Morgunblaðið - 26.07.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
SVIÐSLJÓS
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Einn þekktasti hringur landsins,
Gullni hringurinn, er sívinsæl ferða-
mannaleið og ekki er lát á vinsæld-
um hans ef marka má nýjar tölur frá
Vegagerðinni.
Hefðbundin skilgreining á hinum
gullna hring er að fara til Þingvalla,
Gullfoss og Geysis. Hringurinn er
200-300 kílómetrar eftir því hvaða
útgáfa af hringnum verður fyrir val-
inu. Má gera ráð fyrir því að all-
flestir ferðamenn sem sækja landið
heim aki umræddan hring, hvort
sem er á bílaleigubílum eða með því
að nýta sér fjölmargar áætl-
unarferðirnar en nánast allar ferða-
skrifstofur bjóða upp á sína útgáfu
af hringnum, hvort sem það er með
rútu eða í jeppa.
Skýrsla um talningar á vegum
Ferðamálastofu og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins sýndi að
fjöldi gesta á Geysi var 2,5 milljónir
árið 2017, samanborið við rúmlega
eina milljón árið 2014. Í skýrslunni
segir jafnframt að 70% erlendra
ferðamanna sem sóttu landið heim
skoðuðu Gullna hringinn á árunum
2014-2015.
Uppbygging á Geysi og Gullfossi
hefur verið stígandi á undanförnum
árum samhliða aukningu á fjölda
ferðamanna. Í fyrra var t.a.m. vígð-
ur nýr og rúmgóður stigi sem auð-
veldar göngu niður að Gullfossi og
gerir gestum kleift að hvíla sig inn á
milli. „Þessi hvíldarþrep eru mjög
vel þegin,“ sagði hin ítalska Elenora
þegar hún gekk niður stigann í átt
að fossinum.
Allir bíða eftir myndinni
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fóru hringinn í vik-
unni og ræddu við ferðamenn á
staðnum. Þau Peace og Judy frá Ta-
iwan urðu á vegi blaðamanns á
Geysissvæðinu en þau voru ein af
þeim sem stóðu sem dáleidd við
Strokk og biðu með puttann á takk-
anum á símanum eða myndavélinni;
tilbúin í að taka mynd af gosinu þeg-
ar það loks kæmi. Meðan ásamtalinu
stóð gaus Strokkur en það var að-
eins lítið gos og þau sáu ekki ástæðu
til þess að taka mynd af því. Gat
samtalið því haldið áfram ótruflað.
„Þetta er einstakt svæði og fallegt.
Við erum þakklát fyrir að vera kom-
in hingað,“ sögðu vinirnir frá Tai-
wan. Þau eru í sautján manna hópi
sem fer saman Gullna hringinn. Að
þeirra sögn líkaði þeim hvað hóp-
urinn er „pínulítill“, en komandi frá
Asíu má það sennilega teljast mjög
hófleg hópastærð.
Skammt frá stóðu þau Peter og
Amanda frá Ástralíu sem voru einn-
ig í hópferð. „Við komum hingað frá
Englandi og þar var allt þurrt en hér
er allt svo grænt, virkilega fallegt. Í
raun einstakt.“
Þau eru hluti af 11 manna hópi.
„Við viljum ekki sjá stóru rúturnar,
þær eru mjög óaðlaðandi.“ Að þeirra
mati er hegðun ferðamanna við
Strokk heldur skrýtin. „Hér koma
allir saman bara fyrir myndina og
láta sig svo hverfa þegar búið er að
gjósa. Mjög sérstakt,“ sögðu ferða-
félagarnir frá Ástralíu.
Það má leiða líkur að því að stór
hluti ferðamanna við Geysi og Gull-
foss sé hluti af slíkum hópaferðum,
ef marka má fjölda hópbifreiða og
rútna á bílastæðunum sem telja tugi.
Aukin fjölbreytni gesta
Á Geysissvæðinu er iðandi mann-
líf. Í stærri þjónustukjarnanum er
mötuneyti og veitingasala, ásamt
verslunarrými. Hinum megin við
götuna er nýrisið 77 herbergja lúx-
ushótel, Hótel Geysir, en í húsinu
má einnig finna glænýja verslun og
veitingastað. Mábil Másdóttir, einn
eigenda hótelsins, segir að húsið sé
byggt á grunni elsta íþróttaskóla
landsins sem frumkvöðullinn Sig-
urður Greipsson byggði og stýrði.
Burðarveggir til beggja hliða eru
upprunalegir veggir frá 1945.
„Hótel Geysir stendur því á sama
stað og snýr í sömu átt og skólinn
stóð 1927.“
Uppbygging á hótelinu hefur farið
fram undanfarna mánuði en áætlað
er að það fari í notkun á næsta ári.
Mábil segir að þörf hafi myndast
fyrir betri aðstöðu gesta á svæðinu.
„Við ákváðum að hlusta á ferða-
manninn en síðustu árin hefur hann
viljað meiri gæði og meiri þægindi
og að umhverfið sé fallegt og snyrti-
legt. Svo við erum ekki að breyta og
stækka heldur gera betur.“ Þá hafa
ferðamenn verið að staldra lengur
við á staðnum og er það breyting frá
því sem áður var. „Með nýja hótelinu
erum við að þjónusta fjölbreyttari
hóp en áður. Sú breyting hefur orðið
að í stað þessa að gista í eina nótt er
meira um að fólk vilji gista í 2-3 næt-
ur,“ segir Mábil.
Hin gullna leið Suðurlandsins
Aukin aðsókn á Gullfoss og Geysi Á Geysi á sér stað mikil uppbygging, meðal annars með
tilkomu nýs lúxushótels á næsta ári Hótelstjóri segir gesti vilja gista lengur á svæðinu en áður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndasmiðir Strokkur er alltaf vinsæll meðal ferðamanna sem bíða óþreyjufullir eftir mynd af gosi. Í júní var metfjöldi bíla á ferð um Gullna hringinn.
Mannfjöldi Fjöldi manns við Gullfoss en fólkið dreifðist þó vel yfir svæðið.
Endurnýjun Aðkoman inn í nýja hótelið og veitingastaðinn á Geysi. Hótelið
er byggt á grunni gamla íþróttaskólans en veggirnir eru frá 1945.
Þrjú þúsund bílar fóru að meðaltali
á sólarhring um Biskupstungna-
braut milli Gullfoss og Geysis í júní,
samkvæmt talningum Vegagerð-
arinnar. Er það metfjöldi ef miðað
er við meðaltal undanfarinna ára.
Vegagerðin áætlar áframhaldandi
metfjölda bíla á þessum slóðum
næstu mánuði.
Morgunblaðið ræddi við nokkra
ferðamenn á bílastæðunum við
Gullfoss og Geysi. Almennt voru
bílstjórar jákvæðir og sögðu að ekki
væri hægt að kvarta yfir vegum
Gullna hringsins.
Bogi Agnarsson, sem starfað
hefur sem rútubílstjóri í nokkur ár,
telur að slysahætta felist í auknum
fjölda hjólreiðafólks á hringnum
„Það er svo mikið af hjólum núna
og á íslenska vegi vantar betri axlir.
Þarna er að skapast hættuástand.
vanti sums staðar hafi ferðin verið
þægileg í dagsbirtunni. „Þó væri ég
ekki til í að keyra þennan veg í
rökkri þar sem ég sé að oft vantar
bæði stikur og merkingar á veg-
ina,“ sagði Jorn frá Dallas.
Það þarf að finna lausnir fyrir þenn-
an hóp fljótt þó að það megi sjálf-
sagt saka bæði bílstjóra og hjól-
reiðafólk um tillitsleysi.“
Fjölskyldufaðir frá Bandaríkj-
unum sagði að þótt vegmerkingar
Metfjöldi bíla við Gullfoss og Geysi í ár
HJÓLREIÐAFÓLK OG SKORTUR Á VEGAMERKINGUM HELSTU ÁHÆTTUVALDAR
Fjölskyldan frá Dallas í Texas. Bogi Agnarsson bílstjóri.
Kókosjógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is