Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
v
595 1000
AGUAMARINA
Frá kr.
109.995
Frá kr.
158.995
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fr
ir
.
13. ÁGÚST Í 11 NÆTUR
COSTA DEL SOL
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ljósmynd/Björgunarsveitin Ernir Bolungarvík
Bruni Báturinn varð fljótt alelda og þurfti Reynir að verjast eldinum og
reyknum frá flakinu úr björgunarbátnum sem hann komst við illan leik í.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Mér líður alveg þokkalega, ég
slasaðist ekkert, en maður þarf
auðvitað tíma til að komast yfir
áfallið, svona eftir á,“ segir Reynir
Gunnarsson, skipstjóri og eigandi
strandveiðibátsins Sólu GK-36, en
Reynir bjargaðist er báturinn
brann til kaldra kola og sökk á
miðunum norðan við Kögur á Vest-
fjörðum í gærmorgun.
„Ég hafði verið á handfæraveið-
um og var kominn með um 400 kíló
af afla þegar eldur kviknaði í
stýrishúsinu,“ segir Reynir. Hann
kveðst ekki vita hvers vegna eldur-
inn kviknaði, en mikið af tækjum
er í stýrishúsum báta.
Sökk við slökkvistarfið
„Eldurinn breiddist mjög fljótt
út og ég frétti frá Vaktstöð sigl-
inga, að hann hafi sokkið,“ segir
Reynir. Þegar björgunarbáturinn
kom segir Reynir að báturinn hafi
verið í ljósum logum en þegar þeir
hafi reynt að slökkva eldinn hafi
flakið sokkið.
„Þetta gerðist allt svo hratt,
bara á örfáum mínútum,“ segir
Reynir sem slapp ómeiddur, en sér
eftir bátnum sem var grundvöllur
atvinnu hans. Honum vannst að
sögn ekki tími til að komast í flot-
galla, en tókst að losa gúmmíbjörg-
unarbátinn og komast yfir í hann.
„Ég var svo heppinn að vera
með símann í brjóstvasanum og
gat hringt í Vaktstöð siglinga sem
sendi út neyðarkall í alla báta á
svæðinu.
Strandveiðibáturinn Smári
ÍS-144 var fyrstur á slysstaðinn.
„Ég var nú bara eina sjómílu frá
honum, ég sá nú ekki eldinn en ég
var að hlusta á gæsluna og heyrði
tilkynninguna. Það var ekki eftir
neinu að bíða, ég dreif mig bara
strax á staðinn,“ segir Þorleifur
Ingólfsson, skipstjóri á Smára,
sem var líka einn á handfæraveið-
um.
Var brunninn niður að sjólínu
„Þetta var alveg ömurlegt á að
líta, báturinn var brunninn niður
að sjólínu þar sem stýrishúsið var
og kolsvartur og baneitraður reyk-
ur steig af honum, en Reynir var
að reyna að verjast reyknum og
eldinum í björgunarbátnum. En
það gekk nokkuð fljótt fyrir sig að
ná honum hingað upp í Smára, við
vorum að reyna að forðast flot-
akkerin og Reynir var í sjóklæð-
unum,“ segir Þorleifur. Hann seg-
irótrúlegt hafi verið að sjá hve
báturinn skíðlogaði og brann hratt,
norðaustankaldi hafi verið á svæð-
inu, en þetta hafi gengið vel.
„Við mættum svo björgunarskip-
inu á leiðinni, en ég fór með Reyni
og gúmmíbjörgunarbátinn til Bol-
ungarvíkur. Ég gaf honum bara
brauðsneið með rækjusalati á leið-
inni til hressingar og við féllumst í
faðma og hann þakkaði mér fyrir.
Ég fór svo bara aftur á veiðar eftir
þennan happatúr.“
Varð happatúr þrátt fyrir allt
Reyni Gunnarssyni, skipstjóra á Sólu GK, vannst ekki tími til að fara í flotgalla þegar eldur kviknaði í bátnum
Var bjargað um borð í bátinn Smára sem var skammt frá Stýrishúsið brann fljótt niður að sjólínu
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bjargvætturinn Þorleifur Ingólfs-
son kom mjög fljótt á slysstað.
Axel Helgi Ívarsson
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Félagsmenn í Ljósmæðrafélaginu
samþykktu í gær miðlunartillögu
ríkissáttasemjara í kjaradeilu þeirra
við ríkið. Tillagan var samþykkt í at-
kvæðagreiðslu með 95,1% atkvæða.
Alls voru 247 á kjörskrá og greiddu
224 atkvæði, eða 91%. Þá samþykkti
fjármála- og efnahagsráðherra miðl-
unartillöguna og hefur nýr kjara-
samningur aðila því komist á og mun
hann gilda til 31. mars 2019, skv.
frétt á vef ríkissáttasemjara.
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formað-
ur samninganefndar ljósmæðra, að
niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
hefði ekki komið sér á óvart í ljósi
þess hve samstíga ljósmæður hefðu
verið á síðustu dögum. Þó viður-
kennir Katrín að það hafi komið sér
á óvart hve mikill meirihluti var
fylgjandi samþykkt tillögunnar. „Ég
átti kannski ekki alveg von á að
þetta yrði svona afgerandi,“ sagði
Katrín.
Er Katrín var innt eftir viðbrögð-
um við niðurstöðunum skömmu eftir
hádegi í gær sagðist hún ekki hafa
vitað af því að niðurstaðan hefði ver-
ið birt. Leiðrétti ríkissáttasemjari,
Bryndís Hlöðversdóttir, þann mis-
skilning í samtali við Morgunblaðið
og mbl.is í gær.
Bryndís sagði að formönnum
beggja samninganefnda hefði verið
tilkynnt um niðurstöðuna um leið og
hún lá fyrir, upp úr klukkan 12. Ein-
hvers misskilnings hefði gætt um að
funda hefði átt sérstaklega með
samninganefndunum vegna niður-
stöðunnar.
Vinnur að skipun dómara
„Ég er að vinna í þeim málum og
geri ráð fyrir að það skýrist á næstu
dögum,“ sagði Bryndís Hlöðvers-
dóttir við Morgunblaðið gær, að-
spurð hvort búið væri að skipa gerð-
ardóm í tengslum við
miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
Miðlunartillagan felur í sér að sér-
stökum gerðardómi verði falið að
kveða upp úr um það hvort launa-
setning ljósmæðra sé í samræmi við
álag, menntun og inntak starfs ljós-
mæðra og að hvaða leyti þessir
þættir eigi að hafa áhrif á launin.
Ríkissáttasemjari skipar þrjá í
gerðardóminn, sem skal ljúka störf-
um fyrir 1. september næstkomandi.
Miðlunartillaga samþykkt
með afgerandi kosningu
Kjörsókn var 91% Skipan gerðardóms skýrist fljótlega
Ökumenn beggja bifreiða voru
fluttir á sjúkrahús eftir árekstur
jeppa og vörubíls sem rákust saman
skammt austan við vegamót Suður-
landsvegar og Hafravatnsvegar um
hádegisbil í gær. Lögregla og
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
voru með mikinn viðbúnað vegna
slyssins. Talsvert magn af olíu lak
úr vörubílnum vegna árekstursins
og voru vinnuvélar kallaðar út til
að moka upp jarðvegi og skipta
honum út vegna olíulekans, en slys-
ið varð á vatnsverndarsvæði.
Síðdegis í gær lentu svo þrír bílar
í árekstri á Suðurlandsvegi rétt
austan við Hveragerði. Alls voru
þrettán manns í bílunum þremur og
voru sjö þeirra færðir töluvert slas-
aðir á bráðamóttöku Landspítalans
í Fossvogi. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvö bílslys
á Suður-
landsvegi