Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 8

Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 Björn Bjarnason fjallar um stöðuRíkisútvarpsins í tilefni af fréttum um kvartanir vegna hátt- semi þess á auglýsingamarkaði í kringum heims- meistaramótið í knattspyrnu: „Má segja að óhjákvæmi- leiki komi jafnan í ljós þegar litið er til málefna RÚV og hann verði til þess að fyrirtækið fari sínu fram með rúma 4 milljarða af skattfé að baki sér. Með auglýsingum aflar það rúm- lega 2 milljarða að auki. RÚV hefur því slíka fjárhagslega yfirburði á fjölmiðlamarkaðnum að þeir einir ættu að knýja á um aðgerðir af hálfu samkepnnisyfirvalda og fjöl- miðlanefndar. Að þessi staða líðist á fjölmiðlamarkaði sem sagður er frjáls er að sjálfsögðu út í hött,“ skrifar Björn.    Hann bætir við: „Ryksugun RÚVá auglýsingamarkaðnum vegna HM bitnar illa á einkarekn- um sjónvarpsstöðvum eins og Hringbraut eða N4 sem eru dæmi- gerðar staðbundnar stöðvar sem reisa afkomu sína á auglýsingum.    Af fréttum RÚV má ráða aðstjórnendur þeirra færi sig sí- fellt meira inn á þrengra svið. RÚV sé í raun að breytast í lands- fréttastöð þar sem erlendar fréttir mæti afgangi. Fréttastofan hafi gefist upp við að skýra og segja frá því sem hæst ber á alþjóðavett- vangi.    Fréttaskýringaþættir um erlendmálefni eru hverfandi og við- fangsefni þeirra minna oft á sér- visku.    Þetta er ef til vill óhjákvæmilegþróun en hún eykur ekki þörf- ina á að rúmum sex milljörðum á ári sé varið til að hún haldi áfram.“ Björn Bjarnason Út í hött að þessi staða líðist STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.7., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk 6 þoka Þórshöfn 11 skýjað Ósló 23 þrumuveður Kaupmannahöfn 25 heiðskírt Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 25 heiðskírt Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 24 léttskýjað Dublin 18 skýjað Glasgow 19 léttskýjað London 23 rigning París 25 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 24 skúrir Berlín 18 rigning Vín 23 skýjað Moskva 25 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 33 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 28 heiðskírt Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 25 skýjað Montreal 24 léttskýjað New York 26 skýjað Chicago 24 skýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:36 23:32 ÍSAFJÖRÐUR 2:59 24:19 SIGLUFJÖRÐUR 2:40 24:04 DJÚPIVOGUR 2:56 23:11 Þórdís Lóa Þór- hallsdóttir, for- maður borgar- ráðs og stað- gengill borgar- stjóra, segir að hún hafi óskað eftir nánari skýr- ingum í máli tæp- lega áttræðs Reykvíkings sem býr í Þverárkoti við rætur Esju. Morgunblaðið greindi frá því sl. sunnudag að Sveinn Sigurjónsson múrarameist- ari þurfi að leggja bíl sínum í eins kílómetra fjarlægð frá heimili sínu og vaða eða ganga á ótraustum ís yf- ir á til að komast heim á veturna. Það þarf hann að gera þrátt fyrir að búa í 116 Reykjavík. Honum hefur verið boðið að láta laga veginn að heimili sínu, gegn því að hann greiði helming kostnaðar, um sex milljónir króna hið minnsta. „Þetta er auðvitað mál sem þarf að skoða og ég er búin að spyrjast fyrir um það. Ég óskaði nýverið eftir upplýsingum og ætla að kanna þetta nánar,“ segir Þórdís Lóa. aronthordur@mbl.is Ætlar að kanna mál- ið nánar  Óskar upplýsinga um mál afdalabónda Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis barst í fyrradag tilkynning um fiska- dauða í Varmá í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram á vef eftirlitsins. Við at- hugun fundust tveir dauðir fiskar, sem voru fjarlægðir, en ekki fundust fleiri líflausir fiskar við nánari at- hugun ofar í ánni. Þá segir Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Kjósarsvæðis, í sam- tali við Morgunblaðið að ekki hafi verið tilkynnt um fleiri dauð dýr í eða við Varmá. „Það er ekki hægt að fullyrða neitt að svo stöddu en út frá því að við höfum ákveðna reynslu í þessum málum álítum við að þarna hafi verið einhver efni sem hafa farið í regn- vatnslögn og þannig í ána,“ svarar Þorsteinn spurður um hver sé helsta tilgáta eftirlitsins um fiskadauðann. Regnvatnslagnir Mosfellsbæjar liggja út í Varmá og lítið þarf til að valda usla í lífríki árinnar vegna þess hve vatnslítil hún er. „Til dæmis ef fólk er að tjöruþvo bíla við húsin sín, eða jafnvel að skola málningaráhöld. Ég tala nú ekki um að tæma heita potta, sem eru þá ranglega tengdir í regnvatnslagnir. Það allt getur haft slæm áhrif á lífríki árinnar. Það er langhlaup hjá okkur að koma þess- um málum í lag,“ segir Þorsteinn. Orsök fiskadauða í Varmá er óþekkt  Engin sýnileg mengun í ánni  Spilliefni úr regnvatnslögn líklegasta orsökin Ljósmynd/Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis Ólán Tveir fiskast fundust dauðir. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 LOUNGE SÓFI kr. 89.900 1 0 % a f s l á t t u r a f n ý j u m v ö r u m 20 - 60% afsláttur af útsöluvörum S U M A R Ú T S A L A Núkr. 62.930 B:132 D:63 H76 -30%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.