Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg Það mun ekki væsa um það fólk sem flytjast mun inn í nýtt hús sem nú er risið á horni Frakkastígs og Laugavegar. Út- sýnið úr einni íbúðanna er skemmtilegt en þar ber Hallgríms- kirkju á Skólavörðuholti við himin. Þessi bygging er aðeins ein margra sem nú rísa á og í námunda við Laugaveg. Á það ekki síst við um stórar nýbyggingar við Hverfisgötu. Útsýni í átt að minningarkirkju Hallgríms Péturssonar Nýbygging rís á horni Frakkastígs og Laugavegar 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 • Betri endurheimt vöðva eftir átök • 100% ráðlagður dagskammtur af magnesium Recover Nánari upplýsingar á www.geosilica.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Vöðvar og taugar Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og magnesíum í hreinu íslensku vatni. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Starfshópur kannar nýjar leiðir  Skoða hvaða leiðir eru færar í gjaldtöku vegna vegaframkvæmda  Tíma- eða flýtigjöld koma sterk- lega til greina  Ráðherra vonast til að framlag til vegaframkvæmda hækki um sex milljarða Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Verkefni starfshópsins er að skoða hvaða leiðir eru færar í gjaldtöku,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra, um nýskipaðan starfshóp sem koma á með tillögur um hvernig flýta megi uppbyggingu góðra og öruggra samgöngumannvirkja hér á landi. Ráðgert er að starfshópurinn muni skila af sér niðurstöðum í áföngum, en vænta má síðustu niðurstaðna um næstu áramót. „Áð- ur en starfshópurinn skilar af sér þurfa að eiga sér stað umræður í samfélaginu og á þingi,“ segir Sig- urður og bætir við að hlutverk starfshópsins sé fyrst og fremst að kanna hvort hægt sé að flýta fyrir nauðsynlegum framkvæmdum sem annars yrði farið í síðar. „Það eru mjög margar framkvæmdir sem brýnt er að klára. Með gjaldtöku eða annars konar útfærslu er mögulega hægt að flýta þeim,“ segir Sigurður. Starfshópur skoðar nýjar leiðir Tvær leiðir hafa að mestu verið nefndar í tengslum við gjaldtöku á vegum hérlendis, svokölluð flýti- eða tímagjöld. Með flýtigjaldi er átt við gjaldtöku við vegi þar sem ökumenn hafa aðra valkosti en að aka þá leið sem greiða þarf fyrir. Með tíma- gjaldi er hins vegar átt við leið þar sem t.d. ferðamenn þyrftu að greiða fyrir keyrslu hér á landi. „Tímagjald er afar vinsælt í þýskumælandi lönd- um og er ekkert ósvipað bifreiða- gjaldi fyrir þá sem keyra hér allan ársins hring. Þeir sem dvelja hér í skamman tíma þyrftu síðan að kaupa sér aðgang á meðan þeir dvelja hér,“ segir Sigurður og bætir við að starfshópurinn muni á næstunni skoða hvaða fleiri leiðir séu í boði. Sex milljarða viðbót í vegamál Á samgönguþingi sem efnt var til á dögunum kom fram að vonir stæðu til að fjármagn til vegaframkvæmda sem nú eru á fjárlögum hækkaði til lengri tíma og yrði 1,5% af vergri landsframleiðslu. Að sögn Sigurðar er það að lágmarki um sex milljarða króna hækkun frá núverandi fram- lagi. „Þetta er talsverð hækkun og framlagið ætti þá að vera í kringum 40-45 milljarðar að lágmarki. Það er umtalsverð hækkun, en í gegnum ár- in höfum við verið að fara niður fyrir 1% af vergri landsframleiðslu,“ segir Sigurður. Ljósmynd/Stjórnarráðið Samgönguþing Ræddar voru leiðir til gjaldtöku vegna vegaframkvæmda. Hlutfall nemenda sem útskrifast úr framhaldsskóla á fjórum árum hefur hækkað. Þetta kemur fram í nýrri samantekt frá Hagstofu. Frá árunum 2004 til 2016 hefur hlutfall nemenda sem útskrifast á fjórum árum hækkað um 9 prósentu- stig. Af þeim nýnemum sem innrituðust haustið 2012 útskrifuð- ust 52% fjórum árum síðar. Til sam- anburðar útskrifuðust 43% nýnema haustsins 2000 á fjórum árum. Á móti kemur að nemendum sem halda áfram í námi fjórum árum eftir upp- haf náms hefur fækkað í 22% en hlutfallið fór hátt í 28% árin 2004- 2005. Á sama tíma hefur brotthvarf nýnema af framhaldsskólastigi fjór- um árum eftir upphaf náms sveiflast og verið á bilinu 25%-30%. Þá kemur fram að mun fleiri nem- endur með íslenskan bakgrunn en erlendan útskrifast úr framhalds- skóla. Með tilliti til bakgrunns nem- enda var brotthvarf mest meðal inn- flytjenda. Af þeim innflytjendum sem hófu nám 2012 útskrifuðust 29% fjórum árum síðar. Aftur á móti er brautskráningarhlutfallið árið 2016 hæst meðal þeirra sem eru fæddir erlendis en hafa íslenskan bakgrunn, eða um 56%. Hlutfall þeirra sem ljúka námi í framhaldsskólum á höfuðborgar- svæðinu er hærra en þeirra sem eru utan þess. Þá eru konur líklegri en karlar til að útskrifast úr námi óháð bakgrunni og nýnemar í bóknámi líklegri til að útskrifast en nýnemar í starfsnámi. veronika@mbl.is Fleiri útskrifast úr fram- haldsskóla á réttum tíma  Hlutfallið hefur hækkað smám saman á árunum 2004-2016 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útskrift Framhaldsskólanemar út- skrifuðust fyrir skemmstu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.