru þau komin í heild sinni,
hvert og eitt einasta, ekki bara all-
ar sónöturnar fyrir fiðlu og píanó
heldur líka brot úr verkum sem
höfðu fundist og líka verk sem
höfðu verið kláruð af öðrum sem
Mozart hafði ekki náð að klára.“
Glöð í bragði segir Guðný að eft-
ir langan feril sé hún fyrir löngu
búin að læra að tónlist sé meira en
hennar eigin einleikur. „Þetta hef-
ur svolítið setið á hakanum því
fiðluhlutinn í þessum verkum er
ekki eins afgerandi og oft í öðrum
sónötum. Þetta eru stór píanóverk
og fiðlan flýtur með en stundum
tekur hún á rás og er aðalatriðið.
Ég er löngu búin að læra það að
fiðlan er bara eitt af hljóðfær-
unum,“ segir Guðný hlæjandi.
Morgunblaðið/Hari
Hæfileikarík Guðný fagnaði 70 ára afmæli í janúar og leikur því Mozart.
Mozart-maraþon Guð-
nýjar heldur áfram
Sýningin Surrounded By verður í
dag, laugardag, kl. 14 opnuð hjá
Gilfélaginu Akureyri en þar gefur
að líta verk eftir myndlistarmenn-
ina Dana Neilson og Tuomo Savo-
lainen. Sá síðarnefndi sýnir lands-
lagsteikningar í anda 36
sjónarhorna á Fuji eftir Katsushika
Hokusai en sýningin heitir 15 sjón-
arhorn á Súlur. Sýning Dana Neil-
son heitir Portrett af sjávarbæ og
er athugun á notkun fundins efnis í
keramiki, að því er kemur fram á
heimasíðu Gilfélagsins.
Báðir listamenn starfa í Finn-
landi en Savolainen er þaðan.
Dana Neilson og Tuomo Savolainen
sýna hjá Gilfélaginu á Akureyri
Ljósmynd/Aðsend
Surrounded By Hluti úr einu af verk-
unum á sýningu listamannanna.
Um síðustu helgi opnaði fjöl-
listamaðurinn Katrin Hahner sýn-
inguna Suchness í Gallery Port á
Laugavegi. Suchness er fyrsta
myndlistarsýning Hahner á Íslandi
en í fyrravetur var hún í gesta-
vinnustofu á vegum SÍM í Reykja-
vík auk þess að stjórna tónlistinni
fyrir sýninguna Guð blessi Ísland í
Borgarleikhúsinu.
Hahner notar sjónlist, tónlist,
ljóðlist og fleiri listform í öðrum
verkum sínum en hún starfar í
Berlín og er með meistaragráðu í
myndlist frá listaháskólanum í
Stuttgart og Berlin Weissensee.
Katrin Hahner heldur sína fyrstu
myndasýningu á Íslandi í Gallery Port
Fjöllistakona Katrin Hahner festir sig
ekki við eitthvert eitt listform.
Vargur 16
Bræðurnir Erik og Atli eiga
við fjárhagsvanda að stríða.
Þeir grípa til þess ráðs að
smygla dópi. Erik skipulegg-
ur verkefnið og allt virðist
ætla að ganga upp, en
óvænt atvik setur strik í
reikninginn.
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Undir trénu 12
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 18.00
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 20.00
Mýrin 12
Bíó Paradís 22.00
Síðasta
áminningin Bíó Paradís 18.00
In the Fade 12
Metacritic 64/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.00
The Big Sick Bíó Paradís 17.45
Jumanji: Welcome
to the Jungle 12
Bíó Paradís 22.00
Doktor Proktor og
tímabaðkarið
Bíó Paradís 16.00
Krummi Klóki Bíó Paradís 16.00
Solo: A Star Wars
Story 12
Ævintýri Han Solo og Chew-
bacca áður en þeir gengu til
liðs við uppreisnina, þar á
meðal kynni þeirra af Lando
Calrissian.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.50, 19.40, 22.30
Sambíóin Egilshöll 19.00,
22.00
Sambíóin Akureyri 22.30
Ocean’s 8
Debbie Ocean safnar saman
liði til að fremja rán á Met
Gala-samkomunni í New
York.
Metacritic 60/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 14.15,
15.00, 16.50, 17.30, 19.10,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00, 19.40, 21.00
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Terminal 16
Myndin fjallar um tvo leigu-
morðingja í illum erinda-
gjörðum, forvitna þjón-
ustustúlku sem spilar með
alla sem hún kemst í tæri
við, kennara sem haldinn er
ólæknandi sjúkdómi og
íhugar sjálfsmorð og hús-
verði sem býr yfir vægast
sagt hættulegu leyndarmáli.
Metacritic 26/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Kringlunni 22.00
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Líf fjögurra góðra vinkvenna
breytist til frambúðar, eftir
að þær lesa söguna 50 Sha-
des of Grey í bókaklúbbnum
sínum.
Smárabíó 14.00, 16.30,
17.30, 19.10, 19.50, 22.10
Háskólabíó 18.20, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30,
19.30
Deadpool 2 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 66/100
IMDb 8,1/10
Smárabíó 19.30, 22.30
Avengers:
Infinity War 12
Avengers og bandamenn
þeirra verða að vera klárir í
að fórna öllu til að sigra hinn
öfluga Thanos. áður en eyði-
leggingarmáttur hans leggur
alheiminn í rúst.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 68/100
IMDb 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 21.50
Midnight Sun
Metacritic 38/100
IMDb 6,4/10
Myndin fjallar um 17 ára
gamla stelpu, Katie. Hún er
með sjaldgæfan sjúkdóm
sem gerir hana ofur-
viðkvæma fyrir sólarljósi.
Sambíóin Álfabakka 19.30
Bókmennta- og
kartöflubökufélagið
Metacritic 64/100
IMDb 7,1/10
Háskólabíó 18.10
Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf
að annast Jack-Jack á með-
an Helen, Teygjustelpa, fer
og bjargar heiminum.
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Laugarásbíó 14.00, 14.30,
16.30, 17.20
Sambíóin Álfabakka 12.30,
14.00, 14.30, 15.00, 17.00,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
14.00, 15.00, 16.00, 17.00,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 13.30,
14.30, 16.00, 17.00, 18.30,
19.30, 22.00
Sambíóin Akureyri 14.00,
15.00, 16.30, 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 14.00,
14.50, 16.30, 17.20, 19.50,
22.20
Háskólabíó 15.30, 18.10
Draumur Myndin skoðar ósagða sögu
Mjallhvítar, Öskubusku og
Þyrnirósar, sem komast að
því að þær eru allar trúlof-
aðar sama draumaprins-
inum.
Smárabíó 13.00, 15.20
Háskólabíó 15.40
Borgarbíó 15.00
Pétur Kanína Smárabíó 12.50, 15.10
Lói – þú flýgur
aldrei einn Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 12.50, 15.00
Víti í
Vestmannaeyjum Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 12.40
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 52/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 14.00, 19.50, 22.25
Sambíóin Álfabakka 16.45, 19.30, 21.30,
22.15
Sambíóin Egilshöll 13.00, 16.00, 20.00, 22.30
Smárabíó 13.30, 16.40, 19.40, 22.30
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 15.00, 21.30
Jurassic World:
Fallen Kingdom 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir
yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar-
verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há-
lendi Íslands þar til mun-
aðarlaus stúlka frá Úkraínu
stígur inn í líf hennar.
Morgunblaðið bbbbb
Laugarásbíó 19.50, 22.00
Smárabíó 17.10
Háskólabíó 15.50, 18.00,
20.40
Bíó Paradís 20.00
Adrift 12
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 14.40,
20.00, 22.10
Sambíóin Keflavík
22.20
Smárabíó 17.30,
20.00, 21.40, 22.20
Háskólabíó 15.40,
21.10
Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio