Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Hart var barist á Gásum við Eyja-
fjörð um síðustu helgi; sverðum
var sveiflað án þess þó að neinum
yrði meint af. Einhverjir lentu í
gapastokknum en engum varð
heldur meint af því.
Árlegir miðaldadagar fóru
fram frá föstudegi til sunnudags í
rigningarúða á þessum sögu-
fræga stað þar sem gestir voru
fræddir um lífið til forna; annars
vegar í sýndarþorpinu sem byggt
var upp, þar sem handverksfólk
var að störfum, m.a. eldsmiður og
steinsmiður, hins vegar með
fræðslugöngu um fornleifasvæðið
þar sem uppgröftur hefur staðið
yfir síðustu ár með góðum ár-
angri, því þar hafa fundist ýmis-
konar munir.
Hvergi á Íslandi eru varð-
veittar jafnmiklar mannvistar-
leifar frá verslunarstað frá mið-
öldum og á Gásum.
Það er Minjasafnið á Akureyri
sem stendur fyrir miðaldadögum.
Gestir að þessu sinni voru um
1.200.
Ljósmyndir/Hörður Geirsson
Sagnamaður Vilhelm Bergmann Bragason „munkur“ sagði gestum Gásakaupstaðar skemmtilegar sögur.
Eldur Róbert Kristjánsson, eldsmiður frá Þingeyri, sýndi listir á Gásum.
Mikið kapp Menn stunduðu að sjálfsögðu knattleik til forna og nútíma miðaldamenn láta ekki sitt eftir liggja!
Bardagi Skylmingar eru ómissandi!
Mannlíf á miðöldum
rifjað upp á Gásum
• fyrir vöðva og taugar
• styrkir allan bandvef
• gefur aukna orku
Recover
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Betri endurheimt
Unnið úr 100% náttúrulegum
jarðhitakísil og magnesíum
í hreinu íslensku vatni.
Weycor AR65e
þyngd 5150kg
vél: Deuzt (vatnskæld)
54KW (73hö)
Hanix H27DR
þyngd 2825kg
vél: Kubota
14,4KW (19hö)
Vinnuþjarkar
Þýsk og japönsk gæðavara
Við græjum það
Til sjós eða lands
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI