Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 35
formaður skemmtinefndar og síðar
gjaldkeri félagsins. Nokkrum árum
eftir stofnun félagsins var húsið
Skógar keypt en það þurfti töluverðr-
ar viðgerðar við og fóru Ásvaldur og
tíu manna hópur austur í vinnuferðir
á hverju vori til að koma húsinu í
stand.
Auk félagsmálanna hafði Ásvaldur
mikinn áhuga á ferðalögum og áttu
þau Erna jeppa alla tíð og ferðuðust
mikið um hálendið með góðum vin-
um. Þau tóku virkan þátt í dansfélag-
inu Kátu fólki, en samtökin stóðu
fyrir dansleikjum í Reykjavík. Ás-
valdur fylgist vel með fótboltanum,
ekki síst þeim liðum sem afkomend-
urnir spila með en Guðmundur Andri
Tryggvason sem spilar með IK Start í
Kristiansand í Noregi er langafabarn
Ásvaldar.
Ásvaldur er nýkominn frá Seyðis-
firði en hann fór þangað vegna heim-
ildarmyndar sem verið er að gera á
vegum RÚV, meðal annars um El
Grillo. Aðspurður segist Ásvaldur
ætla að eiga notalega stund með fjöl-
skyldunni í kvöld á heimili einnar af
Hjónin Ásvaldur og Erna.
Ásvaldur
Andrésson
Sigurbjörg Ólafsdóttir
húsfreyja á Brimnesi
Einar Jónsson
bóndi á Brimnesi við Seyðisfjörð
Guðrún Margrét Einarsdóttir
húsfreyja íAustdal
Jón Austdal Jónsson
bóndi og ökumaður íAustdal í Seyðisfirði
Sveinrún Jónsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Sveinbjörg Sveinsdóttir
húsfreyja í Ekkjufellsseli
Jón Guðmundsson
bóndi í Ekkjufellsseli í
Fellum, N-Múl.
Snorri Sigfús
Birgisson tónskáld
og píanóleikari
Trausti Magnússon
útgerðarm. á Seyðisf.
Einar
inars-
on raf-
rkjam.
í Rvík
Birgir Þór-
hallsson,
ramkvstj.
í Rvík
Magnús
Jónsson
útgerðarm.
á Seyðisf.
Anna
Guðmunds-
dóttir húsfr.
á Seyðisf.
og víðar
Sigríður
Jónsdóttir
húsfreyja í
Keflavík
Vilborg S. Jónsdóttir
húsfr. á Seyðisf.
Jón Magnússon raf-
veitustj. á Seyðisf.
VignirAndrésson
íþróttakennari í
Reykjavík
Þórhallur Birgis-
son fiðluleikari
Eiður Smári
Guðjohnsen
knattspyrnu-
kappi
f
Guðrún Birgis-
dóttir flautuleikari
E
s
vi
Ólöf R.
Einars-
dóttir leið-
sögum. og
frkvstj. í
Rvík
Kristín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hausthúsum
Þorsteinn Einarsson
bóndi í Hausthúsum í
Leiru, Gull.
Guðrún Rósa Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Andrés Rasmussen
kaupm. og skósm. á Seyðisf. síðar bóndi í
Winnipeg, ættleiddur afAndrési Rasmus-
sen og Önnu Stefánsdóttur á Seyðisf.
Kristjana Soffía Stefánsdóttir
húsfreyja í Vopnafirði
Árni Sigurðsson
bóndi í Vopnafirði
Úr frændgarði Ásvalds Andréssonar
Andrés Rasmussen
verkamaður og mótoristi á Seyðisfirði
dætrum hans í Vesturbænum í
Reykjavík.
Fjölskylda
Eiginkona Ásvaldar frá 1956 er
Erna María Jóhannsdóttir, f. 4.2.
1938, skrifstofumaður. Foreldrar
hennar voru hjónin Johan Schröder,
f. 28.1. 1903, d. 16.4. 1971, og Jakob-
ína Hansdóttir Beck Schröder, f.
11.9. 1911, d. 25.5. 2005, garðyrkju-
bændur í Birkihlíð í Kópavogi.
Börn Ásvaldar og Ernu eru 1)
Hanna Sveinrún Ásvaldsdóttir, f.
25.5. 1956, sérfræðingur á hjarta- og
lungnavél hjá LSH, bús. í Kópavogi.
Maki: Gunnlaugur Helgason raf-
eindavirki. Þau eiga Hrafnhildi, við-
skiptafræðing og deildarstjóra,
Helgu Þórunni verkfræðing og Hlín
verkfræðinema. Þær eiga sex börn;
2) Regína Ásvaldsdóttir, f. 30.6. 1960,
sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavík-
urborgar og fv. bæjarstjóri á Akra-
nesi. Maki: Birgir Pálsson tölvunar-
fræðingur hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu. Regína á Ernu Maríu, flug-
kennara og leiðsögumann, Ýr
fatahönnuð og eina stjúpdóttur, Auði
Kolbrá, dóttur Birgis, lögfræðing.
Auður á tvö börn; 3) Ragnhildur Ás-
valdsdóttir, f. 5.11. 1966, kvikmynda-
gerðarkona í Noregi. Ragnhildur á
synina Jökul, sem starfar hjá Síman-
um, Ásvald Fróða, verslunarmann í
Noregi og Dag, nema í Noregi.
Systkini Ásvaldar voru Ragnar
Bóasson, hálfbróðir sammæðra, f.
18.5. 1918, d. 2.8. 1993, matreiðslu-
meistari, bús. í Los Angeles, lærði og
starfaði á Waldorf Astoria í NY og
starfaði síðan á Beverly Hilton og
Ambassador í Hollywood; Guðrún
Andrésdóttir, f. 16.4. 1923, d. 2.7.
2002, húsmóðir á Akureyri; Oddný
Stefanía Andrésdóttir, f. 30.10. 1924,
d. 10.8. 1927.
Foreldrar Ásvaldar voru hjónin
Andrés Rasmussen, f. 25.12. 1896, d.
10.4. 1945, verkamaður og mótoristi á
Seyðisfirði, og Sveinrún Jónsdóttir, f.
15.6. 1897, d. 18.11. 1988, húsmóðir.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018
Halldór Halldórsson fæddist13. júlí 1911 á Ísafirði. Hannvar yngsti sonur hjónanna
Halldórs Bjarnasonar, búfræðings,
verkstjóra og kaupmanns á Ísafirði, f.
1877, d. 1920, og Elísabetar Bjarna-
dóttur, húsfreyju, f. 1875, d. 1956.
Halldór varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1932, lauk mag-
istersprófi frá HÍ í íslenskum fræðum
með málfræði sem aðalgrein 1938 og
doktorsprófi um íslensk orðtök frá
HÍ 1954.
Halldór kenndi við Menntaskólann
á Akureyri 1938-1951, var dósent við
HÍ í íslenskri málfræði 1951-57 og
prófessor 1957-79.
Halldór var einn þekktasti mál-
fræðingur þjóðarinnar. Hann var og
kunnur fyrir íslenzka málrækt, ný-
yrðasmíði og ráðgjöf við ýmsar ný-
yrðanefndir fræðigreina. Hann var
ritstjóri fjölmargra bóka um mál-
fræðileg efni, var ritstjóri Skírnis
1954-1967 og ritaði mikinn fjölda
blaða- og tímaritsgreina auk þess
sem hann tók að sér að flytja reglu-
bundna þætti í útvarp og skrifa fasta
þætti í blöð um íslenskt mál.
Eftir Halldór liggur ógrynni af
fræðilegum ritgerðum að ónefndum
fjölmörgum bókum sem hann samdi.
Þar má nefna Íslenzkt orðtakasafn,
Stafsetningarorðabók með skýr-
ingum, Ævisögur orða, Örlög orðanna
o.fl. Hann þýddi bókina Mál og
mannshugur eftir Noam Chomsky.
Halldór var víða gistiprófessor,
m.a. í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi
og Bandaríkjunum og á ferli sínum
hlotnaðist Halldóri ýmiss konar heið-
ur og viðurkenningar, m.a. frá Minn-
ingarsjóði Ásu Wright, Málræktar-
sjóði og Lýðveldissjóði.
Eiginkona Halldórs var Sigríður
Guðmundsdóttir, húsfreyja og starfs-
maður Orðabókar Háskóla Íslands, f.
16.9. 1917, d. 3.12. 1997. Börn þeirra:
Guðmundur, blaðamaður, d. 2000,
Hildigunnur, tölvunarfræðingur,
Elísabet, bókasafnsfræðingur, d.
2016, og Halldór, fjölmiðlafræðingur,
d. 2015.
Halldór lést 5. apríl 2000.
Merkir Íslendingar
Halldór
Halldórsson
95 ára
Hólmfríður Gestsdóttir
Þóra Sigríður Tómasdóttir
90 ára
Ásvaldur Andrésson
Júlíus Gestsson
Ólöf Stefánsdóttir
85 ára
Hörður Kristinsson
Jenný Sigrún Sigfúsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
80 ára
Guðmunda Jónsdóttir
Ingibjörg Jóna Helgadóttir
Ólafur Grétar Óskarsson
Sigrún Daníelsdóttir
Skúli Kristinn Gíslason
75 ára
Árni Einarsson
Erna Hávarðardóttir
Níels Kristinsson
70 ára
Benedikt R. Benediktsson
Erlingur Georg Haraldsson
Eyþór Elíasson
Friðrik Hans Friðjónsson
Guðbjörg Emilsdóttir
Jóhanna Lovísa Stefánsd.
Ólöf Karlsdóttir
Skúli O. Kristjánsson
60 ára
Ágústa H. Lyons Flosadóttir
Eggert Tryggvi Helgason
Elísabet Álfheiður Oddsd.
Heiðar Þór Guðmundsson
Kristín María Björnsdóttir
Magnús Atli Guðmundsson
Ólafur Ólafsson
Óskar Leifur Guðmundsson
Páll Haraldsson
Sigríður Birgisdóttir
Sólrún María Henriksdóttir
Svandís Ebba Stefánsdóttir
50 ára
Anna Sigríður Örlygsdóttir
Arnór Björnsson
Ágústa Björnsdóttir
Björn Gunnlaugsson
Borgar Þorsteinsson
Fanney Magnúsdóttir
Jónas Frímann Árnason
Jón Þór Daníelsson
Kolbrún St. Halldórsdóttir
Kristín Reinhold Sæbergsd.
Sigurður Jóhannes Jónss.
Þórir Sigurgeirsson
40 ára
Anna Sigríður Halldórsd.
Eðvar Ólafur Traustason
Guðrún Hildur Magnúsd.
Jens Karl Ísfjörð
Jóhanna Kristrún Birgisd.
Leó Viðar Björnsson
María Jóna Magnúsdóttir
Rakel Valsdóttir
30 ára
Ágúst Bjarni Heiðarsson
Ástrós Lilja Einarsdóttir
Dagmar Lárusdóttir
Dagrún Ása Ólafsdóttir
Daniel Már Bonilla
Eydís Hulda Jóhannesdóttir
Guðný Helga Haraldsdóttir
Hlynur Þorsteinsson
Inga Jara Jónsdóttir
Ingi Vífill Guðmundsson
Magnús Viðarsson
Sólrún Helga Guðmundsd.
Stefán Geir Guðmundsson
Vilhjálmur Egill Vífilsson
Ylfa Helgadóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Geir ólst upp í
Blönduvirkjun en býr í
Reykjavík. Hann er vélfræð-
ingur og framkvæmdastj.
North Tech Energy.
Maki: Dagmar Ásmunds-
dóttir, f. 1980, hárgreiðslu-
kona.
Börn: Daníel Hagalín, f.
2003, Tómas Darri, f.
2006, og Una Rún, f. 2008.
Foreldrar: Guðmundur
Hagalín Guðmundsson, f.
1954, og Kristjana Arnar-
dóttir, f. 1955.
Geir Brynjar
Hagalínsson
40 ára Sonja er Hafnfirð-
ingur en býr í Reykjavík.
Hún er tækniteiknari og
vinnur á verkfræði-
stofunni Verksýn.
Maki: Ólafur Hrafn
Traustason, f. 1984, vinn-
ur hjá Þ. Þorgrímssyni.
Sonur: Gabríel Grétar, f.
2000.
Foreldrar: Ragnar Erl-
ingsson, f. 1958, og Elín
Böðvarsdóttir, f. 1962, d.
2017. Stjúpfaðir er Einar
Ragnarsson, f. 1960.
Sonja
Ragnarsdóttir
30 ára Nanna er Reykvík-
ingur, er grunnskólakenn-
ari í Sæmundarskóla, en
er í fæðingarorlofi.
Maki: Baldur Baldvins-
son, f. 1987, vinnur hjá
Eimskip.
Börn: Arndís Inga, f.
2014, Sigrún Lilja, f. 2018,
og stjúpsonur er Heimir
Örn, f. 2009.
Foreldrar: Þórður Möller,
f. 1960, og Ingibjörg S.
Helgadóttir, f. 1957, kenn-
arar í Verzlunarskólanum.
Nanna
Þ. Möller
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
KælingHiti
HreinleikiLoftraki
fyrir heimilið