Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 23
firði hjá Kristmundi Bjarnasyni, fræðimanni og bónda, og k.h., Hlíf Árnadóttur.“ Fermingarsumarið sitt fór Anna í enskunám í Brighton á vegum Scan- brit, dvaldi hjá enskri fjölskyldu og dvaldi þar aftur næsta sumar: „Sautján ára var ég au pair í Þýska- landi í eitt sumar og 21 árs vann ég á aðalbókasafni Gautaborgar, fór til Amsterdam á vegum bókaútgáfu föður míns að útvega litprentaðar barnabækur í samprent, en þá voru barnabækur með litprentuðum myndum fáar hér á landi og of dýrt að prenta þær hér. Ég hafði engar upplýsingar í farteskinu, fór í sím- klefa í Amsterdam, fletti þar síma- skrám og fann fyrirtæki, Frank Fehmers, sem stóð fyrir sam- prentun barnabókanna: Prinsessan sem átti 365 kjóla, Litla nornin Nanna og bækurnar um Barba- pabba sem komu út í kjölfarið og slógu í gegn. Það sumar var ég í mánuð á frönsku rivíerunni, bjó hjá franskri konu og sótti tíma í frönsku.“ Anna var í Austurbæjarskóla, Kvennaskólanum, lauk stúdents- prófi frá MR, lauk BA-prófi í sál- fræði og bókasafnsfræði frá HÍ, cand. psych.-prófi frá Háskólanum í Ósló og stundaði framhaldsnám í sálfræði við University of Wash- ington í Seattle. Anna starfaði á Háskólabókasafni, læknabókasafni Landspítala, lækna- bókasafni Borgarspítala og aðal- bókasafni Gautaborgar, starfaði við bókaútgáfu föður síns, var fram- kvæmdastjóri Iðunnar snemma á ní- unda áratugnum, vann á bókaútgáf- unni með námi, þýddi bækur og fékk þýðingarverðlaun Reykjavíkur- borgar fyrir Jósefínu, árið 1974, og ritstýrði bókinni Uppgjör konu, eftir Höllu Linker, útg.1987. Hún starfaði síðar við bókaútgáfuna JPV. Anna opnaði sálfræðistofu í árs- byrjun 1982, nýkomin heim úr fram- haldsnámi í Bandaríkjunum, hélt námskeið í sjálfstyrkingu sem urðu afar vinsæl, eftir að hún einskorðaði þau við konur. Hún var stundakenn- ari við HÍ, kenndi við Endur- menntun HÍ og var kennslustjóri í sérfræðings- og eins árs námi í hug- rænni atferlismeðferð. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra, hér og er- lendis, um sjálfstyrkingu, núvitund, samskipti, ástina og listin að elska og njóta, ásamt sr. Braga Skúlasyni. Rit Önnu eru ljóðabókin Úlfabros, 1997; Leggðu rækt við sjálfan þig, 1999; Leggðu rækt við ástina, 2001; Hugrækt og hamingja, og Vest- ræn sálarfræði, austræn viska og núvitund 2014, auk fjölda greina og bæklinga. Hún er höfundur fræðslu- þáttanna Undir sama þaki, 1994. Anna sat í stjórn Sálfræðinga- félags Íslands, Samtaka heilbrigð- isstétta, Kynfræðifélags Íslands, var enn stofnenda og fyrsti formaður Al- úðar, félags um núvitund og vakandi athygli, sat í stjórn Lífspekifélags Íslands (sem hét áður Guðspekifélag Íslands) og forseti þess um skeið og er nú formaður Dáleiðslufélags Ís- lands, félags fagfólks um dáleiðslu. Fjölskylda Fyrrverandi makar Önnu eru Sverrir Kristinsson, f. 26.7. 1944, fasteignasali og bókaútgefandi, Jón Karlsson, f. 13.3. 1946, for- stjóri, og Bragi Kristján Guðmunds- son, f. 17.5. 1967, prenttæknir. Synir Önnu eru: 1) Valdimar Sverrisson, f. 18.6. 1967, ljósmyndari í Reykjavík og eru dætur hans Valdís Ingunn, f. 1991, Hildur Anna, f. 2002, og Lára Margrét, f. 2011; 2) Jón Helgi Jónsson, f. 10.6. 1973, verkefnastjóri Isle of Man en maki hans er Yuko Ishii Jónsson, verk- efnastjóri Isle of Man, og 3) Jóhann Páll Jónsson, f. 4.9. 1988, einkaþjálf- ari á Seltjarnarnesi Bræður Önnu: Ásgeir Már Valdi- marsson, f. 30.10. 1942, d. 15.8. 2015, prentari í Reykjavík, og Jóhann Páll Valdimarsson, f. 3.5. 1952, bókaút- gefandi í Reykjavík. Foreldrar Önnu voru Valdimar Jóhannsson, f. 28.6. 1915, d. 27.1. 1999, bókaútgefandi í Reykjavík, og k.h., Ingunn Ásgeirsdóttir, f. 23.5. 1922, d. 16.5. 2010, húsfreyja og starfsmaður við bókaútgáfu í Reykjavík. Anna Valdimarsdóttir Sigurlína Jóhannesdóttir húsfr. í Tungu Jón Jónsson b. í Tungu í Fróðárhreppi Ólafía Jónsdóttir húsfr. í Keflavík Ásgeir Theodór Daníelsson hafnarstj. og skrifstofustj. í Keflavík Daníel Guðnason b. í Nýlendu á Miðnesi, af Víkingslækjarætt, systur­ sonur Stefáns, afa Árna Bergmann rithöfundar Ingunn Ásgeirsdóttir húsfr. og starfsm. á bókaútgáfu, í Rvík Ingunn Jósafatsdóttir húsfr. í Nýlendu Emil Tómasson b. á tuðlum í Reyðarfirði Jóhann Páll Valdimars­ son bóka­ útgefandi í Rvík Ari Ólafsson Euro­ visionfari Dr. Jóhann Páll Árnason prófessor emeritus í heimspeki við University in Melbourne í Ástralíu Ólafur Gunnar Guð­ laugsson rithöfund­ ur og grafískur hönnuður Jóna Jóhannsdóttir húsfr. á Dalvík Guð­ laugur Berg­ mann for­ stjóri Karna­ bæjar Egill Örn Jóhannsson bókaútgefandi Daníel Berg­ mann bakara­ meist­ ari í Rvík Jón P. Emils hrl. í Rvík S Regína Thorarensen fréttaritari á Gjögri, Selfossi og Eskifirði Guðrún Guðmundsdóttir b. í Hraukbæjarkoti í Kræklingahlíð Jóhannes Larsen stýrim. frá Noregi Anna Jóhannesdóttir húsfr. á Skriðulandi í Eyjafirði Jóhann Páll Jónsson kennari og b. á Skriðulandi í Eyjafirði Sigríður Ingveldur Ólafsdóttir húsfr. á Hjaltastöðum og Sælu Jón Halldórsson b. á Hjaltastöðum og Sælu í Svarfaðardal Úr frændgarði Önnu Valdimarsdóttur Valdimar Jóhannsson bókaútgefandi í Rvík ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 TWIN LIGHT GARDÍNUM Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is 100 ára Sigríður Skúladóttir 90 ára Ásta Ferdinandsdóttir Haukur G.J. Guðmundsson Sólveig Þórhildur Helgad. 85 ára Anna Gísladóttir Kári Tyrfingsson Kolfinna Árnadóttir Rannveig Haraldsdóttir 80 ára Finnur Gærdbo Guðmundur Arason 75 ára Bjarni Valtýsson Eggert Gunnþór Gunnarss. Guðmundur Einarsson Harry Reynir Ólafsson Helga Ragnarsdóttir Jakob Úlfarsson Karl Elísson Ólafur Oddsson Sigurborg Gísladóttir Snorri Gestsson Sólveig Hauksdóttir 70 ára Anna Valdimarsdóttir Ari Sigurður Guðjónsson Arnar Sveinsson Ástráður Magnússon Guðrún Sigríður Egilsdóttir Gunnar Þór Geirsson Helgi Friðþjófsson Kristín Unnur Ásgeirsdóttir Páll Sigurðarson Reynir Adolfsson Thelma K. Jóhannesdóttir 60 ára Birgir Snorrason Eyjólfur Björgmundsson Hallgerður A. Jóhannesd. Hayat Alkanakri Helgi Halldórsson Henryk Paciejewski Jakob Ragnarsson Jóna Brynja Tómasdóttir Jóna Sigurveig Ágústsd. Magnús Garðarsson Ólafur Ingi Óskarsson Pétur Þorleifsson Reynir Sigurðsson Valdimar Guðmundsson Viðar Elliðason Zlatko Novak 50 ára Anna Guðrún Sigurjónsd. Björn Axelsson Brynja Reynisdóttir Kristín Sigurðardóttir Nhat Duy Nguyen Ragnar Árnason Ragnar Már Sævarsson Sigríður Ágústsd. Morthens Sigurður G. Valdimarsson Steinn Helgason Sverrir Arnar Baldursson Sölvi Rafn Rafnsson Víðir Jónsson Þóra Björg Gylfadóttir Þórður Geir Jónasson 40 ára Malgorzata Lojewska Petra Nicola Deutrich Sigurbjörg Felixdóttir Sturla Halldórsson 30 ára Anna Herdís Pálsdóttir Davíð Þór Gunnarsson Hildur Eva Guðmundsdóttir Pétur Eggert Torfason Sandra Sól K. Lyngmo Sigurbjörn Viðar Karlsson Örn Ingi Gunnarsson Til hamingju með daginn 30 ára Anna er Reykvík- ingur og hjúkrunarfr.nemi á dagdeild skurðlækninga á Landspítalanum. Maki: Eggert Ingi Jóhann- esson, f. 1987, verslunar- stjóri í Ecco Kringlunni. Börn: Emilía Dís, f. 2006, og Jóhannes Leó, f. 2012. Foreldrar: Eðvald Eð- valdsson, f. 1937, d. 2008, sjómaður, og Haf- dís Jóna Karlsdóttir, f. 1955, símsmiður, bús. í Reykjavík. Anna Margrét Eðvaldsdóttir 30 ára Magnea er fædd og uppalin á Heiðarbrún í Kelduhverfi en býr í Grafarvogi. Hún er íþrótta- og heilsufr. og er verkefnastj. hjá Frjáls- íþróttasambandi Íslands. Maki: Jón Örn Haralds- son, f. 1990, varðstjóri. Foreldrar: Hlynur Braga- son, f. 1967, vinnur hjá Ístrukki, og Sigurfljóð Sveinbjörnsdóttir, f. 1963, stuðningsfulltr. í Öxar- fjarðarskóla. Magnea Dröfn Hlynsdóttir 30 ára Andri er Ak- ureyringur en býr í Reykjavík. Hann er með burtfararpróf á rafgítar frá FÍH og BSc. í tölv- unarfræði frá Háskól- anum í Reykjavík. Hann er uppistandari og gít- arleikari í dúettinum Föstudagslögin. Foreldrar: Ívar Aðal- steinsson, f. 1957, tón- listarkennari á Akureyri, og Kristín Þórarinsdóttir, f. 1960, hjúkrunarfræð- ingur á Akureyri. Andri Ívarsson  Vaka Vésteinsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í sálfræði við Sál- fræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Aðferðir til að fást við fé- lagslega æskilega svörun í netkönn- unum: MCSD-kvarðinn og QHR- aðferðin. (On methods for dealing with Socially Desirable Responding in Internet Surveys: The Marlowe- Crowne Social Desirability Scale (MCSDS) and the Questions on Ho- nest Responding (QHR) technique.) Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Fanney Þórsdóttir, dósent við Sál- fræðideild Háskóla Íslands. Auk henn- ar sátu í doktorsnefnd Adam Joinson, prófessor við Information Systems, University of Bath, á Englandi og Ulf- Dietrich Reips, prófessor við Faculty of Sciences, University of Konstanz, í Þýskalandi. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að mis- svörun dregur úr gæðum gagna sem safnað er með sjálfsmatskvörðum og þar af leiðandi einnig úr gildi töl- fræðilegra niðurstaðna er byggjast á slíkum gögnum. Eitt aðaláhyggjuefnið í þessu sambandi er félagsleg æskileg svörun (FÆS), sem annaðhvort er tal- in vera birtingarmynd tilhneigingar svaranda til að fegra sig eða sem við- bragð svaranda við innihaldi at- riðis eða öðrum utanaðkomandi áhrifum. Rann- sakendur hafa reynt með ýms- um aðferðum að mæla og/eða draga úr FÆS en ekki er sátt um hver sé besta aðferðin til að mæla FÆS og/eða draga úr slíkri svörun. Staðan í dag er því sú að ekki er mælt með einni aðferð umfram aðra til að fást við FÆS í netkönn- unum. Markmið verkefnisins var að rannsaka aðferðir til að fást við FÆS í netkönnunum og leggja til hagnýtar leiðir til að fást við vandann. Til þessa var þekkt mæling á FÆS (MCSDS) metin og styttri útgáfa af kvarðanum hönnuð fyrir netfyrirlagnir. Í sama til- gangi var einnig hönnuð aðferð til að draga úr FÆS á netinu. Í ritgerðinni eru settar fram tvær aðferðir til að fást við vandann sem skapast vegna FÆS í netkönnunum: Stutt útgáfa af MCSDS (MCSD-SF) og QHR-aðferðin. Niðurstöður prófana á báðum aðferð- um lofa góðu og báðar aðferðir er auð- velt að nota í netkönnunum. Vaka Vésteinsdóttir Vaka Vésteinsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1980. Hún lauk stúdentsprófi af fé- lagsfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2000, BA-prófi frá Sálfræðideild Háskóla Íslands árið 2004 og MA-prófi frá sömu deild árið 2008. Vaka er núna ný- doktor við Háskólann í Konstanz í Þýskalandi. Foreldrar Vöku eru Harpa Karlsdóttir og Vésteinn Rúni Eiríksson. Sonur Vöku er Loki Robert Huemer. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.