Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.06.2018, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Ragnar Árnason, lögmaður og forstöðumaður vinnumark-aðssviðs Samtaka atvinnulífsins, er fimmtugur í dag. Hannlauk embættisprófi frá lagadeild HÍ 1993 og LL.M. frá laga- deild háskólans í Hamborg 1995. „Ég held að tilhugsunin um að verða fimmtugur hafi valdið mér áhyggjum í nokkurn tíma því ég hef tekið upp á ýmsu sem erfitt er að útskýra með öðru en hræðslunni við að eldast. Ég fór á námskeið í paragliding fyrir tveimur árum og keypti mér svifvæng. Það er geggjað að takast á loft og svífa hátt yfir jörðu, sérstaklega að svífa yfir Reynisfjöru og horfa niður á Reynisdrangana. Fyrir stuttu keypti ég mér bleika skyrtu og fjólubláan jakka, byrjaði að skokka og keypti mér Q10-hrukkukrem. Engin pressa að verða fimmtugur, eða þannig.“ En hvað skal gert í tilefni dagsins? „Ég ætlaði að vera heima á af- mælisdaginn og jafnvel bjóða í gott garðpartí en stöðug rigning og kuldi vikum saman hefur kælt niður alla stemningu. Fyrir viku, þegar við vorum að skoða veðurspá næstu 10 daga, var ákveðið að kaupa flug með næstu vél til London. Við slöppum nú af í hita og sól á ströndinni í Brighton. Gerum eitthvað skemmtilegt í London á afmæl- isdaginn.“ Ragnar er giftur Áslaugu Björgvinsdóttur lögmanni. Börnin eru þrjú, Elín Ragnhildur 15 ára, Björgvin Hugi 13 ára og Þuríður Helga 11 ára. „Uppeldið hefur gengið mjög vel, þau halda öll með Val og Liverpool. Ég vil bara að lokum biðja íslenska karlalandsliðið í fót- bolta að gefa Guðna Th. góða fimmtugsafmælisgjöf á morgun. Gamli maðurinn á það skilið.“ Fjölskyldan Þuríður Helga, Björgvin Hugi, Eĺín Ragnhildur, afmæl- isbarnið og eiginkonan, Áslaug, flúðu rigninguna og eru nú í Brighton. Keypti sér svifvæng og hrukkukrem Ragnar Árnason er fimmtugur í dag A nna Valdimarsdóttir fæddist í Reykjavík 25.6. 1948 og ólst þar upp í Norðurmýrinni til 17 ára aldurs: „Við átt- um heima á Skeggjagötu 1, Snorra- brautar megin beint á móti Skáta- búðinni í gömlu hermanna- bröggunum. Faðir minn byggði bílskúr við heimilið og þar var bóka- útgáfan Iðunn. Ég byrjaði ung að vinna við bókaútgáfuna, setja í selló- fan, raða bókum í hillur og afgreiða. Fimm ára var ég send til mán- aðardvalar hjá föðursystur minni á Dalvík meðan pabbi ferðaðist um landið að afla nýstofnuðum Þjóð- varnarflokknum fylgi, sem hann var formaður fyrir. Ég var síðan fjögur sumur í sveit á Sjávarborg í Skaga- Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur og rithöfundur – 70 ára Morgunblaðið/Ómar Rithöfundurinn Anna er alin upp við bækur, þýðingar og útgáfu. Hér er hún sjálf að árita eina af bókum sínum. Sjálfstyrking, sam- skipti og núvitundin Árið 1962 Hér er Anna með foreldrum sínum og bróður, nýfermd. Þórhildur Stella Gunnarsdóttir, Stefanía Heims- dóttir, Sóley Katrín Sigurðardóttir og Melkorka Sif Kristinsdóttir héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum á Íslandi í Hafnarfirði og söfnuðu þær 2.946 kr. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.