Morgunblaðið - 25.06.2018, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára reynslu
á markaði þar sem við
þjónustum jafnt stór
sem smá fyrirtæki.
kallast „chapbooks“, og algeng leið
fyrir ungskáld að senda frá sér sín
fyrstu verk áður en þeir vinna sig upp
í að gefa út bók með kili.“
Stærri bækur fylgdu í kjölfarið:
„Við höfðum það alltaf að markmiði
að gefa út umfangsmeiri verk í fram-
haldinu. Þá markaði Partus strax í
upphafi þá stefnu að hafa formlega ri-
stjórn, sem er sjaldgæft í ljóða-
bókaútgáfu, til að tryggja ákveðin
gæði í útgáfunni og um leið gefa verk-
unum alltaf nægilegan tíma til að
dafna, mótast og fæðast.“
Einsleitar bókaútgáfur
Bæði Meðgönguljóð og Partus
urðu til sem tilraun til að fylla upp í
stórt gat í íslenskum útgáfuheimi.
„Við sem hófum útgáfu Meðgöngu-
ljóða á sínum tíma byrjuðum með
þessa seríu okkar vegna þess að við
vissum hreinlega ekki hvert við áttum
að snúa okkur. Tómarúmið var greini-
legt og eins og að um langt skeið hefði
enginn sinnt ungskáldum almenni-
lega,“ segir Valgerður en bætir við að
þó svo að starfsemi Partusar sé drifin
áfram af listrænum hugsjónum þá sé
ekki þar með sagt að útgáfan muni
leyfa sér hvað sem er. „Ef að forlagið
á að þróast og stækka þarf það að
standa undir sér, og við verðum að
hafa ákveðin formsatriði á hreinu.“
Tómarúmið sem Valgerður lýsir
birtist líka í mikilli einsleitni í bókaút-
gáfu. „Hinn alþjóðlegi útgáfuheimur
hefur smám saman þróast í þá átt að
það er núna sáralítill munur á forlög-
unum. Útgefendurnir slást upp til
hópa um sömu bækurnar á bóka-
messunum og láta sömu gildin ráða
för. Virðist engu máli skipta hvaða út-
gefandi gefur út hvaða bók, og kemur
jafnvel ekki lengur fram á kápunni,“
útskýrir Valgerður. „Partus á að gefa
út alls konar bókmenntir – ekki bara
ljóðabækur – en útgáfan sem heild á
að endurspegla ákveðinn smekk, og
vissa tilfinningu í hugum lesenda. Ég
vil að fólk sjái bók fra Partusi úti í
verslun og hugsi með sér að því fylgi
ákveðinn stimpill.“
Íslenskar bækur til Bretlands
Partus hlaut styrk frá breska rík-
inu til að þýða nokkur íslensk verk á
ensku og gefa út á Bretlandsmarkaði.
Eins og fyrr var getið verður riðið á
vaðið í sumar með safni kvæða eftir
Kristínu Ómarsdóttur og í framhald-
inu koma út skáldsögurnar Millilend-
ing eftir Jónas Reyni Gunnarsson og
Að heiman eftir Arngunni Árnadótt-
ur. Því næst gefur Partus út á ensku
kvæðasafn eftir Elías Knörr og loks
myndasöguna Gombra eftir mynd-
listakonuna Elínu Eddu.
Valgerður játar að það sé stór biti
að fara með útgáfuna til Bretlands og
það hafi komið sér vel að gefa fyrstu
bókina út í samvinnu við Carcanet
sem þykir með virtari ljóða-
Útgáfa með listræna sýn
Partus fyllti upp í gat sem hafði
skapast á bókamarkaði Á næstu
misserum gefur forlagið út í Bretlandi
fjórar bækur eftir íslenska höfunda
Bandaríski tónlistarmaðurinn góð-
kunni, David Crosby, kemur fram
ásamt hljómsveitinni David Crosby
& Friends á tónleikum í Háskólabíói
23. ágúst næskomandi. Tónleikarnir
eru liður í tónleikaferð hans sem
nefnist Sky Trails. Á ferli sem
spannar sex áratugi hefur Crosby
skapað söngva sem hafa talað til
þriggja kynslóða tónlistarunnenda,
ekki bara sem sóló-listamaður held-
ur einnig sem einn af stofnendum
The Byrds og Crosby, Stills & Nash
– sem fengu Grammyverðlaun sem
bestu nýliðar árið 1969, og Crosby,
Stills, Nash & Young.
Í tilkynningu um tónleikana segir
að þessi litríki frumkvöðull, sem var
innlimaður í Songwriter’s Hall of
Fame árið 2009, hafi verið eins kon-
ar samviska samtíðar sinnar með
lagasmíðum eins og „Almost Cut My
Hair“ og „Wooden Ships“. Crosby
hefur reglulega styrkt margvísleg
baráttusamtök með afrakstri tón-
leika sinna og tekst enn á við að
túlka tíðar andann með textum sín-
um og lögum. Með honum leika
James Raymond á hjómborð, Steve
DiStanislao á rommur, Mai Leisz
bassa, Jeff Pevar gítar og Michelle
Willis leikur á hljómborð og syngur.
Margreyndur David Crosby er á leið til landsins ásamt hljómsveit.
Davið Crosby með
tónleika í Háskólabíói
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Við viljum ekki endilega skilgreina
Partus sem forlag gagngert fyrir
ungskáld. Við höfum vissulega gefið
út verk eftir skáld sem eru að stíga
sín fyrstu skref en við viljum fylgja
þeim áfram eins langt og þau fara,
hvort sem það ferðalag tekur mörg
ár eða marga áratugi,“ segir Val-
gerður Þóroddsdóttir. „Okkur lang-
aði að setja á laggirnar forlag sem
væri eitthvað annað og meira en það
sem fólk væntir af bókaútgáfum í
dag: hafa skýra listræna sýn og
áherslur, og nálgast bókaútgáfu sem
listrænt verkefni.“
Valgerður er stjórnandi og stofn-
andi forlagsins Partusar
(www.partuspress.com) sem vakið
hefur athygli fyrir fjölbreytt útgáfu-
starf með ríka áherslu á ljóðabækur.
Framundan er útrás til Bretlands í
samstarfi við útgáfuna Carcanet og
verður byrjað á verkinu Waitress in
Fall sem hefur að geyma úrval ljóða
eftir Kristínu Ómarsdóttur í þýðingu
Valgerðar.
„Forlagið fór formlega af stað árið
2015 en óx upp úr ljóðabókaflokk-
inum Meðgönguljóð sem hóf göngu
sína árið 2012,“ segir Valgerður en
glöggir lesendur hafa eflaust áttað
sig á tengingunni á heiti Meðgöngu-
ljóða við nafn forlagsins, því „partus“
er latneska orðið yfir fæðingu. „Við
byrjuðum mjög smátt, með agn-
arlitlum ritum sem voru handsaumuð
saman. Reyndar héldum við framan
af að við hefðum fundið upp nýtt út-
gáfuform, því bækur af þessu tagi
sjást varla á Íslandi, en síðan kom-
umst við að því að svona bækl-
ingaútgáfa er útbreidd úti í heimi,