Morgunblaðið - 25.06.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
www.gilbert.is
Framleıtt í takmörkuðu upplagı
Aðeıns 300 stk í boðı
JS WATCH
WORLD CUP
MMXVIII
20 18
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Of mikið sjálfstraust, ónóg
áætlanagerð og of lítil að-
stæðubundin meðvitund eru meðal
þeirra mannlegu þátta sem Rann-
sóknarnefnd samgönguslysa
(RNSA) segir hafa stuðlað að því
að flugvél brotlenti innst í Bark-
árdal 9. ágúst 2015 með þeim af-
leiðingum að einn maður lést og
annar slasaðist mikið. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu sem RNSA
gaf út á dögunum en þar eru rann-
sókn á umræddu flugslysi og þátt-
unum sem leiddu til slyssins gerð
skil.
RNSA gaf einnig út tvær aðrar
flugslysaskýrslur um slys sem áttu
sér stað í Mosfellsbæ í maí 2015 og
á Snæfellsnesi í júní 2014.
Lágskýjað og ofhlaðin vél
Þann 9. ágúst 2015 flaug flug-
maður ásamt félaga sínum, sem
einnig var ferjuflugmaður, áleiðis
frá Akureyri til Keflavíkurflug-
vallar. Tilgangur flugsins var að
ferja flugvélina frá Akureyri til
Bandaríkjanna þar sem selja átti
vélina. Flogið var yfir Þelamörk og
inn Öxnadal en of lágskýjað var og
því ekki unnt að fljúga yfir Öxna-
dalsheiði. Flugvélinni var því snúið
við og flogið út í átt að Stað-
artunguhálsi þar sem stefna var
tekin í átt að botni Hörgárdals, en
það reyndist einnig ófært yfir
Hörgárdalsheiði vegna lágra skýja
og var flugvélinni snúið aftur við.
Þegar flugmennirnir komu aftur að
Staðartunguhálsi hættu þeir
skyndilega við varaplan sitt þar
sem þeim sýndist þeir sjá gat í
skýjunum innst í Barkárdal og
ákváðu þá að fljúga inn dalinn.
Barkárdalur er langur og þröngur
dalur með háum fjöllum beggja
vegna. Innst í Barkárdal er fjalla-
skarð sem liggur lægst í 3.900 feta
hæð en engin ábúð er í dalnum og
því voru engin vitni að slysinu,
nema flugstjórinn sem lifði af.
Í skýrslunni segir að við rann-
sóknina hafi komið í ljós að flug-
vélin var ofhlaðin og afkastageta
hennar því talsvert skert.
Aukaeldsneytistanki hafði verið
bætt við vélina nokkrum dögum
áður en slysið átti sér stað og var
því rými fyrir 808 lítra af eldsneyti
í sex eldsneytistönkum vélarinnar.
Mannlegir þættir léku
stórt hlutverk
Eftir um 45 mínútna flug brot-
lenti flugvélin innst inni í Bark-
árdal í um 2.260 metra hæð. Flug-
maðurinn hafði þá reynt að snúa
vélinni við þegar ljóst var að
ómögulegt yrði að koma vélinni
upp úr dalnum en hafði misst flug-
ið í knappri beygjunni. Vélin
skrensaði á hrjóstrugum hrygg í
enda dalsins en endar vængjanna
rákust þá í hrygginn, með þeim af-
leiðingum að eldur kviknaði í elds-
neytistönkum í vængjunum.
Báðir flugmenn voru með sætis-
ólar spenntar og lifðu brotlend-
inguna af en þá hafði eldur og
reykur borist um vélina. Flugmað-
urinn sem ekki flaug kom sér aftur
í flugvélina þar sem ekki var
mögulegt að opna aðra hvora hurð-
ina á stjórnklefanum. Þar reyndist
ómögulegt að komast út, meðal
annars vegna eldsneytistanksins
sem hafði verið komið fyrir í vél-
inni nokkrum dögum fyrr. Flug-
stjórinn náði með erfiðleikum að
koma sér út um glugga á annarri
hurðinni og kom sér í um 10-15
metra fjarlægð frá flugvélarflakinu
áður en sprenging átti sér stað í
flugvélinni, með félaga hans innan-
borðs.
Eins og áður segir er í skýrsl-
unni bent á ýmsa þætti sem stuðl-
uðu að umræddu slysi eins og of
mikið sjálfstraust flugmanna og
vanmat á aðstæðum. Þá segir að
veðurspár hafi ekki réttlætt flug á
þessum degi og að flugmenn hafi
ekki haft nægjanlega vitneskju um
aðstæður í Barkárdal, sem er eins
og áður segir langur og þröngur.
Einnig segir að báðir flugmenn
hafi haft reynslu af flugi vélarinnar
sem í hlut átti og hafi því átt að
gera sér grein fyrir getu og tak-
mörkum vélarinnar.
Hluti vista fjarlægður
úr flakinu
Í annarri nýrri skýrslu frá
RNSA kemur fram að við vett-
vangsrannsókn hafi mátti sjá vís-
bendingar um að hluti vista sem
fisflugmaður flutti hefðu verið fjar-
lægðar úr flaki fissins áður en til
rannsóknar kom. Fisflugmaðurinn
hugðist flytja vistir til hestamanna
á Löngufjörum á Snæfellsnesi.
Slysið átti sér stað 7. júní 2014
en í skýrslunni kemur einnig fram
að flugmaðurinn þekki vel til að-
stæðna á Löngufjörum og hafi lent
þar áður. Flugmaðurinn brotlenti í
fjöruborðinu á svæðinu og slasaðist
töluvert. Hestamenn komu honum
til aðstoðar, fjarlægðu hann úr
flakinu og drógu flakið úr fjöru-
borðinu, með samþykki RNSA, þar
sem sjór var að flæða að.
Í lögum um rannsókn samgöngu-
slysa segir meðal annars: Á vett-
vangi samgönguslyss má hvorki
hreyfa eða flytja á brott loftfar,
skip eða ökutæki, hluta þess eða
innihald né hrófla við ummerkjum
slyssins uns vettvangsrannsókn er
lokið nema með heimild stjórnanda
rannsóknar.
Gekk í land
Þriðja flugslysaskýrslan sem
RNSA gaf út á dögunum er um
slys sem átti sér stað í Mosfellsbæ
11. maí 2015. Einkaflugmaður
hugðist fara í einkaflug frá flug-
vellinum í Mosfellsbæ en hann
gerði ekki jafnvægisútreikninga
fyrir flugið. Flugmaðurinn ákvað
að gera nokkrar snertilendingar á
flugvellinum áður en haldið yrði
um Suðurland en brotlenti í sjón-
um. Flugvélin eyðilagðist og flug-
maðurinn slasaðist töluvert en
komst út úr flakinu. Grunnt er á
þessum slóðum og gat flugmað-
urinn því gengið í land.
Mikið sjálfstraust ástæða flugslyss
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur sent frá sér þrjár nýjar flugslysaskýrslur Vanmat
á aðstæðum leiddi til banaslyss Flugmaður brotlenti og gekk í land Vistir hurfu af slysstað
Morgunblaðið/Kristinn
Ónýt Flugvélin sem brotlenti í Mosfellsbæ var af gerðinni Jodel D117A. Flugmaðurinn komst af sjálfsdáðum í land.
Fjölmörg mál eru opin á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa, að því
er fram kemur á heimasíðu nefndarinnar. Þar má finna lista yfir opin mál
og stöðu þeirra innan kerfisins en elsta rannsóknin er um slys sem átti
sér stað við Reykjavíkurflugvöll í nóvember 2014.
Eitt banaslys er í rannsókn hjá nefndinni en í nóvember á síðasta ári
voru drög að lokaskýrslu um málið í vinnslu. Slysið átti sér stað 12. nóv-
ember 2015 þegar kennari fór ásamt nemanda í þjálfunarflug til þess að
nemandi öðlaðist kennsluréttindi á þessa tegund flugvélar. Við rannsókn-
ina hefur komið í ljós að líklegt er að flugvélin hafi spunnið til jarðar.
Í mars og apríl 2016 urðu slys á sömu tegund flugvélar í Póllandi og
Ungverjalandi þar sem ummerki benda til þess að flugvélarnar hafi einnig
spunnið til jarðar. Hvort atvikin þrjú eru hliðstæð er ekki ljóst.
Óstöðugt aðflug á Keflavíkurflugvelli og lág eldsneytisstaða er meðal
þess sem rannsakað er í öðrum málum en staða rannsókna er birt á vefn-
um við eins árs aldur þeirra.
Annað banaslys í rannsókn
SEX MÁL ERU NÚ Í RANNSÓKN HJÁ RSNA