Morgunblaðið - 25.06.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Epicurean skurðarbretti
Verð frá 2.690 kr.
SVIÐSLJÓS
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Þetta er enn eitt dæmi þess
hversu iðnnám á Íslandi er lítils
metið,“ segir Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lög-
reglumanna, í samtali við Morg-
unblaðið.
Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu á laugardag var
Sveini Rúnari Gunnarssyni, sem
hefur starfað sem héraðslögreglu-
maður í fjögur ár og verið fastráð-
inn lögreglumaður síðan í vor, synj-
að um inngöngu í lögreglunám við
Háskólann á Akureyri. Sveinn hef-
ur lokið sveinsprófi í húsasmíði en
þar sem lögreglunámið var nýlega
fært upp á háskólastig nægði húsa-
smíðamenntun hans ekki til að fá
inngöngu í lögreglunámið.
Þegar blaðamaður náði tali af
Snorra hafði hann ekki heyrt áður
um málið en sagði þó: „Það er í
rauninni alveg fáránlegt að ein-
staklingur sem lokið hefur iðnnámi,
eins og í þessu tilfelli sveinsprófi í
húsasmíði, skuli ekki fá inni í þessu
námi af því að hann er ekki með
stúdentspróf af einhverri bóknáms-
braut í framhaldsskóla.“
Snorri segist ekki hafa heyrt
af sambærilegum málum en bætir
við:
„Sjálfur er ég menntaður
húsasmiður og myndi væntanlega
samkvæmt þessari skilgreiningu
ekki komast inn í námið.“ Að-
spurður hvort hann telji iðnnám
betri undirbúning fyrir lögregl-
unám heldur en bóknám, svarar
Snorri: „Tvímælalaust,“ og ítrekar
óánægju sína með hversu lítils met-
ið iðnnám sé innan skólakerfisins.
Gríðarlegur fjöldi umsókna
„Það eru til heimildir til
undantekninga en vegna gríðarlegs
fjölda umsókna beitum við þeim
heimildum mjög takmarkað núna.“
Þetta segir Eyjólfur Guðmundsson,
rektor Háskólans á Akureyri, í
samtali við Morgunblaðið.
Spurður út í mál Sveins Rún-
ars segist Eyjólfur ekki geta tjáð
sig um einstök mál en segir þó:
„Vegna gríðarlegs fjölda erum við
bæði harðari á undanþáguheim-
ildum og svo getur verið að það
hafi vantað gögn,“ en um 400 um-
sóknir teljast til ófullnægjandi um-
sókna. „Það kemur í ljós þegar við
skoðum umsóknargögn að það eru
mjög margir sem senda inn ófull-
komna umsókn. Þ.e.a.s. þeir senda
ekki staðfestingargögn fyrir próf-
gráðum eða senda ekki fullnægj-
andi upplýsingar um nám sitt og
svo framvegis,“ segir Eyjólfur en
stjórnendur skólans gáfu tveggja
daga frest til þess að leiðrétta
ófullnægjandi umsóknir. „Við erum
bara með þær umsóknir í skoðun
og í samtali við ráðuneytið um hvað
við getum tekið við mörgum nem-
endum,“ segir Eyjólfur.
Iðnnámið ennþá mikilvægt
Aðspurður hvort stúdentspróf
standi iðnnámi framar sem undir-
búningur undir lögreglunám segir
Eyjólfur: „Í prinsippinu ekki. En í
landslögum segir einfaldlega að
stúdentspróf gefi þér heimild til að
skrá þig í háskóla.“ Hann bætir þó
við að háskólum sé heimilt að gera
undanþágu frá þessari reglu fyrir
allt að tíu prósent nemenda en
staðan í dag bjóði ekki upp á það.
Iðnmenntun hefur af mörgum
þótt góður grunnur fyrir þá sem
starfa við löggæslustörf og segir
meira að segja í reglugerð um
Brunamálaskólann og réttindi og
skyldur slökkviliðsmanna að þeir
sem ráðnir séu til slökkvistarfa
skuli hafa iðnmenntun sem nýtist í
starfi eða sambærilega menntun og
reynslu. Aðspurður hvort sú um-
ræða sé í ljósi umræddrar synjunar
úrelt, segir Eyjólfur: „Alls ekki.
Við erum einmitt að vinna í verk-
efni núna undir svokölluðum
fagháskólahóp þar sem við erum að
skoða hvernig hægt er að tengja
betur starfsnám og háskólanám,“
og bætir við: „Eins og ég segi þá er
í prinsippinu alls ekkert sem mælir
gegn því að þarna sé á milli skýr
og bein leið. Það sem veldur er
bara þetta sérstaka ástand sem við
búum við akkúrat núna.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Reiðubúið Lögum samkvæmt er fólk með stúdentspróf í forgangi þegar sótt er um í lögreglunáminu við HA.
Reynslumiklir komast ekki að
Heimildum til undantekninga ekki beitt „Enn eitt dæmi um hversu iðnnám er lítils metið“
Gríðarlegur fjöldi umsókna í lögreglunám Stúdentspróf stendur framar samkvæmt lögum
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Veitingastaðurinn Bautinn á Akur-
eyri er í söluferli og er ferlið á
lokastigum að sögn Guðmundar
Karls Tryggvasonar, eiganda
Bautans.
„Þetta er í ferli. Það kom gott
tækifæri til að selja og við vorum
búin að ákveða að verða ekki hund-
gömul í þessu og ákváðum að slá til
þegar þetta bauðst. Okkur hugnað-
ist líka vel kaupandinn,“ segir Guð-
mundur Karl, en hann hefur rekið
Bautann með eiginkonu sinni
Helgu Árnadóttur.
Spurður hvort fyrirhugaðar séu
miklar breytingar á staðnum vísar
Guðmundur Karl á Einar Geirsson,
kaupanda og eiganda veitingastað-
arins Rub23. „Ég efast samt ekki
um að einhver ferskleiki fylgi nýj-
um eigendum,“ segir Guðmundur
Karl, en Einar vildi ekki tjá sig um
kaupin við Morgunblaðið að sinni.
„Þetta hefur verið rekið lengi
með mjög svipuðu sniði og gengið
farsællega. Ég efast ekki um að
Einar, jafn farsæll og hugmynda-
ríkur og hann er, muni setja góðan
lit á þetta,“ segir Guðmundur Karl
sem kveðst sjálfur ekki stefna að
veitingarekstri í náinni framtíð.
Bautinn vinsæll um árabil
Bautinn var opnaður 6. apríl árið
1971 og er elsti veitingastaður á
landinu sem býður grillsteiktan
mat. Hann er meðal þekktustu
kennileita í miðbæ Akureyrar og er
í Hafnarstræti.
Í ársreikningi Bautans ehf. fyrir
árið 2017 kemur fram að rekstrar-
tekjur félagsins hafi verið um 406
milljónir króna það ár og 471 millj-
ón króna árið 2016. Samanlagðar
arðgreiðslur til hluthafa árin 2017
og 2016 námu 49 milljónum króna.
Eignir félagsins árið 2017 námu
um 98 milljónum króna og skuld-
irnar 36 milljónum króna.
Sala Bautans á
lokametrunum
Eigandi Rub23 er kaupandi staðarins
Morgunblaðið/Kristján
Bautinn Staðurinn var fyrsti veitingastaður á Íslandi sem bauð upp á grill-
steiktan mat. Seljandinn býst við að ferskleiki fylgi nýjum eigendum staðarins.
Sérsveit ríkislög-
reglustjóra var
kölluð út til að að-
stoða lögregluna á
Suðurnesjum eftir
að ráðist var á
mann með hamri í
Reykjanesbæ í
gær. Átök tveggja
manna í gleðskap
enduðu með því að annar þeirra tók
upp hamar og beitti honum í áflog-
um þeirra á milli.
Fór gerandinn af vettvangi í kjöl-
farið og aðstoðaði sérsveitin við
handtöku hans, samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Suður-
nesjum. Þolandinn var fluttur á
sjúkrahús til aðhlynningar og var
útskrifaður samdægurs. Áverkar
reyndust ekki eins alvarlegir og tal-
ið var í upphafi. Árásarmanninum
hefur nú verið sleppt eftir yfir-
heyrslu og er málið í rannsókn hjá
lögreglu. Lögreglan í Reykjanesbæ
hefur ekki gefið upp ástæðu árásar-
innar og gat ekki sagt hvort árásar-
maðurinn hefði verið undir áhrifum
vímuefna eða hvort hann hefði
komið við sögu lögreglu áður.
Sérsveitin kölluð út
í Reykjanesbæ
Sérsveitin á Sel-
tjarnarnesi.
Lík karlmanns sem leitað hefur
verið í Ölfusá frá 20. maí fannst í
landi Arnarbælis í Ölfusi á laugar-
dagsmorgun. Umfangsmikil leit að
manninum stóð yfir eftir að vitni sá
hann fara í ána. Lögreglan kallaði
út björgunarsveitir á Suðurlandi og
höfuðborgarsvæðinu auk þess sem
þyrla Landhelgisgæslunnar var
send á staðinn. Leitin að manninum
bar engan árangur og var henni
hætt þremur dögum síðar, 23. maí.
Þó var eftirliti haldið áfram, m.a.
með drónum.
Menn á göngu við ána fundu lík
mannsins og tilkynntu það til lög-
reglu. Í fréttatilkynningu frá lög-
reglunni á Suðurlandi segir að
björgunarsveitarmenn frá Björg-
unarfélagi Árborgar hafi aðstoðað
lögreglu við vinnu á vettvangi.
Líkfundur við Ölfusá
Tveir fríverslunarsamningar verða
undirritaðir á ráðherrafundi frí-
verslunarsamtaka Evrópu (EFTA) á
Sauðárkróki í dag.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra mun stýra fundinum.
Hann mun einnig undirrita samn-
ingana fyrir hönd Fríverslunar-
samtaka Evrópu eða EFTA ásamt
fleiri ráðherrum frá aðildarríkjum
samtakanna. „Við erum að ræða al-
þjóðaviðskiptakerfið í heild sinni og
það er samhljómur á milli allra
ríkjanna um að það er mikilvægt að
standa vörð um það. Þetta eru allt
saman þjóðir sem byggja mikið á al-
þjóðaviðskiptum. Við erum að ræða
þær samningaviðræður sem eru í
gangi við mjög stóra aðila eins Ind-
land, Kanada og Indónesíu og ým-
islegt fleira. Einnig verða samræður
sem tengjast Brexit-viðræðum,“
segir Guðlaugur.
Á fundinum verða tveir samn-
ingar undirritaðir. Annars vegar
verður skrifað undir nýjan fríversl-
unarsamning EFTA við Ekvador og
hins vegar verður uppfærður frí-
verslunarsamningur við Tyrkland
undirritaður.
Utanríkisviðskiptaráðherra Ekva-
dor, Pablo Campana Sáenz, skrifar
undir fyrir hönd ríkisstjórnar Ekva-
dor og Nihat Zeybekci, efnahags-
málaráðherra Tyrklands, af hálfu
tyrkneskra stjórnvalda.
Skrifað undir frí-
verslunarsamninga
Ráðherrafundur EFTA í dag