Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 41
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
„Ég hef verið framarlega í barátt-
unni gegn fordómum í garð geðsjúkl-
inga síðustu fimm ár, hef skrifað
fjölda greina og haldið fyrirlestra
þess efnis og er einn stofnenda GEÐ-
SJÚK og #égerekkitabúsamfélags-
miðlabyltingarinnar sem fór fyrst á
flug í október 2015. Um þessar
mundir stunda ég líka nám í kvik-
myndafræði við Háskóla Íslands og á
von á mínu fyrsta barni, þannig að þá
má kannski orða það þannig að ég sé
með mörg járn í eldinum,“ segir
Silja.
Líkamsvirðing mikilvæg
Þegar Silja lítur til baka segir hún
að líkamsvirðing sé eitthvað sem
maður hafi alltaf verið að hugsa um
ósjálfrátt, hvort sem það hefur verið
á neikvæðan eða jákvæðan hátt.
Skilaboðin sem dynja á manni frá
unga aldri um hvernig maður eigi að
líta út, hvernig maður eigi að haga
sér og hvað þyki æskilegt á hverjum
tíma fyrir sig. „Sem manneskja er
maður auðvitað í stöðugum sam-
anburði. Af hverju er þessi svona en
ekki ég?“
„Snemma fer þetta ekki að snúast
um neitt annað en yfirborðskennt út-
lit og hvernig er tekið á móti líkama
manns og útliti í samfélaginu. Auðvit-
að var maður óöruggur sem barn og
unglingur, sérstaklega á mótunar-
árunum, þegar líkaminn er að breyt-
ast og allir líkamar vinkvenna þinna
eru að breytast á sama tíma og tíma-
ritin, sjónvarpið og poppkúlturinn,
allir eru að segja ykkur hvernig er
ákjósanlegast að vera.“
Líkamsvirðing tvíþætt hugtak
Silja segir að fyrir sér sé líkams-
virðing tvíþætt hugtak. „Það er eitt
að elska líkama sinn og útlit hans
eins og hann er og svo annað að
stunda heilbrigðan lífsstíl, einblína á
heilsu innra sem ytra sem mér finnst
líka vera stór hluti af líkamsvirð-
ingu.“
Það var ekki fyrr en hún var komin
yfir tvítugt að hún fór að hugsa um
andlega og líkamlega heilsu sína.
Hún hafði verið mjög þunglynd og
veik, átti í óheilbrigðu sambandi við
mat og mataræði og segist hafa borð-
að eins og ruslatunna. Hún tengdi
mat við tilfinningar og borðaði til að
líða vel, til að fagna, til að hugga
sjálfa sig og þegar henni leiddist og
vildi gleyma hversu illa henni leið.
Silja hefur aldrei haft gaman af
íþróttum og því ekki stundað þær af
nokkru viti. Í kjölfarið þyngdist hún
mikið og bar enga virðingu fyrir lík-
ama sínum. „Ég bar ekki virðingu
fyrir því hvernig hann þurfti að nær-
ast eða viðhalda sér, hreyfingunni
sem hann þurfti og hvernig hann leit
út. Ég horfði á mig í spegli og ég
gjörsamlega hataði það sem ég sá,
ekki bara af því að ég hafði bætt á
mig einhverjum kílóum heldur líka
bara vegna þess að ég bar ekki virð-
ingu fyrir sjálfri mér, hvorki líkama
mínum né andlegu ástandi. Ég hugs-
aði ekki vel um sjálfa mig.“
Hún byrjaði að hitta sálfræðing og
stuttu seinna einkaþjálfara. Einka-
þjálfarinn hjálpaði henni að beina
sjónum að því sem skipti hana máli
varðandi líkama sinn. Það var ekki
endilega útlitið eða hversu léttur eða
þungur hann var. Heldur úthald,
hversu sterk hún varð og heilbrigð.
Silja segir að þá hafi virðingin komið.
„Ég lærði að hreyfing og gott mat-
aræði breytti öllu, líka innra með
mér. Það var ekki bara það að ég leit
„betur“ út ef svo má að orði komast,
heldur leið mér líka betur innra með
mér og það skein held ég meira í
gegn en einhver kílóatala. Ég hef svo
alveg tekið tímabil þar sem ég er
þvengmjó og allir hrósa manni fyrir
hvað maður er mjór og sætur, en þá
hefur mér liðið svo illa í sálinni að ég
hef verið að svelta mig. Það að læra
að það er ekki samasemmerki á milli
andlegrar heilsu og þess að vera æð-
islega mjór var gríðarlega mikilvægt
skref fyrir mig í átt að skilja betur
líkamsvirðingu og hvers virði ég er í
samfélaginu, burtséð frá kílóatölum
og „magaspiki“.“
Líkamleg og andleg
heilsa haldast í hendur
„Ég get ekki verið ánægð, liðið vel
og elskað sjálfa mig nema ég sé í
góðu andlegu jafnvægi. Þannig að ég
passa það fyrst og fremst að vera í
góðu jafnvægi andlega, fara til sál-
fræðings þegar mér finnst ég þurfa á
því að halda og kúpla mig út, hugleiða
og staldra við þá og þegar og einblína
á það sem mér finnst raunverulega
skipta máli.“
Silja er ólétt og segir að það hafi
veitt sér nýja sýn á það að virða lík-
amann sinn. Hún hélt að meðgangan
myndi ganga illa því hún hefur lent í
tveimur bílslysum og verið bakveik
sökum þess. Meðgangan hefur hins
vegar gengið mjög vel og hefur Silja
aldrei elskað sjálfa sig jafnmikið. „Ég
er ekki að segja að allar konur þurfi
að upplifa það að verða óléttar til þess
að „fatta“ hvað líkamsvirðing gengur
út á og það er líka örugglega fullt af
konum sem líður alls ekki svona vel á
meðgöngunni, en fyrir mína parta
hefur þetta kennt mér að bera ný-
fundna virðingu fyrir þessu sköp-
unarverki og hvað hann er fær um.“
Þurfum að hætta að einblína
svona mikið á ytra útlit
„Þú átt bara einn líkama. Punktur.
Það pælir enginn svona mikið í þínum
líkama eins og þú sjálf/ur/t. Það er á
þína ábyrgð að sjá um hann, rækta
hann og elska því ef þú gerir það ekki
þá gerir það enginn annar,“ segir
Silja.
„Við þurfum að hætta að einblína
svona ótrúlega mikið á ytra útlit og
fituprósentur og huga meira að al-
mennri heilsu. Fara til læknis? Lík-
amsvirðing. Fara út að labba,
skreppa í ræktina eða sund og hreyfa
sig aðeins? Það er líkamsvirðing.
Hugsa vel um andlegu heilsuna og
heilann, sem er hluti af líkamanum
þínum og starfsemi hans, það er lík-
amsvirðing. Að vera jákvæður og
góður við sjálfan sig, sleppa öllum
samanburði og gera bara betur í dag
en maður gerði í gær – það er líkams-
virðing.“
Silja segir sjálfa sig og sína lífs-
reynslu veita sér innblástur til að
virða líkama sinn. Hún segir þó að
það sé ótrúlega þarft og gott að sjá
aðrar konur og annað fólk og tala um
þessi málefni. „Ég byrjaði á því að
hætta að bera mig saman við annað
fólk. Enginn spáir eins mikið í mínu
útliti og ég. Útlit skiptir ekki öllu
máli, maður lærir það hægt og bít-
andi á lífsleiðinni. Ég geri það sem
mér finnst gott, það sem gerir mig
hamingjusama og stundum þarf mað-
ur að gera erfiða, leiðinlega hluti til
þess að öðlast frið og hamingju. Það
getur verið gott að snúa samfélags-
miðlum á andhverfu sína og birta
myndir af manni sem maður myndi
kannski ekki annars gera eða er ekki
100% ánægður með. Gefa þessu út-
litsdýrkandi batterí svolítið löngu-
töngina.“
Hætti að bera
sig saman við aðra
Silja Björk Björnsdóttir er 26 ára skúffuskáld að
norðan. Hún starfar sem kaffibarþjónn og þjálfari í
fræðsluteymi hjá Te og kaffi.
Líkamsvirðing Silja
Björk ófrísk og falleg í
sumarsólinni.
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
ÚTSALA!
30-50%
AFSLÁTTUR