Morgunblaðið - 25.06.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Þín eigin skrifborðskæling!
Stjórnaðu hitastiginu við
vinnustöðina þína.
Kælitæki, rakatæki og lofthreinsitæki,
allt í einu tæki. Til í hvítu og svörtu.
Kynningarverð aðeins kr. 37.227 m.vsk.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Það var norskur maður semég kynntist í Ósló sem drómig til Noregs. Ég vann íLandsbankanum og fékk
styrk til að dveljast sex mánuði í
Skandinavíu og ég valdi Noreg. Ég
flutti til Noregs 1966 og er búin að
vera þar síðan,“ segir Elsa Þórð-
ardóttir Lövdal, fyrrverandi starfs-
maður Flugfélags Íslands, forvera
Icelandair. Elsa fékk starf á skrif-
stofu Flugfélags Íslands þegar hún
flutti til Ósló 29 ára gömul og vann
hjá félaginu þar til hún varð 69 ára
árið 2006.
„Það hefur mikið breyst á þess-
um tíma. Þegar ég byrjaði var flogið
til Ósló á veturna einu sinni í viku, á
laugardögum. Á sumrin bættist svo
önnur ferð á sunnudegi við,“ segir
Elsa og bætir við að nú fljúgi Ice-
landair yfir 10 ferðir á viku.
Var lengi eina starfstúlkan
Lengi var Elsa eina „starfs-
stúlkan“, eins og hún orðar það, á
skrifstofu Flugfélags Íslands í Ósló
og starfaði þar ásamt yfirmann-
inum, Skarphéðni Árnasyni.
„Þegar ég fór í fæðingarorlof
fimm árum síðar var ráðin önnur
stúlka, Dóra Óskarsdóttir, og við
urðum góðar vinkonur þrátt fyrir 10
ára aldursmun,“ segir Elsa.
„Í fyrstu viku starfsins var far-
ið yfir hvaða störf mér væru ætluð
og mér var sagt að ég ætti meðal
annars að skrásetja nöfn fé-
lagsmanna í Íslendingafélaginu og
taka við félagsgjöldum frá þeim.“
Elsa ætlaði að setjast í helgan
stein en ekki liðu margir dagar þar
til formaður safnaðar íslensku þjóð-
kirkjunnar í Ósló hringdi og spurði
hvort henni leiddist ekki að vera
heima og bauð Elsu vinnu sem rit-
ari safnaðarins.
„Ég sagði já takk og starfaði
hjá söfnuðinum þrjá daga í viku þar
til ég varð 73 ára gömul,“ segir Elsa
sem líkar vel að búa í Noregi.
„Veistu að mig langaði aldrei
aftur til Íslands. Fyrstu árin sakn-
aði ég foreldra og systkina en það
fylgdu því hlunnindi að vinna hjá
flugfélagi og ég nýtti mér það þegar
ég fékk heimþrá að nota frímiða
sem stóðu til boða fyrir starfsmenn.
Það skipti miklu máli að vita að ég
gæti skroppið heim þegar heimþrá-
in sótti að.
Noregsferð Eyjabarna 1973
Það var ótrúlegt hvernig Norð-
menn tóku á móti öllum börnunum
frá Vestmannaeyjum fyrir 45 árum.
Hugsa sér að það skuli vera komin
45 ár,“ segir Elsa þegar hún rifjar
upp sinn hlut í ferð yfir 900 barna
frá Vestmannaeyjum til Noregs árið
sem eldgos braust út á Heimaey og
Norðmenn, í samstarfi við Rauða
krossinn á Íslandi og í Noregi
ásamt fleiri aðilum, bauð öllum
börnum frá Vestmannaeyjum í
tveggja vikna sumardvöl í Noregi.
Alls þáðu yfir 900 börn boðið og
gistu ýmist á einkaheimilum eða í
sumarbúðum vítt og breitt um Nor-
eg.
„Aðalhvatamaðurinn að verk-
efninu var Hans Höeg, formaður
norska Rauða krossins, eftir því
sem ég best man,“ segir Elsa, sem
var í fæðingarorlofi þegar undirbún-
ingur ferðarinnar stóð sem hæst.
„Ég var heima með dóttur
mína nýfædda og skrásetti nöfn
barnanna, aldur, fæðingarnúmer og
á hvaða stað þau fóru í Noregi. Það
var nauðsynlegt að vita hvar börnin
voru niðurkomin,“ segir Elsa, sem
minnist þess að börnin hafi fengið
að hringja í hana.
„Þau hringdu þegar þau lang-
aði heim, mörg skildu ekki norsk-
una og söknuðu fjölskyldunnar. Ég
man eftir tilfellum þar sem við sótt-
um börn sem voru ein á heimili með
mikla heimþrá og komum þeim fyrir
þar sem önnur Eyjabörn voru fyrir,
en það voru ekki mörg tilfelli,“ segir
Elsa og bætir við að sonur hennar
hafi tekið að sér að vera fararstjóri í
fjallaskálanum í Høvringen þegar
Eyjabörn dvöldu þar. Elsa segir að
hringt hafi verið í sig og eiginmann
sinn og þau beðin að ná í Eyjabörn
og koma þeim á áfangastað.
Tók við nýju starfi
í Noregi sjötug
Elsa Þórðardóttir Lövdal
man tímana tvenna þegar
flugþjónusta er annars veg-
ar. Hún hóf störf á skrifstofu
Icelandair í Ósló árið 1966
en þá hét félagið Flugfélag
Íslands. Þegar Elsa byrjaði
hjá félaginu var flogið einu
sinni í viku að vetri til en
tvisvar á sumrin.
Atvinnublað alla laugardaga
mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?