Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Verð á mann í
tveggja manna herbergi
ISK159.900
Verð á mann í
tveggja manna herbergi
ISK189.000
Miðað við 2 saman
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Hópferð með Fúsa
á Brekku 11. árið í röð
Bókaðu
snemma!
Uppselt
öll árin
Farið frá Seyðisfirði 5. september
og komið til baka 11. september
Færeyjaferð með Fúsa á Brekku og Svenna
frá Hafursá. Skoðunarferðir, skemmtun,
gisting í 4 nætur á Hótel Færeyjummeð hálfu
fæði. Gist er í Þórshöfn og þaðan er farið í
skoðunarferðir um eyjarnar. Hér getur þú
upplifað Færeyjar með skemmtilegu fólki.
Aðeins
6 sæti
laus
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú kannt að leiða saman ólíka þætti
og andstæða póla. Í því felast leiðtogahæfi-
leikar þínir. Þú hefur líka hæfileika á mörgum
sviðum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þeir eru margir sem vilja ná fundi þín-
um til skrafs og ráðagerða. Ekki bregðast illa
við, þótt samstarfsmenn þínir hafi uppi efa-
semdir um verklag þitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar stór verkefni eru í gangi og í
mörg horn að líta má alltaf búast við að eitt-
hvað fari úrskeiðis. En skjót viðbrögð geta
bjargað málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst þú hafa komið þér vel fyrir
og satt er það, að þú mátt vel njóta árangurs
erfiðis þíns. Mundu að það er undir þér komið
að gera rútínuna skemmtilega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur lengi verið í vernduðu umhverfi
og þarft að komast út úr því. En ef þú bara
breytir örlítið út af þá er dagurinn orðinn
betri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Lífið virðist svo sannarlega brosa við
þér þessa stundina og þér er ekkert of gott
að njóta velgengninnar meðan hún varir. Það
er samt gott að vera við öllu búinn, því ver-
aldargengið er valt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt eiga rólegan dag og gætir feng-
ið óvænta heimsókn sem gleður þig. Þú munt
rekast á gamlan félaga þar sem þú áttir síst
von á honum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú bókstaflega ljómar þessa
dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú kem-
ur. Það er eitthvað í fari þínu sem kallar á
athugasemdir félaga þinna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Heppnin virðist vera með þér
núna og þú munt áður en langt um líður upp-
skera laun erfiðis þíns. Samræður við yf-
irmenn og valdaaðila eru þýðingarmiklar, ekki
flana að neinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur verið erfitt að opna
augu samferðamanna sinna og svo sann-
arlega að hafa það á tilfinningunni að maður
sé einn í heiminum. Talaðu hreint út og já-
kvæð viðbrögð hjálpa þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert í góðri aðstöðu til að taka
ákvarðanir og fá fólk til fylgis við þig. Hafðu
auga á smáatriðunum því þau geta vegið
þungt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er allt í lagi að hampa sjálfum sér
svona af og til ef það er ekki á annarra kostn-
að. Verðlaunaðu þig ef það gengur vel.
Víkverji er að eldast. Um helginafóru allir vinir hans austur á
Seyðisfjörð á tónlistarhátíð. Hann
sat eftir með tiltölulega ósárt ennið
og las þykka skáldsögu. Það var
kærkomin hvíld að fá að njóta sín
ótruflaður heima við heila helgi.
x x x
En þar hlaut að koma að Víkverjifór að ímynda sér að hann væri
að missa af einhverju. Það vill henda
menn þegar þeir eru fjarri góðu
gamni, að þeir fari að sakna vina
sinna. Söknuður, hvað er það?
Bandaríkjamenn segja að það sé
sjúkdómur og kalla heilkennið
FOMO, fear of missing out, ótti um
að missa af e-u, svokallað fómó á
óþvingaðri íslensku.
x x x
Talandi um sjúkdóma. Víkverjiþjáist af hálfgerðu langdegis-
þunglyndi. Honum er nóg boðið af
birtu. Borgin skartar að mati Vík-
verja sínu allra fegursta á dimmum
síðvetrarkvöldum. Þegar götuljós
varpa glampa á regnvot, auð strætin
og borgarbúar hafa rænu á að halda
sig að mestu inni. Þeir sofa þá vel, í
annríki fábreyttra daga. Nú má fara
að rökkva.
x x x
Um listahátíð ofangreinda er þaðannars að segja, að þar eru
menn líka farnir að eldast. Nýjar
kynslóðir hipstera eru farnar að
húkka sér far austur í júlímánuði ár
hvert og þær sem fyrir eru safna ár-
hringjum. Í ofanálag eru líka al-
mennir borgarar farnir að hætta sér
þangað, inn á yfirráðasvæði djúpt
listrænt þenkjandi snillinga. Þurfa
snillingarnir þá ekki nýtt athvarf?
Það er torvelt að tolla í tískunni,
þegar skógur vex af grasrót fylgir
illgresi með.
x x x
Raunar missti Víkverji sennilegaaf litlu um helgina. Hann hefur
ekki sérstakan áhuga á að klæðast
gardínum og taka ofskynjunarlyf. Í
bili hefur hann bara áhuga á slaka á í
legubekknum heima. Árstíðirnar
fara í árhringi og Víkverji sýnir bið-
lund. Eitt er víst, að í vetur fær hann
eins slæmt fómó. vikverji@mbl.is
Víkverji
Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er
hreint, skjöldur er hann öllum sem
leita hælis hjá honum.
(Sálm: 18.31)
ÍVísnahorni á mánudag voru birt-ir fjórði og fimmti kafli mat-
reiðslubókar kattarins Jósefínu
Meulengracht Dietrich sem hún síð-
an setti á fésbókarsíðu sína og á
Boðnarmjöð ásamt þessari vísu:
Nú er rófan öll á iði
orðum sóar Jósefín.
Sýpur nóg af Sónar miði
sælust móins beðjalín.
Ekki stóð á viðbrögðunum. Gísli
Ásgeirsson hóf leikinn:
Ein er læðan uppi á Skaga
elskar gæðamat í kvið.
Fullan træði feitan maga
ef fengi næði átið við.
Helgi Ingólfsson henti boltann á
lofti:
Mjálmar, gramsar matardisk,
malar, kjamsar, vill sinn fisk.
Býsna framsett, breið á kvið,
ef bætt er hamsafloti við.
Nú gat Jósefína Meulengracht
Dietrich ekki orða bundist: „Gísli,
…, Helgi“:
Ljóðin kveð ég litla smáin
og leik mér rétt sem alþjóð veit
létt á fæti lipurtáin
og langt frá því að ég sé feit.
„Ha? Ekki feit?“ spurði Helgi
Ingólfsson:
Gleypti bæði karl og kellu,
kotið, síðan bíl og höll,
jörðu … Kanntu að beita brellu?
Biti þinn er veröld öll.
Þessu svarar Jósefína Meuleng-
racht Dietrich:
Átta karla á einni duggu át ég síðan,
björn og ref og bústna firna
belju sem hét Kreppilhyrna.
Bjarni Stefán Konráðsson: „Snill-
ingar eruð þið!“
Unnur Guttormsdóttir: „Þið eruð
yndi.“
Helgi Ingólfsson aftur:
Berst frá þínum réttum reykur,
refahakk og nautasteikur.
En hross að éta’ er háskaleikur:
Hvar er vakri Fagri-Bleikur?
Ekki stóð á svarinu; –Jósefína
Meulengracht Dietrich:
Læt í hvelli grilla glás
glöð og skelli í steikur
hátt þó gelli hnegg í krás.
Hné að velli Bleikur.
Mér finnst fara vel á því að ljúka
þessu með því að rifja upp vísu Hall-
gríms Péturssonar. – Drengur gekk
hann um á palli þar sem konur voru
að tóvinnu, en köttur sat á kláf und-
ir pallinum og var rifa á milli fjal-
anna, sem rófa kattarins kom upp
um. Hallgrími varð bylt við og orti:
Í huganum var ég hikandi
af hræðslu nærri fallinn;
kattarrófan kvikandi
kom hér upp á pallinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Refahakk og nautasteikur
„HVAÐ MEÐ ÁHUGAMÁL? LEGGURÐU STUND
Á EITTHVAÐ ANNAÐ EN AÐ VINNA EKKI?“
„KOLUR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að búa til góðan
dúett.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HNERRAÐI
Í DAG
VÁ
HVAR FINNURÐU
TÍMANN TIL ÞESS?!
ÞETTA ER AUGLÝSING FRÁ
SPÍTALANUM! ÞEIR VILJA AÐ ÞÚ KÍKIR
Á NÝJU BRÁÐAMÓTTÖKUNA ÞEIRRA!