Morgunblaðið - 25.06.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
8.997
Outlet Grafarholti
GRISPORT
ÚTIVISTARSKÓR Á TILBOÐI
Verð áður
14.995
40%
AFSLÁTTUR
FRÁBÆRIR ÚTIVISTARSKÓR Á
FRÁBÆRU TILBOÐI!
SKÓRNIR KOMA Í GRÁU OG BEIGE
Í STÆRÐUM 36-47.
Markaður Smáratorgi
VÍNLANDSLEIÐ, GRAFARHOLTI
OPIÐ VIRKA DAGA 11:00- 18:00
LAUGARDAGA 11:00- 18:00
SUNNUDAGA: 12:00- 17:00
SMÁRATORGI, KÓPAVOGI
OPIÐ VIRKA DAGA 11:00- 18:00
LAUGARDAGA 11:00- 18:00
SUNNUDAGA: 12:00- 18:00
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
spýta eða rör sem er gamalt í hon-
um,“ segir Pétur og bætir við að
Sighvati sé ætlað að leysa gamalt
línuskip fyrirtækisins af hólmi.
„Það var komið að ákveðnum kross-
götum hjá gamla skipinu sem einn-
ig var kallað Sighvatur. Það var
kominn tími á hann og þessi mun
koma til með að leysa hann af,“ seg-
ir Pétur, en Vísir hafði notað eldra
skipið í um 40 ár. Talsverður stærð-
armunur er á skipunum en að sögn
Péturs er nýja skipið um tveimur
og hálfum metra breiðara en for-
veri þess.
Kostar talsvert minna
en nýsmíði
Spurður um kostnað við smíðina
segist Pétur ekki geta gefið upp ná-
kvæma tölu. Hann geri þó ráð fyrir
að kostnaðurinn sé talsvert minni
en við nýsmíði. „Ætli þetta sé ekki
hálfvirði á við skip sem keypt eru
alveg ný. Ég myndi telja það svona
í fljótu bragði,“ segir Pétur.
Upphaflega hét línuskipið Sig-
hvatur Skarðsvík, en skipið var
smíðað í Noregi fyrir rúmum 40 ár-
um. „Við keyptum skipið reyndar
frá Vestmannaeyjum og höfum ver-
ið að geyma það á bekknum í nokk-
ur ár. Þegar Sighvatur var fyrst
fenginn til landsins frá Noregi hét
hann Skarðsvík. Við keyptum hann
hinsvegar frá Vestmannaeyjum
undir nafninu Arney en ákváðum í
kjölfarið að breyta því í Sighvatur
GK 57,“ segir Pétur.
Spurður um hvort báturinn sé
mikið öflugri en forveri og nafni
hans, Sighvatur gamli, kveður Pét-
ur já við. „Þetta er hefðbundinn
bátur eins og við þekkjum þá. Nýja
skipið er hins vegar virkilega stórt
og öflugt,“ segir Pétur.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Sighvatur Nýja skipið kom nýverið til hafnar eftir sjö daga siglingu og eins árs endurbyggingu í Gdansk.
Ráðgert að kostnaður sé í kringum hálfvirði af nýsmíði
Sighvatur GK 57 end-
urbyggður frá grunni
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það var allt tek-
ið úr honum
nema 2/3 af
skrokknum,“
segir Pétur Haf-
steinn Pálsson,
framkvæmda-
stjóri sjávar-
útvegsfyrirtæk-
isins Vísis, um
Sighvat GK 57,
nýtt línuskip
fyrirtækisins. Skipið kom nýverið
til landsins að lokinni sjö daga sigl-
ingu og eins árs endurbyggingu í
Gdansk í Póllandi. „Við sendum
hann til Algor í Gdansk þar sem
þeir voru í um eitt ár að endur-
byggja hann nánast frá grunni. Ég
held að það sé ekki ein einasta
Pétur Hafsteinn
Pálsson
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Við höfum aldrei skikkað einn eða
neinn til þess að vera í þessu eða hinu
stéttarfélaginu,“ segir Kristján
Loftsson, forstjóri Hvals hf., í samtali
við mbl.is. Hann segir Vilhjálm Birg-
isson, formann Verkalýðsfélags
Akraness, fara með rangt mál hvað
það varðar og furðar sig á því að Al-
þýðusamband Íslands hafi fordæmt
það sem ASÍ segir ólögleg afskipti af
stéttarfélagsaðild starfsmanna sinna
á vef sínum, án þess leita skýringa
hjá fyrirtækinu.
Verkalýðsfélag Akraness og
Stéttarfélag Vesturlands létu ASÍ
vita af því að nú í upphafi hvalveiði-
vertíðar hefði Kristján sem forstjóri
Hvals hf. krafist þess af starfs-
mönnum sínum að þeir ættu ekki að-
ild að VLFA. Þetta segir Kristján
ekki vera rétt.
„Það sem hann er að segja þessi
Vilhjálmur Birgisson, það er eins
langt frá sannleikanum og hægt er að
komast,“ segir Kristján. Hann segir
málið snúast um það að stéttarfélögin
tvö þurfi að komast að samkomulagi
sín á milli um færslu félagsgjaldanna
og að Hvalur hf. líti svo á að fyrirtæk-
inu beri að greiða félagsgjöld allra
starfsmanna sinna til Stéttarfélags
Vesturlands, þar sem samningur
þess efnis sé í gildi.
Erfitt að koma mönnum inn í
„nútíma-atvinnuhætti“
Í yfirlýsingu á vef Stéttarfélags
Vesturlands segir þó að slíkur samn-
ingur sé ekki í gildi. Signý Jóhannes-
dóttir, formaður félagsins, segir þar
að félagið hafi gert tilraun til þess að
gera samstarfssamning við Hval hf.
árið 2009 en að það hafi ekki verið
klárað, þar sem illa hafi gengið að
koma forsvarsmönnum Hvals hf. og
hluta starfsmanna í stöðinni inn í „nú-
tíma-atvinnuhætti“.
Síðasti samningur Hvals hf. og
Verkalýðsfélagsins Harðar, sem er
eitt þriggja félaga sem runnu saman
árið 2006 og urðu að Stéttarfélagi
Vesturlands, var gerður árið 1983.
„Það eru menn hérna hjá mörgum
fleiri stéttarfélögum en bara þarna á
Akranesi og þeir snúa sér bara til
Stéttarfélags Vesturlands og fá þessi
félagsgjöld flutt á milli. En stéttar-
félögin verða að gera með sér sam-
komulag,“ segir Kristján og vísar til
13. og 15. greinar laga ASÍ, sem kveða
annars vegar á um að lög ASÍ séu
æðri lögum einstakra aðildarsamtaka
og hins vegar á um að þar sem samn-
ingssvið tveggja eða fleiri aðildarfé-
laga skarist sé þeim skylt að gera með
sér samkomulag um samningssviðið.
Hann segir aðspurður að hann líti
svo á að með því að greiða stéttar-
félagsgjöld beint til stéttarfélaga
starfsmanna væri Hvalur hf. að fara
„á svig við ýmsa dóma í félagsdómi og
fleira“.
„En verst þykir mér við þetta að
heimasíða ASÍ er farin að lepja upp
alla þessa slepju úr þessum Vilhjálmi
Birgissyni án þess að tala við einn eða
neinn. Ég hélt að það væri nú eitthvað
meira að marka þá,“ segir Kristján.
„Þeir geta sent okkur e-mail, þeir
geta sent okkur skriflegt bréf áður en
þeir setja þetta inn á heimasíðuna hjá
sér, finnst mér. Því að hann er ekki
besta upplýsingaveitan sem til er
þessi Vilhjálmur Birgisson, hvað
sannleikann varðar.“
Frjálst að
velja sér félag
Forstjóri Hvals furðar sig á fordæmingu
ASÍ Skipti sér ekki af félagsaðild starfsfólks
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Deilur Slegið hefur í brýnu milli
Hvals hf. og verkalýðsfélaganna.
„Það hrúgast inn uppsagnir. Það
er gríðarleg óánægja nátt-
úrlega,“ sagði Katrín Sif Sig-
urgeirsdóttir, formaður samn-
inganefndar ljósmæðra, í samtali
við mbl.is í gær. Telur Katrín að
níu ljósmæður hafi sagt upp
störfum á fæðingarvakt Landspít-
alans í síðustu viku en tekur fram
að hún sé þó ekki með nýjustu
tölur. Katrín Sif segir verkfalls-
aðgerðir í fullum undirbúningi og
stefnt er á að yfirvinnuverkfall
hefjist um miðjan júlímánuð.
Ljósmæður eiga fund með for-
sætisráðherra á þriðjudag og
næsti fundur hjá ríkissáttasemj-
ara fer fram á fimmtudag.
„Það hrúgast inn uppsagnir“