Morgunblaðið - 25.06.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 25.06.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Að undanförnu hafa ítrekaðkomið fram ábendingar vegna undarlegrar framgöngu kærenda framkvæmda. Þeir virð- ist tímasetja kærur sínar seint þannig að þær valdi sem mestum erfiðleikum í stað þess að koma með gagnlegar ábend- ingar á fyrri stig- um framkvæmda.    Fjallað var umeitt slíkt dæmi í Morgun- blaðinu á fimmtudag þar sem framkvæmdir við Brúarvirkjun, litla virkjun í Biskupstungum sem þurfti ekki í umhverfismat en var sett í það engu að síður, eru nú í uppnámi vegna seint fram kom- innar kæru.    Ásgeir Margeirsson, forstjóriHS orku, gagnrýnir þetta og segir: „Það er undarlegt að hægt sé að kæra framkvæmd með til- heyrandi kostnaði fyrir fram- kvæmdaraðila, án haldbærs rök- stuðnings. Ekki virðist heldur vera gerð sú lágmarkskrafa til kærenda að þeir kynni sér fyr- irliggjandi gögn sem unnin hafa verið á undirbúningstímanum. Langt og ítarlegt ferli er í skipu- lagslögum og lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda til að hagsmunaaðilar geti komið með athugasemdir á undirbún- ingstímanum. Sú aðferð að hreyfa ekki neinum andmælum á kynn- ingarstigi gefur til kynna að við- komandi aðilar séu samþykkir ferlinu eða framkvæmdunum. Það að koma með kærur á lokastigi mats- og skipulagsferlis, fram- kvæmdaleyfið, gengur gegn grunnsjónarmiðum um kynningu og samráð sem lögin byggjast á.“    Ásgeir telur að þessu fyr-irkomulagi þurfi að breyta og það hlýtur að koma til skoð- unar eins og mál hafa þróast. Ásgeir Margeirsson Sérkennilega tímasettar kærur STAKSTEINAR Veður víða um heim 24.6., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 9 alskýjað Akureyri 12 alskýjað Nuuk 10 skýjað Þórshöfn 10 skúrir Ósló 23 skýjað Kaupmannahöfn 19 léttskýjað Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 19 skýjað Dublin 23 heiðskírt Glasgow 20 heiðskírt London 24 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 15 skýjað Vín 19 skýjað Moskva 20 skúrir Algarve 23 skýjað Madríd 33 heiðskírt Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 25 heiðskírt Aþena 24 skýjað Winnipeg 19 alskýjað Montreal 19 þoka New York 25 þoka Chicago 25 léttskýjað Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:13 23:48 Meira til skiptanna Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fór fram í Laugardalshöll á laugardaginn. Þar útskrif- uðust 1.964 kandídatar en það er svipaður fjöldi og hefur verið undanfarin ár, að sögn Jóns Atla Bene- diktssonar, rektors skólans. Við athöfnina flutti rektor ávarp þar sem hann m.a. lagði áherslu á mikilvægi háskólamenntunar. „Sterk rök hníga að því að okkar fámenna þjóð megi engan missa þeg- ar kemur að nýtingu hugvits og mannauðs. Mikil- vægt er að ungt fólk hér á landi, karlar til jafns við konur, fái tækifæri til að stunda háskólanám og að börn innflytjenda séu ekki afskipt þegar kemur að háskólamenntun.“ Í ávarpinu greinir Jón einnig frá könnun á háskólum sem gerð var af Evrópu- sambandinu. „Þar kemur margt jákvætt fram, t.a.m. að íslenskir nemendur eru almennt ánægðir með námið og aðstæðurnar í skólanum, en þeir vinna mikið.“ Hann segir helstu niðurstöðuna vera að nemendum verði að veita meiri stuðning svo þeir geti helgað sig náminu enn frekar. Athöfnin var í tveimur hlutum, fyrir hádegi útskrifuðust tæplega 800 nemendur með framhaldspróf eða meistarapróf og eftir hádegi útskrifuðust rúmlega 1.200 nemendur úr grunnnámi. Tvö þúsund brautskráðust úr HÍ  Brautskráning kandí- data fór fram um helgina Morgunblaðið/Kristinn Athöfn Fjöldi nemenda útskrifaðist á laugardag. Veðurstofan hefur varað við hvassviðri eða stormi fyrir há- degi í dag. Getur vindhraði víða farið upp í 30 m/s og er gul við- vörun í gildi. Í athugasemdum veðurfræðings kemur fram að bú- ast megi við hvassviðri eða stormi um landið austanvert fyrir hádegi í dag með snörpum vind- hviðum við fjöll, víða yfir 30 m/s. Þá er fólk beðið að huga að laus- um munum en tjöld, garðhúsgögn og trampólín gætu fokið. Um litla lægð er að ræða sem fer allhratt yfir landið, veðurspá getur því breyst hratt og mikilvægt að fylgjast með spám. Í hugleið- ingum veðurfræðings Veðurstof- unnar segir: „Á leið sinni yfir landið heldur lægðin áfram að dýpka og er útlit fyrir að hún verði nokkuð kröpp. Dregur úr vindi og úrkomu með deginum.“ Hvassviðri fyrir hádegi Vindaspá Sumarveðrið lætur enn bíða eftir sér víðast hvar um landið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.