Morgunblaðið - 25.06.2018, Page 32
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Myndi vísa henni út á ný
2. Frá Aleppo til Akureyrar
3. Upplýstu 30 ára gamalt morðmál
4. Sérsveitin kölluð út í …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sóley Stefánsdóttir kemur fram á
tónleikum í sumartónleikaröð Nor-
ræna hússins á miðvikudagskvöldið
kemur kl. 21. Tónlist Sóleyjar nýtur
sívaxandi hylli víða um lönd en fjórða
plata hennar er væntanleg.
Sóley á tónleikum í
Norræna húsinu
Kvennakórinn
Tromsø Akadem-
iske Kvinnekor frá
Noregi heldur
tónleika kl. 19 í
dag í Háteigs-
kirkju. Á dag-
skránni eru nor-
ræn lög sem fjalla
um þrá, kraft,
náttúru, gleði og ást. Kórinn sam-
anstendur af um þrjátíu konum og
tengist hann Háskólanum í Tromsø.
Kórstjóri er Bjarne Isaksen.
Lög um þrá, kraft,
náttúru, gleði og ást
Halli Guðmunds Crazy Dogs Quin-
tet kemur fram á Kex hosteli við
Skúlagötu í kvöld kl. 20.30. Á
efnisskránni er áður óútgefið
efni eftir Harald Ægi Guð-
mundsson bassaleikara,
í bland við standarda
úr amerísku djass-
bókinni. Með Haraldi
leika þeir Lukas
Kletzander, Einar
Scheving, Ari
Bragi Kárason og
Steinar Sigurðar-
son.
Kvintett Halla Guð-
munds djassar á Kexi
Á þriðjudag Suðvestan 8-13, en hægari eftir hádegi. Skýjað að
mestu og stöku skúrir, en bjart með köflum norðan- og austan-
lands. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða skúrir, en yfirleitt þurrt á Austurlandi.
Dregur úr vindi fyrir austan eftir hádegi, 10-15 m/s í kvöld. Hiti 8 til
16 stig.
VEÐUR
Harry Kane hefur skorað
fimm mörk í fyrstu tveimur
leikjum Englendinga á
heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu og bæði Eng-
land og Belgía hafa skorað
átta mörk til þessa og eru
þegar komin í sextán liða
úrslit keppninnar. Pólverjar
eru úr leik eftir að þeir
steinlágu fyrir Kólumbíu í
gærkvöld og heimsmeist-
ararnir unnu dramatískan
sigur. »6
Markaveisla Eng-
lands og Belgíu
Það verða ferskir og frábærir fætur
Króata sem mæta íslenskum starfs-
bræðrum sínum annað kvöld í loka-
umferð D-riðils HM í borginni Rostov.
Zlatko Dalic, þjálfari Króatíu, hefur ekki
farið leynt með að hann hyggist hvíla
lykilmenn í leiknum, en leikmanna-
hópurinn er einfaldlega það góður að
það hefur mun minna að segja en til að
mynda í tilfelli Íslands. »2
Segir lítið þó að Króatar
hvíli leikmenn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Mikil spenna ríkir á heimili
hjónanna Brynhildar Guðmunds-
dóttur og Ivica Gregoric fyrir leik
Króata og Íslendinga. Hjónin ráð-
gera að fylgjast með leiknum
ásamt börnum sínum en öll hallast
þau að stuðningi við Ísland í leikn-
um á morgun. „Stemningin á heim-
ilinu er yfirleitt mjög góð þegar
þessi lið mætast enda getum við
fagnað mörkum beggja liða. Þrátt
fyrir að Ivica sé króatískur þá
heldur hann meira með Íslandi og
það sama á við um börnin okkar,“
segir Brynhildur og bætir við að
Ivica vonist til að sjá bæði lið fara
upp úr riðlinum. Þá séu miklar lík-
ur á að að minnsta kosti annað lið-
ið verði í 16-liða úrslitunum og því
beri að fagna.
Brynhildur segir að þrátt fyrir
að hún vilji vera bjartsýn finnist
sér ólíklegt að Íslandi takist að
knýja fram sigur í leiknum mikil-
væga. „Það er svakalega erfitt að
spá í þennan leik en ætli þetta fari
ekki 2:1 fyrir Króata og þeir nái
þar með fram hefndum eftir tapið í
Laugardalnum,“ segir Brynhildur.
Neikvæð umræða í Króatíu
Spurð um hvernig þau Ivica
kynntust segir Brynhildur að þau
hafi kynnst í gegnum sameiginlega
vini. Eitt hafi leitt af öðru og þau
byrjað að hittast eftir tæplega
tveggja ára dvöl Ivica hér á landi.
„Ivica kom til landsins 1997 eftir
að hafa kynnst eigendum Hornsins
á skemmtiferðaskipi í Karíbahaf-
inu. Það var um svipað leyti og ég
var að klára nám. Við kynntumst
síðan í gegnum sameiginlega vini á
Íslandi, þau Bryndísi Hólm og
Bato heitinn vin okkar, stofnanda
Hraðlestarinnar,“ segir Brynhild-
ur.
Í aðdraganda heimsmeistara-
mótsins hefur umræðan um lands-
lið Króata verið mjög neikvæð í
heimalandinu, ekki síst vegna
meintrar spillingar í kringum
knattspyrnusambandið þar í landi.
Fyrir leikinn gegn Íslandi hefur
umfjöllun í króatískum fjölmiðlum
verið á þá leið að leikurinn gegn
Íslandi verði sá erfiðasti í mótinu
hingað til. Einn stærsti fjölmiðill
Króatíu, 24sata, fór nýverið yfir
helstu styrkleika íslenska liðsins
og þar segir að styrkur, góð tækni
og frábært skipulag Íslendinga
geti reynst króatíska liðinu óþæg-
ur ljár í þúfu. Þá er mikil virðing
borin fyrir íslenska liðinu og er al-
mennt talið að leikurinn geti farið
á hvorn veginn sem er.
Brynhildur segir að Króatar
sem hún hefur rætt við séu mis-
bjartsýnir fyrir leikinn gegn Ís-
landi. „Það er mikið fjallað um
leikinn í Króatíu og fólk er ekki
allt sammála um hvernig þetta fer.
Við fjölskyldan erum þó róleg
enda fögnum við bara alltaf með
sigurliðinu,“ segir Brynhildur.
„Við erum alltaf í sigurliði“
Spennan farin
að magnast á
heimili Brynhildar
Ljósmynd/aðsend
Fjölskyldan Brynhildur og Ivica kynntust fyrir um 20 árum og eiga tvö börn saman. Mikil spenna ríkir á heimilinu
vegna leiksins enda í fyrsta sinn sem Króatía og Ísland mætast í lokakeppni heimsmeistaramóts í knattspyrnu.
Sandra María Jessen, fyrirliði Ís-
landsmeistara Þórs/KA í knatt-
spyrnu, kom Akureyrarliðinu á topp
Pepsi-deildar kvenna á nýjan leik í
gær með því að skora bæði mörkin í
2:0 sigri í toppslag gegn Breiðabliki á
Þórsvellinum. Blikakonur töpuðu þar
með fyrstu stigum sínum á tíma-
bilinu og sigu niður í þriðja sætið því
Valur náði öðru
sætinu með
því að sigra
FH 4:2 í
Kapla-
krika. »
4-5
Sandra skoraði bæði
mörkin í toppslagnum