Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úrval
af
sængurvera
settum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Team Sleipnir, lið Háskólans í
Reykjavík, tók þátt á dögunum í
Formúla Student-keppninni á Silver-
stone-Formúlu 1 kappakstursbraut-
inni í Bretlandi. Yfir 80 háskólar taka
þátt árlega í Formula Student en þar
þurfa nemendur að smíða kappakst-
ursbíl frá grunni sem síðan þarf að
standast prófanir og akstursþrautir.
Nemendur Háskólans í Reykjavík
unnu mánuðum saman að því að
smíða kappakstursbíl sinn og er allt
frá tannhjólum, vélarhlutum og burð-
argrind smíðað á verkstæði háskól-
ans. Áður en keppnisbíll hvers liðs
fær að taka þátt í aksturshluta keppn-
innar þarf hann að standast ítarlegar
prófanir, s.s. hemlunarpróf, hávaða-
próf og öryggispróf. Keppnisbíll
Sleipnis var sendur út með skipi Sam-
skipa tveimur vikum fyrir brottför
liðsins en bíllinn kom degi of seint á
keppnisstað vegna vandræða sem
upp komu í flutningsbíl í Bretlandi.
Þegar liðsmenn mættu á kappakst-
ursbrautina í byrjun keppnisvikunnar
var strax hafist handa við að gera allt
klárt fyrir fyrstu prófanir sem fóru
fram á fimmtudeginum, þegar keppn-
in hófst. Fyrsti skoðunardagurinn
gekk vel að sögn Grétars Braga
Bragasonar, vélaverkfræðings og
liðsmanns í Team Sleipni allt frá
stofnun liðsins fyrir þremur árum.
Nemendur unnu hins vegar hörðum
höndum til að verða við ábendingum
dómara á fimmtudeginum og var unn-
ið til miðnættis þann dag, þegar bíla-
verkstæðinu er lokað og liðin send
heim. Liðsmenn voru hins vegar allir
á því að bílinn væri klár í prófanir
morgundagsins og fóru liðsmenn
sveittir en sáttir úr bílskúrnum um
kvöldið.
Í kapphlaupi við tímann
Á föstudeginum var látið reyna á
kappaksturbíl Sleipnis. Flaug bíllinn í
gegnum veltiprófið og öryggispróf-
unina fyrir hádegi áður en liðið fór
síðan með bílinn í hávaðaprófun. Þar
kom í ljós að bíllinn var of hávær og
þurftu nemendur að bregðast við.
Fóru nemendur með bílinn afsíðis á
brautinni þar sem púströrið var
skrúfað í sundur í steikjandi hita og
steinull bætt í til að deyfa hávaðann.
Á þessum tímapunkti fór tíminn að
vera tiltökumál þar sem kynning á
hönnun bílsins átti að fara fram fyrir
dómurum innan tveggja klukku-
stunda. Eftir aðra misheppnaða til-
raun í hávaðaprófun myndaðist löng
röð keppenda og var ljóst að þriðja til-
raun liðsins yrði sú síðasta þann dag-
inn. Sigurður Jóhann Jóhannsson,
nemi í vélaverkfræði við Háskólann í
Reykjavík, sá um að þenja vélina
frammi fyrir dómurum og stóðu liðs-
menn á öndinni á meðan. Arnór Eiðs-
son, liðstjóri í Team Sleipni, gaf síðan
merki með þumlinum um að bíllinn
hefði staðist skoðun við mikinn fögn-
uð liðsmanna. Við nánari skoðun kom
í ljós að hávaði bílsins hafi mælst 109
desibel en hámarkið í keppninni er
110 desibel. Það mátti því ekki miklu
muna. Nemendur voru hins vegar í
kapphlaupi við tímann og fóru rak-
leiðis með bílinn í hemlunarpróf sem
tókst í annarri tilraun áður en ekið
var í bílskúrinn fyrir hönnunarkynn-
inguna. Liðið lét hasar dagsins ekki á
sig fá og var bílnum stillt upp í bíl-
skúrnum frammi fyrir dómurunum
sem spurðu liðsmenn spjörunum úr.
Team Sleipnir hlaut 100 stig fyrir
hönnun bílsins sem var vel yfir með-
allagi í keppninni almennt.
Vélarvandræði í akstrinum
Það var mikill léttir fyrir liðsmenn
að ljúka öllum prófunum á föstudeg-
inum og geta þar af leiðandi tekið þátt
í aksturshluta keppninnar strax á
laugardeginum. Það er alls ekki sjálf-
Sleipnir þandi vélina á Silverstone
Team Sleipnir tók þátt í Formula Student fyrir Háskólann í Reykjavík Kappakstursbíll liðsins
stóðst allar prófanir þriðja árið í röð Vandræði í aksturshluta keppninnar settu strik í reikninginn
Ljósmynd/Ástrós Steingrímsdóttir
Á brautinni Kappakstursbíll Team Sleipnis ók á hluta af hinni frægu Silverstone-Formúla 1 kappakstursbraut.
Ljósmynd/Magnús
Team Sleipnir Liðsmenn stilltu sér upp ásamt kennurum á Silverstone.
gefið og fara fjölmörg lið ekki í gegn-
um allar skoðanir. Það gafst þó ekki
mikill tími til að fagna því þegar bílinn
fór í hröðunarmælingu fyrir hádegi á
laugardeginum var ljóst að ekki var
allt með felldu. Ástrós Steingríms-
dóttir, nemi í vélaverkfræði í HR og
ein af fáum kvenkyns keppendunum í
Formula Student, ók bílnum fyrir
hönd liðsins. Bíllinn tók spyrnuna á
rúmum 7 sekúndum sem var ekki í
samræmi við fyrri prófanir og virtist
vélin ekki hafa sama kraft og áður.
Því var farið með bílinn á æf-
ingasvæðið og látið reyna á vélina.
Allir þeir sem hafa keppt í hóp-
íþróttum vita að það er tvennt ólíkt að
vera í liði þegar vel gengur eða þegar
illa gengur. Það var því aðdáunarvert
að fylgjast með liðinu takast á við vél-
arvandræði laugardagsins. Enginn
keppandi benti á annan fingrum held-
ur unnu nemendur að því í samein-
ingu að finna hvað væri að valda þess-
um vandræðum og hver lausnin væri.
Var farið með bílinn aftur í bílskúr
liðsins og leyst úr vandræðunum. Það
breytti ekki þeirri staðreynd að ekki
var heimilt að aka bílnum að nýju
gegnum þrautirnar og þurfti því liðið
að bíta í það súra epli að hafa hlotið fá
stig fyrir tvær akstursþrautir á laug-
ardeginum. Team Sleipnir endaði að
lokum í 43. sæti af 81 keppnisliði. Fór
liðið í gegnum allar skoðanir og
akstursþrautir keppninnar. Team
Sleipnir hefur þar með náð í gegnum
allar skoðanir og akstursþrautir
keppninnar öll árin sem það hefur
tekið þátt.
Blaðamaður, sem fylgdi liðinu eftir,
býst sterklega við því, miðað við elju
og dugnað liðsmanna, að þeir hafi sett
markmið sín hærra en liðið endaði ár-
ið áður í 15. sæti. Miðað við drifkraft
allra þeirra sem standa að keppninni
fyrir hönd Háskólans í Reykjavík er
óhætt að ætla að Team Sleipnir muni
koma tvíeflt að ári og stefna á betri
árangur. Formula Student fagnaði 20
ára afmæli sínu í ár og hafa margir
háskólar tekið þátt frá upphafi.
Reynsla fyrri ára getur því skipt
miklu og verður því forvitnilegt að
fylgjast með liðinu að ári liðnu.
Tækniháskólinn í München og Mo-
nash-háskólinn í Melbourne í Ástralíu
sópuðu að sér verðlaunum á Formula
Student í ár. Ástralska liðið reyndist
sigurvegari keppninnar á sunnudegin-
um með 863.6 heildarstig í flokki 1,
sem er um 100 stigum meira en næsti
háskóli sem var Oxford
Brookes-háskólinn í Bretlandi. Alls
tóku 129 lið þátt í keppninni í ár, úr
meira en 80 háskólum frá yfir 30 lönd-
um.
Bíll Monash-háskólans skaraði
fram úr í þolgæðishluta keppninnar
með 300 stig en flestir skólar skriðu
rétt yfir 100 stigin í þeim flokki.
Tækniskólinn í München vann hins
vegar hröðunarhlutann og spyrnuna.
Fengu Þjóðverjarnir einnig verðlaun
fyrir skilvirkasta bíl keppninnar
ásamt því að taka heim hönnunarverð-
laun keppninnar. Háskólinn í Augs-
burg í Þýskalandi fékk síðan verðlaun
fyrir besta sjálfkeyrandi stýrikerfið en
þýsku háskólarnir í keppninni njóta
mikils stuðnings frá þýskum bílafram-
leiðendum. Tækniskólinn í München
er til að mynda með styrktarauglýs-
ingar á sínum bíl frá bílaframleiðand-
anum Audi en höfuðstöðvar Audi eru í
Ingolstadt í Bæjaralandi, sem og
München. mhj@mbl.is
Ljósmynd/Formula Student
Á ráslínu Bíll Monash-háskólans í Melbourne sigraði í sínum flokki á For-
mula Student 2018. Háskólinn sendi tvo bíla frá sér og endaði seinni í 3. sæti.
Þjóðverjar og Ástralar
reyndust sigursælastir
Háskóli í Melbourne sigurvegari í ár