Jökull - 01.07.2003, Page 80
Steinunn S. Jakobsdóttir
unar og Raunvísindastofnunar á Tungnaárjökli og
Brúarjökli.
10. Gerðar voru íssjármælingar á svæði norðan Esju-
fjalla.
11. Hveradalurinn í Kverkfjöllum og Gengissigið
voru kortlögð með DGPS og staðsetningar helstu
hvera í Hveradalnum mældar. Gengissigið var í þetta
sinn undir þykkum lagnaðarís og snjóþekja ofan á
honum.
Auk ofangreindra rannsóknarverkefna var borin
fúavörn á öll húsin á Grímsfjalli og smíðaður var pall-
ur við suðurgaflKverkfjallaskála. Gerir pallurinn hús-
ið þægilegra fyrir gesti sem þangað koma.
Landsvirkjun lagði fram sleðahýsi og snjóbíl
sinn með bílstjóra. Vegagerðin styrkti félagið til
eldsneytiskaupa og flutninga. Hjálparsveit Skáta í
Reykjavík lagði félaginu lið við flutninga að og frá
jökli. Þessi aðstoð er félaginu mikilvæg og hana ber
að þakka.
Ferðin 2001 var 48. vorferð JÖRFÍ. Einnig voru
45 ár liðin frá fjórðu vorferð félagsins, sem farin var í
júní 1956. Sú ferð var fyrir margra hluta sakir merki-
leg. Sett voru upp landmælingamerki á marga helstu
tinda Vatnajökuls og síðast en ekki síst var hún brúð-
kaupsferð Huldu Filippusdóttur og Árna Kjartansson-
ar. Í þeirri ferð lá leiðin um skeifulaga bungu sunnan
til við Kverkfjöll. Hlaut hún nafnið Brúðarbunga og
varð þannig minnisvarði um þessa fyrstu brúðkaups-
ferð á Vatnajökul. Í ferðinni nú var einnig farið um
Brúðarbungu í Kverkfjöll. En það sem meira var um
vert, Árni og Hulda voru með í ferðinni eins og fyrir
45 árum. Nú eru þau bæði heiðursfélagar Jöklarann-
sóknafélagsins. Einnig voru með í för heiðursfélag-
arnir Ingibjörg Árnadóttir (sem líka var með 1956) og
Ólafur Nielsen. Tryggð gamalla félaga við JÖRFÍ er
félaginu dýrmæt.
Haustferð
Haustferðin á Vatnajökul var farin um miðjan septem-
ber með 9 þátttakendum. Vitjað var um ísskriðs- og
afkomustikurnar, sem settar voru upp í vorferð, veður-
stöðvar teknar niður og jarðskjálftamælistöð og fleiru
sinnt fyrir veturinn.
Sporðamælingar
Jöklamælingamenn vitjuðu jökulsporða á 51 stað
haustið 2001. Af þeim hopuðu 44 jökulsporðar, 1
gekk fram en 6 stóðu í stað. Eins og í fyrra var Leiru-
fjarðarjökull sá eini, sem færðist fram, nú sjöunda árið
í röð. Þeir sem mældust kyrrstæðir voru allir að lækka
og eyðast á bak við aurklæddan sporðinn nema ef til
vill Grímslandsjökull sem var á kafi í snjó í haust. Úr-
koma veturinn 2000/2001 fyrir norðan og austan var
drjúg en lítil annars staðar á landinu. Sömuleiðis var
sumarið ekki tiltakanlega hlýtt og raunar svalt fram-
an af fyrir norðan og á Austurlandi. Haustið var hins
vegar hlýtt alls staðar. Gera má ráð fyrir að jöklar hafi
dafnað á Vestfjörðum, á Norðurlandi og fyrir austan
en rýrnað víðast hvar annars staðar árið 2001. Nú hef-
ur víða eyðst af jöklum það sem þeir gengu fram á
kuldatímabilinu sem hófst á hafísárunum á 7. áratug
síðustu aldar. Meðal þeirra jökla sem standa aftar nú
en nokkru sinni fyrr síðan mælingar hófust eru Naut-
hagajökull, Skeiðarárjökull austanverður, Skaftafells-
jökull, Falljökull, Kvíárjökull, Fjallsjökull, Fláajökull
og jöklarnir í Hornafirði. Breiðamerkurjökull hefur
nokkra sérstöðu meðal íslenskra jökla því að hann er
sá eini sem hefur hopað án afláts alla 20. öldina og
ekki sýnt nein merki þess að vilja stækka á köldu ár-
unum.
Afkomumælingar
Gerðar voru afkomumælingar víðs vegar um Vatna-
jökul og á Langjökli á vegum Landsvirkjunar og
Raunvísindastofnunar Háskólans. Hluti mælinganna
á vestanverðumVatnajökli var unninn í ferðum félags-
ins. Orkustofnun fylgdist með afkomu á Hofsjökli og
Þrándarjökli.
Veðurathuganir á Vatnajökli
Landsvirkjun og Raunvísindastofnun ráku sem fyrr
veðurstöðvar á Vatnajökli yfir sumartímann. Þetta er
gert samhliða afkomumælingunum til að tengja sam-
an veðurþætti og leysingar. Háskólinn í Utrecht í
Hollandi sér um sams konar mælingar á Breiðamerk-
urjökli.
Borleiðangur á Langjökul
Í júlí var gerður helgarleiðangur á Langjökul til að
prófa ískjarnabor, sem Þorsteinn Þorsteinsson fékk að
78 JÖKULL No. 52, 2003