Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 2

Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 Kristín S. Sigurðardóttir Lögg. fast.sali. Sif Eir Magnúsdóttir Hdl og Lögg. Fast.sali Hlýlegt 41,2 m2 sumarhús með heitum potti og kamínu á besta stað í Öndverðarnesinu, steinsnar frá golfvellinum og sundlauginni. Aðeins 40 mínútna akstur frá Reykjavík. Mikill og ævintýralegur skógur með sérstökum trjám, algjört næði, sjón er sögu ríkari! V- 19 millj. Traust og góð þjónusta í 15 ár Kiðhólsbraut 21 – Öndverðarnesi O pi ð hú s la ug ar da gi nn 14 . j úl í m ill i k l: 13 :0 0 - 1 4: 00 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Reykjavík dæmd í jafnréttismáli  „Við munum auðvitað fara yfir úrskurðinn og hvort það megi ekki læra af honum,“ segir borgarstjóri Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Dæmt hefur verið gegn Reykjavík- urborg í máli Ástráðs Haraldssonar hæstaréttarlögmanns frá því í fyrra. Um er að ræða málsókn sem fór fyrir kærunefnd jafnréttismála og varðaði ráðningu Ebbu Schram í embætti borgarlögmanns í ágúst 2017. Ástráður og Ebba, sem einnig er hæstaréttarlögmaður, sóttu bæði um starfið og taldi Ástráður brotið á sér vegna kynferðis síns þegar Ebba var ráðin. Nú hefur kæru- nefnd jafnréttismála komist að sömu niðurstöðu og seg- ir í úrskurði sínum að brot- ið hafi verið á lögum um jafna stöðu karla og kvenna við ráðninguna. „Við munum fara vel ofan í þetta og endurmeta okkar ferli, það er engin spurn- ing,“ sagði Þórdís Lóa Þór- hallsdóttir, formaður borg- arráðs, um málið í samtali við Morgunblaðið. „Mér finnst það alltaf vera lærdómur þegar svona mál koma upp. Ég veit líka að borgin hefur lagt metnað sinn í ráðningarferlin og hefur aldrei lent í svona áður, svo þetta er veruleg áminning til okkar að fara ofan í málin.“ Í samtali við Morgun- blaðið lagði Líf Magneu- dóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, áherslu á að hún hefði setið hjá þegar ráðningin hefði komið fyrir borgarráðið. „Ég sagði að við þyrftum að fara í gagngera endur- skoðun á þessu ráðningar- ferli. Ég held að þessi úr- skurður sé staðfesting á því.“ „Þetta kom mér á óvart,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. „Reykja- víkurborg hefur lagt mjög mikið upp úr fagmennsku við ráðningar undanfarin ár og reyndar áratugi. Það var staðið eins að þessari ráðn- ingu og öllu ferlinu eins og áður. Kærunefndin gerði í raun ekki at- hugasemd við ferlið, auglýsinguna eða matskvarðann en vildi leggja annað mat á vægi matsþáttanna. Það var lögð meiri áhersla á lög- mennsku en sveitarstjórnarrétt.“ „Við erum búin að fara yfir þetta í borgarráði og munum auðvitað fara yfir úrskurðinn og hvort það megi ekki læra af honum,“ bætti Dagur við. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Dagur B. Eggertsson Líf Magneudóttir Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta er bara eitthvað sem við get- um eiginlega ekki svarað. Við erum að reyna að vinna úr þessu sem við höfum en við höfum ekki úr miklu að moða. Það er farið að þrengja veru- lega að þeim sem eru í vinnu.“ Þetta segir Ingibjörg Th. Hreið- arsdóttir, yfirljósmóðir göngudeild- ar mæðraverndar og fósturgreining- ar, aðspurð hvort öryggi þeirra, sem koma á meðgöngu- og sængurlegu- deild Landspítalans eftir að fyrir- hugað yfirvinnubann ljósmæðra hefst, verði ógnað. Verði af banninu mun það hefjast næstkomandi miðvikudag, 18. júlí, en eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær eru nú þegar allar vaktir á meðgöngu- og sængurlegu- deild Landspítalans undirmannaðar og starfseminni haldið gangandi með yfirvinnu. Vaktaskýrslan stendur Staðan sem upp er komin er óljós en grafalvarleg segir Ingibjörg og segist sjálf ekki vita nákvæmlega hvað muni gerast þegar bannið tek- ur gildi. „Það eru ekki fordæmi fyrir þessu. Þetta er í raun í fyrsta skipti sem við stöndum frammi fyrir þessu á Landspítalanum eftir því sem ég kemst næst. Þannig við erum að reyna að ná utan um hvað þetta þýð- ir fyrir okkur,“ segir Ingibjörg. Hún segir að vaktaskýrsla sum- arsins, sem birt var í vor, gildi að forminu til enn þá en fyrir hafi verið eyður í skýrslunni. „Það hefur verið smá misskilning- ur um hvort að hún sé fallin úr gildi. Svo er ekki. Vaktaskýrslan er enn þá í gildi,“ segir Ingibjörg og bætir við: „Það sem gerir þetta snúið fyrir okk- ur er það að það eru ljósmæður í sumarfríum. Þetta hefur auðvitað mest áhrif á meðgöngu- og sængur- legudeildina þar sem vantar tólf ljós- mæður,“ en uppsagnir tólf ljós- mæðra tóku gildi sl. mánaðamót. „Það var fyrir gap í skýrslunni sem ekki hefur náðst að manna. Þetta þýðir því að við þurfum að taka til neyðarmönnunar með undan- þágulista,“ segir Ingibjörg. Ráðherra getur lítið gert „Ef það kemur til vinnustöðvunar á einhvern hátt, eins og nú hefur ver- ið boðað, þá fara undanþágulistar í gang. Það er það sem spítalinn gerir. Hins vegar herðist róðurinn eftir því sem lengra líður. Það gefur auga leið,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra spurð um hvað yfirvinnubannið muni þýða fyrir starfsemi Landspítalans. „Ég hef sagt það að ég get séð fyr- ir mér að ég komi að ferlinu þegar við sjáum fyrir endann á samningi til þess að loka málinu,“ segir Svandís. Aðspurð hvort hún geti beitt sér á annan eða meiri hátt í ferlinu svarar hún: „Nei í raun og veru ekki. Sam- kvæmt lögum er það samninganefnd ríkisins sem fer með samningsum- boð ríkisins gagnvart ríkisstarfs- mönnum.“ Áhrif yfirvinnubanns- ins óljós en alvarleg  Fordæmalaus staða  Róðurinn herðist, segir ráðherra Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir Svandís Svavarsdóttir Spóinn er áberandi fugl í náttúru lands- ins. Ekki er það samt módröfnóttur lit- urinn sem veldur því, eins og gefur að skilja, heldur aðrir þættir: Stærð fugls- ins, langt og bogið nefið og ekki síst hljóðin, þetta sérkennilega vell sem hann gefur frá sér. Hann verpir allt frá ströndum og upp til heiða og er reyndar einn algengasti fugl í mólendi og heiða- löndum Íslands. Aftur á móti er hann fá- séður á miðhálendinu. Kjörlendið er þýfðir mýra- og flóajaðrar þar sem mæt- ast votlendi og þurrlendi en einnig kann hann prýðilega við sig á þurrum og snöggum grasbölum við sjávarsíðuna. Að sjá hann uppi í lerkitré er hins vegar ekki algengt, hvað þá efst, en náðist samt á mynd á dögunum við Kaldbaks- tjarnir nærri Húsavík. Skýringin er ein- föld, því hér var um að ræða foreldri sem þurfti að hafa nánar gætur á ungum sínum, og þetta var hæsti punktur á svæðinu. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Á verði Spói fylgist með ungum úr trjátoppi „Það verður áframhaldandi lægðagangur,“ sagði veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi þegar hann var spurður út í veðurhorfur næstu daga. Vætusamt verður um Suður- land í kvöld en að líkum verður suðausturhorn landsins eina svæðið sem sleppur við rigningu um miðnætti í kvöld. Á morgun verður þurrt um mestallt land en byrjar aftur að rigna á Suður- landi á aðfaranótt sunnudags. Þá verður vætusamt um stærst- an hluta landsins á sunnudag en útlit er fyrir bjartviðri á landinu á þriðjudag. Búast má við björt- um dögum þegar líður á næstu viku. Lægð í dag en bjartir dagar í næstu viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.