Morgunblaðið - 26.07.2018, Page 49
MINNINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
✝ Dagbjört Sóleyfæddist á
Hvammstanga 11.
febrúar 1932. Hún
lést 13. júlí sl.
Foreldrar henn-
ar voru Snæbjörn
Guðmundsson, f.
1901, d. 1936, járn-
smiður og Elín Sig-
ríður Pétursdóttir
Blöndal, f. 1895, d.
1969, bóndi og
listamaður. Systkini Dagbjartar
voru: Ester Snæbirna 1923-
2016, Pétur Blöndal 1925-1995,
Ingibjörg 1927-2011 og Snæ-
björn 1936-1995. Þau voru öll
börn Snæbjörns og Elínar. Edda
1940-2018, dóttir Elínar og Em-
ils Jónatans Jónssonar 1906-
1967.
Árið 1956 gekk Dagbjört að
eiga Gísla Guðmundsson, f. 20.
desember 1930, d. 29. ágúst
1977, bifreiðastjóra frá Króki í
Holtum. Þau voru lengst af bú-
sett í Reykjavík. Börn Dag-
bjartar og Gísla eru þrjú:
1. Guðrún Snæfríður, f. 12.
desember 1954, leikari. Sonur
björt nemi, f. 19. október 2001.
3) Elín Sigríður, f. 18. maí 1965,
hönnuður. Elín gekk 2014 að
eiga Jón Gunnar Stefánsson
verktaka, f. 1967. Dóttir þeirra
er Katla Guðrún félagsliði, f. 30.
september 1991. Börn Kötlu og
Baldurs Þrándarsonar múrara,
f. 1989, eru Elín Dögg, f. 2014,
og Gunnar Emil, f. 2017. Synir
Elínar Sigríðar og Jóns Gunnars
eru Stefán Pétur leið-
sögumaður, f. 2. mars 1995, og
Gísli Gautur flugmaður, f. 11.
maí 1999.
Dagbjört Sóley lauk prófi frá
Húsmæðraskólanum á Hvera-
bökkum 1948 og vann ýmis störf
fyrir hjónaband, var m.a. búsett
í Kaupmannahöfn um hríð og
lærði síðan klæðskeraiðn á
Hellu. Eftir að börnin komust til
manns fékkst hún við marg-
vísleg störf, vann sem iðjuþjálfi
á Flókadeild, Kleppsspítala og
Vífilsstöðum og rak svæðanudd-
stofu ásamt því að selja flug-
elda. Árið 1984 lauk hún námi
frá Garðyrkjuskóla Íslands í
Hveragerði og rak um tíma
garðyrkjustöðina Fífilbrekku.
Einnig vann hún lengi hjá Ung-
lingaheimili ríkisins og var síð-
ast í 12 ár, til 2012, sjálfboðaliði
í verslun Rauða krossins.
Hún verður jarðsungin frá
Langholtskirkju í dag, fimmtu-
daginn 26. júlí 2018, klukkan 13.
hennar og Þorgeirs
Gunnarssonar
kvikmyndagerð-
armanns, f. 1955, er
Gísli Galdur tónlist-
armaður, f. 14. des-
ember 1982. Börn
Gísla og Kristínar
Kristjánsdóttur,
starfsmanns sendi-
ráðs Íslands í Kaup-
mannahöfn, f. 1979,
eru Bríet Eyja, f.
2009, og Kristján Galdur, f.
2013. Guðrún Snæfríður gekk
1996 að eiga Illuga Jökulsson
rithöfund, f. 1960. Börn Guð-
rúnar og Illuga eru Vera Sóley
dagskrárgerðarmaður, f. 13.
september 1989, og Ísleifur Eld-
ur menntaskólanemi og upp-
rennandi tónlistarmaður, f. 26.
apríl 1999. 2) Pétur Blöndal, f.
23. september 1958, fram-
kvæmdastjóri. Sonur hans og
Guðrúnar Bjarnadóttur garð-
yrkjufræðings, f. 1958, er Sölvi
næringarfræðingur, f. 8. mars
1983. Dóttir Péturs og Gunn-
hildar Erlingsdóttur hár-
greiðslukonu, f. 1977, er Dag-
Það var enn einn rigningardag-
inn, í þokkabót föstudaginn þrett-
ánda, sem hún mamma kvaddi og
ég held að hún hafi verið búin að
fá alveg nóg. Hún mamma sem
var sígauni, altrúisti, Kúrdi, Tíb-
etmunkur, búddisti og íslenskur
glanni. Hún kenndi mér að kenna
í brjósti um allt og alla en í staðinn
tók hún að sér að kenna í brjósti
um mig.
Guðrún Snæfríður
Gísladóttir.
Tengdamóðir mín er öll, stór
sál, Dagbjört, íslensk alþýðukona
með rætur í grjóti og mosa og
sléttuböndum en um leið var
hærra til lofts og bjartara í huga
hjá henni en svo mörgum öðrum.
Hún ólst upp hjá einstaklega lit-
ríkri móður sinni, Elínu Péturs-
dóttur Blöndal. Elín missti eigin-
mann frá fimm börnum og
eignaðist svo eitt til viðbótar, hún
var aldrei rík af gulli né aurum, en
hélt úti svolitlum búskap með kýr
og fáeinar kindur, lengst af í El-
liðaárdalnum, þar sem hún
byggði sjálf heimili fyrir sig og
börnin sín úr afgangstimbri og
kallaði Eddubæ, hún var listræn
og málaði myndir og elskaði
kvæði og bar umhyggju fyrir öllu
sem lifði, og Dagbjört lærði af
móður sinni hæfilegt kæruleysi,
umhyggjusemina fyrir öllu lifandi
og hina listrænu taug. Í Eddubæ
þurftu börnin snemma að vinna
fyrir sér, bræðurnir tveir urðu
dugmiklir iðnaðarmenn en dæt-
urnar fjórar voru engin tök á að
senda í langt bóknám, þær fóru að
vinna, og aldrei taldi Dagbjört
eftir sér að taka til hendinni, ekki
heldur þótt hún fengi ung berkla,
þá var að taka því, hún náði sér
bara, það gerði hún. Dagbjört fór
ung í húsmæðraskóla, hún var
töfrandi og upplitsdjörf, og einn
af kennurunum orti um hana
þessa vísu, ekki minni maður en
Jóhannes úr Kötlum:
Ég dái þig Dagbjört Sóley,
uns dag einn þá hníg ég nár.
Æ, breiddu þá yfir mig blessuð,
þitt indæla ljósa hár.
Rúmlega tvítug ruglaði Dag-
björt saman reytum sínum með
Gísla Guðmundssyni bílstjóra,
það varð öflugt hjónaband þeirra
Gísla, samhent heyrist mér og
engin loðmulla þar, og börnin
þeirra þrjú eru öll eins og þau
sjálf, sterkir karakterar, fara ekki
með veggjum, lúta engum en vilja
öllum vel. Gísli dó langt fyrir ald-
ur fram, en Dagbjört beit á jaxl-
inn, þá var hún komin aftur út á
vinnumarkaðinn og fékkst við sitt
af hverju: hún hugsaði um
drykkjumenn allskonar og sjúk-
linga, eldaði ofan í vandræðaungl-
inga sem þá hétu svo, öllum var
hún góð og öllum var hún vinur,
því alla skildi hún svo vel. En hún
var samt engin mélkisa, hún Dag-
björt, hún var nagli í aðra rönd-
ina, og tók upp á ýmsu, einu sinni
opnaði hún svæðanuddsstofu en
þá vildi hún líka endilega selja
flugelda á svæðanuddsstofunni,
og á miðjum aldri fór hún í garð-
yrkjunám enda elskaði hún fífil-
brekku gróna grund en vildi líka
rækta upp framandlegar jurtir úr
annarri mold úr öðrum löndum.
Hún var forvitin, nösk og hlátur-
mild.
Dagga var hún alltaf kölluð af
öllum nema mér, ég gat einhvern
veginn aldrei kallað hana Döggu
heldur alltaf Dagbjörtu, og
ástæðan var ekki sú að það færi
illa á með okkur, hún tók mér
þvert á móti afar vel þegar ég
birtist í föruneyti dóttur hennar,
hún tók reyndar alltaf öllum vel,
en ástæðan fyrir því að ég notaði
aldrei gælunafnið var sem sagt
ekki einhver kuldi á milli okkar,
hreint ekki, mér fannst bara alltaf
eins og hún væri aðeins of höfð-
ingleg og aðeins of hnarreist til að
vera bara hver önnur Dagga, já,
hún var Dagbjört, og hún var
meira en það, hún var Dagbjört
Sóley.
Illugi Jökulsson.
Elsku amma Dagga, eða amma
uppi eins og Elín litla vildi kalla
hana, er nú farin. Við sem eftir
sitjum erum ólýsanlega heppin að
hafa átt hana að í okkar lífi. Allir
hefðu þurft að eiga eina ömmu
Döggu. Þær eru margar minning-
arnar sem maður geymir núna
um ömmu. Allar sumar-
bústaðaferðirnar austur í gamla
kofann hennar, þar sem hún vildi
helst vera. Þar hefur amma rækt-
að mikinn skóg og það var hennar
helsta áhugamál fram á síðasta
dag, hvað plönturnar hennar
væru orðnar stórar, hvort heldur
plönturnar heima í garði eða fyrir
austan í landinu hennar.
Við amma vorum einstaklega
nánar og miklar vinkonur og allar
þær gæðastundir sem við áttum
saman verða vel geymdar. Þegar
maður kom heim eftir skóla var
amma alltaf heima, með nýgert
túnfisksalat og nýbakaðar vöfflur
og eldaði svo kvöldmat ef mamma
og pabbi voru ekki heima. Við
amma fórum í sund næstum dag-
lega á meðan hún hafði heilsu til
og þræddum allar helstu laugar
stór höfuðborgarsvæðisins.
Amma var líka svæðanuddari og
þegar ég lærði að meta það varð
ekki aftur snúið. Óteljandi sinn-
um fór ég í nudd hjá ömmu og
kúrði svo í sófanum á eftir meðan
amma hlustaði á útvarp og prjón-
aði og vildi helst að ég svæfi hálf-
an daginn í sófanum hjá henni.
Það var alltaf svo gott að koma
og gera ekkert uppi hjá ömmu,
bara sitja með henni, hlusta á út-
varp, skoða myndir og spjalla, eða
að dorma hvor í sínum sófanum.
Það var ömmu mikilvægt að
kenna okkur barnabörnunum að
syngja, hún söng sjálf mikið fyrir
okkur og fór með ljóð. Og alltaf
söng hún um Dísu þegar gist var
hjá henni. Nú á seinni árum var
nú farið að halla svolítið undan
fæti hjá henni en alltaf vildi hún
gera manni eitthvað gott: Má
bjóða þér eitthvað, elskan,
kannski ís, eða viltu heldur kúlur?
Og sjálf púaði hún sína vindla.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér,
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt, sem sólskinsdagur,
samfylgd þín um horfin ár.
Fyrir allt sem okkur varstu,
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar,
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku amma Dagga. Hvíl í friði
og takk fyrir allt. Við sjáumst svo
á nýjum stað næst.
Katla Guðrún.
Ég kynntist Dagbjörtu í um-
róti mikilla þjóðfélagsbreytinga á
áttunda áratug síðustu aldar. Þá
sagði ungt róttækt fólk íhalds-
sömum og úreltum sjónarmiðum
stríð á hendur. Voru þar komnir
hinir blómum skrýddu hippar,
pípureykjandi skeggprúðir an-
arkistar og listafólk af ýmsum
stærðum og þykktum. Fjölskyld-
ur voru oft illa leiknar af þessum
ósköpum og kom ég úr einni
slíkri. Það kom því skemmtilega á
óvart þegar ég fór að venja komur
mínar í Drekavoginn hvað heim-
ilisfólkið sýndi þessum frjáls-
lyndu sjónarmiðum mikinn skiln-
ing og var Dagbjört þar fremst í
flokki. Við ræddum oft þessi mál
og hafði hún jafnan samúð með
þeim kúgaða og veika. Hún tók
málstað þeirra sem minna máttu
sín. Dagbjört var hrein og bein og
allt fals var henni víðsfjarri. Hún
lét ekki kreddur og venjur og
reglur samfélagsins hafa of mikil
áhrif á sig, vildi vera frjáls mann-
eskja. Það var oft kátt á hjalla í
návist Dagbjartar, margt brallað
og mikið hlegið. Hún hafði ein-
stakt lag á að búa til afslappað og
þægilegt andrúmsloft í kringum
sig. Dagbjört var listakona í eðli
sínu og hefði örugglega notið þess
að leggja eitthvað slíkt fyrir sig.
Og kannski gerði hún það ein-
mitt … með lífi sínu. Hún var
sannur lífskúnstner og segja sum-
ir að það sé sú listanna sem sé
hvað erfiðast að höndla.
Ég votta Gunnu, Pétri og Elínu
og öllum aðstandendum innilega
samúð mína.
Ljóðin úti um allt
gular sóleyjar
stíga dans
í blárri nótt
að haustum.
Sigurður Bjóla.
Nú hefur Dagbjört kvatt þetta
líf eftir harða en stutta baráttu.
Dagga, eins hún var ávalt kölluð,
var mikill og sterkur persónu-
leiki, sjálfstæð, falleg og góð
kona. Þegar Dagga og fjölskylda
hennar bjuggu í Birkilundi í Silf-
urtúni sem var hluti Garðahrepps
lágu lóðir okkar saman. Þar
kynntist ég þessari yndislegu fjöl-
skyldu. Á þessum tíma var Garða-
hreppur sveit og í kringum okkur
voru sveitabæir með kindum,
hestum, kúm og hænsnum og við
börnin lékum okkur með dýrun-
um. Með mér og Guðrúnu dóttur
Döggu og Gísla varð góð vinátta
sem varir enn.
Gísli og Dagga bjuggu í nokkur
ár í Birkilundi, en svo kom að því
að þau fluttu og það var mikil sorg
hjá mér að missa þetta yndislega
fólk alla leið til Reykjavíkur,
Dagga leysti úr þessum harmi
með því að ræða við móður mína
þannig að ég fékk að fara til
þeirra einu sinni í mánuði með
strætó og gekk það vel.
Á heimili þeirra var fallegt pí-
anó og mér fundust tónar þess
undurfagrir. Dagga kom til mín
þar sem ég stóð og horfði dolfallin
á hljóðfærið og spurði hvort hún
ætti ekki að kenna mér „Gamla
Nóa“ og það gerði hún svo með
krafti sínum og hlátri.
Ég hitti Döggu fyrir þónokkr-
um árum, þegar ég var í Garð-
yrkjuskólanum og átti að greina
plöntur. Ég leitaði þá til hennar
og tók hún mér opnum örmum, en
ekki man ég gjörla hvort við
greindum þessar plöntur því tím-
inn fór aðallega í að spjalla um lið-
in ár og fjölskyldurnar.
Elsku Dagga mín, takk fyrir að
hafa verið mér svona góð, þú
munt ávallt eiga stóran stað í
hjarta mínu.
Elsku börn, tengdabörn og
fjölskyldur ykkar, ég votta ykkur
mína dýpstu samúð.
Kveðja,
Birna Sigmundsdóttir.
Elsku Dagga mín, kæra vin-
kona.
Þú fórst í garðyrkjuskólann
með mér, það hafði verið þinn
draumur.
Sölvi fæðist meðan við erum í
skólanum og við ölum hann upp
saman enda fæddur á alþjóðlega
kvennadaginn.
Við byggjum hús og rekum
garðyrkjustöð saman það var
gaman hjá okkur.
Snæbjörn bróðir þinn (pípar-
inn)aðstoðaði okkur og öll fjöl-
skylda þín lagði hönd á plóginn
við að reisa gróðurhúsin. Eitt sinn
erum við að siða drenginn til og
heyrist þá: „Þið foreldrarnir eruð
alltaf svo vondir við mig.“
Seinna tengdist hann pabba
sínum sterkum og góðum böndum
en þú varst okkur drifkraftur, vís-
dómur og gleði. Með miklu þakk-
læti fyrir samferð okkar á þessari
plánetu,
Guðrún Bjarnadóttir og
annað foreldri Sölva.
Elsku elsku yndislega Dagga
mín, það er svo leiðinlegt þegar
fólk eins og þú er búið að klára líf-
ið og þarf að kveðja. Mig langar
bara aðeins að fá að minnast þín
því ég á svo góðar minningar um
þig og þú hefur alltaf verið uppá-
haldsfrænka mín. Mér fannst þú
alltaf svo stórkostleg, svo
skemmtileg, svo blíð og fyndin og
mér fannst ég vera umvafin gleði
og hlýju nálægt þér. Mér leið svo
vel í návist þinni, elskulegu orðin
þín og röddin þín hljóma alltaf svo
skýrt í huga mér og munu aldrei
gleymast. Hjá þér í Drekavogi
var ævintýraveröld, allskonar dót
úti um allt, mér fannst það hlytu
að vera mikil forréttindi að fá að
búa hjá þér og vera alltaf með þér.
Ég man eftir Destemónu og þeg-
ar hún eignaðist kettlinga í
þvottahúsinu, mér fannst það svo
fallega gert af þér að leyfa dýr á
heimilinu. Mér fannst alltaf sér-
stök tengsl á milli okkar og ég var
svo stolt af því að heita sama nafni
og þú. Ég var reyndar og er enn
þá alveg rígmontin af því. Þegar
við fjölskyldan vorum í heimsókn,
langaði mig ekki heim, við Elín
eyddum dýrmætum tímanum í að
finna ráð til þess að fá fullorðna
fólkið til að leyfa mér að gista, en
því miður fékkst það allt og sjald-
an í gegn og ef það hófst þá vildi
ég gista aftur. Hjá þér voru und-
arlegustu hlutir gerðir eins og að
sitja fyrir framan heitan ljósa-
lampa, ég vissi eiginlega ekkert af
hverju en það skipti engu máli því
mér leið svo vel á eftir. Það var
eiginlega sama hvað það var, hjá
þér var allt svo spes, eins og þeg-
ar þú poppaðir þá settir þú poppið
á rauðan bakka, ekki í skál, því-
líkur snillingur. Það var bara leið-
inlegt fólk sem setti popp í skál.
Ég held að þetta hafi bara verið
það, að mér leið svo vel nálægt
þér, enda man ég aðallega eftir
eldhúsinu. Þú sagðir svo oft
„elsku stelpan“ og það var svo
yndislegt að heyra. Þegar ég var
unglingur og alveg fram á fullorð-
insár, sagði ég þér stundum frá
ýmsum vandamálum og vildi vita
hvernig þú hefðir leyst úr þeim.
Oft tengdust málin pabba og mér
fannst gott að biðja þig um að tala
við hann fyrir mig. Það var svo
margt dýrmætt sem þú gafst mér,
þú sagðir mér margar gamlar
sögur af ykkur systkinunum.
Þegar pabbi dó þá voru allar sög-
urnar ómetanlegar. Ég veit að
það tók á og var áfall fyrir þig
þegar pabbi, sem þú kallaðir
elsku litla bróður þinn, dó en þú
varst búin að upplifa mikinn missi
áður og varst sterk fyrir okkur
öll, allavega á yfirborðinu svo þú
gætir hjálpað okkur hinum. Þú
gafst mér líka mikið með því að
segja mér frá ömmu.
Þegar ég frétti af andláti þínu
varð ég reið yfir því að hafa látið
svona langt líða á milli heimsókna.
Á samkomum stórfjölskyldunnar
hlakkaði ég alltaf mest til að hitta
þig og í jarðaför Esterar föðmuð-
umst við svo hlýtt og innilega, ég
hefði helst viljað hafa þig út af fyr-
ir mig. Það verður erfitt að fylla
upp í það skarð sem myndast við
fráfall þitt, en ég efast ekki um að
þín einstaka fjölskylda finni upp á
allskonar skemmtilegum leiðum
til að halda minningu þinni á lofti.
Þegar ég hitti þig síðast á spít-
alanum fann ég að þú varst alveg
að fara og við myndum sennilega
aldrei hittast aftur. Nú sé ég ykk-
ur systkinin fyrir mér öll saman,
þar væri gaman að vera fluga á
vegg. Nú eruð þið öll fjölskyldan
sameinuð á góðum stað og það
verður yndislegt að koma ein-
hvern tímann til ykkar, bið inni-
lega að heilsa pabba, elsku, elsku
nafna mín.
Dagbjört S. Snæbjörnsdóttir.
Dagbjört Sóley
Snæbjörnsdóttir
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR.
Innilegar þakkir til starfsfólks Landspítala
og Sjúkrahúss Akraness fyrir hlýhug og
góða umönnun.
Magnús E. Theódórsson
Katrín Jóna Theódórsdóttir
Hrönn Theódórsdóttir Matthías Harðarson
Guðjón Theódórsson Ellen Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við
fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
HREINS MÝRDALS BJÖRNSSONAR.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Kærar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir
hlýju og góða umönnun.
Margret Anna Pálmadóttir
Íris Björk Hreinsdóttir Gunnar Smári Tryggvason
Pálmi Aðalbjörn Hreinsson Úna Jóhannsdóttir
Tryggvi Hreinn Gunnarsson
Egill Pálmi Gunnarsson
Sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON,
lést á blóðlækningadeild LSH, 11G,
miðvikudaginn 18. júlí. Útförin fer fram
þriðjudaginn 31. júlí klukkan 13 frá
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Selma Guðmundsdóttir
Guðjón Guðmundsson Ríkey Andrésdóttir
Bára Kolbrún Guðmundsd. Þorsteinn Hermannsson
Berglind Guðmundsdóttir Reynir Óskarsson
Bryndís Björk Guðjónsdóttir
Iða Mary Guðmundsdóttir Ludvig Carl Hilmarsson
og fjölskyldur