Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 ÁGÚST SPRENGJA TRYGGÐU ÞÉR SÆTI Í SÓL Frá kr. 78.295 Frá kr. 59.995 Skoðaðunánar áwww.heimsferdir.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Gamla Ladan, máluð í íslensku fánalitunum, hefur vakið töluverða athygli hér í Rússlandi. Kristbjörn Hilmir Kjartansson og Grétar Jóns- son fóru frá Íslandi með Norrænu 5. júní, tóku land í Danmörku og héldu síðan sem leið lá allt austur til Moskvu, þar sem þeir horfðu á Ís- land gera jafntefli við Argentínu, óku þaðan suður til Volgograd þar sem Ísland mætti Nígeríu og næsti viðkomustaður er Roston við Don, þar sem Ísland og Króatía eigast við á morgun. Sjónvarpsmenn hafa margir hverjir verið hrifnir af uppátæki þeirra félaga og viðtölin sem þeir hafa farið í eru ófá. Þeir komu til dæmis fram í morgunþætti sjón- varpsstöðvar í Volgograd í vikunni, fleiri rússneskir fjölmiðlar hafa sagt frá þeim, CNN fjallaði stuttlega um þá og þannig mætti áfram telja. Þeir komu í land í Hirtshals, nyrst í Danmörku, óku suður til Þýskalands, áfram til Póllands, norður um Litháen og Lettland og yfir til Rússlands. Ferðin hefur gengið að óskum nema hvað bíllinn bilaði lítillega í Moskvu og þeir létu gera við hann á leiðinni til Volgograd. „Við erum búnir að keyra rúm- lega 5.000 kílómetra, vissum að kælivifturnar fyrir vélina yrðu kannski ekki í toppformi en allt var í lagi þangað til við komum til Moskvu, í gríðarlega umferð og mikinn hita.“ Þá fóru kertin að bila en auðvelt reyndist að gera við. „Fólk hefur alls staðar tekið okk- ur rosalega vel, sérstaklega í Rúss- landi og það vekur mikla athygli Rússa að við skulum kjósa að ferðast um á Lada Niva, sem heima á Íslandi var kallaður Lada Sport. Þeir vita að Lada Niva er ekki besti bíll í heimi en hann virðist samt þjóðarstolt.“ Félagarnir segjast hafa haft gríðarlega gaman af ferðalaginu til þessa. „Þetta hefur verið mikið og erfitt ferðalag. Við skoðuðum Google maps áður en við fórum, til að átta okkur á vegalengdum, en þeir virðast gera ráð fyrir að menn keyri á 130 km, sem er yfirleitt há- markshraði á hraðbrautunum. Lad- an okkar stendur sig vel en við för- um yfirleitt ekki hraðar en 100 km, einstaka sinnum náum við henni upp í 120 þegar við förum fram úr flutningabílum en það reynir full- mikið á hana, svo við erum fljótir að hægja á okkur aftur.“ Þeir óku yfirleitt í sjö til níu klukkustundir á dag. Voru ekki bún- ir að festa sér gistingu, heldur vildu sjá hve langt þeir kæmust á hverj- um degi. „Svo pöntuðum við okkur gistingu á netinu þegar við nálg- uðumst borgir þar sem við vildum gista, eða jafnvel bara þegar við vorum að keyra inn í borgina.“ Kristbjörn Hilmir og Grétar gera næst stans í Rostov, sem fyrr segir, eins og aðrir stuðningsmenn Ís- lands. Eftir það er óráðið hvert Lödunni glæsilegu verður ekið. Fánalitaða Ladan vekur athygli Rússa  Kristbjörn og Grétar hafa keyrt rúmlega 5.000 kílómetra Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vekja athygli Kristbjörn Hilmar Kjartansson, í rauðri treyju, og Grétar Jónsson, við Löduna í Volgograd sem skilað hefur þeim hina löngu leið. Slagorð íslenska landsliðsins á HM í knattspyrnu á vel við nú sem áður. Látum drauminn verða að veruleika stendur stóru letri á liðsrútunni, bæði á ensku og ís- lensku; fyrsti draumurinn rættist síðastliðið haust þeg- ar Ísland tryggði sér sæti á HM fyrsta sinni, og Birkir Bjarnason, Emil Hallfreðsson og félagar þeirra í lands- liðshópnum stefna að því að næsti draumur rætist ann- að kvöld; að Ísland komist upp úr riðlinum og í 16-liða úrslit í fyrstu tilraun á HM. Landsliðið flaug frá bækistöð sinni við Svartahaf síð- degis í gær og var myndin tekin eftir lendingu í Rostov við Don. Þrír landsliðsmannanna verða á heimavelli annað kvöld þegar Ísland mætir Króatíu þar í borg, Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason og Björn Bergmann Sigurðarson, sem allir hafa lifibrauð af því að leika með liði heimamanna. Spennan magnast, tölu- verður fjöldi íslenskra stuðningsmanna er kominn til Rostov og von er á fleirum í dag. skapti@mbl.is Íslenski landsliðshópurinn kom til Rostov Morgunblaðið/Eggert Verður draumurinn að veruleika? Vinsæll Rúrik Gíslason hefur verið töluvert í umræðunni meðan á HM í Rússlandi stendur, vegna mikils fjölda fylgjenda hans á Instagram. Öryggi Töluvert umstang er jafnan á flugvellinum þar sem landsliðið mætir til leiks. Víðir Reynisson öryggisstjóri hér á vaktinni í Rostov við Don í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.