Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 19
56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 Tókýó. AFP. | Björgunarmenn í Japan leituðu í gær í rústum húsa að tugum manna sem er saknað vegna aur- skriða og flóða sem kostuðu að minnsta kosti 200 manns lífið. Enn- fremur var hafist handa við að fjar- lægja aur og hreinsa götur og hús eft- ir að heilu hverfin urðu fyrir hamförunum eftir ausandi rigningar. Embættismaður í Okayama, einu héraðanna sem urðu verst úti, sagði að haldið yrði áfram að leita að fólki í von um fleiri fyndust á lífi þótt lík- urnar á því væru litlar þar sem meira en þrír sólarhringar voru liðnir frá náttúruhamförunum. Við leitina not- uðu björgunarmenn skóflur til að moka aur frá rústunum. Hætta á fleiri skriðum Hætta var talin á fleiri aurskriðum þar sem spáð var úrhelli á nokkrum svæðum, að sögn japanskra fjölmiðla í gær. Talsmaður ríkisstjórnar Japans, Yoshihide Suga, sagði að um 200 lík hefðu fundist á hamfarasvæðunum og sextíu manns til viðbótar væri saknað. Þetta eru mannskæðustu hamfarir af völdum veðurs í rúma þrjá áratugi í Japan og manntjónið hefur vakið spurningar um hvort yfirvöld séu nógu vel undir það búin að takast á við slíkar hamfarir. Suga sagði að ríkisstjórnin myndi endurskoða almannavarnastefnu sína. „Á síðustu árum hefur tjónið af völdum mikilla rigninga verið miklu meira en árin áður,“ sagði hann. „Við þurfum að fara gaumgæfilega yfir það hvað við getum gert til að minnka hættuna.“ Lofar aukinni aðstoð Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap- ans, aflýsti ferð til Evrópu og Mið- Austurlanda fyrr í vikunni vegna manntjónsins og fór til Okayama í fyrradag til að kanna ástandið á ham- farasvæðunum. Hann sagði að gagn- rýni á viðbrögð yfirvalda væri ekki sanngjörn. „Við höfum gert okkar besta frá því að hamfarirnar urðu.“ Forsætisráðherrann lofaði í gær að auka aðstoðina við fólk sem varð fyrir tjóni í hamförunum og sagði að 71.000 manns, sem flúðu heimkynni sín, hefðu fengið húsnæði til bráðabirgða. Um 10.000 manns til viðbótar eru enn í neyðarskýlum. Ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að verja jafnvirði tæpra 2,2 milljarða króna í aðstoðina og Abe sagði að yfir- völd héraða, sem urðu fyrir tjóni, fengju meira fé til að standa straum af endurreisninni. Yfirvöld í Okayama sögðu að lang- ur tími myndi líða þar til lífið færðist í eðlilegt horf á hamfarasvæðunum vegna tjónsins sem varð, meðal ann- ars skemmda á vegum, vatnsleiðslum og rafmagnslínum. Víða er skortur á drykkjarvatni á hamfarasvæðunum og herbílar eru notaðir til að flytja þangað vatn og fleiri lífsnauðsynjar. Mannskæðar skriður í Japan TÓKÝÓ 100 km Japanshaf Okayama Hiroshima Ehime Héruð þar sem tjónið er mest Um 60 var enn saknað í gær Vitað er um 200 manns sem fórust Um 10.000 manns eru enn í neyðar- skýlum eftir að hafa flúið hús sem urðu fyrir skriðum 71.000 manns sem flúðu heimkynni sín fengu bráðabirgða- húsnæði Leitað var að fólki í rústum húsa í gær Heimild: Almannavarnastofnun Japans Mikið manntjón í skriðum  Mestu hamfarir af völdum veðurs í Japan í þrjá áratugi AFP Eyðilegging Hús sem skemmdist í náttúruhamförum í bænum Kumano í Hi- roshima-héraði, einu héraðanna sem urðu verst úti í aurskriðum og flóðum. Ráðgert er að gera Tham Luang- hellinn í Taílandi að safni til minn- ingar um ævintýralega björgun tólf pilta og fótboltaþjálfara þeirra rúm- um hálfum mánuði eftir að þeir urðu innlyksa í hellinum vegna vatns sem flæddi í hann í úrhelli. Skýrt hefur verið frá því að a.m.k. eitt kvikmyndafyrirtæki, Pure Flix, hafi þegar hafið undirbúning kvik- myndar um björgun piltanna. Pure Flix hefur sérhæft sig í kristilegum fjölskyldumyndum. Björgunarmaður sem fór síðastur út úr hellinum eftir að piltunum var bjargað sagði að litlu hefði munað að aðgerðin færi illa vegna bilunar í dælum sem voru notaðar til að dæla vatni úr hellinum. Dælurnar hefðu bilað skömmu eftir að síðustu fjórum piltunum og þjálfara þeirra var bjargað og litlu hefði munað að síð- ustu björgunarmennirnir hefðu ekki komist út vegna vatns sem flæddi í hellinn. Forsætisráðherra Taílands sagði að piltarnir hefðu fengið róandi lyf en björgunarmaðurinn sagði að þeir hefðu verið sofandi þegar kafarar björguðu þeim úr hellinum. Hellirinn verður gerður að safni AFP Fótboltahetjur Þrír piltanna tólf á sjúkrahúsi í bænum Chiang Rai. Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.