Morgunblaðið - 25.06.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á nau
tið
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hópvinna er upplögð í dag. Þér
sýnist öll sund lokuð en svo er ekki. And-
aðu djúpt og svarið kemur til þín. Þú iðar
í skinninu eftir að komast í sumarfríið.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt njóta þess að versla fyrir
heimilið eða fjölskyldumeðlimi í dag.
Mundu að ekki er allt gull sem glóir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki treysta loforðum sem vinir
þínir hafa gefið þér í dag. Það er lítill
tími til stefnu, ekki draga að klára verk-
in. Kauptu hluti sem standast tímans
tönn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvaða stefnu vilt þú að líf þitt
taki á næstu fimm árum? Ekki láta stilla
þér upp við vegg í vinnunni, þú átt þinn
rétt eins og aðrir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er rétti tíminn til þess að bera
upp spurningu, sem hefur lengi verið að
brjótast um í þér. Gefðu þér tíma til að
stunda innhverfa íhugun.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Leyfðu vini þínum að eiga skjól
hjá þér með tilfinningar sínar. Þér finnst
þú utanveltu í vinahópnum en sú tilfinn-
ing varir ekki lengi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hverjum manni nauðsynlegt
að losna við og við undan oki hversdags-
ins. Láttu hverjum degi nægja sína þján-
ingu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Maður sér oft hlutina í skýr-
ara ljósi við það eitt að segja þá upp-
hátt. Það kemur upp úr dúrnum að þú
hafðir rétt fyrir þér í deilumáli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Klæddu þig vel og skartaðu
þínu fegursta. Farðu varlega í umferð-
inni, hvort sem þú ert gangandi eða ak-
andi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samband sem eitt sinn riðaði
til falls, stendur nú á traustum grunni.
Mundu að sá er vinur sem til vamms
segir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú færð óvæntar gleðifréttir
svo full ástæða er til að gera sér glaðan
dag. Tíminn virðist standa kyrr þegar
maður bíður eftir einhverju.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Við höfum öll gott af því að
staldra við og líta yfir farinn veg. Sinntu
ættingja eins og þér frekast er unnt og
leggðu annað til hliðar á meðan.
Ólafur Stefánsson skrifaði í Leir á
fimmtudag að það væri skemmti-
lega og myndrænt til orða tekið af
Heiðrúnu Lind hjá Samtökum í
sjávarútvegi er hún sagði „að gott
væri að sjá ýsuna rétta úr sér“. –
„Maður bókstaflega sér það fyrir
sér!“ bætti hann við.
Oft eru ágætar fréttir
innan um stjórnmál og grín:
ýsan úr sér réttir
og aftur sólin skín.
Ólafur heldur áfram og segir að
það séu líka góðar fréttir ef hann
skyldi létta til um allt land á
þjóðhátíðardaginn:
Útlitið er ósköp svart,
í Eyjum margur baginn,
þó er bót ef það er bjart,
þjóðhátíðardaginn.
Sigmundur Benediktsson skrif-
aði mér á miðvikudag, sagðist hafa
að mestu verið í vísnahvíld und-
anfarið, en ekki staðist þessa
dásamlegu sólskinsblíðu. – Og orti
smáljóðið Sólskinsdag – bragar-
hátturinn er hagkveðlingaháttur:
Hvergi hikar blíður blær,
blómið hnikað kolli fær.
Glóey blikar björt og skær,
bárum hvikar tjörn og sær.
Landsins myndum lyftir sól
lýsir tinda, dal og hól.
Vötnin sindra, brosa ból,
blíðast lyndi öllu fól.
Glæðist innar geislabrá
glóðar finna kraftinn má.
Aukast kynnin auðnu frá,
auðgast sinnið von og þrá.
En strax daginn eftir, á fimmtu-
dagsmorgun, var komin ausandi
rigning. – „Svona er stundum
þurrkuð út gleði manns í einu vet-
fangi,“ skifar Sigmundur og bætir
við: „Leið umskipti“:
Lægðafárið leiða ber,
ljótar spár ei hugga.
Himinn grár og hnugginn er
hrynja tár á glugga.
Höfuðfat fauk af Boga Brynjólfs-
syni sýslumanni á sæ út og sögðu
sumir að það væri sýslumanns-
húfan. Þá orti Einar Stefánsson
Blönduósi:
Húnvetninga henti slys,
– hér fór verr en skyldi –:
Húfan fór til helvítis,
hausinn ekki fylgdi.
Vísa þessi er talin vera eftir vest-
firska konu:
Gengur slunginn, gæðasmár,
girndum þrunginn púki.
Sprundin ungu flekar flár
flagarinn tungumjúki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um ýsuna í sólskinsblíðu
„ÉG HEF SÓTT UM SKILNAÐ. ÉG VIL
FELUSTAÐINN, HELMINGINN AF ÞÝFINU
OG FULLT FORRÆÐI YFIR KLÍKUNNI.“
„HANN HORFÐI Á HJARTAAÐGERÐ Í
SJÓNVARPINU FYRIR ÞREMUR DÖGUM OG
HEFUR ENN EKKI NÁÐ SÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fleyið sem heldur
ykkur á floti í lífsins
ólgusjó.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVERNIG BÚA BÝFLUGUR
TIL HUNANG?
BÚA
TIL?!
ÉG KAUPI ÞAÐ
BARA ÚTI Í BÚÐ AULI
TIL AÐ SÝNA
UMHYGGJUSEMI OKKAR...
FÆRI ÉG ÞÉR VASAKLÚT
TIL AÐ ÞERRA TÁRIN!
Sögusviðið er lítil sveit vestur áfjörðum og þetta var síðastliðinn
föstudag. Flestir þeir sem voru á
svæðinu mættu í samkomuhúsið.
Ungir og gamlir; heimamenn og að-
komufólk og eftirvæntingin skein úr
hverju andliti. Spennan var mikil og
innlifun fólksins í leikinn var sterk
enda lið Íslands hér á heimsvelli fót-
boltans. Framan af var mikil spenna
í salnum en það fór að síga í fólk og
bekkurinn að þynnast þegar staðan
var orðin 2-0 fyrir Nígeríumenn,
sem voru einfaldlega með betra lið
en Íslendingar sem geta þó borið
höfuðið hátt. Munum líka að íþróttir
eru alltaf fyrst og síðast leikur,
skemmtun og sýning. Enginn er
skaðinn þótt einstaka leikur tapist,
þótt sigrarnir séu alltaf sælir og lífgi
sálaryl.
x x x
Í yfirstandandi HM-ævintýri höfumvið séð flestar bestu eigindir ís-
lenskrar þjóðarsálar. Á heimsvísu
hafa Íslendingar og það í mörgum
greinum oft náð frábærum árangri
íþróttum. Hefur þá mjög munað um
altækan stuðning þjóðarinnar við hið
frænkna fólk. Og alltaf farnast Ís-
lendingum best þegar samstaða
næst um brýn mál. Heilbrigður
þjóðlegur metnaður er góður og má
alls ekki leggja að jöfnu við öfga-
kennda einangrunarhyggju.
x x x
Í stjórnmálunum er stundum impr-að á því að á Íslandi verði að festa
í sessi hið norræna velferðarsam-
félag; það er sterkt öryggisnet svo
allir geti lifað með reisn. Það er gott
markmið en þá ættum við líka að
kynna útlendingum íslenska módel-
ið. Segja frá þjóðinni sem stendur af
heilum hug saman í brýnum hags-
munamálum, skólum sem skila í
stórum stíl fólki sem nær frábærum
árangri í vísindum og fræðum, ótrú-
legum gangi í öllum framkvæmdum
og góðri samfélagslegri þjónustu
sem borin er uppi af 350 þúsund
skattgreiðendum. Einnig því hvern-
ig okkur tókst á fáum árum að sigla
út úr brimhroða efnahagshrunsins;
því mikla lærdómsríka sjálfskapar-
víti. Verum stolt, keik og bjartsýn.
Áfram Ísland! vikverji@mbl.is
Víkverji
Nú varir trú, von og kærleikur, þetta
þrennt, en þeirra er kærleikurinn
mestur
(Fyrra Korintubréf 13.13)