Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum Sannleikanum verður hver sárreiðastur. Þetta gamla orðtæki sannaðist í þingsal Alþingis fyrir skömmu þegar sá sem þetta ritar spurði fjár- málaráðherra, Bjarna Benediktsson, í óund- irbúnum fyrir- spurnatíma. Spurði ég ráðherrann hvað rík- issjóður hefði fengið fyr- ir að afsala sér forkaups- rétti á hlutabréfum Kaupþings í Arion banka. Ófær um að svara gagnrýni Fyrirspurnin var einföld og ekki flókið fyrir ráðherra að svara. Benti ég ráðherra jafnframt á að ríkis- stjórnin hefði viðhaft undanlátssemi í samskiptum sínum við vogunarsjóð- ina í Arion banka. Rökstuddi ég málið með þremur staðreyndum: Í fyrsta lagi voru hlutabréf ríkisins í bank- anum seld á undirverði. Gaf ríkið þar með eftir tak sem það hafði á bank- anum og áhrif á endurskipulagningu hans. Í öðru lagi var bankaskatturinn lækkaður. Í þriðja lagi afsalaði ríkið sér forkaupsrétti á hlutabréfum í bankanum. Ráðherra brást hinn versti við og fór í manninn en ekki boltann, eins og sagt er. Sakaði hann undirritaðan um að hafa enga þekk- ingu á málinu og standa berskjald- aðan í ræðustól Alþingis. Viðbrögð ráðherrans voru ótrúleg og sýna, svo ekki verður um villst, að þar talaði rökþrota og pirraður maður. Gagn- rýnin truflaði ráðherra mjög og var hann ófær um að svara henni með málefnalegum hætti. Arion banki seldur ódýrt – ríkissjóður tapar Ráðherra viðurkenndi að ríkis- sjóður fengi ekkert fyrir að afsala sér forkaupsrétti. Þetta sætti ríkis- stjórnin sig við mótbárulaust, eins og annað sem vogunarsjóðirnir hafa far- ið fram á. Forkaupsrétturinn er verð- mætur og hann átti ekki að gefa eftir nema til kæmi sérstök greiðsla til rík- isins. Rétturinn er trygging ríkisins fyrir því að ríkið geti gengið inn í kaupin ef verið er að selja hlutina of ódýrt. Hann virkjast ef selt er undir 0,8 af bókfærðu eigin fé. Capacent og IFS hafa metið hlutinn á 0,94. Fjár- festar fá hins vegar að kaupa á umtalsvert lægra verði eða 0,6-0,7. Almenningi stendur það ekki til boða. Ein- falt dæmi; þeir sem fá að kaupa á genginu 0,6 eru í reynd að borga 600 kr. fyrir hverjar 1.000 kr. Það er aug- ljóst að verið er að selja bankann ódýrt og það er slæmt fyrir ríkissjóð. Verð bréfanna hefur áhrif á afkomuskipta- samning Kaupþings og ríkissjóðs. Því hærra verð sem bankinn selst á því hærri greiðslu fær ríkissjóður. Berskjaldaður í hagsmunagæslu ríkissjóðs Ráðherra er berskjaldaður gegn þeirri staðreynd að hafa gefið eftir í hagsmunagæslu ríkissjóðs gagnvart vogunarsjóðum. Lækkun banka- skattsins er gott dæmi, hann var lækkaður að kröfu vogunarsjóðanna og mun færa þeim milljarða aukalega í arðgreiðslur. Ríkissjóður verður að sama skapi af tekjum upp á 7-8 millj- arða kr. á ári. Ef forkaupsrétturinn hefði verið nýttur hefði það skilað sér aftur til ríkisins, þar sem framundan eru verulegar arðgreiðslur úr bank- anum. Auk þess hefði þá verið hægt að koma bankanum í dreifða eign- araðild almennings. Auðmýkt er undanfari virðingar Málefni Arion banka varða mikla fjárhagslega hagsmuni ríkissjóðs. Hef ég gagnrýnt frammistöðu rík- isstjórnarinnar í málinu með mál- efnalegum hætti og bent á leiðir, sem fara hefði átt til að hámarka hlut ríkisins. Það hefði farið betur á því að fjármálaráðherra hefði svarað gagnrýni minni með málefnalegum hætti. Það gerði hann ekki. Auðmýkt er undanfari virðingar. Berskjaldaður ráðherra Eftir Birgi Þórarinsson Birgir Þórarinsson »Ráðherra er ber- skjaldaður gegn þeirri staðreynd að hafa gefið eftir í hagsmuna- gæslu ríkissjóðs gagn- vart vogunarsjóðum. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. birgirth@althingi.is Ágæt ræða Katrínar Jakobsdóttur forsætis- ráðherra á þjóðhátíð- ardaginn vakti athygli mína og voru lokaorðin þessi: „Gleymum því aldrei að hér búum við þvert á ýmsar hrak- spár öldum saman vegna þess að hér er gott að vera og vegna þess að þrátt fyrir allt þykir okkur vænt hverju um annað.“ Austur á Höfn í Hornafirði berst lítil fjölskylda fyrir að fá lyf fyrir yngsta fjölskyldumeðliminn, Ægi Þór, sex ára gamlan. Litli drengurinn er með sjaldgæfan sjúkdóm sem lýsir sér í minnkandi hreyfigetu og ef ekk- ert er að gert stefnir allt í óefni. Lyfið sem um ræðir er dýrt, en er það svo dýrt þegar um mannslíf er að ræða? Allar dyr eru lokaðar og ráða- menn ekki til viðtals. Til hvers kjós- um við í þessu landi? Í aðdraganda kosninga heyrum við fögru kosninga- loforðin og þá virðist viljinn vera fyrir hendi að bæta hag okkar. Núna þarf þessi litli drengur lyf sem getur seinkað framvindu sjúkdómsins og með því linað þjáningar hans og allrar fjölskyldunnar. Móðir Ægis hefur oft komið fram í fjölmiðlum og lýst áhyggjum sínum yfir stöðunni. Við sem þekkjum til undrumst sinnuleysi hjá þeim sem völdin hafa. Í okkar litla samfélagi er ekki að sjá að peninga skorti í ákveðin verkefni. Þess ber að geta að margir hafa lagt málefn- inu lið og er þeim öllum þakkað. Sérstaklega langar mig að þakka Ingu Sæland þingmanni fyrir að vekja athygli á málinu úr ræðustól á Alþingi og Stefáni Karli leikara fyrir góðan pistil á facebooksíðu sinni. Hann glím- ir við veikindi og skilur manna best hvað lyfin hafa mikið að segja. Þið sem ráðið ferðinni sýnið skiln- ing og veitið litla Ægi Þór lyfið sem hann þarfnast. Það er hans eina von. Okkur þykir jú svo vænt hverju um annað. Hvers vegna … Eftir Sigrúnu L. Baldvinsdóttur Sigrún L Baldvinsdóttir »Þið sem ráðið ferðinni sýnið skilning og veitið litla Ægi Þór lyfið sem hann þarfnast. Höfundur er fyrrverandi kennari. sigrunbaldvins@gmail.com Í náttúrunni takast á tvær meginreglur um nýtingu sem við getum kallað Visk- íregluna og Lamba- kjötsregluna. Þær hljóða svo: Viskí- reglan: Því eldra + því dýrara = Því betra. Lambakjöts- reglan: Því yngra + því ódýrara = Því betra. (Dýrt og ódýrt á hér við um nátt- úrulegan orkukostnað vaxtar og viðhalds en ekki duttlungum háð verð afurða.) Stærstu dýr sem uppi hafa verið í veröldinni, þ.e. skíðishvalir, virð- ast nær eingöngu halda sig við lambakjötsregluna þ.e. nýta orku náttúrunnar eins nálægt sólarljós- inu og kostur er. Hafrannsóknastofnun og ICES virðist vera mjög hrifin af viskíregl- unni með allri þeirri orkusóun sem henni fylgir. Til að skilja vel mismuninn á þessum aðferðum náttúrunnar þurfa menn jafnframt að temja sér notkun hugtaks sem er: Vannýtt grisjunarþörf. Þar sem skrif mín og ræður fyrir rúmum tveim áratugum virðast ekki hafa náð augum og eyrum þeirra sem málið varðaði, nema þegar mér varð það á að vera sam- mála þeim um einhver smáatriði, vil ég leyfa mér að gera tilraun til að einfalda málið með dæmisögu sem allir ættu að geta skilið. Hafródalur dregur nafn sitt af þeirri endalausu blíðu sem ávallt ríkir fyrir mynni hans. Hann er umlukinn fjallgörðum og jöklum á þrjá vegu en kyrrlátt hafið blasir við fyrir framan hann í allri sinni víðáttu. Nokkrir gróðursælir afdalir liggja út frá Hafródal og henta þeir ásamt hlíðum dalsins vel til sumarbeitar. Hafur bóndi hefur um all- langt skeið rekið eina fjárbú dalsins og sett á vetur um 1.000 fjár en slátrað á hverju hausti um 2.000 lömbum eftir sumarbeit. Húsakostur búsins og tún til heyskapar í botni Hafródals taka mið þessum þörfum og hafa þróast frá kynslóð til kynslóðar. Nú berast þær fréttir utan úr hinum stóra heimi að verð á reyktu sauða- og ærkjöti hafi hækkað og sé orðið nokkuð hærra en verð á lambakjöti. Hafur bóndi, sem er skjótráður, er fljótur að hlýða kalli markaðarins og ákveður að stöðva þegar í stað haustslátrun lamba og miða bú- skapinn við framleiðslu sauðfjár til reykingar. Hann tvöfaldar því húsa- kostinn og túnin, slátrar þeim hluta bústofnsins sem hentar til sauða- kjötsframleiðslu en setur öll lömb á vetur til áframeldis. Strax um veturinn fara efasemdir að leita á Hafur bónda um að ákvörðun hans hafi verið rétt. Hann er skynsamur maður og gerir sér grein fyrir að stækkun túnanna var gerð á kostnað beitarlands auk þess sem hann áttar sig á því að bak við hvert kíló af fullorðna fénu sem hann slátraði liggur margra ára vetrarfóðrun. Hann veltir því jafn- framt fyrir sér hversu stóran stofn hann þurfi að ala til að framleiðsla búsins á sauða- og ærkjöti verði svipuð og framleiðsla þess á lamba- kjöti var áður. Hafur bóndi reiknar út að fóðurþörf á kíló kjöts marg- faldast með árafjölda eldis fram að slátrun auk þess sem hann muni einnig þurfa að fóðra árlega allan stofninn sem verði að vera miklu stærri en hann var þegar lömbum var slátrað. Þar að auki sér Hafur í hendi sér að sumarganga þessa stóra bústofns muni gera allt um- hverfi Hafródals að eyðimörk og öll orkan sem fæst úr síðustu stráun- um muni fara í að slást um þau. Sem betur fer áttaði Hafur bóndi sig á skaðsemi viskíreglunnar strax á fyrsta vetri og gat því með því að tryggja í nokkur ár nauðsynlega grisjun horfið aftur til fyrri nýt- ingar. Dæmisögu lýkur. Síðustu tvo áratugina (jafnvel lengur) hefur Hafrannsóknastofnun með atfylgi ICES og stjórnvalda hérlendis unnið að stækkun þorsk- stofnsins með ströngum aflareglum og smáfiskavernd. Með því að stækka stofninn hefur þeim tekist að færa nýtinguna ofar í hann um nokkur ár að mér sýnist. Fóð- urkostnaður afla og stofns hefur á sama tíma margfaldast miðað við aflamagn. Fyrir meira en tveim áratugum hélt ég því fram að bíomassískar aflareglur væru bull þar sem hægt væri að ofnýta stofn með 20% nýt- ingu sem hægt væri að nýta skyn- samlega með 30% nýtingu. Undir niðri þykir mér vænt um að Hafrannsóknastofnun skuli hafa eytt 20 árum í að sanna þessa kenn- ingu mína. Mér finnst hins vegar skelfilegt til þess að hugsa að van- nýtt grisjunarþörf tímabilsins er líklega farin að nálgast 5 milljónir tonna af fiski sem gat ekki vaxið vegna þess að ekki var skapað rými fyrir hann með veiðum. Að lokum vil ég benda á að áður en menn hófu fiskveiðar má segja að aflareglan hafi verið 0%. Þá hef- ur stærð þorskstofnsins eflaust sveiflast verulega miðað við um- hverfisskilyrði og innra eðli. Mér er fyrir löngu síðan orðið ljóst að þorskstofninn sjálfur skilur hugtakið grisjunarþörf þó Hafró, ICES og íslensk stjórnvöld virðist ekki gera það. Dúnninn í sjálf- bærum? hreiðrum hins opinbera er ef til vill of mjúkur til að menn nenni að hugsa um svona smámuni. Lifið heil og skál! Viskíreglan Eftir Sveinbjörn Jónsson » Vannýtt grisjun- arþörf tímabilsins er líklega farin að nálg- ast 5 milljónir tonna af fiski. Sveinbjörn Jónsson Höfundur er skipstjóri og ellilífeyrisþegi. svennij@simnet.is Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.