Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
Fjöldi kvenna í Sádi-Arabíu settist
undir stýri í fyrsta sinn er margra
áratuga ökubanni kvenna var aflétt
í landinu í gær. Afnám bannsins er
hluti af herferð Mohammeds bin
Salmans, krónprins Sádi-Arabíu,
sem miðar að því að nútímavæða
landið. Hingað til hafa konur í Sádi-
Arabíu þurft að treysta á einkabíl-
stjóra eða ættingja til að komast á
milli staða. Vonir eru bundnar við
að breytingin sé fyrsta skrefið af
fjölmörgum í átt að auknu sjálf-
stæði kvenna í landinu.
„Þetta er stórkostlegt, ég er
frjáls eins og fuglinn,“ sagði rithöf-
undurinn og útvarpskonan Samar
Almogren í samtali við fréttastofu
AFP eftir fyrsta bíltúrinn. Afnámi
bannsins hefur verið vel tekið í
Sádi-Arabíu, en fjöldi kvenna þar í
landi lýsti yfir ánægju með breyt-
inguna á samfélagsmiðlum í gær.
Þá var deginum fagnað á götum úti
þar sem lögreglumenn útdeildu
rósum og hamingjuóskum til
kvenna sem ekið höfðu í fyrsta sinn.
Að því er fram kemur á vef AFP
er ráðgert að þúsundir kvenna hafi
ekið bifreiðum í Sádi-Arabíu gær.
Ökubanni aflétt í Sádi-Arabíu
AFP
Kaflaskil Konur settust undir stýri í fyrsta sinn í Sádi-Arabíu í gær. Afnám
bannsins markar kaflaskil og er hluti af nútímavæðingu landsins.
Sádi-arabískar
konur héldu út í
umferðina í gær
Vilhjálmur Bretaprins kom til Jórd-
aníu í gær þar sem söguleg heim-
sókn hans til Mið-Austurlanda
hefst. Vilhjálmur er fyrsti með-
limur bresku konungsfjölskyld-
unnar sem heldur í opinbera heim-
sókn til bæði Ísraels og Palestínu.
Vel var tekið á móti Vilhjálmi er
hann lenti á herflugvelli í Amman,
en meðal fyrirmenna sem biðu hans
á flugvellinum var krónprins Jórd-
aníu, Hussein bin Abdullah.
Ráðgert er að breski prinsinn
muni dvelja í tvo sólarhringa í Jórd-
aníu áður en hann heldur síðar í
vikunni til Ísraels og Palestínu. Þar
mun hann eiga fundi með Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, og Mahmoud Abbas, forseta
Palestínu. Líkt og áður hefur komið
fram eru samskipti Ísraela og Pal-
estínumanna afar viðkvæm og hafa
verið um árabil.
Heimsókn Vilhjálms er þó ekki
pólitísks eðlis heldur er einungis
um hefðbundna heimsókn að ræða
að því er fram kemur í tilkynningu
frá Kensington-höll.
VILHJÁLMUR Í JÓRDANÍU
AFP
Í Jórdaníu Heimsókn Vilhjálms Breta-
prins til Mið-Austurlanda hófst í gær.
Breski prinsinn
fundar í Ísrael og
Palestínu í vikunni
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands og leið-
togi Réttlætis- og þróunarflokksins AKP, sigraði í
gærkvöldi í tyrknesku forsetakosningunum, en
hann hlaut um 53% atkvæða. Alls greiddu tæplega
60 milljónir Tyrkja atkvæði í kosningunum en kjör-
sókn var um 88%. Helsti keppinautur Erdogans,
Muharrem Ince, leiðtogi Lýðræðisflokksins CHP,
hlaut 31% atkvæða. Aðrir frambjóðendur hlutu
minna. Skoðanakannanir í aðdraganda kosning-
anna sýndu að litlu munaði á því að Erdogan næði
yfir helmingi atkvæða, en til að vinna kosningarnar
þurfti einn frambjóðenda að hljóta meirihluta at-
kvæða. Hefði það ekki tekist hefði þurft að boða til
kosninga að nýju 8. júlí nk.
Samhliða forsetakosningum var kosið til þings,
en það er í fyrsta sinn sem kjörseðlar í þing- og for-
setakosningum eru settir í sama kjörkassa. Í þing-
kosningunum hlaut flokkur Erdogans, Réttlætis-
og þróunarflokkurinn AKP, rúmlega 42% atkvæða.
Þá hlaut Þjóðernisflokkurinn MHP 12% atkvæða
en hann hefur myndað meirihluta ásamt flokki Er-
dogans undanfarin ár. Alls hlaut núverandi
stjórnarmeirihluti því um 54% atkvæða.
„Niðurstaða nýafstaðinna kosninga er mjög skýr.
Þjóðin hefur veitt mér áframhaldandi umboð til að
takast á við verkefni og skyldur forsetaembættis-
ins,“ sagði Erdogan þegar úrslitin lágu ljós fyrir. Að
því er fram kemur á vef AFP lýsti Erdogan einnig
yfir sigri í þingkosningunum en líkt og fyrr segir
hélt stjórnarmeirihlutinn í kosningunum.
Er afar umdeildur leiðtogi
Talsvert hefur gustað um Erdogan síðustu ár, en
einungis tvö ár eru frá valdaránstilraun í landinu. Í
kjölfar tilraunarinnar lýsti Erdogan yfir neyðar-
ástandi í landinu, sem stendur enn. Það hefur gert
honum kleift að setja lög án samþykkis frá tyrk-
neska þinginu.
Þá hefur hann verið sakaður um að reyna að
hefta frelsi fjölmiðla. Þess utan hefur hann sýnt af
sér einræðistilburði sem farið hafa vaxandi undan-
farin ár, en í Tyrklandi er tala blaðamanna sem
haldið er föngnum hærri en á nokkrum öðrum stað í
heiminum.
Erdogan hefur verið við völd í Tyrklandi frá
árinu 2002, fyrst sem forsætisráðherra og síðar sem
forseti. Hann boðaði heldur óvænt til kosninga fyrr
á þessu ári, rúmu ári á undan áætlun. Talið er að
það hafi verið vegna góðrar stöðu flokks hans í
skoðanakönnunum auk þess sem það gæfi andstæð-
ingum hans skemmri tíma til undirbúnings. Segja
má að tilraun Erdogans hafi heppnast vel en líkt og
fyrr segir var hann endurkjörinn og flokkur hans er
enn í stjórnarmeirihluta.
Erdogan náði endurkjöri
Meirihluti tyrkneska þingsins hélt og Erdogan sigraði í fyrstu tilraun í forseta-
kosningunum Kjörsókn með mesta móti þegar 88% Tyrkja greiddu atkvæði
AFP
Sigurvegari Erdogan sigraði í tyrknesku forsetakosningunum í gær með 53% atkvæða. Hann lýsti yfir
sigri seint í gærkvöldi þar sem hann sagði skilaboðin skýr um að hann skyldi leiða þjóðina.