Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 21
undanfarin sumur. Hún talaði oft um bernskuárin og fólkið sem bjó fyrir austan enda settu þau mark sitt á hana alla ævi. Og þótt Esjan yrði hennar fjall fannst henni lítið koma til fjallanna hér fyrir sunnan borið saman við fjöllin eystra. Sigurveig fluttist með dóttur sinni til höfuðborgarinnar því að hún vildi að hún ætti kost á að mennta sig. Sigurveig réðst til Landsímans sem símritari og starfaði þar alla sína starfsævi, sjálfstæð, útivinnandi móðir sem hvarvetna gat sér gott orð. Hún festi kaup á íbúð við Framnesveg og þaðan eigum við vinkonur margar góðar endurminningar. Íbúðin var ekki stór en það væsti ekki um okkur vinkonurnar 14 talsins sem nutum einstakrar gestrisni og hlýju Sigurveigar og gæddum okkur á seyðfirsku bakk- elsi af allra bestu gerð. Við kynnt- umst í Gagnfræðaskóla Reykvík- inga þar sem við nutum kennslu afbragðskennara sem seint fara úr minni. Við stofnuðum sauma- klúbbinn CASPIR og bundumst ævilöngum vinaböndum. Það var bjart yfir 16. júní 1949 þegar við nýstúdentar gengum fagnandi út í vorið og alls staðar sást til vega. Við áttum allar heima innan Hringbrautar, bærinn var lítill og við fórum okkar ferða fót- gangandi. Við höfum ræktað vin- áttu sem er okkur öllum svo mikils virði. Það hefur fækkað ört í hópn- um okkar, hún er sú sjöunda sem fer, við erum hér Ellen, Bergljót, Helga, Signý, Sólveig, Vigdís og ég. Anna Sigga var víðförul, dvaldi langdvölum í Vínarborg og Lissa- bon með Magnúsi auk þess sem við í árganginum MR ’49 höfum áratugum saman ferðast innan- lands og utan til framandi landa, Prag, Toscana, Þýskalands, Rúss- lands, Írlands, York og víðar. Við hittumst í hverjum mánuði og lét Anna Sigga sig ekki vanta á þær samkomur. Anna Sigga var gædd miklum mannkostum. Hún var skarp- geind, glöð og hugrökk, fyndin og orðheppin. Hún var víðlesin í ís- lenskum bókmenntum sem er- lendum. Hún var sjálf kletturinn í lífi fjölskyldu sinnar og lét ekki bugast þótt á móti blési og sýndi þar hvern mann hún hafði að geyma. Hún var höfðingi heim að sækja og gott er að minnast sam- funda á heimili hennar þar sem gleðin var við völd. Hún kallaði okkur óveðurskrákurnar þegar við brutumst í ófærð og snjó- þyngslum að Hvarfi í Mosfells- sveit þar sem heimili hennar og Magnúsar stóð um árabil og við létum það ekkert á okkur fá. Anna Sigga var börnum sínum og afkomendum öllum ótrúlega góð fyrirmynd. Börnin hennar þau Palli, Tumi, Pétur, Gutti og Veiga og barnabörnin nutu mömmu sinnar og ömmu sem sýndi þeim endalausa ást og um- hyggju. Megi mannkostir hennar fylgja þeim öllum. Sigríður Theodóra Erlendsdóttir. Mig langar í fáum orðum að minnast systur minnar Önnu Sig- ríðar Gunnarsdóttur. Anna Sigga eins og hún var oft- ast nefnd var fædd á Seyðisfirði og dvaldi þar ásamt móður sinni fram á unglingsár. Okkar kynni hófust ekki fyrr en elsti sonur Önnu Siggu og Magnúsar Páls- sonar, Páll, kom til foreldra minna á Seyðisfjörð eftir stúdentspróf og dvaldi þar sumarlangt. Á námsárum mínum í Reykja- vík voru þau Anna Sigga og Magnús iðin við að bjóða okkur fjölskyldunni upp í Hvarf í Mos- fellsbæ, en þar bjó fjölskyldan ásamt móður Önnu Siggu. Þessar heimsóknir okkar í Hvarf eru mér afar minnisstæðar, ekki síst vegna þess hve allt var afslappað og ljúft. Ég hafði ekki vanist því að hafa ýmis leiktæki inni í stássstofum, s.s. borðtennisborð o.fl. Útisund- laug var við húsið sem naut mikilla vinsælda. Einhvern tíma á námsárunum mínum hafði Anna Sigga samband við mig og bað mig um að æfa nokkur lög með saumaklúbbnum hennar, sem ég og gerði og voru lögin æfð og síðan sungin í Iðnó. Í saumaklúbbnum voru gamlar skólasystur Önnu Siggu frá Menntaskólanum í Reykjavík og fór þar fremst í flokki Vigdís Finn- bogadóttir, þá leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur. Ég veit ekki annað en að saumaklúbburinn hafi fundað reglulega frá því þær útskrifuðust sem stúdentar. Eftir að ég ásamt fjölskyldu minni flutti aftur til Seyðisfjarðar urðu samskiptin minni um tíma. Við tókum ekki upp þráðinn aft- ur fyrr en Tumi Magnússon hafði samband við mig og ég var honum innan handar við að finna og síðan kaupa gamalt hús á Seyðisfirði. Í daglegu tali er húsið nefnt Nílsenshús eftir eigandanum. Húsið tengdist Önnu Siggu því hún bjó þar sem barn og ungling- ur ásamt móður sinni. Á síðustu árum hefur Anna Sigga komið nokkrum sinnum til Seyðisfjarðar og höfum við ásamt fjölskyldum okkar átt þar saman ánægjulegar samverustundir. Anna Sigga Gunnarsdóttir lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Ég og fjölskylda mín sendum öllum aðstandendum samúðar- kveðjur Blessuð sé minning hennar. Gylfi Gunnarsson. barn og sjá hversu frábær langafi hann var. Enginn mun nokkurn tímann komast með tærnar þar sem afi hafði hælana! Engin orð fá því lýst hversu sárt hans er og verður saknað. Einstakur maður með hjarta úr gulli, og besti vinur allra. Ef það vantaði hjálp var hann fyrstur til að standa upp, ef það var sungið þá söng hann hæst og ef maður heyrði afa hlæja gat maður ekki annað en hlegið líka. Engum mislíkaði við afa. Það var ekki hægt. Ég á svo margar dásamlegar minningar um þig, elsku afi minn. Og svo ótal margt sem kemur upp í hugann þegar hugsað er til þín. Þú varst einstakur að öllu leyti og gerðir veröldina bjartari hvert sem þú fórst. Það er með þunga í hjarta sem við kveðjum þig, elsku afi Ölli minn, en eins og þú sagðir þá er lífið bara svona og upp með húm- orinn. Ég kveð þig með heitu hjarta. Minn hugur klökkur er. Ég veit að leið þín liggur svo langt í burtu frá mér. Mér ljómar ljós í hjarta, sem lýsir harmaský, þá lífsins kyndla kveikti þín kynning björt og hlý. Og þegar vorið vermir og vekur blómin sín. Í hjartans helgilundum þá hlær mér minning þín. (Jón Þórðarson) Horfið er nú sumarið og sólin í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin, nú einn ég sit um vetrarkvöld. Því eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar, ég reyndar sé þig alls staðar, þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Ástarkveðjur, Lilja Rós og Sæmundur Kristinn. Í dag kveðjum við afa Ölla, einn ákveðnasta afa sem sögur fara af. Afa sem var alltaf forsöngvari í af- mælum og samdi vísur við ýmis tækifæri, afa sem tálgaði, byggði sér húsbíl og sumarbústað, afa sem elskaði dýrin sín og afa sem var umfram allt stoltur af sínu fólki. Hans verður sárt saknað. Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Elsku afi, minning þín lifir. Birgitta og Elka Mist Kára- dætur og fjölskyldur. Fyrir rúmlega 60 árum flutti ungur, lífsglaður og hláturmildur ungur mótorhjólagæi inn á heimili foreldra minna. Það var Ölver, kærasti Siggu stóru systur minn- ar. Hann var mikill sögumaður, ráðagóður og skilningsríkur. Góð ráð hans, elska og umhyggja gerði hann að vini til æviloka. Það var ánægjulegt að vera litla systir sem fékk seinna að vera barnapía hjá þeim í Holtagerðinu og einnig sumarlangt á Árskógsströnd. Sér- lega spennandi var að ferðast með þeirra börnum og fjölskyldu. Öl- ver og Sigga sinntu foreldrum okkar og fóru í alls konar ferðalög, einnig var gert við bíla í bílskúrn- um og margt brallað. Þegar þau fluttu til Grindavíkur og ég er- lendis skildu leiðir um stund. Heimflutt urðum við fjölskyldan og tengdamóðir mín þess aðnjót- andi að fá skrítnustu og sjaldgæf- ustu fiskitegundirnar matreiddar, Ölver og Sigga sáu samhent um það. Börnunum okkar reyndust þau sérstaklega vel, og veislurnar í Grindavík hafa með tíð og tíma tekið á sig ævintýralegan blæ, eft- ir því sem sögurnar af þeim eru sagðar oftar. Við hjónin höfum notið mikilla samvista við þau í gegnum tíðina og alltaf höfum við verið hjartanlega velkomin, hjálp- að til við byggingu á palli við sum- arbústaðinn þeirra í Markaskarði, gist þar og notið góðra veitinga. Ölver var sérstaklega barngóður og uppátektarsamur með afbrigð- um og við eigum öll góðar minn- ingar um hann. Hann lagði sig all- an fram við að hjálpa, fræða og gleðja þar sem hann gat og hlust- aði með athygli á það sem maður hafði fram að færa. Hann var vel lesinn, fróður og áhugasamur um að talað væri rétt mál. Elsku Öl- ver, þín verður sárt saknað og sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur til Siggu og fjöl- skyldu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (úr Hávamálum) Anna Káradóttir, Karsten Iversen, börn, tengdabörn og barnabörn. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Raðauglýsingar Tilkynningar Félagið Stakksberg, sem stofnað hefur verið utan um kísilverksmiðju í Helguvík, kynnir drög að tillögu að matsáætlun fyrir endurbætur á kísilverksmiðjunni, samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Athugasemdir við drög tillögu að matsáætlun má senda á umhverfismal@verkis.is, eða í pósti til Verkís hf., b.t. Þórhildar Guðmundsdóttur Ofanleiti 2 103 Reykjavík Athugasemdum skal skila eigi síðar en 10. júlí 2018. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni stakksberg.com Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Handavinna með leiðb. kl. 12.30- 16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Félagsvist kl. 13. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ 565-6627 skrifstofa opin miðvikudaga 13.30-15.30. Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 8. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg kl. 8.30-16. Opin handavinnustofakl. 9-16. Útskurður leiðb í fríi kl. 11.15-11.45 Leikfimi Helgu Ben kl. 13.-14. Línudans (sumarfrí) kl. 14.30-16.30 Kóræfing (sumarfrí) Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50 við hringborðið kl.8.50 listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16 ganga kl.10. handavinnuhor- nið kl.13. félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Seltjarnarnes Snjallsíma og spjaldtölvu námskeið kl. 10-12. kaffisp- jall í króknum kl. 10.30. leikfimi í salnum Skólabraut kl.13.30 ganga frá Skólabraut kl. 14.30 vatnsleikfimi Sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10. er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgi- stund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær, heitir pottar og jarðgerðarílát Rotþrær – heildarlausnir með leiðbeiningum um frágang. Ódýrir heitir pottar – leiðbein- ingar um frágang fylgjar. Mjög vönduð jarðgerðarílát til moltugerðar. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Olíuskiljur - fituskiljur - einagrunarplast CE vottaðar vörur. Efni til fráveitulagna. Vatnsgeymar 100-50.000 lítra. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ÁSKRIFTASÍMI 569 1100  Fleiri minningargreinar um Önnu Sigríði Gunn- arsdóttiur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Ölver Skúlason bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.