Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 46
Dóra Magnúsdóttir dora@mbl.is Jóhanna ákvað fyrir nokkrum ár- um að hún vildi mest af öllu í lífinu eignast barn. Hún hafði verið í góðri og um margt farsælli sambúð í nokk- ur ár en hún og kærastinn hennar höfðu þó vaxið í sundur eins og stundum gerist. Einn af þeim þátt- um sem ýtti þeim frá hvort öðru var sú staðreynd að Jóhanna var tilbúin að eignast barn en ekki kærastinn. „Þetta var svo sem ekkert endi- lega úrslitatriðið í okkar sam- bandsslitum en hjálpaði heldur ekki til. Aðalmálið var að við stefndum ekki í sömu átt. Mig langaði hins- vegar jafn mikið í barn og áður. Ég hef alltaf verið mikil barnagæla og hafði um tvítugt séð fyrir mér að um þrítugt væri ég gift og búin að eiga tvö eða þrjú börn,“ segir Jóhanna. Þarna var ég á 28. ári, barnlaus, ein- hleyp og fyrir mér voru kostirnir tveir. Að bíða og vona að ég myndi eignast kærasta sem vildi eignast barn með mér fljótlega eftir að við kynntumst og vera þannig algerlega upp á einhvern annan komin með það sem mig langaði mest að gera eða bara taka málin í mínar hendur. Ég valdi síðari kostinn. Spurð hvort hún geti ekki bara farið á djammið Reyndar hefur Jóhanna verið spurð af hverju hún hafi ekki bara farið á djammið og reynt að verða ólétt með hefðbundnum hætti. Það er í rauninni merkilegt að fólk skuli yfir höfuð hafa skoðun á prívat mál- um fólks en Jóhönnu fannst slíkt aldrei koma til greina. Það væri óheiðarlegt gagnvart hugsanlegum barnsföður sem mögulega hefði eng- an áhuga á að eignast barn eða vera í þeirri stöðu að vera óhjákvæmilega tengd einhverjum fyrir lífstíð sem maður þekkir lítið sem ekkert. Að eignast barn með gjafasæði var alltaf mun skynsamlegri kostur að hennar mati. Hún segir það stórmerkilega lífs- reynslu að setjast fyrir framan tölvu og velja sæðisgjafa. Framboðið er samnorrænt og er vandlega stýrt. Takmörk eru á því hversu margar konur eða fjölskyldur mega nota sama gjafann en hún segist hafa slegið inn ákveðnar forsendur í gagngrunn og getað svo valið um einstaklinga. Hún fékk ýmiskonar upplýsingar um þá; s.s. um heilsufar, áhugamál, menntun og stöðu fólks í fjölskyldu viðkomandi allt aftur í langömmur og -afa, svo má hlusta á viðtal við viðkomandi og sjá mynd af honum sem barni. Þarna má finna eins miklar upplýsingar og hægt er að fá án þess að nafn og mynd fylgi enda stór ákvörðun að velja hinn helminginn að genamengi barnsins síns. Fyrst eftir að lögin tóku gildi voru konurnar sem nýttu sér þennan kost almennt eldri. Þá voru þær kannski búnar að velta þessu fyrir sér lengi en það hefur vaxið þeim í augum að fara utan til að láta drauminn ræt- ast. Þær konur sem eru í félaginu og eiga börn sem fædd eru fyrir 2008 eru konur sem hafa sótt þessa þjón- ustu út fyrir landsteinana.“ Hún segir að starfsemi félagsins snúist ekki bara um ráðgjöf vegna barneigna og fleiri hagnýta þætti. „Við förum líka í eina útilegu á hverju ári, höldum jólaball og svona. Það er mikilvægt að efla félagslega þáttinn og hafa gaman af. En svo er líka ómetanlegt að geta spurt með einföldum hætti að ýmsu sem getur komið upp á. Eitt dæmi sem kom nýlega fram var móðir sem ætlaði með barnið sitt til útlanda en við þurfum að hafa uppáskrifaða for- sjárlýsingu fyrir vegabréfseftirlit, þar sem börnin okkar eru tæknilega föðurlaus. Það er ekki sjálfgefið að vita svona hluti fyrirfram.“ Jóhanna segir að Bárður Breki Jóhönnuson hafi látið hafa svolítið fyrir sér þó svo að meðgangan sem slík hafi gengið vel. „Það kom í ljós eftir þrjár misheppnaðar tækni- frjóvganir að annar eggjaleiðarinn hjá mér er lokaður og því var líklegt að ég þyrfti fleiri tæknifrjóvg- unartilraunir en flestar konur svo mér var ráðlagt að reyna heldur við glasafrjóvgun. Sem ég held að hafi verið rétt ákvörðun, hinsvegar gekk örvunarferlið erfiðlega og ég þurfti að fara í gegnum glasafrjóvg- unarferlið í þrígang. En allt er þegar þrennt er og þetta hafðist að lokum. Svo er líka til lítill fósturvísir í frysti sem gæti orðið systkini Bárðar Breka í framtíðinni. Uppsetningin gekk vel sem og meðgangan en hins- vegar stimplaði Bárður litli sig alltof snemma inn eða eftir aðeins 29 vikna meðgöngu. Bárður Breki mætti of snemma „Ég hafði enga ástæðu til að vera eitthvað sérstaklega á varðbergi. En áður en ég loksins dreif mig upp á spítala hafði ég verið með verki og ónot og átt erfitt með svefn. Ég hef auðvitað enga reynslu í því að eign- ast barn svo ég hafði ekkert viðmið og vildi ekki vera að trufla mömmu um miðja nótt út af einhverri vit- leysu í mér. En ég fór svo niður á deild 2. maí sl. akkúrat þennan eina dag í maí sem snjóaði og stóð þarna ein á bílastæðinu kl. sex um morgun, með það sem ég lærði síðar að væru hríðir, og skóf bílinn með tárin í aug- unum. Ljósmóðurinni sem skoðaði mig, brá heldur betur í brún þegar hún komst að því að ég var komin langleiðina í fæðingu, með fjóra í út- víkkun og þrjár til fjórar mínútur á milli hríða. Stofan fylltist af alls kyns læknum og sérfræðingum og það tókst að fresta fæðingunni um tvo mjög mikilvæga sólarhringa. Tíma sem hægt var að nota til undirbúa hinn verðandi fyrirbura og móður hans með sterasprautum sem hjálpa og örva lungu fyrirburans. „Það veit í rauninni enginn hvað gerðist eða af hverju hann kom svona snemma, þetta bara gerðist. Ég varð skelfingu lostin þegar ég gerði mér grein fyrir að fæðing yrði ekki umflúin en svo fór allt eins vel og hugsast gat. Hann var þokkalega stór miðað við 29 vikna meðgöngu eða um 1.300 grömm, hann þurfti ekki að fara í öndunarvél og hann stækkar samkvæmt kúrfum. Svo verð ég að koma því að, að það eru einfaldlega englar í manns- mynd sem starfa á vökudeildinni. Hvílíkt fólk! Þannig að þó að minn maður hafi skotið mér skelk í bringu þá gæti ég ekki verið ánægðari með litla kút,“ segir Jóhanna, greinilega að springa úr stolti – og móðurást. Vil sjálf vera við stýrið í eigin lífi Jóhanna Bárðardóttir er ákveðin ung kona sem er nýorðin móðir. Þann 4. maí sl.eignaðist hún hann Bárð Breka sem mætti á svæðið töluvert of snemma en dafnar þó eins og blómi í eggi þótt lítill sé, enda mjór mikils vísir. Tilvist Bárðar Breka er um margt sér- stök því hún byggist á sjálfstæðri ákvörðun einstakrar móður. Morgunblaðið/Hari Flottur fyrirburi Jóhanna Bárðardóttir og 11 vikna gamall sonur hennar hann Bárður Breki sem fæddist einmitt 11 vikum fyrir tím- ann og er núna í hefðbund- inni fæðingarþyngd. Hún segist hafa valið svokallaðan opinn gjafa sem þýðir að þegar Bárður Breki er orðinn 18 ára hefur hann kost á því að komast í samband við sæðisgjafann – sem er jú hans líffræðilegi faðir. „Ég velti þessu mikið fyrir mér, en ákvað á endanum að þetta ætti ekki að vera mín ákvörðun heldur barnsins. Það getur vel verið að það verði mikilvægt fyrir son minn að komast í samband við sæðisgjafann þegar hann eldist. Það getur líka vel verið að honum finnist það ekki mik- ilvægt. Aðstæður geta verið alls kon- ar og hver veit nema hann eignist einhvern tímann uppeldisföður þó að ég sé einstæð núna, það verður bara allt að koma í ljós.“ Óleyfilegt fyrir konur án maka að eignast barn Jóhanna settist nýverið í stjórn fé- lagsins Einstakar mæður. Fé- lagsskapurinn er félag kvenna sem hafa valið að eignast börn upp á eig- in spýtur, með tæknifrjóvgun eða í gegnum ættleiðingu einar síns liðs skv. lýsingu á forsíðu vefs félagsins og segir Jóhanna að félagið sé fimm ára gamalt, stofnað 2013. Fram til ársins 2008 var ekki leyfi- legt fyrir konur án maka að eignast barn upp á eigin spýtur, með tækni- eða glasafrjóvgun eða með ættleið- ingu en Jóhanna segir að sumar kon- ur hafi leitað út fyrir landsteinanna í þessum tilgangi. Hún segir enn- fremur félagsskapinn vera mjög blandaðan, og þótt það séu stöku snertifletir milli kvennanna inn- byrðis, þá sé í rauninni það eina sem sameinar þær sú staðreynd að þær hafa ákveðið að eignast barn upp á eigin spýtur. „Við sjáum að félagið er að breytast og þróast. Konur eru byrjaðar að velta þessum kosti fyrir sér fyrr en áður og því eru fleiri kon- ur ungar þegar þær hefja ferlið. Móðurást Það er greinilegt að Jóhanna er að springa úr monti yfir litla kærleiks- molanum sínum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.