Morgunblaðið - 25.06.2018, Side 14

Morgunblaðið - 25.06.2018, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Ólafur Ragnar hefur verið virkur í starfi IRENA, International Re- newable Energy Association, sem er alþjóðleg stofnun sem sett var á laggirnar fyrir röskum áratug og er nú samstarfsvettvangur 160 ríkja um uppbyggingu á sviði endurnýjanlegrar orku. Nýlega var Ólafur Ragnar valinn til að gegna formennsku í nýrri nefnd á vegum stofnunarinnar og mun þar vinna með fjölda þungavigt- arfólks úr heimi alþjóðamála að því að kortleggja hvernig vaxandi notkun hreinna orkugjafa og auk- in sjálfbærni í hagkerfum heims- ins mun breyta heimsmyndinni. Nefndarstarfið er sérstaklega styrkt af ríkisstjórnum Þýska- lands, Noregs og Sameinuðu ar- abísku furstadæmanna. „Aðgangur að auðlindum á borð við olíu hefur iðulega verið lykillinn að yfirráðum ríkja og stundum ástæða ófriðar. Ekki að- eins mun aukin samkeppnishæfni endurnýjanlegrar orku, s.s. sólar- og vindorku, geta dregið úr átök- um heldur mun hún hafa í för með sér lýðræðislegar breytingar á sviði orkumála þar sem borgir, byggðarlög, landsvæði og heilu löndin verða ekki eins háð fram- leiðendum olíu og gass. Breyting- arnar ná allt niður í stök heimili sem geta, þökk sé nýrri tækni, orðið nettó-orkuframleiðendur frekar en orkuneytendur,“ segir Ólafur. „Leiða má líkur að því að valdahlutföllin í heiminum muni breytast til hins betra og að margir heimshlutar verði frið- samlegri en þeir eru í dag. Breyt- ingarnar á komandi áratugum munu líka koma sér vel fyrir Ís- land. Aðrar þjóðir horfa til þess árangurs sem Ísland hefur náð og vilja læra af okkur.“ Valdajafnvægi heimsins mun breytast KORTLEGGJA ÞRÓUNINA Ríkjandi viðhorf var að ef fyrirtæki og ríki legðu áherslu á þessa þætti þá væri það meira af hugsjóna- ástæðum en af hagnaðarástæðum.“ En örar breytingar og tækni- framfarir á undanförnum áratug hafa breytt þessu. „Jafnvel olíuríki eins og Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa mótað sér áætlanir um að gera grund- vallarbreytingar á hagkerfum sín- um á næstu 20-30 árum til að verða minna háð olíu og gera samfélagið og atvinnulífið grænna.“ Bætir bæði ímynd og rekstur Ólafur Ragnar segir dæmin fjöldamörg og m.a. hægt að nefna stórfyrirtæki á borð við Google og Microsoft sem setja núna umhverf- ismál á oddinn og gera það ekki af hugsjóninni einni saman. „Aðgang- ur að hreinni og endurnýjanlegri orku er atriði sem þau leggja höfuðáherslu á þegar þau velja staði til að reisa gagnaver sín og starfsstöðvar. Annað dæmi er Wal- Mart, stærsta verslanakeðja Bandaríkjanna, sem hefur markað þá stefnu að verslanir fyrirtækisins og öll starfsemi noti hreina orku,“ segir hann og undirstrikar að þetta sé ekki allt gert til þess eins að skapa betri ímynd. „Þetta eru fyr- irtæki sem öll eru á hlutabréfa- markaði og lúta ströngum aga markaðssamkeppni. Þau geta ekki leyft sér þann lúxus að vera með gæluverkefni sem ekki styðja markaðsstöðu þeirra. Sama má segja um olíuríkin sem eru að taka sólarorku og aðra græna orku í sína þjónustu, og þá ekki síst vegna þess að þessir umhverfisvænu orkugjafar eru orðnir samkeppn- ishæfir og jafnvel ódýrari en að nota t.d. olíu; og jarðhiti er lang- ódýrasti kosturinn þegar kemur að hitun og kælingu borga.“ Í þessum breytta heimi felast sóknarfæri fyrir íslenskt atvinnulíf og fræðasamfélag: „Það hefði t.d. þótt skrítin kenning á Íslandi fyrir tuttugu árum að það gæti verið arðbær rekstur fyrir íslenskar verkfræðistofur og orkufyrirtæki að byggja hitaveitur í öðrum lönd- um. Engu að síður eru íslensk fyrirtæki í dag í samvinnu við Sino- pec, stærsta orkufyrirtæki Kína, um uppbyggingu á risavöxnum hitaveitukerfum í fjölda kínverskra borga – verkefni sem Þróunarbanki Asíu ákvað nýlega að styðja mynd- arlega,“ segir hann. „Tækifærin eru fjöldamörg og spanna allt frá sjávarútvegi yfir í landbúnað, ferðaþjónustu og heilsuvörur og byggjast á tækni og möguleikum sem voru ekki fyrir hendi fyrir 15 eða 20 árum.“ Sjálfbærni og samkeppnis- hæfni haldast í hendur  Dýrmæt tækifæri munu verða til fyrir íslensk fyrirtæki og fræðasamfélag með vaxandi vægi sjálfbærni og umhverfissjónarmiða um allan heim AFP Sóknarfæri Ólafur Ragnar segir áherslu stórfyrirtækja á sjálfbærni ekki bara til þess gerða að skapa þeim betri ímynd heldur hjálpa þeim að standa betur að vígi í harðri samkeppni. Hugað að nýju sólarorkuveri í Mexíkó. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Það er mikilvægt að fólk átti sig á að það sem hefði fyrir 20 árum ver- ið álitið gæluverkefni er í mörgum tilvikum orðið kjarninn í starfsemi framsæknustu fyrirtækja í dag; að umhverfisvænn og sjálfbær rekstur er líka arðbær rekstur,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr- verandi forseti, fjármálaráðherra og prófessor. Ólafur Ragnar var á meðal ræðumanna á viðskipta- og hagfræðiráð- stefnunni EU- RAM 2018 sem Háskóli Íslands hélt í síðustu viku. Þar flutti hann erindi með yfirskriftina „Af hverju græn og sjálfbær hagkerfi eru ábatasöm“. Ólafur Ragnar segir að vendipunkti hafi verið náð þar sem bæði stór og smá fyrirtæki, og jafnvel heilu þjóðirnar séu byrjaðar að setja sjálfbærni, umhverfisvernd og hreina orku á oddinn. „Ef við förum ekki lengra aftur en 10 eða 20 ár þá var ríkjandi viðhorf að það væri, í efnahagslegu tilliti, jaðarmál að leggja áherslu á sjálfbærni og hreina orku – að það væri enn langt í land og kannski ekki fyrr enn seint á 21. öldinni að lönd gætu byggt framtíð sína á sjálfbæru og grænu hagkerfi vegna þess einfald- lega að það væri ekki arðbært í sama skilningi og aðrir valkostir. Ólafur Ragnar Grímsson ● Tryggingamiðstöðin hf. gerði á föstudag skuldbindandi kauptilboð í alla hluti í Lykli fjármögnun hf. Í tilkynningu frá TM kemur fram að tilboðið er háð ýmsum fyrirvörum, s.s. um samþykki Fjármálaeftirlitsins um að TM megi fara með virkan hlut í Lykli og að Samkeppniseftirlitið leyfi kaupin. Lykill hefur verið í opnu söluferli í umsjón Beringer Finance og er selj- andi Klakki ehf. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum í allt hlutafé félagsins rann út 6. apríl og í framhaldinu var völdum fjárfestum boðið að taka þátt í öðrum hluta söluferlisins. Frestur til að gera skuldbindandi tilboð rann út kl. 15 á föstudag. ai@mbl.is TM gerir skuldbindandi tilboð í Lykil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.